Morgunblaðið - 17.12.2008, Qupperneq 24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008
Morgunblaðinu hefur borist mikill fjöldi greina og pistla frá lesendum um ástandið í
efnahagsmálum landsins. Margir höfundar lýsa áhyggjum sínum af þróun mála og
margir gera tillögur um leiðir út úr efnahagsvanda þjóðarinnar. Morgunblaðið leggur
áherslu á að gera þessum umræðum góð skil í blaðinu á næstunni.
Skoðanir fólksins
ÉG undirrituð er 54 ára gömul og upplifi það í fyrsta
sinn á ævi minni að standa ekki skil á því sem ég hef
„skuldbundið mig til“. Mér þykir það vond upplifun.
Svo er mál með vexti að árið 2007 ákváðum við hjón-
in að festa kaup á litlu 110 fm húsi í Hafnarfirði. Sam-
anlagðar eignir okkar voru þá 10 milljónir – en engar
skuldir, því við erum bæði alin upp við það að standa í
skilum. Foreldrar okkar beggja kenndu okkur að afla
fyrst og eyða svo. Þannig hef ég lítið keypt með af-
borgunum, lítið notað kreditkort og ekki tekið yf-
irdráttarlán. Að standa í skilum hefur verið að-
aldyggðin, greiða allt sem mér ber, og svo má nota
afganginn, ef einhver er, í eitthvað skemmtilegt. Húsið
kostaði 30 milljónir og okkur stóð til boða 20 milljón
króna myntkörfulán sem bæði fasteignasalinn og bank-
inn okkar mæltu mjög með. Okkur var reyndar sagt að
við myndum ráða við miklu dýrari eign, en það vildum
við ekki því við eigum samtals 6 börn og 2 barnabörn
sem við viljum hjálpa eftir megni og eiga kannski náð-
ugari daga í ellinni. Afborganir af láninu voru um 120
þúsund á mánuði og við gerðum að sjálfsögðu ráð fyrir
að þær gætu sveiflast eitthvað með gengi krónunnar.
Verðbólguspá Seðlabankans í fyrra benti ekki til ann-
ars en að allt væri í stakasta lagi og yrði svo áfram. Á
þetta treystum við. Til þess kjósum við ykkur.
Ég hefði svo mikið viljað standa mig í því að hvetja
börnin mín, tengdabörn og ekki síst barnabörnin til að
standa í skilum, og þar með að halda sjálfsvirðingu
sinni, en ég get það ekki lengur, því miður.
Ég er nefnilega sjálf hætt að standa í skilum, eins
og ég sagði í upphafi þessa bréfs. Hætt að standa í
skilum, í fyrsta skipti á ævi minni. Við hjónin höfum að
vel hugsuðu máli ákveðið að hætta að greiða bank-
anum það sem hann rukkar okkur nú um. Ég skuld-
batt mig til að borga rúmlega 100.000 á mánuði, plús
eða mínus einhverja tugi þúsunda. Staða okkar núna
er hins vegar allt önnur. Fyrir nóvembermánuð vorum
við rukkuð um hvorki meira né minna en 340.000 (þrjú
hundruð og fjörutíu þúsund krónur). Á sama tíma hafa
launin okkar hækkað um 3%. Mér sýnist líka 20 millj-
ón króna lánið sem við tókum í fyrra vera skráð núna
á um 40 milljónir króna.
Ég var svo sem eins og flestallur almenningur á Ís-
landi búin að ákveða með sjálfri mér fyrir þó nokkrum
mánuðum síðan að þær stjarnfræðilegu upphæðir sem
menn virtust vera að höndla með gætu ekki endað vel.
Þessi bréf voru greinilega í fyrirtækjum og einhvers
konar pappírum öðrum sem hlutu að fara illa á end-
anum. En að þeir tækju mig og alla hina samlanda
mína með sér í fallinu – það hafði ég ekki haft hug-
myndaflug í. Það sem mér þykir svo einkennilegt
núna, er að þetta hrun/fall bankanna og þar með
ábyrgðaraðilans, ríkisins, skyldi koma ykkur öllum
ráðamönnum/konum svona á óvart. Það er eins og þið
hafið ekki vitað fyrir hvað þið höfðuð skuldbundið ykk-
ur og um leið alla íslensku þjóðina. Allri ríkistjórninni
sem ég hafði kosið til að bera ábyrgð á þessu fyrir mig
kom þetta á óvart. Höfðuð þið ekki samið lögin sem
bankarnir unnu eftir? Þið selduð bankana á sínum
tíma, var það ekki úthugsað hvernig nýir eigendur
myndu fara með sín nýju fyrirtæki? En enginn segist
bera ábyrgð, það biðst enginn einu sinni afsökunar á
þessari stöðu sem við erum í. Hvers vegna ekki? Þessu
er öllu stjórnað af fólki, þetta eru ekki náttúruhamfar-
ir.
En þar sem ég vil ennþá vera heiðarleg og líka
standa í skilum með það sem ég hef skuldbundið mig
til hef ég enn eina spurningu fyrir ykkur, þar sem lán-
ið er enn á nöfnum okkar hjóna. Hvert á ég að áfram-
senda þessa rukkun? Ég vil nefnilega síður að litlu
ömmustelpurnar mínar, sem í dag eru 5 og 6 ára, þurfi
að greiða þessar skuldir sem hér um ræðir og eru
ennþá á mínu nafni. Mér skilst á fjölmiðlaumræðunni
að nóg sé nú samt búið að skuldbinda þær litlu stúlkur
nú þegar af ykkur, yfirmönnum þessa lands. Þetta er
bara ekki einleikið hvernig ég og mín ætt höfum látið
fara með okkur. Við þetta heilsuhrausta fólk, sem alla
tíð höfum skilað okkar til samfélagsins, sem verkafólk,
sjómenn og kennarar og alltaf staðið í skilum. Þetta
með að fara vel með og eyða ekki um efni fram – það
hefur greinilega eitthvað misskilist í minni fjölskyldu.
Finnst ykkur það ekki líka?
Nú þegar ég er hætt að greiða af myntkörfuláninu
reikna ég með að litla draumahúsið okkar verði tekið
af okkur. Er það ekki það sem gerist ef maður stendur
ekki í skilum? Ég veit það ekki, því ég hef aldrei
skuldað neinum neitt áður. Þá ætla ég bara að segja
ykkur að lokum að ég ætla að taka með mér jólaser-
íuna sem er utan á húsinu og líka engilinn sem stendur
í glugganum, það á ég hvort tveggja skuldlaust.
Með von um svör við þessum spurningum mínum því
ég veit að allur þorri almennings/kjósenda á Íslandi er
í svipuðum sporum og myndi því líka lesa svör ykkar.
Bestu kveðjur.
P.s. Mig langar líka til að segja ykkur, þó svo mér
þyki það leitt, að ég hvet börnin mín ekki lengur til að
búa og byggja sína framtíð á Íslandi.
Lítið bréf til ráðherra
María Kristjánsdóttir,
Hafnarfirði.
Í SJÓNVARPSFRÉTTUM RÚV
um kvöldið 11.12. ræddi Friðrik J.
Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, um samningaumleitanir 33
sjávarútvegsfyrirtækja við Lands-
banka Íslands, skilanefnd vænt-
anlega, um niðurfellingu á hluta
skulda umræddra fyrirtækja. – Svo
virtist, sem um væri að ræða ein-
hvers konar framvirka útreikninga
á gengi (og þá væntanlegum afla í
náinni framtíð) og veiðum og þá
væntanlega tekjum fyrirtækjanna,
eða borgunargetu. – Hér væri þá
um að ræða tilraunir til að festa að
einhverju marki í sessi núverandi
kvótahlutdeild hverrar útgerðar til
framtíðar um einhver ár. Með öðr-
um orðum, að núverandi skuldir út-
gerðanna við Landsbankann greið-
ist á einhvern hátt með hliðsjón af
væntanlegum afla, sem væri háður
núverandi aflamarkshlutdeild fyr-
irtækjanna og
framhaldi þar á.
Það er á allra
vitorði að hávær-
ar kröfur eru nú
um land allt um
breytingar á fisk-
veiðistjórnuninni.
Þess vegna leyfir
ritari sér að bera
fram spurningar til Fjármálaeft-
irlitsins varðandi ofangreind atriði.
Hefur skilanefnd Landsbanka Ís-
lands heimild til að semja nú um
greiðslur skulda, eða niðurfellingu
á einhverjum hluta þeirra, við
bankann á þann veg, að framreikn-
ingar á aflaverðmæti útgerðanna
séu teknar inn í útreikninga á
greiðslum eða greiðslugetu?
Ef svo er þá er verið að taka
með í útreikninga niðurstöður í
miklum pólitískum deilum í land-
inu. Er Fjármálaeftirlitinu þetta
ljóst og er einhver hætta á að svo
sé?
Getur einnig verið um að ræða
hliðstæð mál í hinum ríkisbönk-
unum tveimur?
Ritari óskar eftir því að svör
birtist opinberlega í Morgunblaðinu
eða öðrum sambærilegum frétta-
miðli á landsvísu.
Virðingarfyllst.
Fyrirspurn til
Fjármálaeftirlitsins
Jónas Bjarnason
efnaverkfræðingur.
HVERSU
lengi á að halda
upplýsingum um
Sjóð 1 leyndum
fyrir almenn-
ingi?
Þetta er
spurning sem
brennur svo
mjög á við-
skipta-vinum eða -óvinum bank-
ans. Er það kannski ætlunin að
halda honum í frysti jafnlengi og
langreyðarkjötinu í Japan, sem
frægt er orðið. Þessi dráttur á
upplýsingum er með öllu óafsak-
anlegur og bankastjórninni til há-
borinnar skammar.
Haft er eftir fjölmiðlum að eign-
arhlutur nýskipaðs bankastjóra
Nýja Glitnis, Birnu Einarsdóttur,
hafi hvergi verið á skrá hjá gamla
Glitni og af þeim sökum hafi FME
alveg þótt óþarfi að gera veður út
af svona smámunum (180 millj-
ónum). Þetta var bara smávægileg
vanrækslusynd af hálfu starfs-
manna Gamla Glitnis. Enginn
blettur fellur því lengur á blessaða
bankastýruna. Hún hefur nú verið
rækilega hvítþvegin af eldklárum
fagmönnum FME, sem höfðu sem
betur fer vit á því að nota „Fin-
ish“ við það vandasama verk.
Hvað með
sjóð 1?
Halldór Þorsteinsson
skólastjóri Málaskóla Halldórs.
Fréttir
í tölvupósti
Moggaklúbburinn er nýjung fyrir áskrifendur Morgunblaðs-
ins. Félagar í Moggaklúbbnum njóta margskonar fríðinda
og ávinnings. Í hverjum mánuði fá áskrifendur frábær tilboð
um vörur, þjónustu og afþreyingu á mjög hagkvæmum kjör-
um auk þess sem dreginn er út glæsilegur ferðavinningur.
Klúbbtilboð
fyrir áskrifendur
25%afsláttur
af jólahlaðborði Nítjándu
Aðeins 5.550 kr. á mann
Fullt verð á mann er 7.400 kr.
Afslátturinn gildir miðvikudagskvöld
og fimmtudagskvöld fram að jólum
Gildir fyrir tvo. Afsláttur gildir ekki af drykkjum.
Nítjánda Smáratorg 3 201 Kópavogi
Borðapantanir: 575 7500
– meira fyrir áskrifendur
Moggaklúbburinn
Allir skráðir áskrifendur eru
félagar í Moggaklúbbnum og
njóta þar með tilboða um góð
kjör á ýmiss konar afþreyingu;
bíómiðum, listviðburðum,
bókum og hljómdiskum,
auk þess sem dreginn er út
glæsilegur ferðavinningur
mánaðarlega.Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift
eða í síma 569 1122
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
mbl.is/moggaklubburinn