Morgunblaðið - 31.01.2009, Qupperneq 23
Daglegt líf 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2009
Þriggja daga ferð fyrir tvo til Búdapest 23. apríl til 26. apríl.
Gisting með morgunverði á Hotel Mercure Korona, sem er
ákaflega glæsilegt 4 stjörnu hótel með góðum veitingastað
og kaffihúsi. Hótelið er staðsett við Kalvin-torgið í miðborg
Búdapest og þar er einnig sundlaug, gufubað og sólbaðsstofa.
Öll herbergin eru fallega innréttuð með sjónvarpi, síma,
minibar, hárþurrku og loftkælingu.
Febrúarvinningur:
3ja daga ferð fyrir tvo til Búdapest
að verðmæti 180.000 kr.
Innifalið í verði ferðar:
• Flug og flugvallaskattar til Búdapest og aftur til Keflavíkur
• Gisting í tvíbýli með morgunmat á Hotel Mercure Korona
• Akstur til og frá flugvelli erlendis
Ekki innifalið:
• Skoðunarferðir
Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift
eða í síma 569 1122
mbl.is/moggaklubburinn
1.vinningurregið . ebrúar
Með Moggaklúbbnum
til Búdapest
í lagi mín vegna en mér finnst heldur langt
seilst þegar reynt var að tengja mig við S-
hópinn svokallaða vegna þess að faðir minn
hefði verið í þeim hópi í Framsóknarflokknum
– sem var þveröfugt því hann var alltaf flokk-
aður í svokölluðum Steingrímsarmi.“
Er ekki kappsmál fyrir þig að má allan
spillingarstimpil af Framsóknarflokknum?
„Það er grundvallaratriði. Ég held að allir
íslenskir stjórnmálaflokkar hafi verið spilltir
án þess að gera sér grein fyrir því, menn
héldu að svona ætti pólitík að vera, þannig
væri bara menningin í pólitíkinni. Þetta er
auðvitað bara ómenning sem þarf að upp-
ræta.“
Framsóknarflokkurinn tók kipp í skoð-
anakönnunum eftir að þú varst kjörinn for-
maður flokksins þannig að fylgisaukningin
virðist byggjast mjög á tiltrú fólks á þér.
Þyrmir aldrei yfir þig vegna þessarar
ábyrgðar?
„Ég hugsaði mig mikið um áður en ég tók
ákvörðun um að bjóða mig fram til formanns.
Ég mat þetta þannig að ég væri hvort eð er
svo pirraður á hverjum degi yfir ástandinu og
því hversu illa væri tekið á málum að það
væri gott að vera í sterkri stöðu til að hafa
áhrif á gang mála. Ég vildi láta reyna á það
hvort ég gæti látið gott af mér leiða. Ég vissi
að ef ég gerði það ekki þá myndi ég alltaf
hugsa með mér hversu rangt það hefði verið
af mér að grípa ekki tækifærið þegar það
gafst.“
Útilokar þú að Framsóknarflokkurinn
starfi með Sjálfstæðisflokknum eftir kosn-
ingar?
„Við göngum óbundnir til kosninga. Það er
hins vegar alveg ljóst að í Framsókn-
arflokknum er mikill vilji til þess að gefa
Sjálfstæðisflokknum frí frá ríkisstjórn og líta
til vinstri, þótt ekki væri nema í ljósi þess
hvernig mál hafa þróast í samfélaginu síðustu
árin. Mörgum framsóknarmönnum hefur
fundist Framsóknarflokkurinn hafa færst til
hægri og samfélagið sömuleiðis og telja að nú
eigi að líta til vinstri. En Framsóknarflokk-
urinn mun ekki semja um stjórnarmyndun
fyrir kosningar.“
Morgunblaðið/Kristinn