Morgunblaðið - 17.12.2008, Síða 36

Morgunblaðið - 17.12.2008, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 Fólk Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA er alveg svakalegt, maður getur eiginlega ekki kveikt á sjónvarpinu,“ segir leikskáldið Jón Atli Jónasson, en rödd hans hljómar oftar í eyrum lands- manna þessa dagana en raddir margra annarra. Ástæðan er sú að Jón Atli les inn á allar sjónvarps- auglýsingar Forlagsins sem birtast í nánast öllum aug- lýsingatímum þessa dagana. „Þegar við lásum þetta inn héldum við að þetta myndi bara drukkna í einhverju Range Rover-auglýsingaflóði. En það var öðru nær,“ segir Jón Atli sem telur að hann hafi les- ið inn á tíu til tuttugu auglýsingar fyrir þessi jól. Aðspurður segist hann vissulega lenda í því að fólk spyrji hann hvar það hafi heyrt þessa rödd. „En ég er oftast búinn að forða mér áður en það leggur saman tvo og tvo,“ segir Jón Atli og hlær. Hann telur þó ekkert of mikið af bókaauglýsingum fyrir þessi jól, enda séu þetta góð bókajól. „Ég er í þeirri und- arlegu stöðu að vera búinn að lesa nánast allt sem er að koma út í bæði reyfurum og skáldsögum. Mér finnst þetta óvenju- góð bókajól, hvort sem maður lítur til reyfara eða annarra bókmennta - t.d. Algleymi eftir Hermann Stefánsson, Dimm- ar rósir eftir Ólaf Gunnarsson og Konur eftir Steinar Braga. En svo eru fleiri fínar bækur, til dæmis Menn sem hata kon- ur, Fundið fé og Gomorra – þessi sannsögulega um ítölsku mafíuna. Hún er nú eiginlega bara skyldulesning í þessu sam- félagi sem við búum í í dag, enda fjallar hún um glæpamenn sem líta fyrst og fremst á sig sem viðskiptamenn.“ Fólk spyr hvar það hafi heyrt þessa rödd Röddin Jón Atli Jónasson leikritaskáld og þulur.  Tvennir tónleikar fóru fram á nýjum skemmtistað í Hafnarfirði um helgina, en sá heitir Dillon Sportbar og mun vera útibú frá Dil- lon á Laugaveginum. Á föstudagskvöldið spiluðu strákarnir í Jeff Who? á staðnum og á laugardagskvöldið kom það í hlut Sprengjuhallarinnar að reyna að halda uppi stuðinu. Það reyndist hins vegar hægara sagt en gert, enda afar fámennt á staðnum. Fregnir herma að fimm manns hafi mætt á tónleikana á föstudags- kvöldið, og sex á laugardeginum. Hvort áhugaleysi Hafnfirðinga er um að kenna skal ósagt látið, en lík- legt verður þó að teljast að heima- menn á borð við Botnleðju og Björgvin Halldórsson hefðu laðað fleiri gesti að. Fámennir tónleikar í Hafnarfirði  Sænska söngkonan Carola kem- ur fram á jólatónleikum í Fíladel- fíukirkjunni í kvöld kl. 20. Hún kemur fram ásamt sænskum píanó- leikara og flytur falleg jólalög sem laða fram sannkallaða jólastemn- ingu. Tónleikarnir eru hluti af tón- leikaferð Carolu um Skandinavíu en söngkonan er kannski best þekkt fyrir þátttöku sína í Evr- óvisjón en þá keppni vann hún árið 1991 með laginu „Fångad av en Stormvind“. Carola kom til Íslands á sama tíma í fyrra og hélt eft- irminnilega tónleika í Grafarvogs- kirkju. Fyrir þá sem koma þessari sænsku dívu ekki fyrir sig þá er hér að sjálfsögðu um að ræða sömu sænsku söngkonu og Silvía Nótt sakaði um að hafa komist áfram í úrslitakeppni Evróvisjón árið 2006 með því að sænga hjá fram- kvæmdastjóra keppninnar, Svante Stockselius. Málið varð að miklu fjölmiðlamáli í Svíþjóð og í raun ótrúlegt að Carola skyldi á sínum tíma taka það í mál að heimsækja heimaland Silvíu heitinnar Nætur. Carola hin sænska í Fíladelfíu í kvöld Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „MÉR finnst þetta alveg geggjað, sérstaklega þar sem ég hafði ekki fylgst með laginu, það var bara allt í einu komið á toppinn,“ segir tónlist- armaðurinn Brynjar Már Valdi- marsson, eða BMV eins og hann kallar sig, um velgengni lagsins „Ru- naway“ í Makedóníu. Það var í byrj- un vikunnar sem Brynjar fékk skeyti frá útvarpsstöðinni Radio 106 í Makedóníu um að lag hans væri á toppnum yfir tuttugu vinsælustu lögin þar í landi og allt liti út fyrir að það héldi toppsætinu aðra viku í röð. „Radio 106 er svipuð og FM 95,7 á Íslandi með smáblandi af Rás 2. Þetta er ein stærsta útvarpsstöðin í Makedóníu og þeir spila lagið mitt að meðaltali fjórtán sinnum á dag, sem er rosaleg keyrsla,“ segir Brynjar sem ætti að vita hvað hann er að tala um því hann starfar sem útvarpsmaður á FM 95,7 og tónlist- arstjóri skemmtistaðarins Oliver. Brynjar hefur áður náð inn á þennan lista með lagið „Forget abo- ut me“ sem komst í 19. sæti. Áður hefur lag hans „Endlessly“ náð inn á vinsældalista á Balí, í Kosovo og Litháen og „In My Place“ náði efsta sæti á grískum vinsældalista. Ógeðslega stórt Lögin vinsælu má öll finna á fyrstu plötu Brynjars, The beginn- ing, sem er komin út hér á landi en fer í dreifingu erlendis eftir áramót. „Platan verður gefin út í Makedóníu, Balí, Belgíu og Indónesíu, þar sem lögin hafa náð vinsældum,“ segir Brynjar sem var staddur í Ameríku er blaðamaður náði tali af honum. „Ég er nú bara í síðbúnu sumarfríi og jú reyndar aðeins að bardúsa í músíkinni. En upptökustjórinn minn og textahöfundarnir þrír eru allir í Bandaríkjunum. Við erum að skoða hvaða leiðir er best að fara hér í landi en þetta er bara svo ógeðslega stórt. Ég er meira að vinna í því að koma plötunni út í Evrópu.“ Athygli vekur að útgáfuár plöt- unnar er sagt vera 2009, en Brynjar kveðst þó ekki hafa farið áravillt. „Ég þoli ekki þá tilhugsun að gefa út plötu í desember sem er allt í einu orðin gömul í janúar. Með þessu hef ég alveg 2009 til að dreifa henni er- lendis.“ Rokkarar á Íslandi Þrátt fyrir velgengni erlendis heyrist ekki mikið í Brynjari hér heima og spyr blaðamaður hvers vegna hann telji það vera. „Ef þú ert ekki að gera jaðartónlist ertu svolítil blaðra, þú mátt ekki vera „main- stream“. Ef þú horfir á flesta aðra markaði þá virkar þetta líklega öf- ugt, en á Íslandi eru allir svolitlir rokkarar í jaðrinum og þá er allt sem er pínulítið píkupopp svolítið hallærislegt,“ segir Brynjar og hlær. Brynjar er fullur af metnaði og er samningsferli fyrir næstu plötu hans komið af stað og ef allt gengur upp verður hún komin út eftir ár. „Mað- ur lifir bara einu sinni og á bara að láta vaða. Það bankar enginn upp á hjá þér og spyr hvort þig vanti plötusamning, maður þarf bara að hafa fyrir þessu sjálfur.“ Pínulítið píkupopp  Brynjar Már Valdimarsson kom lagi á toppinn í Makedóníu, hefur áður verið á toppnum í Grikklandi  Ekki vinsælt að vera „mainstream“ á Íslandi Einlægur Brynjar Már á útgáfutónleikum sínum á Oliver fyrr í desember. KÓR Menntaskólans í Reykjavík heldur sína árvissu aðventutónleika í Seltjarnarneskirkju í kvöld. „Við erum alltaf með tvenna fasta tónleika á ári, á aðventunni og á vorin. Síðan reynum við að sækja kóramót framhaldsskólanna og fara eitthvað utan líka,“ segir kórstjórinn Guðlaugur Viktorsson um starfsemi kórsins. Kórstemningin í MR er góð að sögn Guðlaugs, sem hefur stjórnað kórnum í þrjú ár. „Það er fín stemning í kórnum og eykst hún ár frá ári. Það gengur líka ljóm- andi vel að manna kórinn og við fáum mjög frambærilegt og gott fólk.“ Á efnisskrá tónleikanna í kvöld er fyrst og fremst kirkjutónlist ís- lenskra tónskálda. Þar eru verk m.a. eftir Báru Grímsdóttur, John Speight, Atla Heimi Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson og Jón Ásgeirsson. Fyrirferðarmest er þó verkið „Missa brevis“ eftir Hildi- gunni Rúnarsdóttur og þar syngja kórfélagarnir sjálfir einsönginn. Tónleikarnir hefjast kl. 20 í kvöld og er ókeypis inn á þá en tekið er við frjálsum framlögum í sjóð kórsins. ingveldur@mbl.is Fín stemning í skólakór MR Stuð stuð stuð Það virðist vera mikið stuð hjá þeim nemendum sem skipa kór Menntaskólans í Reykjavík. Kórinn heldur aðventutónleika í kvöld Á topp-tuttugu-lista yfir vinsæl- ustu lögin á útvarpsstöðinni Ra- dio 106 í Makedóníu skákar Brynjar ekki minni stjörnum en Boyzone, sem eru í öðru sæti á eftir honum með „Better“, og Duffy, sem er þriðja með „Rain on Your Parade“. Þar á eftir koma Solange Knowles, Tina Turner, Beyonce, Pink, Leona Lewis, Take That og Madonna. Í stjörnufans 36 MenningFÓLK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.