Morgunblaðið - 30.11.2008, Blaðsíða 54
54 Menning
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2008
Goðsögn
Ofurstjarna
Stjarna
Frægur
Þekktur
Efnilegur
Óþekktur
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
/E
E
1980 1981 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008
Óhætt er að segja að ferill Bubbahafi farið af stað með miklum
látum og hann náði að pakka inn tíu
ára ferli í ca. tvö og hálft ár. Meðfram
því að reka áhrifamestu pönksveit
landsins keyrði hann um leið sólóferil
sem gat af sér plötu árlega. Eins og
sannra brautryðjenda er siður var
ferill Utangarðsmanna stuttur og
snarpur en að sama skapi afskaplega
viðburðaríkur og ekki síst áhrifamikill.
Utangarðsmenn snertu á öllum helstu trixunum í rokkbókinni á þeim stutta tíma
sem þeir störfuðu og flestöll ævintýrin eru skrásett í bók Bubba frá 1990.
Hver verður niðurstaðan þegar tveir meistarar koma saman? Jú,t.d. platan Bláir draumar, samstarfsverkefni Bubba og Megasar
frá 1988. Bubbi hafði verið nokkurs konar lærisveinn hjá Megasi um
allnokkra hríð, og Megas hafði hjálpað Bubba og stutt hann í textagerð.
Þá höfðu þeir troðið upp saman nokkrum sinnum áður en þeir ákváðu
að leggja í plötu. Athyglisvert
verður að teljast að hluti Megasar
í plötunni hefur komið út sér sem
Englaryk í tímaglasi (2002) og
Bubbi lék sama leik fimm árum
síðar - og skar ennfremur titilinn í
tvennt en platan heitir einfaldlega
Bláir.
Þegar Bubbi fær áhuga áeinhverju er það tekið
alla leið og gott betur en það.
Upp úr 1990 var hann farinn
að æfa hnefaleika af miklu
kappi og árið 1993 var hann
farinn að lýsa íþróttinni á sjón-
varpsstöðinni Sýn. Að segja
að Bubbi hafi farið á kostum
í þeim lýsingum nær varla að
lýsa þeirri flugeldasýningu. Stundum var Ómar Ragnarsson með hon-
um og þá fór stuðið óhjákvæmilega upp úr öllu valdi. Bubbi gaf svo út
bókina BOX við annan mann árið 1998. Eins og segir ... alla leið.
Viðskiptasamningur Bubbavið Sjóvá og Íslandsbanka
vakti mikla athygli. Bubbi fékk
eingreiðslu við undirritun og í
staðinn fékk Sjóvá-Almennar
Stef-greiðslur Bubba næstu tíu
árin. Bubbi var kallaður svikari
við málstaðinn á meðan aðrir
sáu klókan og fyrirhyggjusaman
mann. Bubbi ávaxtaði fé sitt vel
en skipbrot íslenska efnahags-
kerfisins sökkti þeim gróða að
mestu.
Plötutvennuna Ást/Í sex skrefa fjarlægð frá Paradís tók Bubbiupp í þriggja daga striklotu og hellti þar úr hjartanu sem
aldrei fyrr. Upptökustjóri að þessu magnaða verki var Barði í Bang
Gang. Um líkt leyti
birti slúðurblaðið
Hér og nú mynd af
Bubba að kveikja
sér í sígarettu undir
fyrirsögninni „Bubbi
fallinn“. Bubbi
kærði blaðið fyrir
ærumeiðingar og
vann málið.
Bubbi sýndi og sann-aði að hann væri
með réttu kóngurinn
er hann hélt viðamikla
afmælistónleika í
Laugardalshöll og fyllti
hana. Samstarfsmenn
frá ýmsum skeiðum
á ferli Bubba fögnuðu
með honum og
tónleikarnir voru síðar
gefnir út á geisla- og
mynddiski.
54
2
Gengisvísitala
Bubba Morthens
5.000
stk.
15.000
stk.
4.000
stk.
11.000
stk.
4.000
stk.
23.000
stk.
5.500
stk.
13.000
stk.
15.000
stk.
10.000
stk.
17.000
stk.
11.000
stk.
8.000
stk.
8.000
stk.
8.000
stk.
4.500
stk.
2.000
stk.
2.500
stk.
13.000
stk.
7.000
stk.
5.000
stk.
3.000
stk.
7.500
stk.
3.500
stk.
25.000
stk.
15.000
stk. 3.000
stk.
3.500
stk.
Utangarðsmenn leggja upp
laupana eftir rúmlega eins
og hálfs árs langa starfsemi.
Eftir lágu þrjár plötur og yfir
300 tónleikar, hérlendis sem
erlendis. Egó stofnuð.
Bubbi gerir samning við sænsku
útgáfuna Mistlur og þurrkar
sig upp. Kona ber með sér
ljóðrænni, djúpspakari Bubba
og felur að margra mati í sér
listrænan hápunkt söngvarans.
Þessu viðburðaríka ári lýkur
hann svo með því að syngja með
Hauki frænda í sjónvarpssal í
sérstökum áramótaþætti.
Bubbi lýsir því yfir að Björgvin
Halldórsson sé „einn af
þremur bestu munnhörpu-
blúsleikurum landsins“.
Dögun nær algerri metsölu
og Bubbi er á miklum
hátindi um þetta leyti.
Sólóplötur hans seljast að
lágmarki í 10.000 eintökum.
Nóttin langa kemur út á vegum
hins stuttlífa fyrirtækis Geisla
og mokselst. Upptökustjórn er í
höndum hins sænska Christian
Falk og um margt tilraunakennd.
Á myndum er Bubbi í fyrsta sinni
nauðasköllóttur.
Bókin Bubbi kemur
út þar sem hann
fer á hispurslausan
hátt yfir ferilinn og
að sjálfsögðu selst
hún í bílförmum.
GCD, samstarf þeirra
Bubba og Rúnars
Júlíussonar, bryddar
upp á berstrípuðu rokki
af gamla skólanum -
og mokselst vitaskuld.
Von, eða Kúbuplatan svokallaða kemur út og
verður afar vinsæl. Bubbi sýnir að hann lætur
ekki „boxa“ sig inn og heldur útgáfutónleika
ásamt Sierra Mastera, sveitinni sem hann
vann með úti á Kúbu.
KR-ingurinn Bubbi flytur
eigið lag, „Við erum KR“
í 95 ára afmælishófi
knattspyrnufélagsins. Til
aðstoðar var hljómsveitin
Gömlu brýnin.
Bubbi heldur reglubundið
tónleika þó að plötur fari lágt,
alltént á hans mælikvarða.
Þetta árið stígur hann lítið eitt
út fyrir það sem hann á að
venjast og fer með hlutverk
hermannsins Remendado í
söngleiknum Carmen Negra.
Utangarðsmenn
koma saman aftur
(eitthvað sem fáir
sáu fyrir) og halda
tónleika í fullri
Laugardalshöll.
Sjónvarpsþátturinn
Bandið hans
Bubba sýndur.
Ný hljóðversplata,
Fjórir naglar,
kemur út.
Stórtónleikar í Laugardalshöll
undir yfirskriftinni 06/06/06
þar sem Bubbi fagnar
fimmtugsafmæli sínu.Bubbi gerir sögufrægan samning við
Sjóvá sem á eftir að draga dilk á
eftir sér. Sama ár upphefst hið fræga
„Bubbi fallinn“-mál og plötutvennan
magnaða, Ást/Í sex skrefa fjarlægð
frá Paradís þar sem Bubbi tekst á við
skilnað sinn við Brynju kemur út.
Bubbi gefur út plötuna Nýbúinn
þar sem hljómsveitin Stríð
og friður sér um undirleik.
Platan ber með sér rokkaðri
tóna og byggir undir kröftuga
endurkomu Bubba sem máls-
metandi tónlistarmanns.
Egó kemur saman aftur, Bubbi
fer mikinn í Idol-inu, kvikmyndin
Blindsker sem fjallar um ævi
Bubba er frumsýnd og ný sóló-
plata, Tvíburinn, kemur út. Bubbi
er smám saman að breytast í
lifandi goðsögn.
Ísbjarnarblús kemur út
og veldur straumhvörfum í
íslenskri dægurlagatónlist.
Sama ár hefja Utangarðs-
menn störf og snúa íslenskri
dægurlagatónlist á hvolf.
Egó þrýtur örendi en önnur rokksveit,
Das Kapital er stofnsett. Sólóplötur
koma reglulega út en um þetta leyti er
Bubbi þó á síðasta séns í sukkinu.
Bubbi og Megas
gefa út Bláa
drauma.
Bubbi fær gríðar-
legan áhuga á
hnefaleikum og
fer að lýsa þeim
í sjónvarpi.
6
1 3
1
2
3
4
6
5
?
Enginn íslenskur tónlistarmaður hefur notið meiri lýðhylli hér á landi en Bubbi Morthens. Vissulega alltaf
umdeildur, en afkastameiri listamaður er vandfundinn. Þær fimmtíu plötur sem hann hefur staðið að,
einn og ásamt öðrum, eru bara hluti af fjölskrúðugum umsvifum hans. Bubbi hefur risið hátt á sínum
ferli og líka tekið dýfur en í dag er staða hans þannig að óhætt er að tala um lifandi goðsögn.