Morgunblaðið - 08.01.2009, Side 31

Morgunblaðið - 08.01.2009, Side 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 ✝ Elín Jónía Þórð-ardóttir fæddist á Syðstu-Görðum í Kol- beinsstaðahreppi í Snæfellsnessýslu 13. ágúst 1917. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 1. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurveig Dav- íðsdóttir, frá Hamri í Svínavatnshreppi í A.-Húnavatnssýslu, f. 1886, d. 1951, og Þórður Árnason, bóndi, frá Syðri-Rauðamel í Kol- beinsstaðahreppi, f. 1884, d. 1961. Elín var sjötta í röð ellefu systkina. Árni Jónsson frá Vöðlavík, kaup- maður á Eskifirði, f. 1886, d. 1966. Elín Jónía og Jón Þórir eignuðust fjórar dætur; 1) óskírð, f. 28. desember 1944, d. sama dag, 2) Elín J. Jónsdóttir Richter, f. 21. febrúar 1946, maki Reinhold Richter, 2) Valgerður Þ. Jóns- dóttir, f. 2. júlí 1952, maki Árni Þórarinsson, börn hennar og Ingi- mundar Eyjólfssonar: Jón Þórir, f. 18. mars 1983, og Elín, f. 4. júlí 1987, 3) Arngunnur R. Jónsdóttir, f. 15. apríl 1955, maki Helgi Rún- ar Rafnsson. Elín Jónía lærði hárgreiðslu og vann á Hárgreiðslustofu Kristínar Ingimundardóttur þar sem hún starfaði í mörg ár áður en hún helgaði sig húsmóðurstörfum. Elín Jónía verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Hún ólst upp við Brekkustíg í Reykja- vík hjá föðursystur sinni, Elínu Guðrúnu Árnadóttur, f. 1876, d. 1963, og manni hennar Jóni Magn- ússyni, f. 1865, d. 1953. Hinn 26. desember 1942 giftist Elín Jónía Jóni Þóri Árnasyni, heildsala, f. 26. desember 1917, d. 10. apríl 1997. Foreldrar hans voru Guðrún Jónína Ein- arsdóttir frá Kóngsparti við Helgustaði, f. 1887, d. 1971, og Helstu minningarnar sem ég og amma eigum saman eru af „ömmu- föstudögum“. Á hverjum einasta föstudegi eldaði hún mat handa öll- um þeim sem mættu. Allir voru allt- af velkomnir á fallega heimilið hennar ömmu. Það er ekki nema rúmur mánuður síðan að viljagóða kraftakonan hún amma mín eldaði síðustu máltíðina fyrir sex manns talsins. Oft eldaði hún kjötsúpu en þó verður helst að nefna fiskiboll- urnar í brúnu sósunni með sykr- inum, enda var sá réttur í uppáhaldi flestra, ef ekki allra. Við matarborðið voru heimsmálin oft rædd og stundum var okkur heitt í hamsi. Hún hafði sterkar skoðanir og studdi sitt fólk í stjórn- málum. Oft var hún líka fyrst með fréttirnar og var betur að sér í hin- um ýmsu málum en aðrir við mat- arborðið og þótt víða væri leitað. Alltaf var gaman að heyra hennar skoðanir á hlutunum, því hún sagði alltaf nákvæmlega það sem henni fannst og rökstuddi skoðanir sínar til fullnustu. Þótt líkaminn hafi ver- ið farinn að gefa sig var hugurinn í fullkomnu ástandi. Það var alltaf skemmtilegt að ræða málin við ömmu og skemmt- um við okkur ekkert síður í fé- lagsvistinni sem við spiluðum eftir matinn við Addý, móðursystur mína, og pabba. Það var svo gaman þegar ég og amma vorum í sama liði og þegar vel gekk gerðum við „high five“ yfir borðið, svolítið til að pirra Addý og pabba en það var allt í gríni gert. Eftir hvert spil, hvernig sem úrslitin urðu, tók amma alltaf skýrt fram að það skipti ekki máli hver ynni, því þetta væri bara leik- ur, aðalatriðið væri að hafa gaman. Eitt sinn, þegar við vorum að ganga frá eftir matinn, tók ég eftir marbletti á handlegg hennar og spurði hvernig hún hefði fengið hann. Þá svaraði hún: „Ég datt, en sérðu, hann er lillablár sem er svo fallegur litur, þannig að það gerir nú lítið til.“ Þetta svar finnst mér einkenna þá manneskju sem amma mín hafði að geyma. Þótt vindar blésu á móti tók hún á móti þeim með jákvæðni og steyttan hnefa og var í mínum augum ósigrandi. Þótt hún væri sárkvalin stóð hún upp á hverjum morgni og klæddi sig í fín föt og puntaði sig. Margir höfðu líka orð á því í Sunnuhlíðinni að hún væri best klædda konan þar og liti út fyrir að vera 20 árum yngri en hún var. Undir það síðasta þegar ég og mamma komum í heimsókn til hennar var hún svo veik að hún gat vart talað, en hún náði að benda á hálsinn á sér og segja: „Ilmvatn.“ Hún amma mín hélt sér vel til og var svo falleg fram á síðasta dag. Elsku besta amma í heimi: Þú sagðir að ég mætti ekki vera leið þótt þú færir. Ég get ekki gert að því að óhlýðnast þér í þetta skiptið en það huggar mig að vita að þér líður betur hjá afa. Þið hugsið vel hvort um annað. Sumar minningar sem við eigum munu alltaf koma mér til að brosa, eins og þegar ég var lítil og þú leist svo vitlaust á klukkuna að þú sendir mig í skólann klukkan fjögur um nóttina. Þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Ég geymi þær vel. Með þessum orðum kveð ég hetj- una hana ömmu. Elín Ingimundardóttir. Ég fékk þau forréttindi að kynn- ast sæmdarhjónunum Elínu Jóníu og Jóni Þóri þegar ég var nálægt tvítugu. Samhent hjón og einstakar manneskjur, sem ég bar lotning- arfulla virðingu fyrir vegna aðdáun- arverðs heiðarleika, góðmennsku og sterkrar réttlætistilfinningar. Um Jón Þóri mætti margt fallegt rita, en þessi stutta kveðja er tileinkuð Elínu. Strax tókst með okkur vin- skapur, sem aðeins efldist eftir því sem árin liðu og þar til yfir lauk. Ég elskaði hana eins og hún væri móðir mín, enda reyndist hún mér þannig. Oft sagði hún að hún liti á mig sem son sinn og ég sagði oft við hana að hún væri mér sem móðir. Elín var sterk kona, góð móðir og einstök amma og var alltaf tilbúin að rétta öllum hjálparhönd. Hún hugsaði vel um manninn sinn í hans langa veikindastríði þótt hún stæði varla í fæturna sjálf. Valgerður, dóttir þeirra, og ég eignuðumst dreng og stúlku og í mínum huga kom aldrei annað til greina en að skíra þau í höfuð tengdaforeldra minna, Jón Þórir og Elín. Frá seinustu árunum í Sunnuhlíð- inni á ég margar ljúfar endurminn- ingar um Elínu á bílnum sínum eins og hún kallaði göngugrindina sína. Svo einstaklega dugleg við að elda fyrir sig og á föstudögum bauð hún okkur öllum, sem koma vildu, í fiskibollur – þær bestu í heimi, eða kjötsúpu, sem líka var einstök. Á laugardögum bakaði hún pönnukök- ur eða vöfflur og bauð til veislu, sem var mjög vinsælt. Elín, dóttir mín, Addý, fyrrverandi mágkona mín, og ég spiluðum oft vist við hana og var hún yfirleitt aldrei spurð hvort hún vildi spila, en alltaf var hún til í slaginn. Þetta voru miklar ánægjustundir og oft gant- ast með að aumingja amma fengi aldrei góð spil þótt hún næði oft að vinna. Minningar um Elínu hrannast upp í huga mínum, allar góðar og fallegar. Hún var svo sönn kona að engri líkri hef ég kynnst. Megi al- mættið taka fagnandi á móti Elínu Jóníu Þórðardóttur, sem gaf svo mikið, en þáði svo lítið. Þinn einlægur Ingó, Ingimundur Eyjólfsson. Elín Þórðardóttir beið lengi eftir kveðjustundinni og kvaddi því sátt við sig og sína. Slíkt er ávallt hugg- un harmi gegn. Fyrir nokkrum árum tók ég blaðaviðtal við gáfaðan listamann sem fékk það hlutverk að túlka aldraða konu á „elliheimili“, eins og það var kallað. Hann sagði: „Ég ber ótakmarkaða virðingu fyrir þessari gömlu kynslóð, þessum reynslu- skúlptúrum. Í mínum augum er þetta heilagt fólk. Það hefur verið lengi að og er nú að fara og veit það.“ Hann hefði getað verið að tala um Elínu Þórðardóttur. Hún og hennar kynslóð lagði meira af mörkum fyrir aðra en sjálfa sig. Hún hafði sína réttlæt- iskennd, dugnað, háttvísi, reisn og sjálfstæði, gerði ekki háar kröfur en stóð við allt sitt. Helst vill hún sjálfsagt að ástvinir hennar hafi sem minnstar áhyggjur og sorgir af henni, nú eftir að hún hefur kvatt, ekki síður en áður. Meðal annars þess vegna getum við kvatt hana með gleði, þakklæti og, eins og að ofan stendur, ótakmark- aðri virðingu. Guð blessi minningu hennar og gefi okkur vit til að læra af henni. Árni Þórarinsson. Elín Jónía Þórðardóttir ✝ Okkar ástkæra MATTHILDUR ÞÓRÐARDÓTTIR lést aðfaranótt 6. janúar á dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Grund. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 9. janúar kl. 11.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ragnar Þórarinsson, Sólveig Ólafsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN KRISTÓFERSSON, áður til heimilis í Furugerði 1, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 22. desember. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Lilja Þorgeirsdóttir, Ingibjörg Björnsdóttir, Arnór Þórhallsson, Þorgeir Björnsson, Vilhelmína Sigurðardóttir, Þórdís Björnsdóttir, Eðvald Möller, Lilja Guðrún Björnsdóttir, Páll Helgi Möller, Gylfi Björnsson, Anna Þóra Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar bestu þakkir fyrir sýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar elskulegs sonar okkar, bróður, mágs og frænda, ODDS JÓNSSONAR, Sunnuhlíð 19b, Akureyri. Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki Mjólkursamsölunnar á Akureyri fyrir ómetanlega vinsemd og aðstoð. Megi þetta nýbyrjaða ár verða öllum gott og gæfuríkt. Ólöf Oddsdóttir, Jón Laxdal Jónsson, Stefán M. Jónsson, Halla Sif Svavarsdóttir, Elín J. Jónsdóttir, Anton Helgason, Kolbrún Ósk Jónsdóttir, Jón Már Jónsson, Anna Þóra Árnadóttir, Elma Berglind Stefánsdóttir, Lóa Júlía Antonsdóttir, Daníel Örn Antonsson, Sigurður Vilmundur Jónsson, Halldóra Auður Jónsdóttir. ✝ Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KLARA FRIÐRIKSDÓTTIR, til heimilis á Hraunbúðum, áður Látrum í Vestmannaeyjum, andaðist á Hraunbúðum, dvalarheimili aldraðra, þriðjudaginn 30. desember. Útför fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 10. janúar kl. 14.00. Friðrik Jónsson, Jakobína Guðmundsdóttir, Svava Jónsdóttir, Þráinn Einarsson, Guðjón Jónsson, Anna Svala Johnsen, Ragnar Jónsson, Sigrún Hjaltalín, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sonur minn, bróðir okkar og mágur, HANNES BJÖRGVINSSON, Krummahólum 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut að kvöldi föstudagsins 26. desember. Útförin verður frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. janúar kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Katrín R. Magnúsdóttir, Jón M. Björgvinsson, Signý Guðmundsdóttir, Grétar Ó. Guðmundsson, Erla S. Kristjánsdóttir, Inga Hanna Guðmundsdóttir, Ragnheiður Björgvinsdóttir, Philip Cartledge, Páll Björgvinsson, Ástrós Guðmundsdóttir, Magnús Björgvinsson, Edda Pálsdóttir, Björgvin Björgvinsson, Marólína Erlendsdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, afi og langafi, ÁRNI VEIGAR STEINGRÍMSSON bóndi, Ingvörum, Svarfaðardal, er lést fimmtudaginn 1. janúar, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 10. janúar kl. 13.30. Edda Björk Valgeirsdóttir, Júlíus Valbjörn Sigurðsson, Jón Víkingur Árnason, Heiðdís Sigursteinsdóttir, Saga Árnadóttir, Börkur Árnason, Birkir Árnason, Sigrún Árnadóttir, Linda Geirdal, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.