Morgunblaðið - 30.11.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.11.2008, Blaðsíða 28
28 Tíska MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2008 LÆGRA VERÐ - SÖMU GÆÐI Prentsmiðjan Oddi ehf., Höfðabakka 3-7, 110 Reykjavík sími 515 5000, www.oddi.is Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is N ýkjörinn forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, lofaði því að breyta heiminum og mun að minnsta kosti standa við það hvað fataskáp sitjandi forseta í Hvíta húsinu varðar. Það er því ekki aðeins Michelle, eiginkona Obama, sem hefur vakið athygli fyrir tískuvitund sína heldur bendir allt til þess að forsetinn tilvonandi geri Hvíta húsið glæsilegra. „Hann lítur rosalega vel út, eins og maður sem er miklu yngri en 47 ára,“ sagði Robert Johnston aðstoðarritstjóri breska herratískutímaritsins GQ í samtali við fréttastofu AFP. „Hann er með mjög áreynslulausan stíl. Eini Bandaríkja- forsetinn fyrir utan hann, sem maður getur séð fyrir sér fram- an á tískutímariti, er Bill Clinton. Hann er með stíl sem er ekki alveg hægt að negla niður. Þetta bara gengur upp.“ Stjórnmálamenn geta verið öflugir tískuleiðtogar. Sumir halda því fram að hattleysi forsetans John F. Kennedy hafi drepið þann gamla sið að bera hatt í Bandaríkjunum. Síðan má deila um það hvort það hafi verið gott eða slæmt. Hing- að til hefur Obama þó ekki gert neina eina flík sér- staklega að sinni. Hann vakti þó athygli fyrr í mán- uðinum fyrir að hvetja ungt fólk til að hætta að klæðast víðum og lágum gallabuxum sem sýni nær- buxurnar. Tískuheimurinn segir að það sé ekki hverju Obama klæðist sem geri hann að tískufrömuði heldur hvernig hann beri fötin. Vel sniðin jakkaföt Tyler Thoreson, aðalritstjóri Men.Style.com, segir að jakkaföt Obama fari vel á „tónuðum“ líkama hans, ólíkt illa sniðnum jakkafötunum, sem menn af kynslóð George W. Bush klæðist gjarnan. Hann segir að Obama skapi nútímalega ímynd, sem sé mjög ólík Bush í kúrekastígvélunum með Stetson-hattinn. „Jakkafötin hans eru einfaldlega sniðin til að passa honum en flestir miðaldra menn eru oftast í alltof efnismiklum jakka- fötum,“ segir Thoreson og útskýrir nánar: „Obama er mjög sáttur við sjálfan sig bæði líkamlega og tilfinningalega og það er eitt af því sem gerir hann svona aðlaðandi, ekki síst á þessum erf- iðu tímum. Hann á tvímælalaust eftir að hafa mikil áhrif á það hvernig karlmenn klæða sig.“ Óformlegur en stællegur Starfsfólk og viðskiptavinir í verslunum við hina glæsilegu breið- götu 5th Avenue í New York töluðu á jákvæðu nótunum um Obama í samtali við AFP. „Hann er glæsilegur en samt ekki of fínn. Þetta snýst um persónuleika hans og hvernig hann klæðir sig,“ sagði vel klædda verslunardaman Emilia Severino. Neminn David Schiff- hauer tók í sama streng. „Hann er öðruvísi en aðrir forsetar. Þeir voru formlegri. Ég meina, við höfum séð hann á sundskýlunni og hann lítur vel út. Hann er flottur en ekki of formlegur, afslappaður en samt stællegur.“ Tískuheimurinn hefur þó ekki gefið Obama góða einkunn fyrir heimafötin sín. Heimavið hefur sést til hans í hvítum íþróttaskóm og hvítri skyrtu, sem girt er ofan í gallabuxur. Greinarhöfundur New York Times gekk svo langt að líkja honum við Jerry Sein- feld í samnefndum grínþáttum og er það sannarlega ekkert tískuhrós. Mike England, 26 ára breskur bankamaður í heimsókn í New York, hitti kannski naglann á höfuðið. „Þetta snýst ekki eins mikið um það hvernig hann klæðir sig og um persónuleika hans. Hann minnir á Tony Blair þegar hann varð fyrst for- sætisráðherra, ungur og uppfullur af hugmyndum, það gerir hann svona flottan.“ AP Reuters Reuters Á Hawaii Hér má sjá Obama í sjónum við Honolulu á Hawaii. For- setinn og forsetafrúinn eru dugleg í líkamsræktinni. Samstæð fjölskylda Forsetafjölskyldan var smekkleg og klædd í stíl þegar hún fagnaði sigri Obama í Chicago fyrr í nóvember. Dæturnar Sasha og Malia eru á milli foreldra sinna. Ólíkir forsetar Bush og Obama eru ólíkir að mjög mörgu leyti. Hér sést vel að jakkaföt Obama eru betur sniðin en Bush. Obama í tísku Kraftmikill Obama bretti upp skyrtuermarnar og spilaði körfubolta í grunnskóla sem hann heimsótti í kosningabar- áttunni. Körfubolti er uppáhalds líkamsræktin hans og hann spilaði oft á meðan á baráttunni stóð. AP BARACK Obama hefur líka veitt fatahönn- uðum innblástur eins og sést á meðfylgj- andi myndum. Hönnuðurinn Jean Charles de Castelbajac gerði m.a. þennan kjól með mynd af andliti forsetans. Kannski á hann eftir að verða vinsæll næsta vor? Áhrifin hafa einnig náð til ferfætlinganna eins og sjá má hjá Óskari og Körlu, hundum í París. Þar seldi fatabúð fyrir hunda um hundrað hundakápur með mynd af Obama á innan við mánuði. Fleiri klæði merkt for- setanum eru ennfremur til sölu. Innblástur frá forsetanum ReutersAP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.