Árdís - 01.01.1947, Side 57

Árdís - 01.01.1947, Side 57
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR STEFÁNSON. Frumherjarnir sem fyrstir brutu ísinn og kveiktu eldana í íslenzka landnámi hér vestra, eru flestir fallnir í valinn, og þeim fáu sem uppi standa fækkar nú óðum. En hér er kona frá landnámstíðum ennþá uppistandandi og með beinu baki, kona sem hefur á baki sér 65 vetur á Vestr- ænum slóðum, og kom gift að heiman rúmlega tvítug að aldri. Óþarft er að geta þess að hún er kona sem hefur haft líkams og sálarkrafta, kona sem hefur áunnið sér vinsemd og virðingu sam- ferða fólksins, og allra sem hafa kvnst henni. Hún hefur orðið langlíf og far- sæl því hún hefur bygt líf sitt á bjargi heilbrygðrar lífshugsjónar. Hún hefur ætíð litið broshýrum augum gegn lífinu bæði í farsæld og þraut. Guðrún Jónsdóttir Stefánson er fædd að Þverá í Staðarbygð í Eyjafjarðarsvslu 20. júní 1860. Hún er fædd og uppalin undir geislaskíni Eyjafjarðar sólarinnar og við hjartarætur hins söguríka og forn- fræga héraðs við norðurhvel heims. Sennilega hafa náttúru undur og fegurð æskustöðvanna sett mark sitt á líf hennar og lýst henni leið, því í sálu hennar mun hafa verið bjart alla æfi. Hún giftist í æsku Sigtryggi Stef- ánssyni frá Brekku í Kaupangssveit, og þau riðu vafurlogann með því að sigla vestur um haf 1882, og eins og allflestir vesturfarar komu þau hingað með tvær hendur tómar. Allt sem hún átti var nýfædd dóttir, og ti'ú von og kærleikur. Fyrsta veturinn voru þau í Dakota, vann hún í 6 mánuði á stóm íslenzku heimili, hafði hún dóttirina með sér, launin fékk hún aldrei aðeins fæði fyrir sig og barnið, þá foru þau til Winnipeg og vom þar til ársins 1885 að þau fluttu til Argyle. Fyrsta veturinn í Winnipeg fraus 55

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.