Morgunblaðið - 08.01.2009, Page 46
GAMANLEIKARINN Ricky Gervais, stjarn-
an í Office-þáttunum, lætur fólk sem er vel
yfir meðalþyngd heyra það í nýrri hljóðbók
sinni. Hann segir þar að þeir sem fara í fitu-
sog séu „löt og feit svín“.
Gervais hefur líka rætt um fitu, sem er
honum sýnilega hugleikin, í viðtölum. Hann
er sjálfur þéttvaxinn og segist hlæja að því að
vera feitur þegar hann ætti að skammast sín.
„Þegar ég geng niður götu ætti fólk að öskra
og kalla mig fitubollu! Það er það sem ég vil,
til að hjálpa mér að taka á þessu.
Ég vakna á morgnana, lít í spegilinn og
segi við sjálfan mig: Þú ert feitur aumingi.“
Hann bætti við: „Í stórmörkuðum ætti mest
fitandi maturinn að vera bakvið mjög þröng-
ar dyr. Búðir ættu að vera fullar af salati, en
ef þú vildir komast að kökunum, ættirðu að
þurfa að skríða gegnum þröngt rör.“
Í hljóðbókinni segist Gervais ekki skilja
hvers vegna læknir, sem hafi svarið Hippó-
kratesareiðinn, skuli taka áhættuna við að
svæfa fólk og skera upp til að minnka fitu,
þegar fólkið ætti að drattast út að hlaupa.
„Það lætur skera af sér sneiðar. Ég vil
segja við þetta fólk: Þið eruð löt svín. Farið
að hlaupa og hættið að éta hamborgara.
Þetta gæti drep-
ið ykkur.“
Gervais
segir fólk
hafa meiri
áhyggjur af
flatskjám en
að lifa heilsu-
samlegu lífi.
Ricky Gervais
skammar feita
Reuters
Garvais Ein-
hver kynni
að segja að
hann hefði
fordóma
gagnvart
þungu fólki.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
Australia kl. 6:30 - 10 B.i. 12 ára
The day the earth... kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
Zack and Miri ... kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Quantum of Solace kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára
Saw 5 kl. 10:20 B.i. 16 ára
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Sími 551 9000
HEIMSFRUMSÝNG Á MAGNAÐRI STÓRMYND Í ANDA INDEPENDENCE DAY
BYGGÐ Á EINUM BESTA VÍSINDATRYLLI ALLRA TÍMA!
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Australia kl. 5:30 - 9 B.i. 12 ára
Skoppa og Skrítla í bíó kl. 6 LEYFÐ
Inkheart kl. 5:40 - 8 -10:20 B.i. 10 ára
650k
r.
Bráðskemmtileg mynd þar sem
heimur galdra og ævintýra lifnar við
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Stórkostlegt meistaraverk
frá leikstjóra Moulin Rouge!
- S.V., MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI
,,ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND”
-VJV -TOPP5.IS/FBL
Australia kl. 8 B.i.12 ára
Inkheart kl. 6 - 8 B.i. 10 ára
Skoppa og Skrítla í bíó kl. 6 LEYFÐ
The Day the Earth stood still kl. 10 B.i.12 ára
„HÖRKU HASAR MEÐ
JASON STATHAM
Í AÐALHLUTVERKI“
-S.V. - MBL
Fyrir sum verkefni þarftu einfaldlega atvinnumann
650k
r.
Stærsta BOND-mynd allra tíma!
650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBO
GANUM
650k
r.
650k
r. LEIKURINN
HELDUR ÁFRAM...
ALLS EKKI
FYRIR
VIÐKVÆMA!
Taken kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Four Christmases kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
650k
r.
- H.E. DV - S.V. Mbl
ÆVINTÝRAMYND
AF BESTU GERÐ
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú
„ÞETTA er í fyrsta sinn sem Egó kemur saman
í stúdíói í 24 ár,“ sagði Bubbi Morthens í gær.
Þeir félagar Bubbi, Bergþór Morthens, Jakob
Magnússon og Arnar Ómarsson voru þá saman
komnir við mixerinn í hljóðverinu að hlusta á af-
rakstur morgunsins, upptöku á nýju lagi og
texta Bubba. Hann samdi lagið um liðna helgi,
flutti það fyrst í útvarpsþætti sínum, Færiband-
inu, á Rás 2 á mánudagskvöldið og nú var búið
að taka það upp; rokkaður reggítaktur undir
beittum texta um efnahagsástandið hér á landi.
„Þetta verður að fara í spilun eins fljótt og
unnt er, á meðan ástandið er svona í þjóðfélag-
inu,“ sagði Bubbi og bætti við að tónlistin væri
listform sem hægt væri að nota til að bregðast
hratt við því sem kemur uppá. Lagið nefnist
„Kannski var bylting vorið 2009.“
Eftir að hafa hlýtt á lagið og fylgst síðan með
Arnari bæta hristu inn í mixið, var sest á rök-
stóla. Egó ætlaði að telja strax í næsta grunn.
efi@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Í stúdíóinu Ególiðar hlýða á nýjasta lagið. Bergþór Morthens, Jakob Magnússon, Arnar Ómarsson og Bubbi við mixerinn.
Egó í stúdíói að nýju
Nær aldarfjórðungur liðinn síðan hljómsveitin tók síðast upp nýtt efni
Nýtt lag Bubba um þjóðfélagsástandið væntanlegt á útvarpsstöðvarnar