Morgunblaðið - 17.12.2008, Page 34

Morgunblaðið - 17.12.2008, Page 34
34 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 Það er eins gott að enginn missi gripinn á tærnar á sér. Og enginn ætti að lesa þessa bók í rúminu, það gæti verið hættulegt.41 » Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Í GLUGGANUM í Gallerí Marló á Laugavegi 82 eru mismunandi myndrammar með hand- skrifuðum ljóðum skáldkvenna. Þarna eru ljóð eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur, Birgittu Jónsdóttur og Söru Björnsdóttur, og inni í galleríinu eru fleiri, meðal annars ljóð eftir Nínu Björk Árnadóttur heitna og Margréti Lóu Jónsdóttur en hún er eigandi gallerísins, sem helgað er teikningum og grafík. „Mér fannst spennandi að vera með sérsýn- ingu með handskrifuðum ljóðum, sem er eitt- hvað það fallegasta sem ég veit um,“ segir Margét Lóa. „Allir hafa sína rithönd, með sín- um karakter, og svo valdi hvert skáld sinn ramma og sá um að ramma ljóðin inn. Þetta er því mjög persónuleg sýning.“ Margrét Lóa segir að þessi skáldkonusýn- ing sé svar sitt við umræðunni þessa dagana. „Ljóðið er svo sterkt. Hér safna ég þessum röddum í fallegan kór. Þetta er einlægt, hand- gert og hreyfir við fólki. Það þarf ekki endilega að öskra til að láta skoðun í ljós. Á tímum eins og þessum er rödd ljóðsins mikilvæg.“ Sérhæfir sig í grafík og teikningum Gallerí Marló hefur markað sér ákveðinn bás sem sölugallerí með verk á pappír; grafík og teikningar. Þar má meðal annars sjá blý- antsteikningar eftir Birgi Snæbjörn Birgisson, grafíkmyndir eftir Sigríði Melrós Ólafsdóttur, tölvuteikningar og grafík eftir Jóhann Ludwig, myndasögur eftir Hugleik Dagsson, teikn- ingar eftir Söru Björnsdóttur, púða eftir Mar- gréti Lóu sjálfa, með áþrykktum ljóðum og teikningum, og skopteikningar eftir Halldór Baldursson sem teiknar í Morgunblaðið. „Ég held að teikningar Halldórs verði ennþá merkilegri í framtíðinni, hann fjallar á svo beittan hátt um kreppuna og þessa merkilegu tíma sem við erum að upplifa,“ segir Margrét Lóa. Hún bendir svo á röð grafíkmynda af frumherjum íslenskrar myndlistar og segir að fjórar af fimm seríum séu þegar seldar. „Ég finn fyrir miklum áhuga á grafíkinni þessa dagana, hún er að koma sterk inn rétt eins og teikningin. Oft hefur verið sagt að fólk vilji bara málverk en nú er það alls ekki raunin.“ Margrét Lóa segist vera með valinkunnar konur með sér í viðburðastjórn og hyggst standa fyrir ýmsum uppákomum í galleríinu, og búið er að skipuleggja röð sérsýninga. Þar á meðal er sýning á myndasögum. „Það hefur lengi verið draumur minn að standa í svona rekstri, og þetta er frábær stað- ur. Viðbrögð gesta hafa verið mjög jákvæð. Margir hafa sagt að lengi hafi verið vöntun á slíku galleríi. Nú er líka gjörbreytt stemning í samfélaginu, nú hafa listin og skáldskapurinn vægi. Listin lifir náttúrlega allt af.“ Ljóðið er svo sterkt Í Gallerí Marló má skoða handrit skáldkvenna Morgunblaðið/Einar Falur Galleristi „Rödd listarinnar er svo mikilvæg,“ segir Margrét Lóa. Ljóð hanga á veggnum. VARGURINN eftir Jón Hall Stef- ánsson kemur út í Þýskalandi í febr- úar en afar sjald- gæft er að íslensk skáldsaga sé gefin nánast samtímis út heima og er- lendis. Vargurinn kom í verslanir á Íslandi í október. Starfslið Bjarts, sem gefur bókina út, kveðst í fljótu bragði aðeins muna eftir tveimur dæmum: Árið 1960 sendi Halldór Laxness frá sér Paradísarheimt samtímis í Svíþjóð og á Íslandi; og haustið 2006 kom Aldingarður Ólafs Jóhanns Ólafs- sonar út á Íslandi en í ársbyrjun 2007 í Bandaríkjunum. Þýskur útgefandi Jóns Halls, Ull- stein Buchverlag, gerir sér, að sögn starfsfólks Bjarts, miklar vonir um bókina Brandstifter, eins og hún heitir á þýsku, enda gekk Krosstré – Eiskalte Stille reglulega vel hjá for- laginu fyrir tveimur árum. Þýðandi bókarinnar er nú sem fyrr dr. Betty Wahl. Jón Hallur Stefánsson sendi frá sér sakamálasöguna Krosstré árið 2005. Hún hlaut gríðarlega góðar viðtökur og hefur komið út víðs- vegar um heim og uppskar höfundi sínum titilinn „krónprins íslensku glæpasögunnar“, að því er segir í frétt frá Bjarti. Jón Hallur Stefánsson Gefinn út í tveim löndum Á FÖSTUDAG kemur út í Svíþjóð bók eftir blaða- og skáldkonuna Mo- nicu Antonsson og er bókarinnar beðið með eftirvæntingu. Þar kveðst Monica munu fletta ofan af ýkjum og sögufölsunum í tveimur bókum Lizu Marklund. Bækurnar sem um ræðir heita Hulduslóð og Friðland í ís- lenskri þýðingu Önnu Ingólfsdóttur, og eru byggðar á viðtölum Lizu við konuna „Míu“ sem hefur nýtt líf með nýju nafni eftir að hafa losnað úr viðjum ofbeldisfulls eiginmanns. Monica Antonsson telur að Liza hafi skrökvað til um atburði og aðstæður sögupersónunni Míu í hag. Skrökvaði Liza? GUÐRÚN Jóhanna Ólafs- dóttir mezzósópransöng- kona og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari flytja lög af nýútkomna geisla- diskinum Mitt er þitt – ís- lensk og spænsk sönglög á útgáfutónleikum í Lang- holtskirkju annað kvöld kl. 20. Guðrún og Javier hafa haldið tónleika í fjölmörgum löndum á liðnum árum með margs konar tónlist frá ólíkum löndum, en hafa alltaf haft að minnsta kosti nokkur íslensk og spænsk lög með á efnis- skránni. Á Mitt er þitt hafa þau valið þjóðlög og önnur sönglög sem þeim eru sérstaklega kær frá heimalöndum sínum. Tólf tónar gefa diskinn út. Tónlist Francisco og Guðrún Jóhanna. Íslensk og spænsk þjóðlög BÓKIN Ísland utan úr geimn- um er fyrsta bók sinnar teg- undar, að sögn bókaútgáfunnar Veraldar. Höfundarnir eru Einar Sveinbjörnsson veð- urfræðingur og Ingibjörg Jóns- dóttir landfræðingur. Í bókina hefur verið safnað saman myndum af lendingu utan úr himingeimnum og sýna þær ýmis stórfengleg náttúrufyr- irbæri, jafnt á landi sem í háloftunum, t.d. Skaft- árhlaup, fok landsins á haf út, sinuelda á Mýrum og fárviðri. Í textum sínum útskýra Ingibjörg og Einar þessi fyrirbæri og það sem athygli vekur við hverja mynd, og ljúka þannig upp nýjum heimi fyrir lesendum. Fræði Kápa bókarinnar. Ísland séð úr himingeimnum ÓMAR Guðjónsson gítarleik- ari og tríó hans verða með síð- ustu tónleika sína á þessu ári á Rósenberg í kvöld kl. 21. Félagar Ómars í tríóinu eru Matthías MD Hemstock á trommur og Þorgrímur Jóns- son á kontrabassa. Ómar gaf nýverið út plötuna Fram af, sem hefur fengið frá- bærar viðtökur og segir hann að hún hafi fengið fjórar og hálfa stjörnu í Morg- unblaðinu og fjórar í Fréttablaðinu og DV. Þá hafi verið sagt um hana á Rás eitt: „Djöfull er þetta flott músík!“ Ife Tolentino, hinn brasilíski söngv- ari og gítarleikari, mun hita upp sviðið ásamt saxófónleikaranum Óskari Guðjónssyni. Tónlist Ómar Guðjónsson Tríó Ómars kveður árið Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is ÞEIR eru ekki bara þrír, heldur fjórir. „Það eru svo margir góðir tenórsöngvarar á Íslandi,“ segir Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenórsöngvari, sem er potturinn og pannan í tónleikahaldi tenóranna fyrir jól. Tenórarnir fjórir halda tvenna tónleika í Íslensku óp- erunni að þessu sinni; annað kvöld og á sunnudagskvöld, kl. 20 bæði kvöldin. Þeir sem skipa hópinn í ár eru auk Jóhanns Friðgeirs: Snorri Wium, Gissur Páll Gissurarson og Garðar Thór Cortes. „Við höfum tvisvar áður verið með tónleika í Langholtskirkju, þrír tenórar, síðast fyrir tveimur árum, en að þessu sinni syngjum við í samstarfi við Óperuna.“ Við valið á tenórum í hópinn kveðst Jóhann Friðgeir hafa það að leiðarljósi að það séu söngvarar sem eru komnir með fótfestu í söngnum erlendis, og það hafa fjórmenningarnir allir gert. „Það er einfalt mál – þeir sem eru búnir að syngja í óperuhúsum úti koma til greina.“ Góður hópur en ekki allir eins Garðar Thór Cortes syngur nú í fyrsta sinn með Ten- órunum, en eins og alþjóð veit er hann búinn að syngja mikið bæði hér heima og erlendis undanfarin ár. Sjálfur starfar Jóhann Friðgeir aðallega við óperuhús erlendis. Það á líka við um Snorra Wium, sem hefur starfað við óp- eruhús í Austurríki og Þýskalandi síðustu árin. Gissur Páll Gissurarson er eins og Garðar að syngja í fyrsta sinn með hópnum og hefur vakið mikla athygli fyrir söng sinn. Jóhann Friðgeir segir að þessi hópur sé góður, en þeir séu ekki allir steyptir í sama mótið. „Það er nú alltaf vandamálið að allir tenórar vilja vera sem stærstir og syngja stærstu lögin. Ætli ég sé ekki dramatískastur; Snorri kemur næstur mér og Garðar og Gissur eru létt- ari tenórar og svipaðir. Við erum allir „lirico-spinto“- tenórar en misléttir.“ Spurður hvort tenórarnir bítist þá ekki um bestu lögin fer Jóhann Friðgeir að hlæja: „Jú, það er eitthvað smá – verðum þá bara að fara í sjómann til að leysa það,“ svarar hann að bragði. „Við gerum þetta auðvitað í sameiningu,“ áréttar hann. Ekki þrír, heldur fjórir Jóhann Friðgeir, Garðar Thór, Gissur Páll og Snorri Wium eru Tenórarnir fjórir Morgunblaðið/Kristinn „VIÐ syngum aríur, bæði hver fyrir sig og saman og hátíðleg jólalög. Við syngjum líka nokkrar syrpur: létta sönglagasyrpu með amerískum blæ, syrpu með napólí- söngvum, létta íslenska jólalagasyrpu og erlenda jólalagasyrpu sem byrjar með létt- leika en endar með hátíðlegum blæ.“ Vilja tenórarnir eiga „sín“ lög eins og Jussi Björling átti Ó, helga nótt? „Garðar og Gissur voru að bítast um hvor ætti að syngja Una furtiva lagrima. Ég sagði að ég ætti að syngja það, enda kallaður Jói lagrima. Það er stór spurning hvort arían verður sungin eða ekki.“ Óvíst með Una furtiva lagrima

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.