Frjáls verslun - 01.11.2001, Síða 90
Hallur Hallsson segir Keikó „magnaða skeþnu“ og vera mjög forvitinn um umhverfi sitt. „Þegar ég kem út
í Eyjar fylgist hann með, því hann gerir greinarmun á fólki og þekkir það í sundur, “ segir hann.
Fv-mynd: Geir Olafsson
FÓLK
um en alltaf komið aftur. Eitt
sinn gerðist það að við vorum
undir Þrídröngum og þá kom
hvalavaða að. Þá fór Keikó
undir bátinn okkar og hóf að
gefa frá sér hátíðnihljóð, ekki
ólíkt gelti. Við vitum ekki
hvað var í gangi, hvort hann
var að stugga við hvölunum,
en þeir sneru frá og fóru.“
Hallur er fæddur í Reykja-
vík, á Vesturgötunni, árið
1951 og er kvæntur Lísu
Kjartansdóttur. Þau hjón eiga
tvo syni, Arnar og Hall Má.
Hallur er kennari að mennt
og kenndi um tíma, en eftir
nám í HI var hann einn af
stofnendum Dagblaðsins árið
1975. Það hefur svolítið fylgt
Halli að söðla um og skipta
um starf af og til og þannig
hætti hann á Dagblaðinu árið
1979 og fór að vinna á
Morgunblaðinu sem blaða-
maður. Hann var þar til ársins
1986 er hann fór til Sjónvarps-
ins þar sem hann vann til árs-
Hallur Hallsson, Pro PR
Effir Vigdisi Stefánsdóttur
Hallur Hallsson hefur
komið víða við en yfir-
leitt á einhvern hátt
opinberlega. Nýlega stofnaði
hann kynningaiyrirtækið Pro
Public Relations á íslandi
ásamt Sigursteini Mássyni,
fyrrverandi fréttamanni.
Fyrirtækið sér um kynningar
og auglýsinga- og markaðs-
setningu fyrirtækja fyrst og
fremst, en kemur að ýmsu
öðru eftir því sem við á og
þörf krefur.
„Eg ákvað að slá til þegar
menn komu með hugmynd
að þessu fyrirtæki því mér
þótti tími til kominn að takast
á við breytingar, sem ég stóð
frammi fyrir,“ segir Hallur.
„Eg hef fram til þessa verið
með fyrirtæki sem ég hef
byggt upp í kring um sjálfan
mig og kallað inn fólk eftir
þörfum. Nú verður hins vegar
talsverð breyting þar á og
starfsmenn eru þegar orðnir
sex. Grundvallarhugsunin er
að greina þarfir fyrirtækja út
frá PR eða almannatengslum.
Við metum þariir og mögu-
leika á útrás og skoðum aug-
lýsingaþáttinn og höfum þar
til liðs við okkur Einar
Magnús Magnússon. Feiki-
lega hæfur maður með víð-
tæka reynslu á þessu sviði.“
I tilefni stofnunar fyrirtæk-
isins var gefin út bókin „Hver
tók ostinn minn?“ í samvinnu
við Bjarna Hauk Þórsson,
hellisbúa, en hún fjallar um
breytingar - dæmisaga sem
notíð hefur mikilla vinsælda
og selst í yfir 10 milljón ein-
tökum. Bókin er um ijóra
félaga í Ostalandi, sem
skyndilega standa frammi
fyrir víðtækum breytingum.
Þeir lifðu í vellystingum og
áttu gnægð osta en einn góð-
an veðurdag hvarf allur ostur
og þá voru góð ráð dýr. Sagan
fjallar um viðbrögð þeirra en
osturinn er myndlíking fyrir
allt sem maðurinn á og hefur.
„Við teljum þessa einföldu
sögu eiga mikið erindi til les-
enda en hún hefur raunar
slegið í gegn allsstaðar þar
sem hún hefur verið gefin
út,“ segir Hallur.
Hallur segist hafa fengist
við margvísleg verkefni um
ævina en Keikó sé þeirra
stærst. Hann segir Keikó
„magnaða skepnu“ og vera
mjög forvitínn um umhverfi
sitt. „Þegar ég kem út í Eyjar
fylgist hann með, því að hann
gerir greinarmun á fólki.
Hann er sérstaklega hrifinn
af börnum en þekkir okkur
sem hann umgengst vel og
kemur tíl okkar ekki ósvipað
því sem vel þjálfaður hundur
myndi gera. Hann hefur oft
tekið það upp hjá sjálfum sér
að fara frá okkur og skoða sig
ins 1989 er hann færði sig yfir
á Stöð 2. Árið 1994 stofnaði
Hallur svo fyrirtækið Menn
og málefni sem hann hefur
rekið allar götur síðan.
Stærstu áhugmál Halls
eru náttúran og náttúru-
vernd.
„Mér er allt sem viðkemur
náttúrunni hjartans mál og
auðvitað hef ég tengst viða-
miklu verkefni þar sem nátt-
úran hefur verið mjög sýni-
leg, ekki bara á Islandi, held-
ur um allan heim,“ segir
hann. „Það er auðvitað Keikó-
verkefnið þar sem við erum
ekki bara að fræðast um
Keikó sjálfan heldur einnig
um hafið og lífið í því í
gegnum háhyrninginn. Eg er
Víkingur, var formaður og hef
mikinn áhuga á íþróttum. Þar
fyrir utan er starfið áhugamál
og það stórt, ekki má gleyma
því, og það tekur upp ansi
stóran hluta af tíma mínum.“B!j
90