Morgunblaðið - 30.11.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.11.2008, Blaðsíða 25
irkjubekkir 25 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2008 PÉTUR var poppstjarna á Ís-landi, en alltof alþýðlegur tilþess að vera nokkurn tímameð stjörnustæla. Honum fylgdi glaðværð sem skapaði stöðugt skemmtilegar uppákomur og tengdi fólk saman. Hann sagði sögur, hafði sérstakt orðfæri og var sjálfur uppspretta sögu- efnis. Hann kvaddi alltof snemma en minn- isstæð nærveran lifir t.d. í þeim upptökum sem hér eru og skemmti- legum sögum.“ Svona lýsir Steinar Berg vini sín- um og samstarfsmanni, Pétri heitn- um Kristjánssyni, í bæklingi sem fylgir tvöföldum geisladiski með öll- um þekktustu lögum Péturs. Á disk- inum, sem heitir Algjör sjúkheit, er af nógu að taka, frá Jenny Darling með Pelican til Rabbits með Paradís, frá Wild Thing með Pops til Para- dísar með Start og þaðan til Króks- ins með Pétri og Sálinni hans Jóns míns. Alls eru lögin 42 og spanna tímabilið frá Pops á miðjum sjöunda áratugnum og þar til söngvarinn þekkti lést aðeins 52 ára gamall, árið 2004. Tónlistin var aðalmálið Steinar Berg þekkti aðeins til Pét- urs þegar þeir voru báðir að skríða á unglingsárin. Þeir voru á sama ári í fótboltanum í Fram, báðir í fremstu víglínu. En létu boltann svo eiga sig, þótt báðir héldu tryggð við Fram áfram. Tónlistin var aðalmálið. „Eftir að Tempó fékk að spila með Kinks spruttu unglingahljómsveit- irnar fram hver af annarri í aust- urbæ Reykjavíkur,“ skrifar Steinar. „Mods, Trix og svo auðvitað Pops, sem Pétur stofnaði daginn eftir að hann fermdist.“ Pétur spilaði á bassa í Pops, auk þess að syngja. Í næstu hljómsveit, Náttúru, lét hann sér nægja að syngja. Og söngvari var hann eftir það, í Svanfríði, Pelican, Paradís, Poker og Start. Af þessum hljóm- sveitum voru Pelican og Paradís vafalaust vinsælastar. Fyrir utan að syngja með eigin hljómsveitum kom hann víða við, lagði t.d. Sálinni lið og söng með Bjartmari Guðlaugssyni. Gömlu félagarnir úr Fram, Stein- ar og Pétur, sameinuðust í liði þegar Steinar stofnaði útgáfufyrirtæki sitt, Steinar hf. Eigandinn ritar að Pétur hafi notið þess að taka upp send- ingar af nýjum plötum, en leiðst óg- urlega að sitja á löngum fundum. „Eftir að hafa litið á klukkuna nokkrum sinnum stóð hann upp og sagði: „Klukkan er að verða fjögur. Verð að fara og loka bankanum.“ Þetta var löngu fyrir tíma rafrænna millifærslna. Menn þurftu að mæta með innleggið til að „redda heftinu“. Nú eða besta skýringin sem ég hef heyrt fyrir að yfirgefa fund: „Verð að fara, gamla er komin úr.“ Algjör sjúkheit Péturs poppstjörnu Með bassann Pétur greip oft í bass- ann, hér á balli árið 1982. REYNIR, sem er útskrifaður hús- gagnahönnuður frá Danmörku, hefur rekið eigið fyrirtæki frá árinu 2000 en það ber nafnið Sy- russon og má sjá hönnun hans á Syrusson.is. Hann leggur mikið upp úr því sem íslenskt er og hefur unnið með mörgum íslensk- um fyrirtækjum. Í Guðríðarkirkju- verkefninu er hann í mestri sam- vinnu við smíðastofuna Beyki og GÁ húsgögn í bólstruninni. „Þetta er gríðarlega atvinnu- skapandi. Ég vinn eins mikið og mögulegt er með íslenskum fyr- irtækjum enda er í flestum til- fellum hægt að gera allt hér- lendis.“ Hann segir gildi íslenskrar hönnunar og framleiðslu fara vaxandi á krepputímum. „Ég sé bara mjög áhugaverða og bjarta tíma framundan hvað það varðar. Við eigum fullt af hæfileikaríku og reyndu fagfólki í verksmiðjum í smíðageiranum. Eins og hug- arfarið er núna gagnvart því sem íslenskt er sé ég ekki annað en að við getum notað þetta tæki- færi og byggt sterkari stoðir und- ir þennan geira. Verðið er hag- stætt og samkeppnishæft í augnablikinu,“ segir Reynir, sem leggur áherslu á að skapa at- vinnu. „Mér líður sérstaklega vel yfir því núna að vera svona atvinnu- skapandi,“ segir hann og finnst ákveðin ábyrgð hvíla á íslenskum fyrirtækjum að leita til íslenskra hönnuða og framleiðanda. „Núna áttar maður sig enn betur á því hversu mikilvægt það er. Áður voru fyrirtæki með fangið fullt af peningum og þá dugði oft ekkert annað en dýrir innfluttir hlutir til að skreyta allar hallirnar. Vonandi verður breyting þar á.“ GILDI ÍSLENSKRAR HÖNNUNAR OG FRAMLEIÐSLU Nostri Stólinn Nostri eftir Reyni í nýrri útgáfu með íslenskri gæru. Íslenskt Bæði sófinn og borðið er hönnun Reynis Sýrussonar og framleidd hér á landi. Þægilegur Við hönnunina hugsaði Reynir um þægilega púða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.