Morgunblaðið - 30.11.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.11.2008, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2008 Eftir Freystein Jóhannsson freysteinn@mbl.is Eysteinn „Þegar Ástráður fæddist, var ég við nám í Þýzkalandi og frétti af honum á leiðinni og svo að hann væri kominn í heiminn. Hann var orðinn eins árs, þegar ég kom heim og sá hann í fyrsta skipti. Okkar sam- band varð svo mjög náið strax í upp- vextinum. Hann kom oft til mín, hann var bráðþroska og mikill lestr- arhestur sem krakki og hann kom oft með bækur með sér. Þegar ég fór í ís- lenzkudeildina, var ég kominn yfir þrítugt. Hann var þá ellefu ára og einu sinni kom hann í heimsókn með bindi af Riddarasögunum undir hendinni. Ég var ekki búinn að lesa þær þá utan tvær sem við fórum í gegnum á námskeiði hjá Óskari Hall- dórssyni. Ástráður var hins vegar bú- inn að lesa þær allar. Ég spurði hann út úr þessum tveimur sem ég kann- aðist við og hann kunni þær vel. Svör- in stóðu ekkert í honum! Hann var ákveðinn og sjálfstæður og tók sjálf- ur þá ákvörðun að aðeins einn menntaskóli kæmi til greina; MH. Hann ólst upp í Borgarnesi og það var ekki hlaupið að því að fá skólavist við MH. En hann vildi þetta og kom í skoðunarferð í skólann. Ég var þá kennari við MH en vissi ekkert af þessu ferðalagi hans. En í skólann komst hann og reyndist mikill náms- hestur. Starfsfélagar mínir ræddu um hann við mig og ég held að flestir hafi talið að hann yrði raunvís- indamaður, hann var á nátt- úrufræðibraut og ég held að hann hafi ekki verið fráhverfur raunvís- indanámi að loknu stúdentsprófi. En þá tók hann það upp hjá sjálfum sér að fara í bókmenntir og tungumál. Ég var auðvitað ákaflega sáttur við það.“ Báðir eru þeir í módernismanum „Unglingsárin? Ég man ekki eftir neinum vandræðagangi á honum þá. Hann var ákaflega tápmikill og fékk útrás í íþróttum. Hann stundaði svo framhaldsnám við fjóra háskóla í fjórum löndum. Við skrifuðumst reglulega á þau árin og ég fór vestur um haf til Iowa City í Bandaríkjunum þegar hann varði doktorsritgerð sína. Það var mjög skemmtileg ferð, ekki sízt að heyra hversu vel allir spáðu fyrir honum. Hann átti sína mögu- leika ytra, en hann vildi vera hér og var fljótlega kominn í stöðu við Há- skóla Íslands. Samband okkar varð sífellt betra, við höfðum svipað áhugamál í bókmenntunum og á sama sviði þar. Mín kandídatsritgerð fjallaði um módernismann í íslenzkri ljóðagerð og hans doktorsritgerð um módernismann á heimsvísu. Við byrjuðum að þýða saman með- an Ástráður var enn í námi, þ.e. á sumrin og í jólaleyfum. Það kom ein- hvern veginn eðlilega til í okkar sam- ræðum. Kafka var okkur báðum mjög hugstæður og við ákváðum að vinda okkur beint í Réttarhöldin. Við fundum okkur verklag við þetta, við skiptum verkinu niður í búta, en fór- um í gegnum alla söguna báðir með því að þegar við vorum búnir með okkar búta, þá lásum við þá fyrir hinn og hann fylgdist með frumtextanum. Síðan hreinritaði hvor sitt og sendi aftur til hins og þá var farið yfir efnið enn og aftur og rætt rækilega um öll álitamál Réttarhöldin komu út 1983 og við höfum haldið verklaginu við í gegnum okkar þýðingasamstarf. Nú er ný- komin út bókin Bréf til föðurins, þar sem Kafka lýsir erfiðu sambandi þeirra feðga, en Kafka tókst ekki að slíta sig undan ofurvaldi föður síns. Við Ástráður? Nei, okkar samband er allt öðruvísi! Við erum báðir skap- stórir og ekki alltaf sammála. En við leysum öll mál með samræðum. Reyndar eru sjónarmið okkar ekki Þrekmikill vinnuþj Tengsl Þeir feðgar Eysteinn Þor- valdsson og Ástráður Eysteinsson eiga bókmenntirnar sérstaklega sam- eiginlegar. Þeir hafa þýtt verk Kafka og fleira og segja samstarfið stöðugt auka vináttuna og samkenndina. ‘‘VIÐ ERUM BÁÐIR SKAP-STÓRIR OG EKKI ALLTAFSAMMÁLA. EN VIÐLEYSUM ÖLL MÁL MEÐ SAMRÆÐUM. Hann er fæddur 23. janúar 1932, varð stúdent frá MR og stundaði síðan nám í A-Þýzkalandi; Leipzig og Berlín. Hann varð cand. mag. í bókmenntum frá Háskóla Íslands. Hann hefur kennt á öllum skólastigum, lengst af við Kenn- araháskólann þar sem hann kenndi bókmenntir í ald- arfjórðung. Hann hefur skrifað bækur um ljóðakennslu; m.a. Ljóðalærdóm 1988, en 1980 kom út bók hans At- ómskáldin, um módernismann í íslenzkri ljóðagerð. Í til- efni sjötugsafmælis hans kom út bókin Ljóðaþing með greinum hans, ritgerðum og erindum um íslenzka ljóða- gerð á 20. öld. Hann hefur í samstarfi við Ástráð son sinn þýtt verk Franz Kafka og Max Frisch. Eysteinn Þorvaldsson er sex barna faðir. EYSTEINN ÞORVALDSSON HVERT Á LAND SEM ER JÓLA PAKKA SENDU Sími 525 7700 www.flytjandi.is Gle ðile g jól Viðkomustaðir um allt land. Kynntu þér afgreiðslutíma og síðustu ferðir fyrir jól á vefsíðunni www.flytjandi.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.