Frjáls verslun - 01.01.2002, Page 53
EFNAHAGSRÁÐGJAFAR BÍKISSTJÓRNfl
mynda ríkisstjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar í febrúarbyrjun
1947. Síðar á því ári voru þeir Olafur Björnsson og Gylfi Þ.
Gíslason kallaðir tíl að gefa rikissbórn Stefáns Jóhanns álit. Gylfi
var þá orðinn prófessor í viðskiptafræðum við Háskóla íslands,
Olafur varð hins vegar prófessor í hagfræði ári síðar, 1948. Hag-
fræðinganefndin, þ.e. ijórmenningarnir Jónas, Klemens, Gylfi
og Olafur, var síðan aftur kölluð tíl álitsgerðar árið 1948 fyrir
ríkisstjórn Stefáns Jóhanns.
Þáttur Benjamíns J. Eiríkssonar En þá er komið að þættí Benja
míns J. Eiríkssonar hagfræðings. Hann var kallaður heim til
íslands árið 1949 að beiðni ríkisstjórnar Stefáns Jóhanns
Stefánssonar. Sagt er að Bjarni Benediktsson, sem var utanríkis-
ráðherra í þeirri stjórn, hafi hitt Benjamín útí í Washington í
Bandaríkjunum og óskað eftir kröftum hans. Benjamín útskrif-
aðist sem doktor í hagfræði frá Harvard háskólanum í Banda-
ríkjunum árið 1946 og hóf að því nárni loknu störf hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum í Washington þar sem hann starfaði til ársins
1951. Benjamín útbjó mikla skýrslu fyrir stjórn Stefáns Jóhanns
og skilaði henni af sér sumarið 1949. Stjórn Stefáns Jóhanns fór
frá í desember 1949. Stjórn Ólafs Thors tók við og fór Ólafur
Thors þess á leit við Benjamín að hann kæmi heim aftur um
stundarsakir til að veita efnahagslega ráðgjöf. Benja-
mín varð við þeirri ósk og sömdu hann og Ólafur
Björnsson prófessor skýrslu og frumvarp sem lá til
grundvallar gengisbreytingunni 1950. Sú álitsgerð
sem þeir gáfu var að miklu lejrti sú sama og Benja-
mín hafði skrifað um sumarið árið áður.
Benjamín kom síðan alkominn heim frá Alþjóða-
sjóðnum í Washington 1951 og var ráðinn sem sér-
stakur efnahagsráðunautur ríkisstjórnar íslands,
ríkisstjórnar Steingríms Steinþórssonar. Þetta var
fast starf hjá Benjamín og var hann samkvæmt
þessu íýrsti fastráðni efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar
á Islandi. Gegndi hann því starfi til ársins 1953 er
hann var ráðinn bankastjóri Framkvæmdabanka
íslands. Eitt af fyrstu verkum Benjarrúns var að
stofna hagdeild við bankann sem væri stjórnvöldum
tíl leiðbeiningar í efnahagsmálum. A þessum tíma
voru ekki til neinir þjóðhagsreikningar og lagði
Benjamín áherslu á að þeir yrðu gerðir. Torfi
Asgeirsson hagfræðingur, sem var starfsmaður
hagdeildarinnar, fór út til Bandaríkjanna tíl að kynna
sér gerð þjóðhagsreikninga og dvaldi hann þar í sex
mánuði. Bjarni Bragi Jónsson kom til starfa hjá hag-
deild Framkvæmdabankans árið 1955 og hóf störf
við gerð þjóðhagsreikninga með Torfa. Það var svo
árið 1960 sem bankinn birti fyrstu þjóðhags-
reikninga Islendinga.
Júnas Haralz, annar fastráðni efnahagsráðgjafinn
Jónas Haralz hagfræðingur varð annar fastráðni
efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar á íslandi - kom næstur
á eftír Benjamín. Hann var ráðinn sem efnahagsráð-
gjafi vinstri stjórnar Hermanns Jónassonar árið 1957
og hélt því starfi áfram fyrir stjórn Emils Jónssonar
sem tók við völdum á Þorláksmessu 1958 og sömu-
leiðis fyrir viðreisnarstjórn Ólafs Thors sem komst
til valda í nóvember 1959. Jónas var í starfi ethahags-
ráðgjafa þeirrar ríkisstjórnar tíl ársins 1961. Hann
vann því jafnt fyrir vinstri stjórnir sem hægri stjórn á þessum
árum. Því má bæta við að Jónas var settur ráðuneytisstjóri í við-
skiptaráðuneytinu árið 1958 í Jjarveru Þórhalls Asgeirssonar sem
hóf störf til fjögurra ára hjá Alþjóðagjaldejrrissjóðnum í Was-
hington. Ur viðskiptaráðuneytínu fór Jónas árið 1961 þegar sér-
stakt efnahagsráðuneyti var stofnað. Þar var hann skipaður ráðu-
neytisstjóri ásamt því að vera sérstakur ráðunautur stjórnvalda í
markaðsmálum Evrópu. Efnahagsráðuneytíð var síðan lagt niður
árið 1962 þegar Ethahagsstofnunin tók tíl starfa og varð Jónas
fyrsti forstjóri hennar. Efnahagsstofnun hafði sérstaka stjórn yfir
sér. Fyrsta stjórn hennar var skipuð þeim Sigtryggi Klemens-
syni, ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, Hemensi Tryggva-
syni hagstofustjóra, Jóhannesi Nordal seðlabankastjóra og Benja-
mín J. Eiríkssyni, bankastjóra Framkvæmdabankans.
Saga efnahagsráðgjafa ríkisstjórna á Islandi sýnir að þeir hafa
komið og farið - og í raun má segja það sama um efnahagsstofn-
anir; að minnsta kosti hefur verið auðvelt að skipta um nöfn á
þeim. Auðvitað er allt breytíngum háð í henni veröld og auðvelt
að falla í þá grytju að hafa „nostalgíu" gagnvart gömlum stofn-
unum sem baðaðar hafa verið miklum Ijóma. Eftír stendur hins
vegar að það er sitthvað að leggja niður fúnksjónir eða að skipta
um nafn á þeim - sem og á yfirmönnum þeirra. 35
Öryggisskáparnir frá Rosengrens
eru traust geymsla fyrir peninga,
skjöl, tölvugögn og önnur verð-
mæti. Skáparnir sem em í hæsta
gæðaflokki fást í ýmsum stærðum
og gerðum. Kynnið ykkur úrvalið.
Bedco & Mathiesen ehf
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími 565 1000
53