Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2001, Page 59

Frjáls verslun - 01.11.2001, Page 59
notendur vefsins reiknað út eignastöðu og hversu mikil áhrif ný lántaka hefur á fjárhaginn. Með þessu fæst skýr heildar- mynd af fjárhag heimilisins. Auð- velt er að nota vefinn. Leiðbein- ingar eru með hverjum hluta og alltaf Ijóst hvað á að gera næst. Notendur vefsins geta síðan vistað upplýsingarnar, sótt aftur og breytt. Einnig er hægt að sækja um ráðgjöf hjá þjónustufull- trúum. Á vefnum er einnig að finna ýmsar upplýsingar frá verð- bréfasérfræðingum SPRQN um hvernig best sé að skipta eignum milli mismunandi verðbréfa út frá gefnum forsendum. Hagur.is, verkefnahópur: Sverrir ðrn Þnrðarsnn, Sigríður Jnnsdnttir ng Geir Þnrðarsnn. Fólk vill hafa yfirsýn Geir Þórðarson forstöðumaður segir að markmið SPRON og Net- bankans - nb.is með vefnum sé að veita viðskiptavinum betri þjón- ustu. „Það eru sífellt fleiri sem vilja bjarga sér sjálfir í gegnum Netið óháð stað og stund. Fólk vill geta haft yfirsýn yfir fjármálin og geta séð með einföldum hætti hvort ráðrúm er til fjárfestinga eða hvort ástæða er til að endurmeta fjármál heimilisins." Á vefnum er svæði sem opið er öllum. Þar er að finna orða- safn yfir algeng fjármálahugtök, upplýsingar um skattamál, almenn atriði um húsnæðiskaup, lánamöguleika, tryggingar og upplýsingar um sparnað og ávöxtun og ýmsar reiknivélar. Ljóst er að fjölmargir munu fagna því að geta sest niður og séð ó einfaldan hátt hvernig fjármálum heimílisins er háttað - þó ekki sé til annars en að sannfæra sig um að þau séu í góðu lagi! Frá því hagur.is fór í loftið hafa á annað þúsund aðilar skráð sig inn á vefinn. Það sem hægt er að gera á hagur.is er m.a. að: • skipuleggja sparnað • endurmeta lántökur og greiðslubyrði lána á einfaldan hátt • setja útgjöldum fjölskyldunnar takmörk • reikna út hversu mikil áhrif ný lántaka hefur á fjárhaginn • leggja mat á eignastöðu • vista niðurstöður og breyta forsendum síðar • fá ráðleggíngar þjónustufulltrúa • fá skýra mynd af fjármálum heimilisins Þegar þú byrjsr að nota Hag er gott að fylla fyrst út tekjuhlutann. Þú ert leiddur áfram á mjög einfaldan og þægilegan hátt og færð áuallt leiðbeiningar um huað sé best að gera næst. Vefurinn er mjög not- endauænn og þegar þú hefur farið í gegnum alla fjóra liðina færð þú á endanum upplýsingar um stöð- una í fjármálunum sem mjög auðuelt er að lesa úr. AUGLÝSINGAKYNNING 59

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.