Morgunblaðið - 17.12.2008, Síða 20

Morgunblaðið - 17.12.2008, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Þúsundir Ís-lendingahafa tapað miklu fé í pen- ingamark- aðssjóðum bank- anna, sem ekki nutu sömu tryggingar ríkisins og venjulegar bankainnistæð- ur. Athyglisverð mynd er að verða til af starfsemi pen- ingamarkaðssjóða hinna föllnu viðskiptabanka. Fjölmiðlar hafa nánast þurft að toga með töngum út úr nýju bönkunum upplýsingar um eignasamsetn- ingu sjóða gömlu bankanna undir lokin. Nú liggur hún fyr- ir. Í fréttaskýringu Gunnhildar Örnu Gunnarsdóttur í Morg- unblaðinu í dag kemur fram að í öllum bönkunum var fjárfest- ingum peningamarkaðssjóð- anna beint að verulegu leyti í skuldabréf fyrirtækja, sem ým- ist áttu bankana eða voru tengd eigendum þeirra. Þetta vekur óneitanlega spurningar um hvort stjórn- endur peningamarkaðssjóða bankanna hafi haft hagsmuni viðskiptavina sinna, sem lögðu fé í þá, að leiðarljósi eða hvort þeir hafi verið nýttir til að hjálpa eigendunum. Pétur Aðalsteinsson, for- stöðumaður eignastýringar hjá VBS fjárfestingarbanka, sagði í grein hér í blaðinu í gær: „Í umhverfi mikils lausa- fjárskorts er til þess hvati [að halda peninga- markaðssjóðunum að innistæðu- eigendum] og mik- ilvægt að skoðað sé hvort bankarnir hafi sést fyrir í við- leitni sinni til þess að sinna fjármögnunarþörfum tengdra aðila og veigamestu viðskiptavina sinna og ef til vill lagt um of áherslu á sölu- mennsku fremur en skynsama ráðgjöf.“ Pétur bendir á að peninga- markaðssjóðirnir hafi haft óeðlilega mikið vægi í rekstri sjóða bankanna. Þá hafi bank- arnir veitt villandi og óljósar upplýsingar um eignasamsetn- ingu þeirra og ávöxtunar- árangur. Þá telur Pétur að eft- irlit með sjóðunum hafi brugðizt og á þá væntanlega við að Fjármálaeftirlitið hafi ekki reynzt hlutverki sínu vaxið. Allt þetta þarf að skoða rækilega, eigi almenningur ein- hvern tímann í framtíðinni eftir að vilja leggja fé sitt í pen- ingamarkaðssjóði á ný. Og sömuleiðis þarf að upplýsa það, sem enn liggur ekki fyrir; hvernig samsetning sjóðanna breyttist á síðustu mánuðunum í starfsemi þeirra. Jókst þá vægi skuldabréfa eigenda og tengdra fyrirtækja, þrátt fyrir augljósa áhættu? Jafnvel þótt ekkert saknæmt hafi átt sér stað, er það lág- markskrafa að almenningur fái að vita hvernig farið var með sparifé hans. Höfðu stjórnendur sjóðanna hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi?} Í hvers þágu? Vandræðaástandblasir við í fangelsismálum á Íslandi. 80 til 120 milljónir vantar upp á framlögin í nýju fjárlaga- frumvarpi til að reka fangelsin eins og verið hefur. Vegna nið- urskurðar þarf að loka stofn- unum og er horft til Akureyrar í þeim efnum. Ekki er hins veg- ar neitt útlit fyrir að föngum muni fækka á næstunni eða dómar léttast. Ef ekki verða gerðar neinar breytingar á því með hvaða hætti dæmdir menn afplána dóma sína stefnir því í óefni. Nú þegar bíða 200 manns þess að hefja afplánun í íslenskum fangelsum. Alvarleiki brots mun ráða því hversu langur biðtíminn er. Það er ákaflega hæpið að dæmdir menn bíði þess að af- plánun hefjist og spurning hvort ekki sé um að ræða brot á mannréttindum. Svipting frels- is er ekki léttvæg aðgerð. Með fangelsun er einstaklingur tek- inn úr umferð í tiltekinn tíma. Líf hans er sett í bið. Ef hann neyðist til að bíða eftir því að geta hafið afplánun þýðir það í raun að dómurinn lengist sem því nemur. Það þarf því að taka til alvarlegrar athugunar hvort ekki er hægt að haga afplánun dóma með öðrum hætti en nú er gert og til dæmis leggja ríkari áherslu á samfélagsþjónustu og meðferðarúrræði eins og Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræð- ingur og prófessor við Háskóla Íslands, segir í Morgunblaðinu í gær. Það myndi ef til vill ekki uppfylla kröfur um refsingu, en gæti orðið vatn á myllu betr- unar. Slíkar lausnir eiga hins vegar ekki alltaf við og hljóta að fara eftir eðli brota. Kostnaðurinn við vistun fanga vekur einnig til umhugs- unar. Í máli Páls Winkels í um- fjöllun Morgunblaðsins í gær kemur fram að hver fangi kosti ríkið 24 þúsund krónur á dag. Þetta er þrisvar sinnum meira en greitt er með dvalarrými á elliheimili og rúmlega sex þús- und krónum meira en borgað er með einstaklingi í hjúkr- unarrými. Getur það verið eðli- legur munur? Samræmist það mannréttindum að dæmdir menn bíði afplánunar?} Betrun eða refsing? V ið Sigurður G. Guðjónsson vorum í gærkvöld vikulegir gestir í þætt- inum Ísland í dag á Stöð 2 og vor- um sammála um flest, en ekki allt. Það er nú eins og það er í sjónvarpsþáttum í beinni útsendingu, að kannski kemur maður að svona 10% af því sem maður hefði viljað segja, en gott og vel. Aðeins að því sem ég ekki náði að segja, en hefði svo gjarnan viljað sagt hafa. Sigurður sagði að nú sýndist honum sem heldur væru mál að róast og ríkisstjórnin sem nú situr ætti því að hafa meiri frið til þess að vinna að þeim mörgu úrlausnarverkefnum sem hún á að vera og er vonandi að vinna að. Hann virtist því nokkuð bjartsýnn á að nú yrði tekið til hendinni. Ég tek undir með Sigurði að það er rétt að ríkisstjórnin þarf á vinnufriði að halda, hvort sem er í skammtímaverkefnum, eins og þeim að moka flórinn frá degi til dags, eða að leggja línurnar til framtíðar, þannig að skipulega sé unnið að því á hvern veg við Íslendingar vinnum okkur út úr þeim ógöngum sem við nú erum í. En ég tek ekki undir það sjónarmið Sigurðar, að nú séu mál að róast og að vinnufriður geti því verið fram- undan fyrir ríkisstjórnina. Ég er nokkuð sannfærð um að það eru jólahátíðin og áramót sem setja strik í reikning- inn hjá mótmælendum einmitt þessa dagana, ekki það að reiði, gremja og biturð almennings á Íslandi sé eitthvað á undanhaldi. Fólk er einfaldlega komið í smáfrí frá mót- mælunum og það sést ekki síst á því að þeir sem boða til mótmæla eru stöðugt að fá minni spámenn til þess að koma og tala sínu máli, eða hvað? Þvert á móti tel ég að strax upp úr áramót- um, segjum mánudaginn 5. janúar 2009, þeg- ar nýjar fjöldauppsagnir hafa dunið yfir þjóð- ina, þegar fjölmörg fleiri fyrirtæki landsins hafa gefist upp og lýst sig gjaldþrota, blasi á nýjan leik við gríðarleg örvinglun á Íslandi. Ég tel að þá munu óánægjuraddir heyrast í himinhæðum á nýjan leik, þá mun verða kall- að eftir grundvallarbreytingum, ekki plástr- um hér og þar og reiði fólksins mun fá nýjan og hærri tón en nokkru sinni fyrr. Ástandið gæti í einni svipan breyst í grískt ástand, þegar fólskulegt dráp grískra lög- reglumanna á fimmtán ára unglingi kallaði fram ástand sem nálgaðist borgarastyrjöld. Og hvar stöndum við þá? Kveikiþráðurinn hjá okkur Íslendingum styttist stöð- ugt; þolinmæðin fer þverrandi; umburðarlyndi er að verða fátítt fyrirbæri; samkennd með náunganum sömu- leiðis; fyrirgefning er að verða nánast óþekkt fyrirbæri og dómharkan vex dag frá degi (þótt hún muni vissulega fá nokkurra daga frí yfir hátíð Frelsarans). Ég held að við verðum að taka okkur sjálf til gagn- gerrar endurskoðunar. Við tókum ekki öll þátt í leikjum græðgisvæðingarinnar, en getum við horft framhjá því að flest tókum við þátt í leiknum? agnes@mbl.is Agnes Bragadóttir Pistill Bjartsýni eða raunsæi Símapeningar nýttir að hluta - sumt í salt FRÉTTASKÝRING Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is F ögur fyrirheit voru gefin haustið 2005 þegar rík- isstjórnin tilkynnti að 43 milljörðum af 66,7 milljarða söluandvirði Símans yrði varið til framkvæmda af ýmsu tagi fram til ársins 2012. Sam- þykkt voru sérstök lög þar sem til- greint var í hvað peningarnir skyldu renna. M.a. var gert ráð fyrir að 18 milljarðar rynnu í fyrstu áfanga há- tæknisjúkrahúss á Landspítalalóð- inni við Hringbraut. Nú eru breyttar aðstæður og í fyrradag var lagt fram frumvarp á þingi þar sem lagt er til að lögin um ráðstöfun söluandvirð- isins verði felld úr gildi og ákvarð- anir um fjármögnun þeirra fram- kvæmda og verkefna sem þar er fjallað um verði teknar árlega á vett- vangi fjárlaga. Gert er ráð fyrir að ýmsum framkvæmdum sem kveðið er á um í lögunum verði frestað. Lík- ast til mun það fé sem eftir stendur af Símapeningunum renna inn í rík- issjóð, en ekki lágu í fjármálaráðu- neytinu í gær fyrir upplýsingar um upphæðina. Séu einstök verkefni skoðuð kem- ur í ljós að til sumra þeirra hefur stór hluti Símapeningsins skilað sér, en meira vantar upp á annars staðar. Árin 2005-2008 átti að leggja tvo milljarða króna til Landspítala vegna nýja háskólasjúkrahússins. Samkvæmt upplýsingum Ingólfs Þórissonar, verkefnisstjóra nýs há- skólasjúkrahúss, skiluðu sér 1.290 milljónir af þessum peningum. Eftir standa 16 milljarðar króna. Í endur- skoðuðu fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir 400 milljónum á næsta ári til undirbúnings framkvæmdunum. G. Pétur Matthíasson, upplýsinga- fulltrúi Vegagerðarinnar, segir að þegar hafi ríflega 3,5 milljarðar af þeim 15 sem áttu að renna til fram- kvæmda í vegamálum verið notaðir. Stærstur hluti peninganna, eða átta milljarðar, átti að renna í gerð Sundabrautar, sem nú hefur verið frestað. Mörg þeirra verkefna sem nota átti peningana fyrir Símann í eru hafin, að sögn G. Péturs. Enn hafi þó ekki verið byrjað á þremur stórum verkefnum: Bræðratungu- vegi um Hvítá, hringvegi um Hornafjarðarfljót og tvöföldun Reykjanesbrautar frá Kaldársels- vegi að Krýsuvíkurvegi. 2,5 milljarðar króna áttu að renna í Fjarskiptasjóð til uppbyggingar á sviði fjarskiptamála, m.a. með bættri farsímaþjónustu á landsbyggðinni, víðtækari dreifingu stafræns sjón- varps um gervihnött og átaki í há- hraðatengingum. Róbert Marshall, aðstoðarmaður samgönguráðherra, segir að peningar til verkefnanna hafi skilað sér. Enn eigi þó eftir að ráðast í háhraðanetið en tilboð vegna verksins hafa verið framlengd. 24 geðfatlaðir bíða enn úrræða Einn og hálfur milljarður króna átti að renna til búsetuúrræða fyrir geðfatlaða. Þar af átti milljarður að koma vegna sölu Landssímans en 500 milljónir úr Framkvæmdasjóði fatlaðra. Sveinn Magnússon, for- maður Geðhjálpar, segir að um hjálp til 160 einstaklinga á landinu öllu hafi verið að ræða. Eins og er sé í óvissu frágangur á málum 24 ein- staklinga vegna fjárskorts, af 84 sem áttu að fá aðstoð í Reykjavík. Þær upplýsingar fengust hjá Landhelgisgæslunni að stærstur hluti Símaapeninganna hefði skilað sér þangað. Landhelgisgæslan hafi greitt þann hluta sem hún fékk af Símapeningunum til nýs varðskips og eftirlitsflugvélar. ?  13(  +0 ' $ @9 $ H .' C   H &    17    O )&   B       & & (P     '     13(  +      !"#$%&'($ ) *  +,-!%. %  /! . %  /0'  &1 # $   # .$ 2$    8            ! "  ; ;; ; 1                                             Eitt þeirra verkefna, sem frestað hefur verið en átti að vinna fyrir Landsímapeningana, er nýbygging Árnastofnunar við Þjóðarbókhlöð- una en þar átti m.a. að sýna gömlu handritin. Vígja átti húsnæðið árið 2011 á 100 ára afmæli Háskóla Ís- lands. Vésteinn Ólason, forstöðumaður Árnastofnunar, segir frestunina vonbrigði. „En það er svo margt sem er vonbrigði sem er að dynja yf- ir og maður verður að taka þessu eins og öðru,“ segir Vésteinn. Hann kveðst vonast til þess að þegar rofa fari til í ríkisfjármálunum og hjá þjóðinni verði hugmyndin dregin fram. „Það hefur verið hugmyndin alveg frá því að handritin komu frá Danmörku að reist yrði yfir þau önnur og veglegri bygging en Árna- garður.“ Þegar er búið að halda hugmyndasamkeppni vegna bygg- ingarinnar, þar sem Hornsteinar- arkitektar báru sigur úr býtum. BYGGINGU FRESTAÐ ››

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.