Árdís - 01.01.1947, Síða 69

Árdís - 01.01.1947, Síða 69
Þar hóf eigin maður hennar, þá nám við prestaskólann (Pacific Theologi- cal Seminary) með óskiftum huga, örugg og glöð hélt hún út á hinu nýju braut er leiddi hana og eiginmann hennar til víðtækara starfs í víngarði Drottins. Eftir þriggja ára skeið við prestaskólann, flutti hún ásamt manni og bömum til Ballard, hafði séra Kolbeinn þá verið kallaður til að þjóna Calvary Lutheran Church þar. Árið 1928 fluttu þau til White Centre, Seattle, þar sem séra Kol- beinn hóf starf við St. James Lutheran Church. Þar lagði hún fram mikla þjónustu sem prestkona, starfaði með áhuga, festu og óbifandi trúnaðar trausti þar til herra lífsins kallaði hana á æðra starfssvið til nýrrar þjónustu 19. mars 1947. Ásamt manni hennar syrgja hana sex mannvænleg börn, eitt barna-bam, tvær systur og tveir bræður. Þetta er umgjörðin af æfisögu þessarar merku konu. Hin innri saga einstaklingsins er skráð aðeins í hjörtu ástvinanna. Eg veit að mér er óhætt að fullyrða að áhrif hennar á alla sem hún kynntist vom mikil og blessunarrík. Mér verða ógleymanlegir dagar sem við hjónin dvöldum á heimili hennar og manns hennar í Seattle fyrir fjórum árum. Sérstak- lega minnist eg eins dags sem við eyddum í næði niður við sjóinn og töluðum um ýms áhugamál. Hinn brennandi áhugi hennar fyrir því að byggja upp starfið í söfnuði þeim sem maður hennar þjónaði, draumar hennar um að endurbæta og stækka kirkjuna, lægni og listfengi hennar við að æfa unglingana, fórnfýsi hennar og skyldurækni var að mínum dómi einstætt meðal prestkona vestanhafs. Það var yndislegt að hafa mátt kynnast henni, yndislegt fyrir ástvini hennar að eiga þann sjóð sem þeir eiga í endurminningum um hana. Þegar eg hugsa um Gróu Simundson kýs eg að láta hugan dvelja við sólsetur við sjóinn þar sem við sátum saman á ströndinni. Hún var sérstakur snillingur við að æfa táknleiki úr biblíunni (Biblical pageants). Var hún að sega mér frá því og við höfðum báðar gleymt tímanum, en ránkuðum við okkur þegar að sólin var að hniga fyrir hafs röndina— hafsflöturinn var sléttur, vestrið var uppljómað í dyrðlegum kvöldroða, undursamlegur friður ríkti. Hinn friðsæli og fagri æfidagur hennar er liðinn — sólin hnígin í vestri. Nýr dagur með fegurri sólar upprás ljómar nú í austri. I anda sé eg nú vinkonu mína á eilífðar ströndu umvafða í þeim árdags ljóma. Ingibjörg J. Ólafsson. 67
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Árdís

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.