Árdís - 01.01.1947, Side 71
sinu eins og það á að vera,—óslitnu tilhugalífi æfina á enda. Móðir sína
annaðist hún með prýði til elliára.
Hún eftirskilur einn son John að nafni sem býr eftir föður sinn á
Grund einnig tvö bamaböm Donna og Bobby. Ólafur bróðir hennar býr
að Hnausa, Man. Útförin var mjög virðuleg, frá heimilinu og kirkju
Frelsissafnaðar. Séra E. H. Fafnis jarðsöng.
“Ó blessuð stund er hátt í himinsölum,
minn hjartans vin eg aftur fæ að sjá,
og við um okkar æfi samantölum,
sem eins og skuggi þá er liðinn hjá.”
G. J. Oleson.
KRISTJANA GUÐFINNA JÓHANNSON.
1860 - 1946.
Hún andaðist að heimili sínum í Glenboro 3. septeinber 1946. Hún
var ein af landnámskonum Argylebygðar. Fædd í Kelduhverfi 6. apríl
1860. Foreldrar: Kristján Sigurðson og Kristín Kristjánsdóttir Jónssonar.
Á íslandi giftist hún Jakob Helgason, og komu þau til Vesturheims og
Argylebygðar 1884. Jakob dó um 1890. Nokkrum árum síðar giftist
Kristjana Theodor Jóhannson, ættuðum úr Reykjadal. Var hann ágætur
maður og heimili þeii'ra í Argyle og síðar í Glenboro var fyrirmyndar
heimili.
Kristjana var gagnmerk kona, og þrekmikil bæði til sálar og líkama.
Síðfáguð í framkomu og hugsun. Hún var trúrækin og studdi öll góð
mál. Börn af fyrra hjónabandi eru Mrs. Jakobina Sveinbjörnson, Kanda-
har, Sask.; Helgi og Kristján bændur í Peace River dalnum í Alberta.
Kristín Anderson, Glenboro dó 14. desember 1945, (Er hennar sérstak-
lega minnst í þessu hefti Árdísar). Af síðara hjónabandi: Mrs. Albert A.
Sveinson og Mrs. H. A. Thorsteinson, báðar í Winnipeg. (Sjá æfiminn-
ingu Kristjönu í Lögbergi 24. okt. 1946.)
G. J. Oleson.
69