Morgunblaðið - 17.12.2008, Side 32
32 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008
Sudoku
Frumstig
5 4 3
5 2 9
1 5 8 2 3
6 2 8
5 3 2 6
1 8 5
7 1 5 6 9
1 9 2
4 7 8
3 4 7
9 2 4 3
1 9
8 2 5 1 7
5 8 2 3 1
3 6 4 5 8
7 3
3 8 1 5
5 7 2
4 6 7
2 3 9 7 8
8 4 5
9 5
3 6 7 1 9
8 6
3 5 7
1 7 9 6 4
4 2 5
9 2 6 4 8 1 3 5 7
4 7 3 9 2 5 6 1 8
8 1 5 7 6 3 9 2 4
7 6 4 5 9 2 8 3 1
1 8 2 3 7 6 5 4 9
3 5 9 8 1 4 7 6 2
5 9 1 2 3 7 4 8 6
6 4 8 1 5 9 2 7 3
2 3 7 6 4 8 1 9 5
1 6 7 4 8 9 2 3 5
8 3 5 6 7 2 1 4 9
4 9 2 3 1 5 8 7 6
6 2 9 1 3 7 5 8 4
3 1 8 5 4 6 9 2 7
5 7 4 2 9 8 6 1 3
2 4 1 9 5 3 7 6 8
7 5 6 8 2 4 3 9 1
9 8 3 7 6 1 4 5 2
3 4 2 7 6 1 8 5 9
7 8 5 9 4 2 1 6 3
9 6 1 5 8 3 2 7 4
2 9 8 6 5 4 3 1 7
1 5 3 2 7 9 4 8 6
4 7 6 1 3 8 5 9 2
8 2 9 3 1 6 7 4 5
5 3 4 8 9 7 6 2 1
6 1 7 4 2 5 9 3 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
Í dag er miðvikudagur 17. desember,
352. dagur ársins 2008
Orð dagsins: En hann frelsar hinn
bágstadda með bágindum hans og
opnar eyru þeirra með þrengingunni.
(Jobsbók 36, 15.)
Breski blaðamaðurinn A.A. Gillfjallar um bankahrunið og
ástandið á Íslandi af mikilli penna-
gleði í Sunday Times um helgina
eins og reyndar hefur komið fram í
fjölmiðlum. Hann lýsir því hvernig
pestir, plágur og hamfarir hafi hrjáð
íslenska þjóð og furðar sig á því að
Íslendingar skuli hafa látið sér detta
í hug að nú væri gæfan lögst á sveif
með þeim. John Lennon gerði ein-
hvern tíma örlög Írlands að yrk-
isefni og sagði að sá sem nyti heppni
Íra yrði miður sín og vildi fremur
vera dauður. Er hægt að setja Ís-
lendinga þarna inn í staðinn?
Kannski ekki, en Gill fær mikil við-
brögð við greininni á netinu, einkum
frá þakklátum Íslendingum. En er-
lendar raddir koma líka fram. Einn
skrifar að hann skammist sín fyrir
Gordon Brown, annar veltir fyrir sér
hvort Ísland verði lokað land eins og
Bútan og Íslendingar muni koma sér
upp sínum eigin hamingjustuðli.
Margir óska Íslendingum góðs
gengis í hrunadansi kreppunnar.
x x x
Það má samt ekki ganga of langt íað gera Íslendinga að saklaus-
um fórnarlömbum kreppunnar.
Hina saklausu Íslendinga með sitt
hjartahreina yfirbragð, sem vita-
skuld geta ekki verið hryðjuverka-
menn. Morgunblaðinu barst nafn-
laust bréf frá breskum hjónum, sem
eru komin undir áttrætt. Allur
þeirra sparnaður var á Icesave-
reikningi. Nú er hann farinn og með
honum draumurinn um áhyggju-
laust ævikvöld, svo vitnað sé í gaml-
an auglýsingatexta. Það er ekkert
saklaust við það hvernig farið hefur
verið með þetta fólk. Það er engin
furða að þessu fólki líður eins og það
hafi orðið fyrir árás hryðjuverka-
manna. Ísland er ekki saklaust í
bankahruninu, samviskan er ekki
hrein eins og drifhvítur snjór. Útrás-
arvíkingarnir hafa skilið eftir sig
sviðna jörð og auðvelt er að skilja að
í hugum þeirra, sem standa eftir
eignalausir, sé eitthvað athugavert
við myndina af saklausu, ljóshærðu
og bláeygu eyjarskeggjunum, sem
ekki geti gert flugu mein. víkver-
ji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 ræma, 8 hæsti,
9 hvefsin kona, 10 að, 11
ota fram, 13 að baki, 15
stólpi, 18 ritæfing, 21
greinir, 22 samkoman,
23 sýni, 24 pésar.
Lóðrétt | 2 unna, 3
hafna, 4 planta, 5 rask, 6
loforð, 7 þráður, 12 tölu-
stafur, 14 útlim, 15 heið-
ur, 16 komi í veg fyrir,
17 flokk, 18 undin, 19
magakeis, 20 slag-
brandur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hitta, 4 lunti, 7 eldis, 8 nísku, 9 and, 11 iðin, 13
fann, 14 yddar, 15 fant, 17 Írak, 20 eim, 22 logni, 23 ufs-
ir, 24 klaga, 25 draga.
Lóðrétt: 1 hleri, 2 tuddi, 3 assa, 4 lund, 5 naska, 6 Ið-
unn, 10 næddi, 12 nyt, 13 frí, 15 fölsk, 16 nægja, 18
rista, 19 karpa, 20 eira, 21 mund.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
a6 5. Rc3 Dc7 6. Bd3 Rf6 7. O-O Bd6
8. f4 Bc5 9. Rce2 Rc6 10. c3 d6 11.
Kh1 Bd7 12. De1 O-O 13. Dh4 Hfe8
14. Rf3 e5 15. b4 Bb6 16. fxe5 dxe5
17. Rg5 h6 18. Hxf6 hxg5 19. Bxg5
Be6
Staðan kom upp í keppni ungra
skákkvenna gegn gamalreyndum stór-
meisturum sem lauk fyrir skömmu í
Marianske Lazne í Tékklandi. Jana
Jacková (2360) frá Tékklandi hafði
hvítt gegn heimsmeistaranum fyrr-
verandi Anatoly Karpov (2651) frá
Rússlandi. 20. Rf4! Re7 21. Rd5 Dd7
22. Hh6! Rg6 og svartur gafst upp um
leið þar sem eftir 23. Rf6+ gxf6 24.
Bxf6 yrði hann óverjandi mát. Ís-
lenski stórmeistarinn Friðrik Ólafsson
var í liði gamalreyndra stórmeistara
og fékk 3 1/2 vinning af 8 mögulegum.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Lightner-dobl.
Norður
♠DG96
♥--
♦ÁKG96532
♣8
Vestur Austur
♠108 ♠Á3
♥DG986 ♥1075432
♦108 ♦--
♣K952 ♣ÁG1043
Suður
♠K7542
♥ÁK
♦D74
♣D87
Suður spilar 6♠ doblaða.
Árið 1929 setti Theodore Lightner
á blað hugmyndir sínar um útspils-
dobl á slemmum. Tilgangur doblsins
er að segja makker að þörf sé á
„óvenjulegu“ útspili; að doblarinn
lumi á eyðu og sé að leita eftir
stungu. En ekki er alltaf einfalt að
hitta á eyðulitinn. Spil dagsins kom
upp í parsveitakeppni BSÍ. Slemma
var víða spiluð og vannst oft eftir lok-
aðar sagnir. Á einum stað vakti suður
á 1♠ og norður stökk beint í 6♠, sem
austur doblaði. Kom þá til kasta vest-
urs að hitta á útspilið. Flestir eru
fastir í þeirri hugsun að koma út í
lengsta lit í slíkum stöðum, sem ekki
er gott hér. Eftiráspekingar töldu
hins vegar tígulútspil „augljóst“, því
til að réttlæta stökk í 6♠ þurfi norður
sjálfspilandi láglit (tígul) og eyðu til
hliðar (hjarta).
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur of miklar áhyggjur af
einhverju í dag. Vertu vakandi fyrir ut-
anaðkomandi áhrifum. Slakaðu bara á og
horfðu á úr fjarlægð.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Nautið á erfitt með að ná sambandi
við ástvini sína vegna ólíkra áherslna og
tímaskorts. Kannski er það þitt hlutverk,
einsog allra stjarna, að ögra kerfinu.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þið þurfið á allri ykkar einbeit-
ingu að halda til þess að geta leyst per-
sónulegt vandamál. Kynntu þér reglur
laganna og hvort allt er eins og það á að
vera.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Sérvitringur eða mjög sérstakur
einstaklingur mun líklega verða á vegi
þínum í dag. Að segja að þú hafir færst of
mikið í fang væri ekki rétt..
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Slæmt fólk er ekki til og ef þú með-
tekur erfiða manneskju með öllum sínum
annmörkum og göllum, áttu auðveldara
með að samþykkja sjálfan þig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Draumur þinn um velgengni er
sannur. Nýttu þér bjartsýnina, með rétta
fólkinu og stórum hópi geturðu gert hvað
sem þú vilt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Engar stórar yfirlýsingar! Það eru
einlægar og hógværar játningar þínar
sem afla þér þeirrar athygli sem þú þarfn-
ast.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú getur aukið tekjur þínar í
þessari viku eða keypt þér eitthvað fal-
legt. Sýndu samt fyrirhyggju en reyndu
ekki að fanga fortíðina.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Fegurðin er alls staðar í kring-
um okkur og þú þarft bara að opna augun
til þess að njóta hennar. Líklegt er að
starfsfólk sé af skornum skammti.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Einhver á heimilinu gæti kom-
ist í tilfinningalegt uppnámi í dag. Ekki
sekúnda má fara til spillis. Komdu jafn-
vægi á líkamann og einkalífið og aðstæður
í vinnunni batna.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Hver kunningi sem þú eignast
reynir á félagsfærnina. Tilfinningar þínar
láta þér líða vel og hugsa um lífið á já-
kvæðan hátt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú þarft að finna upp á einhverju
til að brjóta upp rútínu dagsins. Að öðrum
kosti talarðu fyrir daufum eyrum.
Stjörnuspá
Sara Sólveig og Helena Rakel,
sem eru í 6. EM í Vogaskóla, héldu
tombólu fimm sinnum og söfnuðu
40.000 krónum fyrir ABC barna-
hjálp.
Hlutavelta
„ÉG ætla að hafa það gott með fjölskyldunni,“ seg-
ir Linda Egilsdóttir sem verður þrítug í dag.
Linda starfar sem leikskólakennari á Naustatjörn
á Akureyri og segist búast við því að krakkarnir
syngi fyrir hana afmælissönginn í dag. Svo er
aldrei að vita nema hennar eigin börn hefji upp
raustina en hún og eiginmaður hennar, Birgir
Reynisson, eiga börnin Egil og Hildi Önnu.
Aðspurð segir hún eftirminnilegasta afmæl-
isdaginn vera þegar hún varð 11 ára og fékk
geisladiskinn Hvar er draumurinn, með Sálinni
hans Jóns míns, frá foreldrum sínum en diskurinn
var áritaður. „Það var draumurinn,“ grínast Linda en hún segist enn
vera mikill aðdáandi og fer reglulega á tónleika með hljómsveitinni.
Það stendur ekki á svörum þegar hún er spurð hver uppáhalds-
meðlimurinn hennar í bandinu sé. „Stebbi er í uppáhaldi,“ segir hún
og bætir við að það sé aldrei að vita nema hún fái nýja diskinn með
honum í afmælisgjöf. Aðaláhugamál Lindu eru að vera með fjölskyld-
unni og að prjóna. Hún segist prjóna ýmislegt og er aldrei að vita
nema pakkarnir verði sérstaklega mjúkir í ár. „Það fá fáir útvaldir
prjónaðar gjafir frá mér.“ ylfa@mbl.is
Linda Egilsdóttir leikskólakennari 30 ára
Afmælissöngur barnakórs
Nýirborgarar
Keflavík Kristján Logi
fæddist 4. júlí kl. 3.44.
Hann vó 3.305 g og var
50,5 cm langur. Foreldrar
hans eru Árnína Steinunn
Kristjánsdóttir og Krist-
ján Árni Jakobsson.
Akureyri Viktor Skuggi
fæddist 3. mars kl. 12.50.
Hann vó 4.000 g og var 54
cm langur. Foreldrar
hans eru Petra S. Heim-
isdóttir og Heiðar Rík-
harðsson.
Akureyri Rökkvi fæddist
11. desember kl. 5.25.
Hann vó 3.885 g og var 52
cm langur. Foreldrar
hans eru Sandra Vals-
dóttir og Garðar Magn-
ússon.
17. desember
1928
Davíð Stef-
ánsson hlaut
fyrstu verð-
laun í sam-
keppni um
ljóð til flutn-
ings á Alþing-
ishátíðinni sumarið 1930. Það
er nú einkum þekkt fyrir ljóð-
línurnar „Þú mikli, eilífi andi,
sem í öllu og alls staðar býrð“.
17. desember 1985
Brú á Bústaðavegi í Reykja-
vík, yfir Kringlumýrarbraut,
var formlega opnuð. Hún er
72 metra löng og 26 metra
breið.
17. desember 1995
Göngubrú yfir Kringlumýr-
arbraut var formlega tekin í
notkun. Þetta er hundrað
metra stálbitabrú sem tengir
saman göngustíga frá Sel-
tjarnarnesi upp í Elliðaárdal.
17. desember 1998
Umdeilt frumvarp um gagna-
grunn á heilbrigðissviði var
samþykkt á Alþingi með 37 at-
kvæðum gegn 20. Stjórn-
arandstæðingar sökuðu rík-
isstjórnina um gerræði í
málinu.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…