Morgunblaðið - 17.12.2008, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008
Í FJÖLDA ára hefur
Guðmundur Pét-
ursson verið einn eft-
irsóttasti leiguspilari
landsins eða „ses-
sion-spilari“. Gít-
arleikur hans prýðir
ógrynni platna og
það virðist sama
hvaða stílar eru lagð-
ir inn á borð til hans, hann tæklar þá alla eins
og að drekka vatn.
Það segir sig sjálft að í þeirri vinnu getur
Guðmundur ekki sinnt „eigin“ sköpun nema í
takmörkuðum mæli. Hann ljær lögunum vissu-
lega sín blæbrigði og eftirlætur þeim óskoraða
fagmennsku en að langmestu leyti gengur
leiguspilamennska út á það að spila eftir for-
skrift annarra.
Þessir þættir hljóta að vera valdurinn að því
að Guðmundur springur út með látum sem tón-
smiður á þessari annarri plötu sinni. Svo mikið
var uppsafnað greinilega að lögin átta tútna
bókstaflega út af mörgum hugmyndum og mis-
munandi. Þá spilar líka inn í að heil ellefu ár
eru síðan Guðmundur gaf út fyrstu plötu sína,
Muzac.
Hugmyndum ægir semsagt saman en það er
ekki svo að framvindan sé losaraleg eða tætins-
gleg, síður en svo. En tónlistarstefnu er ei hægt
að pinna niður þar sem Guðmundur snertir á
djassi, blúsi, rokki, proggi og nýbylgju og
grautar þessu öllu saman og meiru til í þekki-
lega blöndu sem heldur manni sperrtum frá
fyrsta tóni til þess síðasta. Það er eins og Guð-
mundur komi með allar þær stefnur sem hann
hefur verið að spila undanfarin ár og snúi þeim
einhvern veginn skemmtilega á rönguna, leiki
sér með þær til að búa til eitthvað einstakt.
Þannig kallar fyrsta lagið fram síðrokks-
hetjur á borð við Tortoise, undirtónninn í senn
framandi og skuggalegur. Annað lagið, „Dolly“,
ber með sér Beck-lega strengi (í boði Hrafn-
kels Orra Egilssonar, sem á stjörnuleik á plöt-
unni) í bland við proggkennda sýru. Í lagi fjög-
ur, „The Spirit Of St. Petersburg“, kíkir Miles
Davis í heimsókn, nýbúinn að gefa út On the
Corner og heilsar upp á hnausþykkan selló-
hljóm og afskræmdan, vel svalan, gítarhljóm.
Og sitthvað fleira er á seyði – bara í þessu eina
lagi. Á þessum nótum er svo haldið áfram út
plötuna.
Hljómur allur er góður og innan um alla til-
raunastarfsemina og æfingarnar gleymist mel-
ódían aldrei. En um leið er allt opið hug-
myndalega án þess að þráðurinn tapist
nokkurn tíma. Guðmundur gleymir sér aldrei í
innblásnum spuna, nokkuð sem hann gæti
hæglega kysi hann svo, heldur stýrir hann lög-
unum af festu og smekkvísi.
Kannski verður þessari bráðvel heppnuðu
plötu Guðmundar þó best lýst með heitinu á út-
gáfufyrirtækinu sem stendur að henni: Genui-
nelystrangerecords.
Í alvörunni
skrítið
Guðmundur Pétursson/
GP – Ologies
Arnar Eggert Thoroddsen
Geisladiskur
TÓNLIST
Viltu
veðja?
Reuters
Furðulegt Nicole Kidman blés í didgeridoo við litla hrifningu sérfræðings í málefnum frumbyggja í
Ástralíu sem sagði það ekkert hljóðfæri fyrir konur. Gottschalk og Hugh Jackman fylgjast með.
Gamla brýnið Breski söngvarinn Tom Jones mætti til Stutt-
gart. Ekki er vitað hvort hann tók What’s New Pussycat?
Sexí Stúlkurnar í hljómsveitinni Pussycat Dolls tóku lagið,
og líkt og venjulega beittu þær kynþokkanum óspart.
Kúla Á meðal þeirra sem
komu fram í þættinum var
bandaríska söngkonan Anas-
tacia sem söng eitt lag úr
þessum forláta stól.
Fjör í Stuttgart
Hættulegt Þáttastjórn-
andinn Thomas Gottschalk
tekur upp á ýmsu, meðal
annars svokölluðu
hnífakasti. Eins
og sjá má stóð
honum ekki á
sama.
ÞAÐ var mikið um dýrðir í Stutt-
gart í Þýskalandi á laugardaginn
þegar sérstök hátíðarútgáfa af hin-
um gríðarlega vinsæla sjónvarps-
þætti Wetten dass...? var send út.
Þátturinn er sendur út sex til sjö
sinnum á ári frá hinum ýmsu borg-
um í Þýskalandi, Austurríki og
Sviss, og nær hann oft um 50%
áhorfi í hinum þýskumælandi heimi.
Umsjónarmaður þáttarins er hinn
síkáti Thomas Gottschalk sem fer
afar óhefðbundnar leiðir í þátta-
stjórnun. Á meðal gesta hans á
laugardaginn voru Tom Jones, Ni-
cole Kidman, Hugh Jackman og
hljómsveitin Pussycat Dolls.