Frjáls verslun - 01.01.2002, Side 104
Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík.
Listahátíð í
Efdr Vigdísi Stefánsdóttur
W
Imaí verður haldin Listahátíð í Reykjavík í 17. sinn, en það var
árið 1970 sem hún var fyrst haldin. Hátíðin hefur verið haldin
annað hvert ár síðan. Nú er Þórunn Sigurðardóttir, sem var
stjórnandi Menningarborgarinnar, listrænn sljórnandi hátíðar-
innar, en ásamt henni eru fjórir á skrifstofunni. Líkt og menn-
ingarborgin fær Listahátíð stuðning ýmissa íyrirtækja og
stofnana og léttir það óneitanlega starfið þar sem heildarvelta
hátíðarinnar mun væntanlega verða um 110 milljónir. „Það er
ánægjulegt að sjá þessi fyrirtæki koma að listviðburðunum á
slíkan hátt,“ segir Þórunn. „Það er bæði um að ræða fyrirtæki
sem sfyrkja hátíðina í heild, eins og t.d. Eimskip og Búnaðarbank-
ann, sem er máttarstólpi hátíðarinnar, og einnig Flugleiðir sem
við erum í miklu samsfarfi við. Þar fyrir utan eru pldamörg fyrir-
tæki sem styrkja einstaka viðburði myndarlega og fleiri fyrirtæki
eiga eftir að bætast við fram á vorið.“
Ríki og borg láta hvort um sig 25 milljónir renna til Listahá-
tíðar og er það hliðstætt því framlagi og verið hefur, eða tæplega
U
Frá kynningu á Listahátíð í Iðnó 31. janúar sl. Hrefna Haraldsdóttir
framkvœmdastjóri, Þórunn Sigurðardóttir stjórnandi ogHalldór Guð-
mundsson stjórnarformaður.
LISTAHATÍÐ í REYKJAVÍK
helmingur þess sem hátíðin kostar. Annað fé er sjálfsaflafé sem
að hluta kemur irá fyrirtækjum en þó að mestu frá aðgöngumiða-
sölu o.s.frv. „Mér finnst sérstaklega ánægjulegt að sjá bankana
koma inn í þetta samstarf og sýnir það að þeir skilja vel hlutverk
sitt og líta á stuðning við listviðburði á heimsvísu sem hluta af
sínum þjóðhagslegu skyldum," segir Þórunn. „Margir viðburðir
eru friir og má nefna sem dæmi hádegistónleikana ,jýrir augu og
eyru,“ sem verða á listasöfnum, tengdir myndlistasýningum sem
þar verða. Einnig verða á virkum dögum kl. 17 beinar útsend-
ingar á Rás 1 á frumsömdum íslenskum örleikverkum undir sam-
heitinu „Níu virkir daga“,“ segir Þórunn.
Margir þekktir listamenn koma fram á þessari listahátíð eins
og áður og frá allmörgum löndum. Athygli vekur að stórir hópar
koma nú frá Argentínu, Rúmeníu og Kúbu, en allt eru þetta lista-
menn sem vakið hafa heimsathygli, hver á sínu sviði.
Fjöldi gesta á NATO þingi Margir af listviðburðunum munu eiga
sér stað vikuna sem NATO þingið verður hér á landi en þá verður
hér fjöldi blaðamanna og gesta. Þórunn segir mikilvægt að
gestirnir, sem margir hveijir séu makar þinggesta, fái eitthvað við
sitt hæfi og sjái að hér sé mikið um að vera. „Það er ekki síður
Reykjavík
mikilvægt að fjölmiðlamennirnir sjái hversu fjölbreytt listalifið er
í Reykjavík þvi þeir munu segja frá því sem hér gerist," bætir hún
við. „Það er því engin tilviljun að t.d. Hollendingurinn fljúgandi
verður sýndur þessa daga.“
Þórunn segir Listahátíð vera í alþjóðlegu samstarfi hvað
varðar kynningar á viðburðum um allan heim. „Við erum einnig
1 góðu samstarfi við ferðamálaráð sem sendir kynningarefhi víða
og árangurinn af þvi er að hér koma hópar erlendis frá eingöngu
til að njóta listarinnar. Við erum þegar farin að fá pantanir frá
ýmsum hópum og erum bjartsýn á það að fá hingað ferðafólk
sem eingöngu kemur vegna Listahátíðar.“
Misslórir atburðir Stærstu atburðirnir verða vafalitið sýningin á
Hollendingnum fljúgandi og tónleikar Sigur Rósar sem flytja
munu Hrafnagaldur Oðins í samvinnu við Hilmar Örn Hilmars-
son en Hrafnagaldurinn er Eddukvæðið gleymda og er þessi
flutningur talinn einn hinn metnaðarfýllsti sem hljómsveitin hefur
ráðist í. Þar fýrir utan má telja þekkta listamenn eins og rúss-
neska fiðlusnillinginn Maxim Vengerov sem var undrabarn í tón-
list og kom fýrst fram aðeins fimm ára gamall. Ekki er vafamál að
ungu salsatónlistarmennirnir frá Kúbu, Vocal Sampling, muni
vekja athygli, en þeir flytja tónlist er hljómar eins og hljómsveit sé
að verki en nota þó engin hljóðfæri. Söngkonan June Anderson,
sem er ein fremsta sópransöngkona heims, mun syngja fýrir
gesti hátíðarinnar og Kronos kvartettinn sem fýrst vakti athygli
þegar hann spilaði á skýjakljúfi í New York. Kvartettinn sá er tal-
inn óvenju fjölhæfur og djarfur og er í miklu uppáhaldi tónskálda.
„Hátíðin stendur í 21 dag og verða 2-3 viðburðir á hverjum
degi,“ segir Þórunn. „Það er því af nægu að taka fýrir þá sem njóta
vilja listarinnar en opnunin verður með eftirminnilegum hætti því
hinir þekktu frönsku óróaseggir, Mobile Homme, munu beija
bumbur fýrir borgarbúa úr 40 metra hæð yfir Tjörninni. Eg vil
fyrir hönd Listahátíðar bjóða alla velkomna á þessa 17. Listahátíð
sem verður hin glæsilegasta til þessa.“ 33
104