Bankablaðið - 01.07.1985, Page 14
14
breyst þannig að lenging skólatímans
hefur átt sér stað á þessu tímabili um 2
eða 3 ár. Mér er það minnisstætt, að fyrir
25 árum var það markmið samtaka
bankamanna, að inn í bankana yrðu
valdir menn með einhverja skólagöngu
og þá helst miðað við stúdentspróf eða
Verzlunarskólapróf. Nú er þetta orðið
ákaflega algengt. Spurningin er bara sú í
dag, hvort við höfum rétta ímynd af
bankamanninum; hvort það sé þessi
ímynd frekar en launin, svo ég svari að-
eins því, sem Hinrik var að minnast á hér
áðan sem veldur því, að fólk sækir frekar
önnur störf. Ef borin eru saman laun hjá
bankamönnum og opinberum starfs-
mönnum, þá hallast ekki á bankamenn
þar. Ég held að best sé, að menn hafi
þetta í huga. En ef við höldum aðeins
áfram að ræða um Bankamannaskólann,
þá er hann í svipuðu formi og hann hefur
verið, og ég held að sem slíkur eigi hann
eftir að þjóna okkur. Það er verið að tala
um að við stöndum á tímamótum vegna
þess að það er verið að taka upp nýtt
bókhaldsfyrirkomulag í flestum
bönkum; þessa svokallaða tölvuvæð-
ingu. Ef við athugum hvað þarna er að
gerast, þá er verið að breyta um bók-
haldstækni, þannig að það ætti kannski
að vera auðveldara að vinna í banka,
a.m.k. gæti maður ímyndað sér það. En
ég held, að bankastarfið eigi ekki eftirað
breytast mjög mikið þrátt fyrir það.
Helgi Hólm, framkvæmdastjóri SlB.
HELGI: Ég verð að segja, að Banka-
mannaskólinn hefur á síðasta ári staðið
sig mjög vel í fræðslu varðandi beinlínu-
væðinguna og sýnt að hann er fær um að
taka að sér verkefni, fái hann aðstöðu til
þess. Áður en yfir lýkur mun allt starfs-
fólk bankanna hér á höfuðborgarsvæðinu
hafa farið í gegnum námskeið þar. Varð-
andi það, hvað framtíðin ber í skauti sér,
þá held ég að byrjendafræðsla muni fær-
ast meira inn í bankana, og ef við berum
saman reynslu hinna Norðurlanda-
þjóðanna við okkar, þá er t.d. hjá norsk-
um bankamönnum sérstök 2ja ára grunn-
fræðsla, sem fer fram í bönkunum
sjálfum. Síðan tekur þeirra bankamanna-
skóli við og heldur uppi framhalds-
menntun. Ég held að það sé eitthvað í
líkingu við þetta, sem Bankamannaskól-
inn muni stefna inn á. Það er nauðsyn-
legt að ella skólann mjög mikið, ef hann
á að vera fær um að sinna sínu hlutverki
á næstu árum, t.d. með sérhæfðara
starfsfólki. Við höfum náttúrlega stefnt
að því lengi að reyna að stækka húsnæði
hans og það þarf að gerast, til þess að sú
endurnýjun sem mun eiga sér stað í
menntun bankamanna, verði innanfrá,
þ.e.a.s. að það starfsfólk, sem núna
starfar í bönkunum, menntist og endur-
hæfist vegna tæknibreytingar. Annars
munu bankamenn sem eru starfandi í dag
flosna úr störfum, vegna þess að þeir
ráða ekki við þá tækni sem bankarnir
taka upp. Þá verður niðurstaðan sú, að
nýtt fólk, ungt, menntað fólk verður ráð-
ið í bankana en eldra starfsfólkið
hverfur. Þess vegna held ég að hlutverk
Bankamannaskólans og mikilvægi sé
jafnmikið í dag og það var þegar hann
var stofnaður fyrir 25 árum síðan.
ÞÓRÐUR: Ég held að þessi byrjenda-
fræðsla eða nýliðanámskeið, sem eru
byggð upp á svipaðan hátt og gilda fyrir
alla bankana, eigi að vera í Banka-
mannaskólanum. Það væri frekar þessi
sérhæfðu námskeið, sem hver og einn
banki mundi mennta sitt fólk í. Gagnvart
þeirri tæknivæðingu, sem á kannski eftir
að gjörbylta menntun í bankastarfinu, þá
er það Ifka annað atriði sem ég held, að
sé mikilvægt að mennta fólk í, en það er
aö það breytist hvernig fólk á að koma
fram við viðskiptamanninn; þ.e.a.s. sal-
an á vörunni yfir borðið. Bankarnir
starfa á svipuðum markaði og í framtíð-
inni koma þeir til með að búa yfir sömu
tækni; þeir selja sömu vöru, þannig að
það er fyrst og fremst framkoman gagn-
vart viðskiptamanninum sem ræður úr-
slituni um hvert hann fer. Það er einmitt í
þessum þætti sem verður að auka mennt-
un og ég tel að hún verði ekki fyrir hendi
í Bankamannaskólanum, heldur verði
hver og einn banki að kaupa þessa
menntun og þá frá öðrum.
HEIMIR: Hér hefur ýmislegt komið
fram í þá veru, að líklegt sé, að farvegur
bankamenntunar sé að ýmsu leyti að
breytast og sé að færast í auknum mæli
inn í bankana sjálfa. Hver er ykkar
skoðun?
BJÖRN: Ég vil benda á að skólinn
hefur byggt talsvert á bankareynslu og
„perspektívi" frá gömlu ríkisbönkunum
og við höfum í reynd verið með alhliða
uppeldisaðgerðir fyrir ört vaxandi
bankakerfi. Það er t.d. staðreynd, að
ríkisbankamir hafa lagt mikið til af
kennslukraftinum og við höfum í vax-
andi mæli tekið á okkur að ala upp frjálsa
bankakerfið og sparisjóðina. Þessu hafa
menn löngu tekið eftir og þess vegna
hefur gætt mikillar tregðu t.d. í Lands-
bankanum til að ala upp samkeppnisað-
ila. Nú er þetta stéttarmál. Bankamir eru
bundnir kjarasamningslega við stéttar-
samtökin um að reka myndarlegan
Hringborðsumræður. Talið frá vinstri; Helgi Hólrn,
Hinrik Greipsson, Hannes Pálsson, Sveinn
Skúlason, Þórður Sverrisson, Heimir Hannesson,
Björn Tryggvason.
bankaskóla og ætlunin er að gera það,
meðan allir eru sammála um að þörfin sé
mikil. Við tölum mikið urn tímamót hér.
Við höfum lifað við gífurlega aukningu á
starfsfólki. Skólinn hefur reynt að skapa
kennsluvettvang fyrir mjög mikinn
fjölda fólks, sem hefur bæst við bank-
ana. Samtímis því stóreykst starfsvett-
vangur bankanna; ekki bara að þeim
fjölgi heldur hefur líka sjálft starfið í
bönkunuin stóraukist. Það er varla seldur
svo stóll að ekki sé gefinn út víxill.
Samhliða þessu er farið að gera alhliða
kröfur til starfsfólks, sem þið voruð að
tala um áðan, þannig að hver og einn
starfsmaður í afgreiðslu þarf eiginlega að
þekkja allar hliðar starfsins; sérstaklega
þeir sem eru í gjaldkerastúkunni. Ég vil
benda á að bankamir, og gömlu bank-
arnir sérstaklega, voru í vissum skilningi
nokkuð almenn uppeldisstöð fyrir við-
skiptalífið og við höfum misst gríðarlega
mikið af fólki út í atvinnulífið. Bankamir
hafa kannski leitt heildsalastéttina og
viðskipti almennt í landinu á löngum
tíma. Við sjáum á eftir mörgum kolleg-
um, tugum og hundruðum, sem hafa far-
ið út í atvinnulífið. Fyrir utan það verð
ég að segja fyrir sjálfan mig, að ég
kenndi við skólann í 10-20 ár. Mér þótti