Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2001, Síða 86

Frjáls verslun - 01.11.2001, Síða 86
LUNDÚNAPISTILL SIGRÚNAR venjum. Þetta hefðu þó aðeins örfáir vegfarendur komist á snoðir um ef McDonald’s hefði ekki tekið að sér að auglýsa ásakanirnar með því að draga þau tvö fyrir dóm. Tvímenningarnir komu frábærlega vel fyrir í fjölmiðlum, málið varð lengsta meiðyrðamál í enskri réttarsögu og það kostaði McDonald’s tíu milljónir punda að tapa bæði málinu og mannorðinu. Levi’s vann málaferlin við Tesco Galla- buxnarisinn Levi’s fór betur út úr mála- ferlum við búðakeðjuna Tesco, sem hafði gerst svo ósvífin að flytja inn Levi’s gallabuxur frá láglaunalöndum og selja þær ódýrar en Levi’s í eigin búðum. Tesco tapaði þessu máli gegn Levi’s fyrir að reyna að selja heima- mönnum gallabuxurnar ódýrar en Levi’s vill. Stefna Levi’s er að skylda kaupendur að kaupa þær með aðstoð sérhæfðs Levi’s starfsfólks í Levi’s búðum. Evrópudómstóllinn dæmdi að mikið rétt, algjör óhæfa að kaupa Levi’s leiðbeiningalaust í kjörbúðum með soðningu og kartöflum. Dómurinn saxaði bæði á vinsældir Levi’s og Evr- ópusambandsins, sem stendur í heldur lágum kúrs í Bretlandi. Levi’s ætlar að efla sínar vinsældir með því að lækka verðið, auðvitað óháð dómnum, en ekkert hefúr frést af vinsældaeflandi ráðstöfunum ESB. Umsögn Guardian um hrikalegt hrun Enros Hrikalegt hrun al- þjóðafyrirtækisins Enrons skók breskan fjárrnálaheim og ruddi forsíðurnar hér eins og annars staðar. Nokkur þúsund starfsmenn Enron missa vinnuna og hrunið hefur áhrif á orku- og vatnsveitur hér í eigu Enron. Þar með bættist enn ein rök- semdin við andmælasafn þeirra, sem eru andsnúnir einkavæð- ingu Margaretar Thatcher á þjóðfélagsinnviðum. Stöðug vand- ræði einkavædda lestarkerfisins eru viðvarandi deiluefni hér. En fréttin kom ekki öllum á óvart. Gu- ardian birti strax opnugrein um slóð Enrons um heiminn. Fyrirtækið, sem var margverðlaunað fyrir rekstrar- snilld, hafði í öðrum heimshlutum á sér orð fyrir mútur, umhverfisspjöll og virð- ingarieysi fyrir mannréttindum. Má þá ekki eins búast við þvi að virðing fyrir bókhaldi og réttum upplýsingum sé líka af skornum skammti? Abby Cohen og Kirk Douglas „Þegar maður verður frægur breytist maður ekki sjálfur, heldur breytist framkoma allra hinna við mann.“ Þetta er haft eftir leikaranum Kirk Douglas. Setn- ingin kom upp í hugann á blaðamanna- fundi þegar Abby Cohen, sem í ijár- málaheiminum er í guðatölu fyrir glöggskyggni, mætti til að fræða við- stadda um heimssýn sína og Goldman Sachs. Cohen er makalaust geðfelld kona á miðjum aldri með stutt, grátt og strítt hár, yfirlætislaus í framkomu og klæðaburði, klædd í grátt og svart, með lítið af glingri á sér. Það var ekkert nema framkoma við- staddra og samstarfsmanns hennar við hana sem benti til þess að þarna væri goðumlík vera á ferð. Tveir Ijósmynd- arar virtust mættir eingöngu til að ljós- mynda hverja einustu hreyfingu hennar. Hún notaði ekki tölvustýrðar glærur, heldur dreifði digrum skýrslum með framvinduspám og var þægilega laus við þessa skyldubrandara sem bandarískir fyrirlesarar slá um sig með. Cohen leggur sig fram við áhugaverðar og vandaðar ábendingar. Cohen er bjartsýn í stuttu máli er Cohen bjartsýn. Reyndar ekki alveg jafn bjartsýn á breskar horfur og Gordon Brown, evruaðild Breta vildi hún ekki spá í og Japan álítur hún í alvar- legri tilvistarkreppu, ekki bara efnahagskreppu, vegna inn- byggðra kerfisgalla. Atburðirnir 11. september hefðu aukið á en ekki skapað vandann, sem þegar hefði verið orðinn ljós, ekki síst í ýmsum framleiðslugreinum. Cohen benti á að kannanir sýndu auknar væntingar neytenda, samanber hækkandi fast- eignaverð. Væntingar framkvæmdastjóra fyrir- tækja skiptu þó meira máli. Þeir væru ekki ýkja glaðir um þessar mundir, væru að segja upp fólki, skera niður kostnað og þá líka aug- lýsingakostnað, sem hefði áhrif víða. Málflutningur hennar var þannig að ég vildi hiklaust trúa henni. Og það er reyndar eins gott, því að Cohen er í þannig stöðu að ef nógu margir trúa henni þá breytist vatn kannski ekki í vín og bjórinn á íslandi fer ekki niður úr fimm pundum - en niðursveifla gæti allavega hæglega breyst í uppsveiflu. Œl MewiiM -setur brag á sérhvern dag! pr ^ 200 m Tesco tapaði máli gegn Levi’s gallabuxnafyrirtækinu fyrir að reyna að selja heimamönnum gallabuxurnar ódýrar en Levi’s vill. McDonald’s mátti lúta í gras fyrir kínverskum eiganda McChina. Umfjöllunin um Island og íslensk fyrirtæki hefur verið drjúg í Englandi. Reykjavík er ofursvöl borg - það vita allir hér, þó fæstum sé almennilega Ijóst af hverju. Hámarkið - alla vega hingað til - var grein á árinu um pakkaferðir á Ungfrú ísland-keppnina þar sem þátttakendum var boðið að hitta stelpurnar. 86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.