Morgunblaðið - 30.11.2008, Qupperneq 6
6 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2008
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
S
pilling er landlæg í Búlgaríu og nú er
svo komið að Evrópusambandið hefur
ákveðið að svipta Búlgara 220 milljóna
evra aðstoð sem þeim var ætluð. Það
hefur ekki gerst áður að Evrópusam-
bandsríki hafi verið lýst of spillt til þess að treysta
mætti því að aðstoð yrði notuð svikalaust. Telja
ráðamenn í Evrópusambandinu að ærin ástæða sé
til að hafa áhyggjur af því að búlgörsk stjórnvöld
geti ekki komið í veg fyrir að skipulögð glæpa-
samtök sópi fénu til sín.
Framlög til Búlgaríu að andvirði 486 milljóna
evra voru fryst í júlí og svo gæti farið að Búlgarar
verði af hærri upphæðum en 220 milljónunum,
sem tilkynnt var að þeir fengju ekki á þriðjudag.
Gefnar hafa verið vonir um allt að 11 milljarða
evra frá ESB til uppbyggingar í Búlgaríu.
Búlgaría er sagt spilltasta land í Evrópu. Náin
tengsl eru milli glæpaforingja og stjórnmálafor-
ingja. Glæpasamtökin hagnast á smygli og svarta-
markaðsbraski og eru með puttana í opinberum
framkvæmdum og hvers kyns framleiðslu. Þeir
sem ekki spila með eru í bráðri hættu. Samkvæmt
bókhaldi bandaríska sendiráðsins í Sofiu, höf-
uðborg Búlgaríu, eru fórnarlömb leigumorðingja
komin yfir 125 og voru þar ekki talin með fimm
morð, sem framin hafa verið á þessu ári.
Um þessar mundir er í tísku að vera á móti spill-
ingu í Búlgaríu og boðaðar hafa verið umfangs-
miklar aðgerðir, en eins og Olli Rehn, sem fer með
stækkunarmál hjá Evrópusambandinu, sagði fer
lítið fyrir þeim aðgerðum í raun.
Ástandið í Búlgaríu á sér rætur í fortíðinni.
„Smygl er okkar þjóðararfur,“ segir stjórnmála-
fræðingurinn Ivan Krastev í bókinni McMafia eft-
ir Misha Glenny. „Okkar slóðir hafa alltaf verið
milli stórra hugmyndakerfa, á milli rétttrúnaðar
og rómversk-katólsku, á milli íslams og kristni, á
milli kapítalisma og kommúnisma. Á milli stór-
velda sem voru gagnsýrð af andúð og tortryggni
hver í garð annarra, en voru um leið heimkynni
margra sem vildu stunda viðskipti yfir hin for-
boðnu landamæri. Á Balkanskaganum kunnum
við að láta þessi landamæri hverfa. Við getum
farið yfir mesta ólgusjóinn og klifið erfiðasta
fjallið. Við þekkjum hverja leynislóð og dugi það
ekki vitum við verðið á hverjum landa-
mæraverði.“
Þegar búlgarski komm-
únistaflokkurinn lét undan
þrýstingi Míkhaíls Gor-
batsjovs Sovétleiðtoga
um að leyfa stofnun
hlutafélaga voru fé-
lagar í búlgörsku
leyniþjónustunni, DS,
ekki lengi að taka við
sér. Þeir stofnuðu
90% þeirra hluta-
félaga, sem voru sett á laggirnar fyrsta árið eftir
að lögin voru sett. Þegar kommúnistastjórnin
hrundi 1989 misstu margir starfsmenn DS vinn-
una, en þeir voru ekki af baki dottnir. Þeir höfðu
stundað skipulagða glæpastarfsemi á vegum rík-
isins. Nú urðu þeir einkavæddir.
„Önnur lönd eiga sér mafíu,“ segir Atanas At-
anasov, þingmaður og fyrrverandi yfirmaður
gagnnjósna í Búlgaríu, sem margir hafa leitað til,
sem vilja leka upplýsingum um spillingu. „Í Búlg-
aríu á mafían landið.“
Komið hafa fram gögn um að forkólfar skipu-
lagðra glæpasamtaka séu í tygjum við
Sergey Stanishev forsætisráð-
herra og hafi láti fé af hendi
rakna til Sósíalistaflokks hans.
Stanishev er fyrrverandi
blaðamaður og gekk í London
School of Economics. George
W. Bush Bandaríkjaforseti
hrósaði honum í fyrra fyrir bar-
áttu hans gegn skipulagðri glæpa-
starfsemi og gaf honum við-
urnefnið „herra hreinn“. Það
var áður en fram komu
myndir frá árinu 2005
af fundi Stanishevs
með Mario Nikolov,
sem dreginn hefur
verið fyrir rétt fyrir
svik. Nokkrum vikum
eftir fundinn byrjuðu
framlögin að streyma
til flokks Stanishevs.
Reuters
Þar sem mafían á landið
Búlgaría er sögð spilltasta land Evrópu og í liðinni viku ákvað Evrópusambandið að svipta
Búlgara aðstoð, sem þeim hafði verið ætluð, af ótta við að hún yrði spillingu að bráð
Erfiðleikar Gömul kona
betlar á götu í Sofiu. Með
hruni kommúnismans
hrundi velferðarkerfið í
Búlgaríu og sár þörf er á
uppbyggingu, en tvísýnt um
að aðstoðar sé að vænta frá
Evrópusambandinu.
Búlgaría var ekki upplífgandi staður
undir stjórn Todors Zhivkovs á átt-
unda og níunda áratugnum. Landið
var undir hrammi Kremlar og haft
var í flimtingum að hnerruðu Sov-
étríkin fengi Búlgaría kvef. Búlgaría
gegndi hins vegar mikilvægu hlut-
verki og sérstaklega var leyniþjón-
ustan, DS, í miklum metum hjá Sov-
étmönnum fyrir dugnað og
áreiðanleika. Búlgarska leyniþjón-
ustan sá um að grafa undan Vest-
urlöndum með heróínsmygli, vopna-
sölu og hátæknistuldi.
Hnerrar og kvef
Í tíð kommúnista var mikið lagt upp
úr íþróttum í Búlgaríu. Fremstu
íþróttamenn landsins voru í lyft-
ingum og glímu og þeir bestu og
efnilegustu lifðu á framfæri ríkisins
við mun betri kjör en almenningur.
Við hrun kommúnismans hvarf allur
stuðningur við þessa stétt manna,
en þeirra biðu ótal atvinnutækifæri.
Kraftakarlarnir urðu lífverðir og
handrukkarar. Þeir voru notaðir til
að skjóta fólki skelk í bringu og jafn-
vel limlesta. Einn þeirra, Ilya Pavlov,
varð einn helsti glæpaforingi lands-
ins. Hann var ráðinn af dögum 2003
og voru öll helstu fyrirmenni lands-
ins viðstödd útför hans.
Nýtt hlutverk
kraftakarla
Ráðist var á blaðamanninn Ognian
Stefanov fyrir utan veitingastað í
Sofiu í lok september. Árásarmenn-
irnir notuðu sleggjur og rör, brutu á
honum báða olnboga og fæturna á
fjórum stöðum og krömdu ósæðina í
honum. Stefanov situr nú í hjóla-
stól. Hann var upphafsmaður vefsíð-
unnar Frognews þar sem finna má
gagnrýni á spillinguna í Búlgaríu.
Enginn hefur verið handtekinn
vegna árásarinnar, en aðsókn á vef-
inn hefur margfaldast.
Brotinn og barinn
Atburðarásin
Margrét Margeirsdóttir, formaður Félags
eldri borgara, á fundi, sem BSRB stóð fyrir
á Ingólfstorgi.
Étt’ann sjálfur.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, kallaði fram í á Alþingi þegar
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sagði
hann hafa tafið fyrir því að rannsókn-
arnefnd vegna bankahrunsins gæti tekið
til starfa.
Það er svosem ekki mikið um þennan
fögnuð hans að segja.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Biskupsstofu, um prédikun
Hjartar Magna Jóhannssonar, fríkirkju-
prests, þar sem hann fagnaði úrsögnum úr
þjóðkirkjunni.
Ef fólk hættir að fá þessa hreyfingu þá
mun það þurfa að fá meiri lyf og meiri
heilbrigðisþjónustu.
Gunnar Guðmundsson, lungnalæknir, um
afleiðingar þess að Rás 1 leggur niður
morgunleikfimina.
Ummæli
Þetta á að vera hrátt, sveitt og
skítugt … alveg eins og hjá
frumgerðinni.
Björn Stefánsson í Mínus, sem
ásamt félögum sínum hefur
stofnað hljómsveitina Stóns, sem
er heiðrunarsveit Rolling Stones.’
Í vor var stofnaður sjóður,
undir merkjum Þjóðleik-
hússins, þar sem Bjarni
Ármannsson leggur af ör-
læti sínu fram 15 milljónir
á næstu þremur árum af
þeim sjö þúsund millj-
ónum sem hann labbaði með út úr
Glitni. Þetta mun vera eina leiðin til að
fjármagna nýja leikritun við Þjóðleikhús
okkar Íslendinga. Það er sorglegt ef
satt er.
Hávar Sigurjónsson, formaður Félags leik-
skálda og handritshöfunda.
Í mínum huga er forgangsröðin á svona
tímum einföld: Fyrst kemur fólkið og
svo flokkurinn.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanrík-
isráðherra og formaður Samfylking-
arinnar, á flokksstjórnarfundi í Garðabæ.
Saknir þú Geirs getið þið blótað frjáls-
hyggjuna á laun. En ekki svo meiri skaði
hljótist af.
Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, í
ávarpi sínu til Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur, utanríkisráðherra, á borgarafundi í
Háskólabíói.
Það hefur aldrei þótt sæmandi að
kenna öðrum um afglöp sín. Í mínu ung-
dæmi voru þeir sem það gerðu kallaðir
aumingjar.
Reiður og sár
Sergey Stanishev,
forsætisráðherra
Búlgaríu, mót-
mælir ákvörðun
ESB um að svipta
landið framlögum
vegna spillingar.