Morgunblaðið - 17.12.2008, Page 17
Fréttir 17ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008
HERSKÁIR Palestínumenn á Gaza traðka á mynd af
George W. Bush Bandaríkjaforseta í gær. Gömul hefð
er fyrir því í Arabalöndum að sýna fólki fyrirlitningu
með því að sýna því skósólann. Muntadar al-Zaidi,
íraskur fréttamaður sem reyndi á blaðamannafundi í
Bagdad að kasta skóm sínum í höfuðið á Bush og kall-
aði hann „hund“, er nú þjóðhetja í augum margra
Araba.
Bróðir al-Zaidis, sem er 29 ára gamall sjía-múslími,
segir að hann hafi verið barinn í varðhaldinu eftir skó-
kastið á mánudag. Hafi hann handarbrotnað, rif hafi
einnig brotnað og hann sé þjakaður af innvortis blæð-
ingum og hafi orðið fyrir augnmeiðslum. Talsmaður
íraska blaðamannasambandsins sagði hins vegar að
embættismenn fullyrtu að al-Zaidi fengi góða með-
höndlun. Enn var efnt til fjöldamótmæla í Bagdad í gær
til að krefjast þess að al-Zaidi yrði látinn laus. Víða
bjóða nú menn í Arabaríkjum fé í skóna frægu.
Reuters
Fótum troðinn forseti
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
NÝR flokkur hefur verið stofnaður í
Suður-Afríku og er álitinn fyrsta aflið
sem eigi möguleika á að ógna veldi
Afríska þjóðarráðsins (ANC) síðan
það komst til
valda eftir afnám
aðskilnaðarstefn-
unnar fyrir tæp-
um 15 árum.
Stofnendur
nýja flokksins
voru flestir í Afr-
íska þjóðarráðinu
en sögðu sig úr
því vegna
óánægju með leið-
toga hans, Jacob Zuma. Flestir
stuðningsmenn nýja flokksins, sem
nefnist Þing þjóðarinnar (skamm-
stafað COPE), studdu Thabo Mbeki,
fyrrverandi forseta, sem varð að
segja af sér vegna þrýstings frá
stjórn ANC fyrr á árinu eftir að hann
beið ósigur fyrir Zuma í leiðtogakjöri
flokksins. Búist er við að Zuma verði
kjörinn forseti landsins á næsta ári.
„Flokkur framtíðarinnar“
Leiðtogi nýja flokksins er Mosiuoa
Lekota, sem var varnarmálaráðherra
Suður-Afríku í nær níu ár þar til
Mbeki lét af forsetaembættinu. Le-
kota er sextugur, var áður þekktur
fótboltamaður og fékk þá gælunafnið
„Ógnin“. Hann sat í fangelsi á Rob-
ben-eyju ásamt Nelson Mandela fyrir
að berjast gegn stjórn hvíta minni-
hlutans.
„Saga Suður-Afríku verður aldrei
sú sama aftur,“ sagði Lekota á stofn-
fundinum í gær og lýsti COPE sem
„flokki framtíðarinnar“. „Flokkur
okkar verður sannarlega laus við
kynþáttahyggju og sannkallað heimili
allra Suður-Afríkumanna, óháð kyn-
þætti, stétt eða kyni.“
Stofnun flokksins sætir miklum
tíðindum í suðurafrískum stjórn-
málum þótt ekki sé líklegt að hann
sigri ANC í kosningum á næsta ári.
Skoðanakannanir benda þó til þess að
COPE geti tekið talsvert fylgi frá
ANC, sem fékk 70% þingsætanna í
síðustu kosningum. COPE gæti einn-
ig veikt stærsta stjórnarand-
stöðuflokkinn, Lýðræðisbandalagið,
sem hefur einkum notið stuðnings
hvítra kjósenda.
Stuðningsmenn COPE hafa sakað
Zuma um spillingu og einræð-
istilburði. Suðurafríski fréttaskýr-
andinn Choice Makhetha segir að
marga S-Afríkumenn þyrsti í flokk
sem standi við orð sín og sýni ábyrgð.
„Ég tel að stofnun COPE ætti að
vekja ANC af værum blundi.“
Nýr flokkur
ógnar ANC
Í HNOTSKURN
» Tæp hálf milljón mannahefur þegar skráð sig í
nýja flokkinn í S-Afríku.
» Flokkurinn hyggst leggjamesta áherslu á baráttu
gegn fátækt, glæpum, at-
vinnuleysi og alnæmisfaraldr-
inum.
Mosiuoa Lekota
MÁL Rod Blagoj-
evich, ríkisstjóra í
Illinois, hefur nú
tekið óvænta
stefnu; deilt er um
það hvort lagaleg-
ur grunnur sé fyr-
ir málsókn.
Er Patrick J.
Fitzgerald sak-
sóknari lét hand-
taka Blagojevich sagðist hann hafa
viljað koma í veg fyrir afbrotahrinu
sem m.a. fæli í sér tilraun til að selja
sæti í öldungadeildinni er losnaði þeg-
ar Barack Obama var kjörinn forseti.
Samkvæmt lögum Illinois ákveður
ríkisstjóri hver fylli skarðið. En í The
New York Times er bent á að Blagoj-
evich hafi ekki enn skipað neinn í
embættið og því sé ekki hægt að full-
yrða neitt um sök. Lagaspekingar
hafa lengi reynt að skilgreina skýrt
mun á afbrotum og hefðbundnum,
pólitískum hrossakaupum, sem geta
verið lögleg þótt siðferðið sé umdeil-
anlegt.
Lögfræðingurinn Robert S. Benn-
ett í Washington bendir á að rætt hafi
verið um að Blagojevich hafi ætlað að
fá sendiherrastöðu fyrir að skipa
„réttan“ mann í þingsætið. „Í þessari
borg er fullt af fólki sem kallar sig
sendiherra og allt borgaði það milli
200 og 300 þúsund dollara í sjóði repú-
blikana eða demókrata,“ segir Benn-
ett. Menn hljóti að velta því fyrir sér
hvort vandinn sé hvað Blagojevich
hafi verið orðljótur og klámfenginn á
upptökunum sem lögreglan hefur
undir höndum eða raunverulegar
gerðir ríkisstjórans. kjon@mbl.is
Rod Blagojevich
Sleppur Blagoj-
evich við ákæru?
Deilt um lagalegan grunn fyrir hand-
töku ríkisstjórans umdeilda í Illinois
ÞEIR sem hrjóta fast og eiga í önd-
unarerfiðleikum í svefni brenna yf-
irleitt mun fleiri hitaeiningum en
aðrir þegar þeir sofa, samkvæmt
nýrri rannsókn.
Þeir sem eru með alvarlegustu
einkenni kæfisvefns, sem lýsir sér í
öndunarhléum af og til og hávær-
um hrotum, brenna að meðaltali
373 fleiri hitaeiningum en þeir sem
eru með vægari einkenni, að því er
fram kemur á fréttavef breska rík-
isútvarpsins, BBC.
Breytingar á taugakerfinu kunna
að valda þessu, að sögn BBC, sem
hefur eftir breskum sérfræðingi að
kæfisvefn sé ekki líklegur til þess
að hjálpa of feitu fólki að grennast.
„Ef menn eru með kæfisvefn eru
þeir mjög syfjaðir á daginn og treg-
ir til að hreyfa sig og iðka líkams-
rækt,“ sagði John Stradling, sér-
fræðingur í svefnsjúkdómum við
John Radcliffe-sjúkrahúsið í Ox-
ford. „Við vitum líka að svefnleysi
eykur matarlystina og minnkar
viljastyrkinn.“
Vísindamenn við Kaliforníu-
háskóla í San Francisco önnuðust
rannsóknina og mældu orku-
brennslu 212 manna í svefni.
bogi@mbl.is
Miklar hrotur auka
orkubrennsluna
ÍSLENSKUR IÐNAÐUR ÁRIÐ 2011
óskar eftir...
bhs.is
bifrost.is
fa.is
fb.is
fg.is
fiv.is
fnv.is
frae.is
fsh.is
fss.is
fsu.is
fva.is
hi.is
hr.is
idan.is
idnskolinn.is
klak.is
misa.is
mk.is
simey.is
tskoli.is
unak.is
va.is
vma.is
Samtök iðnaðarins - www.si.is
vel menntuðu fólki til starfa. Í boði eru
spennandi og vel launuð störf í áliðnaði,
byggingariðnaði, listiðnaði, líftækni, matvæla-
iðnaði, málm- og véltækni, prentiðnaði og
upplýsingatækni.
Iðn-, verk- eða tæknimenntun er skilyrði.
Reynsla af framleiðslustjórnun, gæðastjórnun
og markaðssetningu er kostur.
Íslenskir verkmenntaskólar, háskólar og
fræðslustofnanir bjóða metnaðarfullt nám
sem veitir aðgang að þessum störfum.
Mótum eigin framtíð – Núna er rétti tíminn!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA