Frjáls verslun - 01.11.2001, Qupperneq 48
ATVINNUHORFUR í BYGGINGflRIÐNflÐI
í Laugarnesi. Við erum vel staddir með lóðamál víða á höfuð-
borgarsvæðinu og gerum ráð íyrir að á næsta ári verði áfram
kraftur í íbúðaframkvæmdum í Mosfellsbæ, þar sem við eigum
allt Blikastaðalandið óbyggt, á Seltjarnarnesi, í Reykjavík og á
Alftanesi auk annars. Þannig ætlum við okkur að hafa veruleg
umsvif á þeim markaði og atvinnu fyrir mikið af starfsmönnum
og undirverktökum. Þrátt fyrir að mörgum finnist mikið byggt
af íbúðarhúsnæði á síðustu árum er það minna en sem nemur
árlegri þörf og gerir m.a. Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að uppsafn-
aður skortur á höfuðborgarsvæðinu sé 1.500 - 2.000 íbúðir.
Áhugi á íbúðarkaupum er auðvitað í beinu sambandi við kaup-
getu fólks og atvinnuástand almennt og því er mikilvægt fyrir
okkur eins og aðra að hvorugt rýrni. Við erum á þessu ári að
selja fleiri íbúðir en í fyrra og ætlum að á næsta ári verði enn
vöxtur á þeim hluta markaðarins. Verktakaiðnaðurinn er hins-
vegar alfarið þjónustuiðnaður og það byggir enginn íbúðir eða
annað að gamni sínu heldur í beinum tengslum við það sem er
hægt að selja á hverjum tíma. Við höfum fremur haldið að
okkur höndum við byggingu atvinnuhúsnæðis til frjálsrar sölu
og gerum það áfram en hinsvegar munum við byggja fyrir
ákveðna kaupendur og ráðum yfir lóðum til þess sem hægt er
að heija byggingu á með stuttum fyrirvara."
Framtiðin ræðst af ytri aðstæðum ÍAV tekur öflugan þátt í
almennum útboðsmarkaði en þar eru nýjustu verkefni fyrir-
tækisins þjónustuskáli Alþingis og íþróttahús á Akureyri.
Umsvif á þvl sviði ráðast af áhuga fyrirtækja og stofnana til
framkvæmda og þar rikir nokkur óvissa nú.
Eins og önnur verktakafyrirtæki horfir ÍAV til stækkunar
stóriðju og orkuframkvæmda þeim tengdum. Nokkrum
stórum verkefnum IAV er nýlokið eða að ljúka og má þar
nefna hjúkrunarheimili við Sóltún, innréttingar í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar og byggingu Vatnsfellsvirkjunar þar sem á
þriðja hundrað manns hafa byggt nýjustu vatnsaflsvirkjun
Landsvirkjunar á mettíma.
„Framtíðin ræðst verulega af því hvernig siglingu þjóðar-
skútunnar reiðir af á næstunni því að fáar atvinnugreinar eru
eins háðar ytri aðstæðum og verktakaiðnaður," segir Stefán.
„Sjálfir erum við bjartsýnir á að birti til fljótlega því að við
erum sammála þeim sem segja að bæði staða íslensku krón-
unnar og vaxtastig sé algjörlega óraunhæft um þessar
mundir og því muni sú staða leita til baka í ásættanlegra jafn-
vægi og jafnframt að þau stórverkefni í vegagerð og stóriðju-
framkvæmdum sem framundan eru muni veita nýjum krafti í
verktakastarfsemi almennt strax á næsta ári.
Hvað varðar LAV sérstaklega gerum við ráð fyrir skapa
okkur verkefni sem tryggja starfsmönnum okkar áframhald-
andi atvinnu en toppar ráðast alltaf í þessum iðnaði af ein-
stökum tilfallandi verkefnum sem við öflum okkur. Eignar-
hald félagsins á lóðum og lendum skapar félaginu ákveðna
sérstöðu meðal verktaka en með því móti getum við boðið
fólki, fyrirtækjum og opinberum aðilum lausnir sem annars
væri ekki hægt. Að öllu samanlögðu eru horfurnar hjá ÍAV til
næstu ára góðar þó að ljóst sé að einhver samdráttur verði
óumflýjanlega í bygginga- og verktakastarfsemi á allra næstu
mánuðum og að við því verður auðvitað að bregðast.“S!]
Keflavíkurverktakar:
Viðhald setið á hakanum
Það eru næg verkefni framundan," segir Kári
Arngrímsson, yfirverkfræðingur hjá Kefla-
víkurverktökum. „Markmið okkar hefur ekki
verið það að keppa við litlu byggingafyrirtækin í
nýframkvæmdum heldur vinna að stærri verkefnum
og það eru næg sóknarfæri framundan. Við höfum
verið að feta okkur út fyrir Keflavíkurflugvöll en
höfum alla tíð lagt meiri áherslu á viðhald og þjón-
ustu en beinlínis nýframkvæmdir, s.s. jarðvinnu og
uppsteypu bygginga. Uppsetning hverskonar lagna-
kerfa hafa einnig verið sérgrein okkar. Við sækjum
talsvert í lokuð útboð og erum sífellt með einhver
slík í farvatninu. Eg hef fulla trú á því að nú, þegar að-
eins hægir á nýbyggingum, muni verða aukin eftir-
spurn eftir þjónustu og viðhaldi því margt hefur set-
ið á hakanum í þenslunni að undanförnu."
Nyr biúnustusamningur Þessa dagana eru Kefla-
víkurverktakar m.a. að vinna að tilboði skv. alútboði
í Saltfiskssetur í Grindavík en það er ný hugmynd,
tengd sögunni og ætlað að nokkru fyrir ferðamenn.
Einnig er fyrirtækið að vinna að viðbyggingu við
Sandgerðisskóla sem skila á í vor og nýlega fékk það
í útboði um 900 milljóna króna þjónustusaming við
Varnarliðið en flest stærstu verkefni fyrirtækisins í
dag eru unnin innan
varnarsvæða.
„Við höfum verið
að bæta við okkur
mannskap en í stað-
inn fækka undirverk-
tökum,“ segir Kári.
„Veltan hefur verið
þokkaleg hjá okkur
og fer vaxandi. Við
erum með um 230
starfsmenn og af
þeim bættust nýlega
við 65 manns í
tengslum við nýjan
þjónustusamning.
Það er því engin
svartsýni ríkjandi
hjá okkur.“
Styttist í álver
Þegar kreppir að
er alltaf möguleiki
á því að launin
lækki og Kári er
spurður um það.
„Stóru verktak-
arnir eru með mikið af undirverktökum sem þerjast
um vinnuna og ef launin lækka þá er það þar og
48