Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2001, Side 68

Frjáls verslun - 01.11.2001, Side 68
UM ARAMÓT Hvao segja þau Frjáls verslun bað nokkra stjórnendur í viðskiptalífinu um að svara eftirfarandi spurningum eins og hefð hefur verið um áramót. Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Myndir Geir Olafsson 1. Huað stóð upp úr hjá fyrirtæki þínu á árinu? 2. Huernig metur þú stöðuna á næsta ári, 2002? 3. En fyrir greinina í tíeild? ' 4. Huað uar minnistæðast hjá þér sjálfum á árinu? Andri Már Ingólfsson forstjóri Heirasferða Gömlu gildin viöurkennd Eftirminnilegast á árinu er auðvitað sú mikla aukning viðskipta sem Heimsferðir voru aðnjótandi og sú ánægjulega staðreynd að við erum að skila 50% aukningu í ár á sama tíma og samdráttur virðist vera á markaði. Við erum að uppskera vinnu margra ára, og ég tel að nú sé sá tími að fara í hönd að gömlu gildin verði viðurkennd að nýju, menn uppskera eins og þeir sá. Horfurnar eru góðar og ég á von á góðu ári 2002. Það hefur átt sér stað þörf leið- rétting á væntingum í þjóðfélaginu, sem er af hinu góða, og ég held að neytendur og fyrirtæki fari af meiri varkárni inn í nýtt ár, með raunhæfari væntingar. Þegar kreppir að, eins og gerst hefúr síðustu mánuði, þá kemur glöggt í Ijós styrkur þeirra fyrirtækja sem eru með grunninn í lagi. Það skiptir miklu í svona litlu hagkerfi eins og við búum í, að fyrirtæki hafi mikinn sveigjanleika í rekstri. Eg hlakka til nýja ársins. Þegar miklar sviptingar verða, hafa þær oft átt sér langan aðdraganda, og það skapar ný og spennandi tækifæri. Heimurinn er að breytast hratt og það er spennandi að vera þátttakandi í þeirri breytingu. 33 Linda Pétursdóttir formaður FKA, Félags kvenna í atvinnurekstri Þenslan farín að minnka Stækkun fyrirtækisins á haustmánuðum ber hæst á árinu, en Baðhúsið er nú í eigin húsnæði sem er um 2.000 m2. Þetta er sumsé fyrsti veturinn í þetta stóru húsnæði með tilheyrandi auknum umsvifum. Horfurnar eru góðar fyrir komandi ár enda er almenn aukning í þessum geira um heim allan. Svo er alltof mikil þensla síðastliðin ár farin að minnka, sem hefur jákvæð áhrif á launaþenslu undanfarinna ára í fyrirtækinu. Mér er m.a. minnisstætt að hafa verið kosin formaður Félags kvenna í at- vinnurekstri, FKA. Sli 68

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.