Morgunblaðið - 17.12.2008, Side 8

Morgunblaðið - 17.12.2008, Side 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 Skipholt 50c – www.salka.is Í þessari aðgengilegu bók eru tarotspilin túlkuð og sýndar einfaldar lagnir sem auðvelt er að lesa úr. Einnig eru til falleg spil sem henta vel leiðbeiningunum í bókinni. Hvernig verður árið 2009? FRÉTTASKÝRING Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is VAR fjárfestingarstefna peninga- markaðssjóða Landsbankans, Glitnis og Kaupþings í þágu viðskiptavina eða bankanna sjálfra? Þegar rýnt er í eignasamsetningu sjóðanna má sjá að vægi félaga var misjafnt innan sjóðanna. Allir sjóðir bankanna áttu í Kaupþingi, þó í mismiklum mæli og allir áttu hlut í Exista, helsta eiganda Kaupþings, sem og fjárfesting- arfélaginu Atorku. Önnur félög röt- uðu aðeins á lista eins en stundum tveggja sjóða bankanna þriggja og samsetning þeirra var ólík. Fé streymdi úr sjóðunum dögum fyrir fall bankanna og heildarmyndin er því brotin. Morgunblaðið skoðaði samsetningu peningamarkaðssjóða Kaupþings og Landsbankans við slit á þeim en Glitnis frá júlílokum, þar sem ekki hafa fengist nýrri upplýs- ingar. 21% í Kaupþingi og eigendum Sé rýnt í sjóði Kaupþings sést að 11,4% af peningamarkaðssjóðnum lágu í skuldabréfum Kaupþings og 6,9% hans í skuldabréfum Exista, kjölfestufjárfesti bankans. Þá hafði sjóðurinn keypt skuldabréf af Bakka- vör fyrir 1,1 milljarð sem nam 3,1% af sjóðnum, en bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir leiddu Exista í gegnum félagið Bakkavararbraedur Holding og áttu 45% í félaginu í lok nóvember. Og Exista átti tæp 40% í Bakkavör. Í sjóðnum lágu einnig skuldabréf í Alfesca, en fjárfesting- arsjóður í eigu dótturfélags Kaup- þings átti tæp 24% í því félagi sem Ólafur Ólafsson, oft kenndur við Samskip, leiðir með tæplega 40% hlut. 21% af eignasafni sjóðs Kaup- þings samanstóð því af skuldabréfum í bankanum sjálfum og félögum tengdum eigendunum. 41% í Landsbanka og tengdum Í innlendum peningamarkaðssjóði dótturfélags Landsbankans lágu skuldabréf í bankanum sjálfum fyrir tæpa 14,7 milljarða króna, sem nem- ur 14,3% af eignahlutfalli sjóðsins. Þá átti sjóðurinn skuldabréf í fjárfest- ingarbankanum Straumi, en Samson Global Holding í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar og Björgólfs Guðmundssonar, kjölfestufjárfesta í Landsbankanum í gegnum eign- arhaldsfélagið Samson, á 34% í Straumi. Þá voru 8,4% sjóðsins bund- in í skuldabréfum í Eimskip en þar var Landsbankinn í Lúxemborg skráður þriðji stærsti eigandinn og Landsbankinn hér heima sá fjórði hinn 27. nóvember, auk þess sem Samson átti innan við eitt prósent í skipafélaginu. Þá nam eignarhlutfall sjóðsins í skuldabréfum Samson 5,2%. Samtals átti því peningamark- aðssjóður Landsbankans 41,1% í bankanum og félögum sem eigendur bankans áttu hluti í. 29-46% í Glitni og tengdum Eignasafn í sjóðum Glitnis breytt- ist á þeim tíma þegar þeir voru gerðir upp. Ákveðið var að ríkisbankinn keypti verðbréf Sjóðs 9 úr sjóðunum fyrir uppgjör þeirra en stjórn Nýja Glitnis bauð 70% af uppreiknuðu markaðsvirði við fall bankanna í safn- ið eða rétt rúma 13 milljarða króna. Félög í meirihlutaeigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem leiðir Stoðir, voru áberandi í sjóðunum í júní. Sé Sjóður 1, sem skipti með skuldabréf, skoðaður má sjá að 30. júní í ár voru skuldabréf gefin út af Stoðum 9,9% af sjóðnum, skuldabréf í Glitni 8,1% og í Baugi Group 5,3%. Þá námu skuldabréf gefin út af Landic Pro- perty, dótturfélagi Stoða, 3,7% af safninu og af Styrk Invest, fjárfest- ingarfélagi í meirihlutaeigu Stoða og Kaldbaks, 2,4%. Samtals nam því eignarhlutfall Sjóðs 1 í skuldabréfum frá bankanum sjálfum og félögum í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar 29,4% í júnílok. Sjóður 9 átti 46,4% krafna sinna á félög tengd Jóni Ás- geiri Jóhannessyni, þar af átti sjóð- urinn 11,6% í Glitni sjálfum. Í Sjóði 9.1 sem voru peningamarkaðsbréf í evrum voru 38,6% skuldabréf gefin út af félögum tengdum Jóni Ásgeiri. Hvernig eignastaða sjóðanna breyttist frá því í júnílok og þar til bankinn féll hefur ekki fengist upp- lýst en bankinn birti ítarlegt upp- gjör, með nöfnum félaga, tvisvar á ári fyrir fallið, einn bankanna þriggja. Bankinn gaf hins vegar upp að stærstur hluti Sjóðs 9 hefði verið í innlánum banka eða 54% við fall hans. Verðbréfasafnið hefði verið 46% af sjóðnum, þar sem 25% af sjóðnum voru í fyrirtækjabréfum og víxlum, 19% í öðrum skuldabréfum og 2% í bankabréfum, þar af ekkert skuldabréf í Glitni Banka – og því ljóst að samsetning sjóðanna hafði breyst töluvert frá því í júní og þar til bankinn féll. Skoðað er innan Nýja Glitnis hvort upplýsingarnar verða gefnar. Spurt er hvort samsetningin sé óeðlileg? Fjöldi viðmælenda baðst undan því að leggja mat á það en Fjármálaeftirlitið er með ýmsa þætti sem tengjast sjóðunum í skoðun, þó ekki fjárfestingar í tengdum eða vensluðum aðilum, því ekkert bannar slíkt. Fjárfestu í tengdum félögum         #  $%& '   (  ) *  +,* -.' ( * - /0  1 * - 2   $.)   #  $%&3   +,* -.' '   (  ) 1 * - *  4 -  ( * - 2   $%&  ' $%& 5$6 $%& +,* -.' *  ( * - ( 7* - '   (  ) ,8# - 9 4 -  ' 9 :  2   $%& ;  ; ;! ;"! ;;"! " "" ;! ; ; ;!  "" ! ;  ;  !;!;   !" !   ;! ;; ;;; ;"        <         <   <   <   <   <   :) 4 -  /0  1  ( 7 = 8>( +     ? /9 '-  $ 1& 8   ;   ;; !     ;    <         4 -  , $ '    '- (    3  !""     (  /  '  1  +,* -.' ?  / /0  ?   ;" ; ! ;;! ;"  ;;!" "  ;;    ; ; ; ;;     <   <    <     <  > &  > &  > &                ! "# $ % Morgunblaðið/samsett mynd Bankarnir Ólík samsetning sjóða bankanna, sem nú eru í ríkiseigu.  Samsetning peningamarkaðssjóðanna skýrist  Félög tengd eigendunum kusu að skipta við bankana þeirra  Sjóðirnir voru ólíkir milli bankanna þriggja en allir áttu í Kaupþingi, Exista og Atorku Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is Í GÆR voru 8.935 manns á atvinnu- leysisskrá samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun. Það er um 5,4 prósenta atvinnuleysi. Skráð at- vinnuleysi í nóvember var um 3,3 prósent en að meðaltali voru þá um 5.445 skráðir atvinnulausir. Atvinnu- leysi jókst frá október til nóvember um 75 prósent eða sem nemur 2.339 manns. Á sama tíma í fyrra var at- vinnuleysi um 0,8 prósent en um 1.321 var þá skráður atvinnulaus. Í kjölfar efnahagsþrenginga, þá helst yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á Glitni, Landsbankanum og Kaup- þingi, hefur staða fyrirtækja í land- inu versnað snögglega. Sérstaklega á þetta við um fyrirtæki í bygging- ariðnaði en þau hafa sagt upp starfs- mönnum í stórum stíl að undanförnu. Þetta á einnig við um aðrar stéttir. Jóhanna Harpa Árnadóttir, for- maður Verkfræðingafélags Íslands, segir marga verkfræðinga vera farna að horfa út fyrir landsteinana eftir vinnu. Tugir, ef ekki hundruð, verkfræðinga hafa fengið uppsagn- arbréf að undanförnu. „Þau áföll sem gengið hafa yfir íslenskt atvinnulíf að undanförnu bitna harkalega á verk- og tæknifræðingum. Við finn- um svo sannarlega fyrir því. Hins vegar segir það sína sögu um hæfni íslenskra verk- og tæknifræðinga að það hefur verið leitað til okkar frá erlendum fyrirtækjum sem vilja fá þá til starfa.“ Verkfræðingafélagið rekur hús- næði á Engjateigi 9 með Tæknifræð- ingafélagi Íslands og Stéttarfélagi verkfræðinga en félagsmenn í þess- um félögum eru um 3.000. Jóhanna segir þá hafa lýst þungum áhyggjum af stöðu mála í efnahagslífinu að undanförnu. „Það er mikil óvissa framundan og vonandi tekst að halda hjólum atvinnulífsins gangandi.“ Atvinnuleysi í landinu mælist nú um 5,4 prósent Í HNOTSKURN » Um 5.571 maður á höf-uðborgarsvæðinu er nú á atvinnuleysisskrá. Er skipt- ingin þannig að 3.605 eru karlar og 1.966 konur. » Á Suðurnesjum eru1.254 skráðir atvinnu- lausir en ekkert svæði á landinu er með hlutfallslega jafnmikið atvinnuleysi og Suðurnesin. » Hremmingar í efnahags-lífinu hafa haft alvar- legri afleiðingar fyrir karla á vinnumarkaði en konur. Samtals eru um 5.575 karlar á atvinnuleysisskrá en 3.360 konur. Margir karlanna eru iðnaðarmenn. Fjármálaeftirlitið skoðar ýmsa þætti sem tengjast verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum föllnu bank- anna þriggja. „Fjármálaeftirlitið rannsakar al- mennt hvort brotið hafi verið gegn þeim lögum sem það hefur eftirlit með, m.a. er verið að að skoða ýmsa þætti sem tengjast verðbréfa- og fjárfesting- arsjóðum,“ stendur í skriflegu svari þess til Morgunblaðsins. Eftirlitið vísar í 30. og 54. grein- ar laganna um verðbréfa- og fjár- festingarsjóði og þegar þær eru skoðaðar má sjá að sjóðunum var óheimilt að binda meira en 10% af eignum sínum í verðbréfum og peningamarkaðsskjölum útgefn- um af sama útgefanda, eða binda meira en 20% af eignum sínum í innlánum sama fjármálafyr- irtækis. Í lokauppgjöri Lands- bankans námu bréfin í Kaupþingi 32,3% af sjóðnum. Sjóðurinn var yfir 10% markinu með viðskipti í Straumi, Landsbanka og Baugi. Í sjóði Kaupþings voru innlán í sjóðnum 66% af samsetningu hans auk þess sem bréf í bank- anum sjálfum voru yfir 10% markinu. Miðað við upplýsingar á samsetningu sjóðs Glitnis í júlílok voru þó nokkur fyrirtæki yfir þessu viðmiði innan hans, s.s. Straumur, Glitnir, Stoðir, Baugur og Atorka Group. Engar takmarkanir eru í lög- unum er varðar fjárfestingar verðbréfa- og fjárfestingarsjóða í tengdum eða vensluðum aðilum. Vilhjálmur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Samtaka fjárfesta, segir að sjóðstjórar, -stjórnir og jafnvel Fjármálaeftirlitið hefðu átt að grípa inn í þegar viðskiptin fóru úr böndunum. „En nú er Fjármálaeftirlitið bú- ið að vera með FL Group/Stoða- bréfin í sjóði Glitnis í athugun í rúmt ár. Af hverju í ósköpunum tekur svona langan tíma að skera úr um viðskiptin?“ spyr Vilhjálm- ur. Sjóðirnir í skoðun Fjármálaeftirlitsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.