Morgunblaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009
K
O
R
T
E
R
.
I
S
Í DAG, fimmtudag, kl. 20 verður
opinn borgarafundur í Iðnó. Efni
fundarins er mótmæli, að-
ferðafræði mótmæla og borgaraleg
óhlýðni.
Frummælendur verða Stefán Ei-
ríksson, lögreglustjóri í Reykjavík,
Hörður Torfason fyrir hönd Radda
fólksins, Eva Hauksdóttir aðger-
ðasinni og nafnlaus anarkisti. Auk
þess taka þátt í pallborðsumræðum
þau Sigurlaug Ragnarsdóttir fyrir
hönd Nýrra tíma, Katrín Odds-
dóttir, talsmaður neyðarstjórnar
kvenna, Þórhallur Heimisson prest-
ur og hugsanlega Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra.
Borgarafundur um
mótmælaaðferðir
ÞINGFLOKKUR VG hefur ályktað
að „hernaður Ísaelsstjórnar á Gaza
þar sem hundruð óbreytta borgara
hafa látið lífið, þar á meðal fjöldi
kvenna og barna, [sé] skýlaust brot
á fjölmörgum mannréttinda-
sáttmálum og alþjóðalögum. Hern-
aðinn ber skilyrðislaust og án tafar
að fordæma“.
Álykta um Gaza
KRABBAMEINSFÉLAG Hafn-
arfjarðar færði St. Jósefsspítala að
gjöf húsbúnað og lyfjadælu í sér-
staklega útbúna sjúkrastofu.
Sjúkrastofan er hlýleg og þægileg
enda miðað að því að bæði sjúk-
lingum og aðstandendum líði sem
best.
Skúli Þórsson heitinn, sem lengi
sat í stjórn félagsins, gaf ásamt
systrum sínum 150.000 kr. í gjöf í
minningu foreldra sinna og var
fénu varið í þetta verkefni.
Spítali fær gjöf
Gjöf Þóra Hrönn Njálsdóttir, for-
maður félagsins afhenti Árna Sverr-
issyni forstjóra gjöfina.
SAFT, samtök heimilis og skóla
um örugga netnotkun, undirritaði
nýlega samning til tveggja ára
um áframhaldandi stuðning ESB
við vakningarátaksverkefni um
örugga og jákvæða notkun nets-
ins og tengdra miðla. Verkefnið
er hluti af Safer Internet Action
Plan, aðgerðaráætlun Evrópu-
sambandsins um öruggari net-
notkun.
Samningur um
örugga netnotkun
GSM-símasöfnun Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar, „Svaraðu kall-
inu“, hefur gengið vonum framar.
Íslendingar hafa tekið vel við sér og
látið af hendi gamla gsm-síma sem
verða endurnýttir og endurunnir
og munu nýtast fólki í þróunarlönd-
unum.
Margir gefa síma
STUTT
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
ALÞINGI kemur saman að nýju eft-
ir jólafrí 20. janúar nk. og eru þing-
menn væntanlega að safna kröftum
fyrir vorþingið.
Á haustþinginu, sem lauk skömmu
fyrir jól, var krýndur nýr ræðukóng-
ur, Guðjón A. Kristjánsson, formað-
ur Frjálslynda flokksins. Guðjón tal-
aði samtals í 541 mínútu á
haustþinginu. Á þingunum þar á
undan höfðu Steingrímur J. Sigfús-
son og Jón Bjarnason, þingmenn
Vinstri grænna, skipst á að vera
ræðukóngar.
Næstur Guðjóni kemur flokks-
félagi hans Jón
Magnússon, sem
talaði í 515 mínút-
ur. Í næstu sæt-
um þar á eftir
koma Steingrím-
ur J. Sigfússon,
Álfheiður Inga-
dóttir og Jón
Bjarnason, þing-
menn VG. Þau
töluðu öll lengur
en 400 mínútur. Skammt undan eru
tveir þingmenn Vinstri grænna, Árni
Þór Sigurðsson og Ögmundur Jón-
asson.
Sá þingmaður sem talaði styst var
Einar Már Sigurðarson, Samfylk-
ingu. Hann tók sjö sinnum til máls
og talaði samtals í 3 mínútur, og hef-
ur því nýtt ræðutíma sinn vel. Aðrir
þingmenn sem töluðu í 30 mínútur
eða skemur voru sjálfstæðismenn-
irnir Arnbjörg Sigurðardóttir, Her-
dís Þórðardóttir, Illugi Gunnarsson
og Kjartan Ólafsson svo og Katrín
Júlíusdóttir, Samfylkingu.
Talaði í eina mínútu
Skemmst allra á haustþinginu tal-
aði Sigríður Á. Andersen, varaþing-
maður Sjálfstæðisflokksins. Hún tók
einu sinni til máls og talaði í eina
mínútu. Kristrún Heimisdóttir vara-
þingmaður Samfylkingar talaði í 6
mínútur og Róbert Marshall vara-
þingmaður sama flokks, talaði í 9
mínútur.
Þegar lagður er saman fjöldi
ræðna og fjöldi athugasemda sem
þingmenn gera við ræður annarra
þingmanna hefur Álfheiður Inga-
dóttir vinninginn. Hún fór alls 150
sinnum í ræðustólinn, flutti 74 ræður
og gerði 76 athugasemdir.
Af ráðherrum ríkisstjórnarinnar
talaði Geir H. Harde forsætisráð-
herra lengst og mest enda banka-
hrunið mikið til umræðu á haust-
þinginu. Geir flutti 60 ræður og
talaði í 217 mínútur. Einar K. Guð-
finnsson, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, talaði styst eða í 41
mínútu.
Guðjón Arnar er nýr ræðukóngur
Guðjón Arnar
Kristjánsson