Bankablaðið - 01.07.1985, Síða 16
TEXTl: JÓNAS GUÐMUNPSSON
Tölvuskjáir hafa streymt inn í bank-
ana. Bein lína er í burðarliðnum.
Sjálfsaf'í>reiðsla hefur verið innieidd í
einuin banka. Bankar hafa byrjað að
bjóða út skuldabréf. Og bankar hafa
orðið stærsta atvinnugreinin á auglýs-
ingamarkaði fjölmiðlanna.
I>að hefur ekki farið framhjá nein-
um að miklar breytingar hafa átt sér
stað í bankastarfseminni í landinu á
undanförnum mánuðum. Og breyt-
ingaskeiðið virðist síður en svo vera á
enda runnið. Ný lög um viðskipta-
banka, og önnur um sparisjóði, voru
samþykkt á Alþingi í vor, og þessar
peningastofnanir verða í ýmsum efn-
um að laga sig að ákvæðum laganna. Á
næstunni verða enn frekari skref stig-
in í tæknivæðingu bankanna. Tölv-
ubankar eiga eftir að sjá dagsins ljós í
öðrum bönkum en Iðnaðarbankan-
um. Verðbréfamarkaður íslands mun
taka til starfa. Og er þá fátt talið af því
sem vitað er um - eflaust gera sam-
keppnissjónarmið það að verkum að
sumar nýjungar á undirbúningsstigi
liggi kyrfilega læstar niðri í skúffum
bankastjóra og aðstoðarfólks þeirra.
„Annatímar í bönkum 1985"
BANKAKERFID
I' CAGNGERRI
UPPSTOKKUN
Stjórnendur bankanna lifa og hrærast í
öllum þessum breytingum. Þeir hafa átt
upptökin að mörgum þeim nýjungum
sem komið hafa fram, en ennfremur orð-
ið þolendur samkeppnisbragða keppi-
nautanna, og viðtakendur breyttra reglu-
gerða- og lagaákvæða. Þeir hafa orðið að
meta og semja sig að breyttum vinnu-
brögðum innan sinna eigin banka, að
nýjum grundvelli tengsla á milli bank-
anna, og að nýjum ramma Seðlabankans
og ríkisvaldsins utan um banka-
starfsemina. En hver eru viðhorf stjórn-
endanna til þeirra breytinga sem orðið
hafa og til annarra sem við blasa?
NÝJII BANKALÖGIN
Nýju bankalögin taka gildi um áramót.
Um leið falla úr gildi ein fimmtán eldri
lög, þ.á m. sérlög um alla starfandi
banka. „Kannski er helsti fengurinn með
nýjurn bankalögum sá að þau setja einn
ramma um alla bankana“, segir Stefán
M. Gunnarsson, bankastjóri Alþýðu-
bankans, um nýju lögin. „Hvort þau eru í
heildina góð eða slæm verður að koma í
ljós“.
Ýmsir höfðu vonast eftir að bankalög-
in yrðu róttækari heldur en raunin varð.
Sum atriði, eins og um sameiningu
banka, voru skilin eftir vegna þess að
ekki náðist um þau samstaða innan ríkis-
stjórnar og meirihluta Alþingis. En
Helgi Bergs, bankastjóri Landsbankans,
er einn þeirra sem telur að lögin eigi eftir
að hafa veruleg áhrif á rekstur einstakra
banka: „Langmikilvægasta ákvæði lag-
anna“, segir Helgi, „er ákvæðið um fast
hlutfall á milli eiginfjár banka og um-
svifa hans. Það hefur verið þannig að
yfirgnæfandi hluti allra erlendra við-
skipta, yfirgnæfandi hluti allra afurða-
lána, hefur lent á fáum bönkum og mest á
Landsbankanum. En bankinn á ekki eig-