Bankablaðið - 01.07.1985, Blaðsíða 32
32
MEIRi KRÖFIIR ERLENPIS
í þessu sambandi vakna hjá manni
spurningar, eins og hvort bankarekstur sé
svo miklu flóknari í nágrannalöndum
okkar en hér. Hafa þeir starfsfólk með
minni undirbúning og starfsreynslu en
við? Gera þeir svo miklu meiri gæða-
kröfur til þjónustu sinnar en við?
Nú er það vitað mál, að bankamanna-
stéttin í þessum löndum er að miklu leyti
byggð upp af starfsmönnum með verzl-
unar- eða stúdentspróf (60%), og starfs-
tími og reynsla er þar miklu meiri en hjá
okkur, þar sem fólk hefur stutta viðdvöl í
bankastörfum hér. Mér virðist því að
helsta ástæða þessa sé sú að bankar er-
lendis geri miklu meiri kröfur til þeirrar
þjónustu sem þeir veita viðskiptavinum
sínum.
Það hefur verið yfirlýstur vilji bank-
anna að keppa að þessu sama marki, og
skólinn hefur verið tækið til þess. En
þegar til framkvæmdanna kemur, koma
iðulega upp ýmiss konar vandamál og
misskilningur, sem ég tel fyrst og fremst
vera stjómunarlegs eðlis innan bankanna.
Bankamir hafa lengi sjálfir boðið ein-
stökum starfsmönnum upp á ýmiss konar
námskeið og fræðslu, en erfiðlega hefur
gengið að byggja slíkt starf upp skipu-
lega og setja það í samhengi við annað
fræðslustarf. Slíkt hefur og kostað geysi-
lega fjármuni, miðað við það sem það
skilur eftir, og miðað við það sem
Bankamannaskólinn getur gert fyrir
sama fé.“
- Þannig að bankarnir verða ekki
síður að athuga sinn skipulagslega
gang í tengslum við fræðslumálin?
„Leiðirnar sem færar eru inn í framtíð-
ina eru ýmsar, og ef bankamir taka
formlega afstöðu til þeirra, mun skólinn
sveigja starf sitt eftir þeim. Það eru fyrst
og fremst bankamir í sameiningu sem
taka slíkar ákvarðanir, en skólans er að-
eins að framfylgja þeirri stefnu. Það er
ekki skólans að sveigja bankana inn á
sína stefnu.
FRAMTÍDARSÝN
En ef haldið verður áfram á sömu braut
og undanfarið, má framreikna dæmið
eitthvað inn í framtíðina. Miðað við
svipaðar forsendur og ríkjandi em hjá
okkur í dag, sé ég fyrir mér eftirfarandi
mynd af fræðslumálum bankanna, eftir
10 ár eða svo.
Hver banki heldur reglulega ákveðin
stöðluð námskeið fyrir starfsmenn sína
um sín sérstöku málefni; t.d. innláns-
form þau sem hann selur eða þá sérþjón-
ustu sem hann býður upp á. Hann heldur
reglulega sérstök stjórnunamámskeið
fyrir yfirmenn sína um stefnumið
bankans, kynnir rækilega nýjungar og
breytingar bæði á stofnuninni sjálfri og á
þjónustu þeirri sem hún selur. Slíka
fræðslu getur Bankamannaskólinn ekki
veitt, því hún er ekki skreðarasaumuð fyr-
ir þennan ákveðna banka. Innan bankans
starfar sérstök nefnd sem annast fram-
kvæmd þessara mála og gerir það í sam-
ræmi og í takt við annað fræðslustarf
sem bankinn er aðnjótandi að.
Innan verslunarskóla og fjölbrauta-
skóla í viðkomandi byggð verður jafnan
við nám einhver hluti ungra banka-
manna, sem ráðnir hafa verið í banka án
nauðsynlegs undirbúnings í viðskipta-
greinum. Hver starfsmaður fær þegar
hann er fastráðinn ákveðna námsáætlun,
sem honum er ætlað að fylgja á næstu
árum í kvöldskóla eða öldungadeildum í
byggðarlaginu. Þegar hann hefur lokið
því námi, tekur við ný fræðsluáætlun
innan bankans og í Bankamannaskólan-
um.
Bankamannaskólinn mun áfram ann-
ast allar sameiginlegar þarfir bankanna
um fræðslu. Nýliðanám mun væntanlega
halda áfram í svipuðum dúr og hingað
til, óháð því úr hvaða banka menn koma
og óháð því hvaða skólaundirbúning
menn hafa. Skólinn mun og annast ýmiss
konar sémámskeið eftir þörfum hvers
tíma, svo og kynningarfundi og nám-
stefnur. Hlutfallslega fleiri munu sækja
slík námskeið, og hver bankamaður mun
koma oftar í skólann en nú gerist, því
bæði verða nýjungar og tilflutningar
manna örari, og eins verða gerðar meiri
kröfur til hæfni og þekkingar allra banka-
manna í þessum efnum.
„Annatímar í bönkum 1985'
BANKAFRÆDI í
HÁSKÓLANUM
Stjórnunarkennsla skólans mun aukast,
þ.e. almenn og hagnýt stjórnun, aðallega
fyrir bankamenn á fulltrúastiginu og að
nokkru á deildarstjóra- og útibússtjóra-
stiginu.
Þetta gæti verið útfært með þeim
hætti, að allir fulltrúar sem skipaðir yrðu
á ári hverju gengju í gegnum ákveðið
stjórnunarnám, og þegar þeir yrðu svo
skipaðir útibús- eða deildarstjórar færu
þeir í gegnum annað stjómunamám.
Þannig yrði um að ræða staðlaða stjóm-
unarþekkingu meðal allra yfirmanna
framtíðarinnar, sem auðvelt er að bæta
við og nýta í starfi, ef rétt er á spilunum
haldið.
Framhaldsnám skólans verður vænt-
anlega rekið með svipuðum hætti og nú,
þar sem reyndari bankamenn koma og
nema ýmis fræði sem tengjast banka-
starfinu, á sama hátt og mjög algengt er í
nágrannalöndum okkar, t.d. Bankaaka-
demíunni í Noregi. Hópamir verða
stærri sem útskrifast hverju sinni, og ég
spái því, að við þeim verði tekið inn í
bankana með öðrum hætti en nú er,
þannig að þeir fái betur að njóta sín, og
bönkunum nýtist betur þekking þeirra og
dugnaður.
Kannski er hægt að hugsa sér að innan
Háskólans verði þá komin kennslugrein í
bankafræðum, sem viðskipta- og lög-
fræðinemar, sem hyggja á bankastörf,
geti lagt stund á. Það er trúa mín, að há-
skólamenn innan bankanna verði fjöl-
breytilegri hópur en í dag. Til viðbótar
við hagfræðinga og lögfræðinga munu
bætast félagsfræðingar, tölvufræðingar,
tungumálafólk og annað sérhæft há-
skólafólk, sem einmitt þyrfti að fá eitt-
hvert vegamesti í bankafræðum frá Há-
skólanum.
Á næstu árum kemur skólinn til með
að eiga meira erindi til bankamanna
dreifbýlisins, og um leið opnast mögu-
leikar á að ná til þeirra með auðveldari
hætti en hingað til. Þegar allar afgreiðsl-
ur á landinu verða tengdar við móður-
tölvuna, verður auðvelt að koma boðum
til manna í gegnum kerfið, og jafnvel að
byggja upp kennsluefni; eins konar
tölvuvæddan bréfaskóla, þar sem ein-
stakir bankamenn geta kallað til sín
ákveðið efni og farið gegnum nám á
beinlínuvélunum í útibúi sínu. Þessi
hugmynd er víða erlendis komin í
framkvæmd, en hún hefur lítið verið
rædd hér enn “
MEIRA SAMEIGINLECT í
FRAMTÍÐINNI
- Heldurðu þá að Bankamannaskól-
inn muni halda sínum hlut í sambandi
við starfsmannafræðslu bankanna.
„Bankamannaskólinn mun áfram
verða þungamiðjan í fræðslustarfi bank-
anna, enda þótt bæði bankamir sjálfir og
ýmsar fræðslustofnanir úti í bæ muni
koma inn í myndina að einhverju leyti.
f náinni framtíð verður það sem öllum
bönkum er sameiginlegt miklu meira en
það sem skilur bankana sundur. Öll
tölvuverkefni sem nú eru til og sem í
hönnun eru, miða við allt bankakerfið í
heild sinni. Innan tíðar verða öll
greiðslukort, gíróseðlar, tékkar og víxlar
og meginhluti allrar bankaþjónustu staðl-
að. Auglýsingarnar verða frábrugðnar,
slagorðin og einstök tilbrigði í þjónust-
unni, en meginþorri allra bankastarfa
verður eins. Því til viðbótar verður af-
koma bankanna lakari, þegar á heildina
er litið, svo að þeir verða mjög að hyggja
að öllum kostnaði, og sameiginleg
fræðslustofnun verður alla tíð miklu
ódýrari í rekstri en smánámskeið og að-
keypt fræðsluþjónusta.
FRAMHALD BIS. 63