Frjáls verslun - 01.01.2002, Síða 44
Einkaleyfastofan er ríkisstofnun sem starfar undir yfirstjórn
iðnaðarráðherra. Hún uar sett á laggirnar þann 1. júlí 1991
og tók þá uið hlutuerki einkaleyfa- og uörumerkjadeildar
iðnaðarráðuneytisins.
Stofnunin er nú til húsa a3 Skúlagötu 63 í Reykjavík. í dag starfa
22 hjá Einkaleyfastofunni en hlutverk hennar er fyrst og fremst
að taka við og meðhöndla umsóknir um einkaleyfi, vörumerki og
hönnunarvernd. ( því felst einnig að veita einstaklingum, stofnun-
um og atvinnufyrirtækjum
upplýsingar og ráðgjöf
varðandi hugverkaréttindi
í iðnaði og stuðla að því að
ný tækni og þekking, sem
felst í skráðum hugverka-
réttindum, verði aðgengi-
leg almenningi.
Huað má vernda?
Með vörumerkjalögunum
eru vernduð auðkenni fyrir
vöru og þjónustu. Hlutverk
þeirra er að greina vöru
eða þjónustu eins aðila frá
vöru eða þjónustu ann-
arra.Vörumerki geta verið
orð, orðasambönd,
myndir, slagorð, umbúðir
eða sambland af þessu.
Stundum eru firmaheiti
einnig notuð sem vöru-
merki, t.d. Skýrr eða Eim-
skip. Vörumerki geta verið mjög verðmæt, sem dæmi má nefna
að þegar Jaguarverksmiðjurnar voru seldar var vörumerkið verð-
mætasta einstaka eignin. Það er t.d. erfitt að verðmeta Coke
vörumerkið.
Með hönnunarlögunum er hægt að vernda útlit vöru. Mikil-
vægt er að í umsókn séu skýrar myndir af hönnuninni, því hér
er einungis um útlitsvernd að ræða.
Einkaleyfalögin vernda uppfinningar tæknilegs eðlis. Uppfinn-
ingar geta verið fólgnar í
aðferð eða notkun. Þá
geta uppfinningar verið
hvers kyns tæki eða bún-
aður og þær geta einnig
verið afurðir, t.d. lyf.
Alþjóðlegir
samningar
Þar sem ísland er nú aðili
að mörgum alþjóðlegum
hugverkaréttasamningum,
hefur umsóknum fjölgað
nokkuð mikið á undan-
förnum árum. „Aukning
umsóknanna er aðallega
vegna aðildar að PCT-
samningnum um alþjóð-
legar einkaleyfisumsóknir
og Madridbókuninni um al-
þjóðlega skráningu vöru-
merkja," segir Ásta Valdi-
marsdóttir, forstjóri
Á síðasta ári fluttí Einkaleyfastofan að Skúlagötu G3, Reykjavík.
Einkaleyfastofan veitir upplýsingar og ráðgjöf til þeirra sem vilja sækja
um vernd, m.a. um það hvers konar hugverkavernd á við í hverju til-
viki. Þá er hægt að fá uppiýsingar um þá alþjóðlega samninga sem
ísland er aðili að og leiðbeiningar um hvernig bera skuli sig að við að
sækja um: alþjóðfega vernd:. Einkaleyfastofan framkvæmir einnig gegn
gjaldi tölvuleit að ýmsum upplýsingum í einkaleyfaskrá, vörumerkja-
skrá og hönnunarskrá.
44