Morgunblaðið - 17.12.2008, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
–meira fyrir heilsuna
Morgunblaðið gefur
út glæsilegt sérblað um
laugardaginn 3. janúar 2009
heilsu og lífsstíl
Fáðu þér áskrift að Morgunblaðinu
á mbl.is/askrift
Allar nánari upplýsingar
veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða
kata@mbl.is
Tekið er við auglýs-
ingapöntunum til
kl. 16 föstudaginn
19. desember 2008.
Meðal efnis í blaðinu verður:
Hreyfing og líkamsrækt
Hvað þarf að hafa í
ræktina
Vinsælar æfingar fyrir
eldra fólk
Heilsusamlegar
uppskriftir
Andleg vellíðan
Bætt heilsa á viku
– góð ráð
Ráð næringarráðgjafa
Umfjöllun um fitness
Jurtir og heilsa
Meðferð gegn offitu
Fasta – kostir og ókostir
Mikilvægi þess að fara
í krabbameinsskoðun
Skaðsemi reykinga
Ásamt fullt af
fróðleiksmolum og
spennandi viðtölum
Þetta er tíminn til að huga að heilsu sinni og lífs-
stíl og taka nýja stefnu.
Í þessu blaði verða kynntir fjölmargir möguleikar
sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak
og bættan lífsstíl í byrjun ársins 2009.
FR
Á
AU
GL
ÝS
IN
GA
DE
ILD
M
OR
GU
NB
LA
ÐS
IN
S
FRÉTTIR af nið-
urstöðum úr haustralli
Hafrannsóknastofn-
unar eru fágæt gleði-
tíðindi nú um stundir.
Hamingjan er fólgin í
því að tölur benda ein-
dregið til að þorsk-
stofninn sé mun betur
haldinn en fyrri rannsóknir gáfu til
kynna. Þetta styður fullyrðingar
fjölmargra sjómanna um að staða
stofnsins sé hvergi jafn slæm og
stofnunin hefur viljað halda fram.
Hrygningarstofn þorsksins virðist
loks vera að braggast. Nýliðun og
vöxtur eru sömuleiðis á batavegi þó
að tölur varðandi þá stofnstærð-
arþætti séu enn ekki viðunandi.
Tillaga tilbúin
í þinginu
Niðurstöður haustrallsins gefa
tilefni til að minna á þingsályktun-
artillögu sem þrír þingmenn Frjáls-
lynda flokksins (Guðjón A. Krist-
jánsson, Grétar Mar Jónsson og
Jón Magnússon) hafa lagt fram á
Alþingi. Efni hennar er að leyfileg-
ur þorskafli fiskveiðiársins 2008-
2009 verði aukinn um 90.000 tonn.
Heildar afli þorsks verði þannig
alls 220.000 tonn á yfirstandandi
fiskveiðiári.
Öllum ætti að vera ljós sú höf-
uðnauðsyn okkar nú að auka tekjur
og atvinnu í landinu. Útflutnings-
verðmæti þess þorskafla sem þing-
menn flokksins hafa lagt til gæti
verið um 40-50 milljarðar króna.
Það munar um minna.
Við í Frjálslynda flokknum höf-
um hvergi farið dult með þá skoðun
okkar að það sé ábyrg afstaða við
núverandi aðstæður í þjóðfélaginu
að leggja til auknar þorskveiðar.
Við höfum verið sannfærð um að
árferði í lífríki sjávar við landið sé
nú með þeim hætti að ávinning-
urinn sé vís en líffræðileg áhætta
sé engin. Niðurstöður úr haustralli
Hafró sýna að mat okkar hefur
verið réttmætt. Hik og fálm rík-
isstjórnarinnar í þessu máli hefur
verið með ólíkindum. Nú verður
ekki búið við það lengur.
Ákveðnar
hugmyndir
Frjálslyndi flokk-
urinn hefur einnig
mótað hugmyndir um
það hvernig beri að
ráðstafa þeirri 90 þús-
und tonna kvótaaukn-
ingu í þorski sem við
viljum sjá á yfirstand-
andi fiskveiðiári. Við
leggjum til að 40.000
tonn fari beint í núver-
andi aflahlutdeild-
arkerfi þar sem þeim
verði úthlutað með hefðbundnum
hætti til fiskiskipa af öllum stærð-
um sem á annað borð hafa hlut-
deild í þorskstofninum.
Síðan leggjum við til að þeim 50
þúsund tonnum af þorski sem um-
fram er þau 170 þúsund sem við
leggjum til að varið sé í afla-
hlutdeildarkerfið verði ráðstafað til
leigu um viðskiptamarkað. Til þess
þarf setja löggjöf um sölu og leigu
á aflaheimildum. Slíkt ætti að vera
hægur vandi, sé á annað borð póli-
tískur vilji fyrir hendi fyrir jafn
eðlilega, skynsamlega og sann-
gjarna tilhögun. Leiga og sala afla-
heimilda fari aðeins um þann far-
veg sem markaður er um slík
viðskipti.
Megininntak í slíkri löggjöf verði
að útgerðum beri að nýta aflaheim-
ildir til veiða. Við sölu eða leigu á
aflaheimild verði hún skilgreind
sem afnotaréttur í takmarkaðan
tíma gegn leigugjaldi.
Kærkominn tekjustofn
Við viljum að tekjum ríkissjóðs
af viðskiptum með aflaheimildir
verði skipt að jöfnu milli ríkis og
sveitarfélaga. Þetta yrði kærkomin
búbót á viðsjárverðum tímum þar
sem bæði sjóðir bæði ríkis og sveit-
arfélaga berjast hreinlega í bökk-
um.
Tillögur okkar eru að ákveðnum
þúsundum tonna af þorski verði
markaður farvegur til leigu, sér-
staklega frá þeim svæðum þar sem
verulegur samdráttur hefur orðið í
aflaheimildum og hagvöxtur síðustu
ára hefur verið hvað minnstur og
jafnvel neikvæður. Þær heimildir
verði leigðar með þeim skilyrðum
að gert verði út frá viðkomandi
landsvæði og aflinn seldur þar á
markaði og unninn. Leigutekjum
ríkisins af þessum sérúthlutuðu
veiðiheimildum verði ráðstafað til
atvinnuuppbyggingar á sömu land-
svæðum. Þannig væri komið á fót
raunverulegum mótvægisaðgerðum
í strandbyggðum landsins. Um
þetta þyrfti að setja sér lög um
leigu eða sölu aflaheimilda eða lög
sem marka ríki og sveitarfélögum
tekjur af þeim viðskiptum. Slík
lagasetning veltur einnig á pólitísk-
um vilja meirihluta löggjafavaldsins
sem er Alþingi þjóðarinnar.
Blásið til sóknar
Þingsályktunartillaga þriggja
þingmanna Frjálslynda flokksins er
nú til meðferðar í landbúnaðar- og
sjávarútvegsnefnd þingsins. Það
ber að afgreiða hana þaðan nú í
snatri og áður en Alþingi fer í jóla-
leyfi. Þá yrði 40.000 tonna aukning
í þorskkvóta gefin út strax um ára-
mót. Á meðan þingið er í jólaleyfi
væri síðan hægt að útbúa löggjöf
um leigumarkað og skiptingu milli
ríkis og sveitarfélaga á þeim 50.000
tonnum sem eftir stæðu. Þá löggjöf
gæti þingið síðan afgreitt um leið
og það kæmi saman eftir áramót.
Þegar upp væri staðið væri því
með tiltölulega einföldum aðgerð-
um búið að færa strandbyggðum
Íslands, sjávarútveginum og þjóð-
inni allri, atvinnuskapandi hjálp-
arpakka að verðmæti allt að 50
milljarðar króna. Aukning þorsk-
kvótans um 90.000 tonn yrði hrein
fjörsprauta fyrir atvinnulífið og
fólkið í landinu. Þetta yki á bjart-
sýni, þor og dug þjóðarinnar.
Við höfum nú undir höndum vís-
indaleg gögn sem styðja þessa
ákvörðun. Það eina sem skortir nú
er pólitískt hugrekki. Það höfum
við í Frjálslynda flokknum. Nú
reynir á hvort slíkt sé einnig að
finna hjá ríkisstjórnarflokkunum.
Upp, upp mín
sál og þorskurinn með
Magnús Þór
Hafsteinsson
vill að þorsk-
veiðikvótinn
verði aukinn
» Aukning þorsk-
kvótans um 90.000
tonn yrði hrein fjör-
sprauta fyrir atvinnu-
lífið og fólkið í landinu.
Þetta yki á bjartsýni,
þor og dug þjóðarinnar.
Magnús Þór
Hafsteinsson
Höfundur er fiskifræðingur og
varaformaður Frjálslynda flokksins.
ÞORSTEINN Þor-
steinsson, markaðs-
stjóri RÚV, birti í
Morgunblaðinu 15. des-
ember sl. svar við grein
minni í sama blaði frá
12. desember. Í grein
minni held ég því m.a.
fram að skv. frumvarpi
menntamálaráðherra
um takmarkanir á aug-
lýsingatímum RÚV í Sjónvarpinu
geti stofnunin aukið tekjur sínar
verulega. Ólíkt þessu halda for-
svarsmenn RÚV því fram að það
verði til að skerða auglýsingatekjur
um 350 til 400 m.kr. á ári.
Þorsteinn segir að í grein minni
beiti ég „undarlegri talnaspeki“, að
reikningslíkan mitt haldi ekki vatni
og ég skáldi sekúnduverð RÚV. Til
áréttingar þá er það meðalsek-
únduverð sem ég nota í mínum út-
reikningum byggt á verðskrá RÚV
sem nálgast má á heimasíðu félags-
ins (www.ruv.is). Áhugasamir geta
sjálfir kynnt sér málið. Á heimasíð-
unni má sjá að í gildi eru þrír
grunnverðflokkar. Ég reikna út
meðalverð hvers
flokks og áætla út frá
áhorfi hvaða verðflokk
skuli miða við á hverri
klukkustund. Allt tal
Þorsteins um að ég sé
að gera ráð fyrir „of-
urhækkun RÚV“ á
verðskrá er því út í
hött. Miklu fremur eru
hér komnar fram játn-
ingar forsvarsmanna
RÚV um að þeir hafa
ekki farið eftir
verðskrá, sem stjórn
félagsins hefur sett
samkvæmt lögum, og virðast ekki
ætla að gera það í framtíðinni. Mað-
ur hlýtur að spyrja sig út frá mál-
flutningi Þorsteins hvort opinber
verðskrá RÚV sé eitthvert grín í
augum forsvarsmanna stofnunar-
innar.
Þorsteinn gagnrýnir einnig for-
sendur mínar um nýtingu á auglýs-
ingatímum RÚV. Til upplýsingar þá
geri ég ráð fyrir hógværum nýting-
arhlutföllum sem taka mið af
ástandinu í þjóðfélaginu. Ef ég leyfi
mér að vera svartsýnn fyrir hönd
RÚV og gef mér að einungis náist
50% nýting á kjörtíma, sem væri
gríðarlegur samdráttur frá yf-
irstandandi ári, þá myndu auglýs-
ingatekjur Sjónvarps engu að síður
nema ríflega milljarði króna sem er
40 til 50% hærra en var á síðasta
ári.
Frumvarp menntamálaráðherra
er m.a. lagt fram til að styrkja stöðu
einkarekinna fjölmiðla og bæta
samkeppnisstöðu þeirra. Ég fagna
frumvarpinu og hvet þingmenn og
aðra að mynda sér sjálfstæða skoð-
un á áhrifum þess á auglýsinga-
tekjur RÚV. Ég tel frumvarpið já-
kvætt skref en að of stutt sé stigið í
að jafna samkeppnina. Miðað við
mat forsvarsmanna RÚV á áhrifum
þess er augljóst að þeir hyggjast
hér eftir sem hingað til ekki fara
eftir eigin verðskrá og reglum um
afslætti.
Játningar forsvarsmanna RÚV
Pétur Pétursson
fjallar um verðskrá
og auglýsingatekjur
RÚV
»Maður hlýtur að
spyrja sig út frá
málflutningi Þorsteins
hvort opinber verðskrá
RÚV sé eitthvert grín í
augum forsvarsmanna
stofnunarinnar.
Pétur
Pétursson
Höfundur er framkvæmdastjóri
sölusviðs 365 miðla ehf.