Frjáls verslun - 01.11.2001, Page 34
flNDSTREYMI GILDINGAR
ferðum-Landsýn, með um 31,9% hlut, er það félag varð gjald-
þrota á dögunum. Helstu eignir í skráðum félögum voru í
Pharmaco, Baugi, Össuri og Marel.
Tap annarra fjárfestingarfélaga Þótt sextán mánað saga Gild-
ingar hafi því miður orðið sorgarsaga þá var félagið ekki eitt á
báti ijárfestingarfélaga að tapa miklu fé - það breytir þó litlu
iyrir vonsvikna Jjárfesta sem festu fé í félaginu. En skoðum
afkomu annarra Jjárfestingarfélaga. íslenski hugbúnaðarsjóð-
urinn tapaði tæpum 1,4 milljarði fyrstu níu mánuði ársins. Tap
Þróunarfélagsins nam tæpum 2,4 milljörðum fyrir skatta, tap
Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn, EFA, nam um 920 millj-
ónum fyrir skatta, og Fjárfestingarfélagið Straumur tapaði 880
milljónum króna fyrir skatta fyrstu níu mánuði árs. Þess má
geta að undanfarna mánuði hefur mönnum orðið tíðrætt um
hugsanlega sameiningu EFA og Þróunarfélagsins.
Blikur á Iflfti breyttust í Skýfall Þegar Gilding fór af stað í
byrjun júní í fyrra með þau stórhuga áform sín að ná 25% raun-
ávöxtun á ári og ætla að tvöfalda 7 milljarða eigið fé félagsins
á þremur árum, höfðu ýmsir á orði að þetta væri allt að því
„hrokafullt markmið“ og sumir túlkuðu þetta á sínum tíma
sem skot á önnur ijárfestingarfélög um „það hvernig hægt
væri að gera hlutina“. A þessum tíma var hlutafjármarkaður-
inn í verulegum sárum og hafði hríðfallið í fimm mánuði, eða
frá því úrvalsvísitalan reis hæst í endaðan febrúar í fyrra.
Þegar Frjáls verslun spurði þá Gildingarmenn hvort 25%
markmiðið um ávöxtun væri raunhæft eins og útlitið væri á
hlutabréfamarkaðnum kváðu þeir svo vera þótt vissulega væri
verð hlutabréfa ennþá frekar hátt á markaðnum. Það sem þeir
Gildingarmenn sáu ekki, frekar en aðrir, var að hlutabréfa-
markaðurinn átti eftir að halda áfram hraðferð sinni niður
brekkuna og hefur botninum líklegast ekki verið náð fyrr en
fyrir skömmu. Þegar svo við bættist að gengi krónunnar hríð-
féll - með þeim afleiðingum að erlend lán félagsins stórhækk-
uðu í verði og afkoma fyrirtækja á hlutabréfamarkaði versnaði
stórlega, sem aftur lækkaði verð hlutabréfanna enn meira -
breyttist það sem áður voru kallaðar blikur á lofti hjá Gildingu
í það að verða úrhelli. Þegar gengishrunið mikla varð í júní sl.
var raunar sem steypt væri úr fötu.
Feðgarnir Þórður oy Árni Það voru feðgarnir Þórður Magnús-
son og sonur hans, Árni Oddur, sem áttu hugmyndina að
stofiiun Gildingar. Þeir höfðu brætt með sér ýmsar leiðir, en
hugmyndin að Gildingu fæddist í fyrravor og var félagið stofnað
7. júní í fyrra, árið 2000. Árni Oddur var áður aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Búnaðarbankans Verðbréfa og Þórður faðir hans
hafði unnið sem framkvæmdastjóri ijármálasviðs Eimskips í nær
tvo áratugi og setið í ótal stjórnum fyrirtækja á vegum félagsins.
Til liðs við þá feðga gengu bróðir Þórðar, Magnús Magnússon
og Andri Sveinsson, báðir starfsfélagar Árna Odds í Búnaðar-
bankanum Verðbréfum. Bjarni Þórður Bjarnason, fyrrum starfs-
maður fyrirtækjaþjónustu Kaupþings, bættist síðan í hópinn og
Heimir Haraldsson, framkvæmdastjóri KPMG, kom síðastur inn
í hann. Allt voru þetta óvenju þekktir menn í viðskiptalífinu, enda
vakti stofnun félagsins slíka athygli að hún var á allra vörum í
marga daga og vikur í fyrrasumar. Undanfarnar vikur hefur fé-
lagið þó verið á allra vörum fyrir það hve illa fór um sjóferð þá -
þótt menn skyldu aldrei hlakka yfir óförum annarra.
Lögðu Sjálfir undir Þrátt fyrir háleitt markmið um 25% arð-
semi á ári þótti stofnun Gildingar trúverðug og margir
þekktir ijárfestar komu að stofnun félagsins, sem og
bankarnir í mismunandi mæli þó. Það sem þótti trúverðugast
var að lykilstarfsmenn lögðu allir eignir sínar undir og gerð-
ust hluthafar og tengdust þeir fyrirtækjum sem áttu um
fimmtung í félaginu, eða að andvirði um 1,4 milljarða króna.
Menn sögðu því sem svo: Fínt, þeir hætta sínu eigin fé ekkert
síður en annarra hluthafa, það tryggir árangur.
Hlutaijársöfnun Gildingar gekk afar vel á vormánuðum í
fyrra og tókst að safna mun meira hlutafé en lagt var upp með í
byijun, eða 7 milljörðum í stað 5 milljarða sem stefnt var að.
Hluthafar voru um 50 talsins og var um býsna breiðan hóp að
ræða. Enginn hluthafi eignaðist meira en 9% hlut í fyrirtækinu.
Þorsteinn Vilhelmsson, fyrrum Samheijamaður, var með stærst-
an hlut, 8,82%, ásamt Eignarhaldsfélaginu Eyri, en það er í eigu
þeirra feðga Þórðar og Árna Odds. Þá má geta þess Heimir
Haraldsson á félagið Safn ehf. og var það með 3,70% hlut.
Slerlí tengsl við Búnaðarbanka Það vakti mikla athygli hvað
Gilding hafði sterk tengsl við önnur fjármálafyrirtæki. Við-
skiptabankarnir þrír, Búnaðarbankinn, Landsbanki og Islands-
banki, voru allir í hluthafahópnum sem og Kaupþing og Frjálsi
Jjárfestingarbankinn.
En taki nrenn eftír þvr að Búnaðarbankinn tengdist Gildingu
í gegnum þrjú félög. Bankinn sjálfúr áttí 1,76%, Fjárfestingar-
sjóður Búnaðarbankans átti 4,23% og Hlutabréfasjóður Búnaðar-
bankans átti 1,76%. Þetta gerir samtals 7,75% hlut í Gildingu.
En sögu Gildingar er nú lokið. Þetta var langferð sem lagt
var upp í á fögrum júnídegi í fyrra en breyttíst fljótt og endaði
sem martröð fyrir eigendurna; það sem átti að tvöfaldast á
þremur árum helmingaðist á sextán mánuðum. Út úr óverðrinu
var þó siglt og til hafnar komst báturinn; í öruggan faðm Bún-
aðarbankans. Niðurstaða: Stöðug ágjöf og brostnar vonir. SD
HTT
Heildarlausnir í tölvu- & tæknibunaói]
HT&T ehf. Sætún 8, 125 Reykjavík
Sími 569 1400, Fax 569 1554, www.htt.is
LJOSRIT
&
FAXT ÆKI
TÖLVUTENGJANLEG
34