Árdís - 01.01.1947, Blaðsíða 19
átti hugsjón og allt líf hans stefndi að því, að sjá þeirri hugsjón fullnægt.
Hann hafði áformað að ferðast til Kína og vinna þar, en London Mission-
ary Society sendi hann til Afríku. Þar vann hann af heilum hug, kenndi
læknaði og á milli, ferðaðist hann víða um landið og kannaði óþekkt
héröð. Hann trúði því fastlega, að nauðsynlegt væri, að kanna og opna
upp nýjar stöðvar, þar sem hægt væri að líkna og hjálpa viltum lýð.
Hann áleit sig vera brautryðjanda á trúboðssviðinu og missti aldrei sjónar
á því takmarki er stefnt var að.
Þrælahald var almennt á þeim dögum í Afríku, og flestir þrælar voru
fluttir þaðan undir ömurlegum kringumstæðum og seldir við uppboð í
öðrum löndum. Þessu böli veitti Livingstone mótspyrnu í ræðu og riti
og eins og Wilberforce, reyndi að sannfæra hinn kristna heim um skyldu
sína gagnvart náunganum.
En nafn David Livingstone er aðallega tengt við hans fómfúsa og
áhrifamikla trúboðs starf, sem lyfti upp og endurreisti hina dökku Afríku-
þjóð og gaf henni nýjan skilning á taú, von og kærleika, enda nafn hans
heiðrað og dáð af öllum lýð.
# # O
Áhrifamesta hugsjón mannkynsins, var hugsjón Lutliers um, að
hreinsa úr heiminum alla hjátrú og gera mannsandann frjálsan undir
Guðs náð og miskunn. Guðsríki er hið ýtrasta frelsi sem mannsandinn
þekkir og Luther var aðeins verkfæri í Guðs hendi til að beina mönnun-
um aftur á hina réttu braut. Guð sáði því fræi og gaf góðann ávöxt, en því
miður nota menn ekki æfinlega vel, það, sem Guð leggur þeim í hendur.
Luther var harður í kröfum. Hans hugsjón var bygð á kletti og
honum var stundum líkt við frásögu, Nehemiah, “Þeii' endurreystu múr-
veggi Jerúsalem með annari hendi og í hinni sverð.”
Og Helgi Hálfdanarson sýngur:
“Vor Guð er borg á bjargi traust,
hið besta sverð og verja.”
En skínandi ljós, er það evangelium, sem Lutlier barðist fyrir og
gerði vora eign,—eins einfalt og barnssál, en dýnnætara en heimsins
auðæfi.
fc O O
Snemma á fyrstu landnáms árunum hér, tóku konur sig saman og
mynduðu fyrsta íslenzka kvenfélagið, árið 1881. Þegar við tölum um
kvenfélög nú á dögum, er vanalega átt við kirkjukvenfélög, en þessi
17