Morgunblaðið - 08.01.2009, Side 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009
Verðvísitala Atvinnuleysi
Verðbólga Hagvöxtur í Finnlandi
0
-1
1
2
4
3
5
6
1991 2008
Finnland
Evru-svæðið
Finnland
ESB
Bandaríkin
Japan
1990 2008
18%
14%
10%
6%
2%
0
8%
4%
-4%
-8%
1975 2007
Finnland
Evru-svæðið
1991 2008
6%
4%
2%
0%
EVRAN Jukka Koivisto, formaður
EK, systursamtaka Samtaka at-
vinnulífsins, sem 16.000 fyrirtæki
eiga aðild að. Var í framvarðasveit
framboðsins fyrir ESB-aðild.
I
nngangan í Evrópusamstarfið
og myntsamstarfið voru, hvort
tveggja, mjög vel heppnuð
skref fyrir Finna en eins og þú
sérð ef þú horfir til efnahagssögu
Finnlands þá vorum við afar háð
skógarhöggs- og pappírsiðn-
aðinum,“ segir Jukka Koivisto, einn
helsti talsmaður finnsks athafnalífs,
og heldur áfram.
„Við gengum í gegnum gengis-
fellingu eftir gengisfellingu. Á tíu ára fresti
felldum við gengi marksins. Verðbólgustigið var
mjög hátt og uppbygging finnsks iðnaðar ekki
nútímaleg. Með inngöngunni í
Evrópusambandið fékkst stöð-
ugleiki og fjórum árum síðar,
þegar við urðum aðilar að mynt-
bandalaginu, kom á óvart hversu
auðveld ákvörðun það var að
skipta um gjaldmiðil. Finnar
byrjuðu að nota evruna eins og
markið áður fyrr [...] Evruupp-
takan bauð einnig upp á mjög
lágt vaxtastig. Ef ég lít yfir hátt í
tíu ára reynslu Finna af því að
vera í myntbandalaginu þá
myndi ég segja að hún væri
góð.“
Hvað með það sjónarmið að
evran hafi viðhaldið atvinnuleys-
isstiginu með því að vera dýr
gjaldmiðill sem kom útflutningsfyrirtækjum
illa?
„Svarið er hiklaust nei.“
Evran hafði því engin áhrif í þessa veru?
„Nei, þvert á móti. Hið lága vaxtastig gerði
okkur kleift að stuðla að aukinni fjárfestingu.
Þá á ég við innlenda fjárfestingu og aukinn
áhuga erlendra fjárfesta á því að fjárfesta í
Finnlandi. Ástæðan er sú að erlendir fjárfestar
vilja sjá stöðugleika, nokkuð sem við höfðum
ekki fyrir inngönguna.“
„Verðbólgustigið er að lækka. Það var um
fjögur prósent en er nú um 3,6 prósent ... Vaxta-
stigið er einnig að lækka. Þetta tvennt eru mjög
góðar fréttir fyrir okkur og fylgir því að eiga að-
ild að efnahags- og myntbandalagi Evrópu.“
Vaxtastigið væri mun hærra ella
Hvað heldurðu að vaxtastigið væri ef Finnar
hefðu enn gamla gjaldmiðilinn?
„Slíkar spurningar eru vitaskuld öðrum
þræði vangaveltur en ætla má að það væri mun
hærra. Horfa má til Svíþjóðar þar sem vaxta-
stigið er hærra en hér.“
Hvað með það sjónarmið sem heyrst hefur á
Íslandi að í því felist mikill styrkur að geta fellt
gengið eftir þörfum?
„Það fer eftir því hvar samkeppnisstyrkur
landsins liggur. Ef hægt er að tryggja sam-
keppnishæfni iðngreina þá er það styrkur. Ef
ekki, þá þarf að grípa til gengisfellingar, nokkuð
sem er ekki hægt eftir upptöku evrunnar.“
Hvað með þróun matarverðs eftir inngöngu?
„Matarverðið lækkaði til að byrja með en hef-
ur síðan fylgt verðþróuninni í Evrópu.“
Hvaða með kröfuna um úrsögn úr ESB?
„Ég kannast ekki við samtök sem berjast fyr-
ir slíkri úrsögn. Það ber ekki á þessu sjónarmiði
í pólitískri umræðu í Finnlandi í dag [...]
Þegar við undirbjuggum kosningabaráttuna
um inngöngu stilltum við málinu þannig upp að
þrátt fyrir að ESB væri ekki rósagarður væri
það betri kostur að vera hluti af sambandinu en
að standa utan þess. Það voru í raun helstu
skilaboð herferðarinnar.“
Reynslan af gjaldmiðlinum verið jákvæð
Einn helsti talsmaður finnsks athafnalífs telur evruna ekki hafa viðhaldið atvinnuleysisstiginu í landinu
Telur lágt vaxtastig hafa laðað að erlenda fjárfesta, ásamt því að auka innlenda fjárfestingu í Finnlandi
Jukka Koivisto
Finnland | Evrópusambandið
EVRAN Pia Michels-
son, fyrrverandi að-
stoðarforstjóri Kaup-
þings í Finnlandi.
F
innska at-
hafnakonan
Pia Michelsson
var aðstoð-
arforstjóri Kaupþings
í Helsinki fyrir banka-
hrunið. Hún rekur nú
tvær fataverslanir,
ásamt því að vera for-
maður finnsk-íslenska
viðskiptaráðsins.
Innt eftir rökunum
fyrir inngöngu á sínum tíma telur
Michelsson að aðildin hafi staðfest
þann vilja Finna að þjóðin tilheyrði
Evrópu. Hvað evruna snertir telur
hún út frá sinni reynslu sem
fjármálakona að upptaka evru
myndi verða til að auka erlenda fjár-
festingu á Íslandi, þar
sem fjárfestingarsjóðir
veigri sér við að fjár-
festa í umhverfi þar sem
jafn miklar sveiflur séu
staðreynd.
Michelsson telur
þjóðarvitund Finna hafa
styrkst ef eitthvað er
við inngönguna og met-
ur það svo að það sama
muni gilda um Ísland.
Það er hennar skoðun
að Finnar hafi litið á
uppgang íslenskra fjár-
málafyrirtækja í Finn-
landi, einkum í Helsinki,
með tortryggni. Þeir
séu varkárari í fjármálum en Íslend-
ingar.
Michelsson telur ekki að ímynd
Íslands hafi skaðast í Finnlandi.
Hennar tilfinning er að Finnar
myndu styðja inngöngu Íslands í
Evrópusambandið.
ESB-aðild myndi laða að fjármagn
Yki fjárfestingu
Pia Michelsson
EVRAN Christoffer
Taxell, stjórnar-
formaður Finnair og
einn áhrifamesti for-
ystumaðurinn í
finnsku viðskiptalífi.
T
axell, sem var
menntamála-
ráðherra 1987-
1990 og dóms-
málaráðherra 1979 til
1987, segir það út-
breidda skoðun í
finnsku athafnalífi að
upptaka evru hafi haft
jákvæð áhrif og stutt við endurreisn
hagkerfisins eftir efnahagsþreng-
ingarnar á síðasta áratug. Með líku
lagi hafi inngangan í ESB átt hlut í
velgengni stórfyrirtækisins Nokia.
Við fall Sovétríkjanna hafi um
fjórðungur þjóðarframleiðslunnar
hrunið og því skapast brýn þörf á að
tryggja sem bestan aðgang að nýj-
um mörkuðum.
„Finnland er lítið land. Við erum
mjög háðir útflutningi,
sem er nú 45 prósent
þjóðarframleiðsl-
unnar,“ segir Taxell,
sem telur kreppuna nú
sérstaka að því leyti að
hún sé heimskreppa,
sem útflutningslandið
Finnland finni fyrir.
Taxell tekur þó fram
að ýmsir samverkandi
þættir hafi lagt grunn-
inn að viðreisninni.
Fjárframlög til
rannsókna og þróunar
hafi lagt grunninn að
nýjum iðngreinum á
þeim tíma er Nokia,
sem var þá m.a. þekkt fyrir stígvél
sín og kapla, sneri sér að farsímum.
Inntur eftir gagnrýni á ESB í
Finnlandi segir Taxell það tilfinn-
ingu sína að margir Finnar sem
kusu gegn inngöngunni hafi í raun
verið hlynntir aðild. Hvað varðar
evruna þá metur hann það svo að
fleiri Finnar séu nú um stundir
hlynntir henni en ESB, enda mikill
ávinningur af gjaldmiðlinum.
Evran til góðs
Studdi endurreisn atvinnulífsins
Christoffer Taxell
EVRAN Sixten Korkman, forstöðumaður
hagrannsóknarstofnunarinnar ETLA.
É
g tel að það sé mikill kostur and-
spænis óróanum á mörkuðum að
spákaupmennska með finnska
markið heyri sögunni til og að
Finnar þurfi ekki að óttast vaxtahækkanir.
Þvert á móti er vaxtastigið lágt og viðbúið
að það lækki frekar á næstu mánuðum,“
segir Sixten Korkman, forstöðumaður
stofnunarinnar ETLA, um árin með evr-
una. Hann saknar ekki finnska marksins.
„Áður fyrr eyddum við tíma í karp um
hvort við ættum að fella gengið á markinu
eða ekki. Timburiðnaðurinn þrýsti alltaf á
gengislækkanir […] Nú heyrir þetta sög-
unni til. Við höfum ekki lengur sjálfstæðan seðlabanka
eða okkar eigin peningastefnu. Í dag verjum við tímanum
í umræður um hvernig við getum bætt menntakerfið,
komið á umbótum í háskólunum og hvernig beri að verja
opinberu fjármagni. Ég tel að þetta sé af hinu góða. Þetta
eru hlutirnir sem á að ræða um, ekki hvort fella beri
gengið eða ekki. Það er tímasóun.“
Smærri fyrirtæki ánægð með evruna
Korkman telur finnskt atvinnulíf ánægt með evruna.
„Almennt myndi ég segja að Finnar væru ánægðir með
evruna. Hvað viðskiptalífið áhærir var gerð könnun meðal
rekstraraðila lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Svíþjóð,
Finnlandi og Danmörku áður en við tókum upp evruna.
Meirihluti þeirra var fremur neikvæður og hikandi gagn-
vart evrunni. Síðasta vor var sama könnun framkvæmd
aftur tíu árum síðar og þá kom í ljós að sami hópur var
enn hikandi í Svíþjóð og Danmörku en ánægður í Finn-
landi. Þessi hópur í Finnlandi lítur svo á að lífið sé mun
auðveldara þegar landið er aðili að myntsamstarfinu, þeg-
ar horft er til áhættutöku, færslukostnaðar og verðlagn-
ingar.“
Korkman heldur áfram og segir Finna kunna að meta
að þurfa ekki að skipta um gjaldmiðil á ferða-
lögum. Hvað snerti áhrif evrunnar á hag-
kerfið bendi rannsóknir til að verslun hafi
aukist við Evrópuríki eftir upptöku evrunnar,
sem og að erlend fjárfesting hafi aukist frá
evrusvæðinu.
Korkman leggur á hinn bóginn áherslu á að
hagvöxtur hafi verið svipaður í Svíþjóð og
Finnlandi, þótt Svíar hafi ekki gerst aðilar að
myntsamstarfinu.
„Þetta vekur grunsemdir um að ef til vill sé
aðild að evrusamstarfinu ekki svo mikilvæg.
Við erum ánægð með evruna en ég held því
hins vegar ekki fram að hún marki skilin á
milli dags og nætur.“
Hann telur kreppuna bjóða upp á áhuga-
verðan samanburð á Finnlandi og Svíþjóð.
„Því má halda fram að sænskur útflutn-
ingsiðnaður muni njóta góðs af gengisfallinu, en á sama
tíma held ég að Svíar hafi áhyggjur af taugatitringnum
sem fylgir gengisþróuninni.“
Kunna að meta að fara með eigin málefni
Korkman tekur fram að Evrópusambandsaðild snúist
ekki einvörðungu um efnahagsmál og vísar til sögunnar.
„Við kunnum að meta að geta haft áhrif á framgang
mála við samningaborðið. Við kunnum ekki að meta það
þegar Hitler, Stalín, Molotov, Ribbentrop og aðrir tóku
ákvarðanir sem vörðuðu hag Finna.
Við erum ef til vill lítil þjóð með takmörkuð völd í Evr-
ópusambandinu en eigum nú að minnsta kosti sæti við
borðið og höfum áhrif á og tökum þátt í þeim viðræðum
sem þar fara fram um framtíð Evrópu.“
Hann viðurkennir þó að margt megi gagnrýna í ESB.
„Það er ýmislegt sem ég tel vera gagnrýnivert við ESB.
Ef sambandið væri ekki til þyrfti að að finna það upp á
morgun […] Að öllu samanlögðu er ég sáttur við sam-
bandið og uppbyggingu þess. Ég fellst á að stjórnkerfi
sambandsins sé fremur flókið en á sama tíma fágað að
innri gerð […] enda er það ekki auðvelt verkefni að
tengja saman mörg ríki í slíku samstarfi.“
Karpið heyrir sögunni til
Þekktur finnskur hagfræðingur saknar ekki gengisfellinga
Viðurkennir að erfitt sé að meta bein áhrif evrunnar
Sixten Korkman