Frjáls verslun - 01.11.2001, Side 46
ATVINNUHORFUR1 BYGGINGARIÐNAÐI
Er líf eftir
Smáralind?
enslan á byggingamarkaði hefur
greinilega minnkað mjög og eftir-
spurn eftir nýbyggingum, hvort
heldur það eru íbúðabyggingar eða
atvinnuhúsnæði, hefur minnkað. Heyrst
hefur af fjöldauppsögnum hjá bygginga-
mönnum og talað um að 1.000-2.000
manns missi vinnuna í geiranum. Þetta
eru vondar fréttir iyrir iðnaðarmenn sem
undanfarið hafa getað valið úr verkefnum og ekki séð framúr þvi
sem gera þurfti. Það skekkir myndina ofurlítið að talsverður ijöldi
erlendra iðnaðar- og verkamanna hefur
starfað hér á landi en eru margir hveijir
horíhir af landi brott þar sem samningar
þeirra voru tímabundnir og nokkuð var af
sumarstarfsmönnum sem hættir eru. Þó er
það óumdeilanlegt að ijöldi manna kemur
til með að vera atvinnulaus eða atvinnulitill
í vetur og að miklar hræringar eiga sér
stað. Þrátt fyrir þetta bera stóru bygginga-
fyrirtækin sig ekki illa og sum bara býsna vel og segja framundan
stór verkefni sem muni breyta ástandinu aftur til hins betra. ffl
Hvernig er ástandið á bygginga-
markaði í dag þegar Smáralind er
ac) baki og fátt finna kosta virdist
ab finna istórum verkefnum?
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Olafsson
Samtök iðnaðarins:
Miklar hræringar á byggingamarkaði
Eg hef haft þá skoðun að það þenslutímabil, sem rætt hefur
verið um að undanförnu, sé í raun það sem horfa ætti á
sem eðlilegt ástand í þessum geira,“ segir Eyjólfur Bjarna-
son, yfirverkfræðingur og umsjónarmaður bygginga- og verk-
takastarfsemi hjá Samtökum iðnaðarins. „Það er að mínu mati
eðlilegt að verktaki eða meistari, hvort sem hann er að reka
fyrirtæki með tveimur eða 200 manns, eigi að geta séð fram í
tímann varðandi verkefni eins og verið hefur sl. 2-3 ár en ekki
eins og var áður þar sem sami verktaki sá ef til vill 2-3 vikur
fram í tímann og vissi svo ekkert hvað tæki við. Það er á hreinu
að nú verða fyrirtækin að hafa meira fyrir því að leita eftir verk-
Eyjólfur Bjarnason yfir-
verkfræðingur og
umsjónarmaður bygg-
inga- og verktakastarf-
semi hjá Samtökum iðn-
aðarins.
efnum og þurfa að
vera á verði til að fá
þau, fremur en að
verkefni raðist upp
og bíði.
Pressan er að
minnka nú, það fer ekkert á milli mála en hér hafa verið nokkrir
tugir útlendinga sem eru farnir eða að fara og það hefur tekið
mestu spennuna af uppsögnunum. Eg veit ekki hvort þeir
starfsmenn eru taldir með þegar talað eru um hversu mörgum
hefur verið sagt upp.“
Eyjólfur segir stígandann hjá jarðvinnuverktökum aldrei
hafa verið jafnmikinn og hjá almennum byggingaverktökum
og því horfi jarðvinnuverktakar nú fram á heldur magra tíma.
Þó séu stóru fyrirtækin sem halda sjálf utan um alla verkþætti,
betur í stakk búin til að takast á við þá minnkun og geta þar að
auki gert tilboð í stór verk eins og vegaframkvæmdir.
Of lítil Skipulagning „Því miður gerist það reglulega hér á
landi að verkefnum fækkar mjög og sveiflurnar eru ákafar. Eg
er ekki viss um að þetta gerist á hinum Norðurlöndunum í
„Ríki og borg geta á vissan hátt stuðlað að
jafnvægi með því að hægja á framkvæmdum
og bíða með nýframkvæmdir “ segir Eyjólfur
Bjarnason hjá Samtökum iðnaðarins.