Morgunblaðið - 31.01.2009, Síða 35
með honum er sá ættliður genginn.
Ég sendi Einari, Heiðu, Mæju,
Balda, Sigga, Eyþóri og Elínu og
fjölskyldum þeirra mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Sigurður Mar Halldórsson.
Á kveðjustund hvarflar hugurinn
ósjálfrátt aftur um ríflega hálfa öld,
eða til sumarsins 1957, þegar kynni
okkar Ólafs hófust – hann þrítugur
að aldri og ég sex ára snáði. Sögu-
sviðið er Egilsstaðaþorp sem þá var
óðum að taka á sig mynd sem strjál-
ingur nýbyggðra húsa á lyngvöxnum
Gálgaásnum.
Í þessari landnámsbyggð mættust
leiðir okkar Ólafs þetta sumar. Ég
og systir mín flutum þá með í far-
angri föður okkar, sem skömmu áður
hafði misst móður okkar og því
ákveðið að flytja í þorpið. Ólafur
gekk þá kvölds og morgna ofan frá
Miðhúsum til að sinna kúabúskap
sínum á býlinu Búbót í útjaðri þorps-
ins. Þessi spölur var þó aðeins brot
af þeirri löngu leið sem Ólafur átti þá
að baki. Hann ólst upp á Snæfjalla-
strönd vestur við Djúp, en fluttist 18
ára austur á land í fylgd heitkonu
sinnar, Hólmfríðar Einarsdóttur,
sem ráðist hafði þangað í kaupa-
vinnu.
Eftir ársdvöl á Seyðisfirði hófu
þau búskap á Klyppsstað í félagi við
foreldra Hólmfríðar, en fluttust síð-
an upp á Hérað í von um að þar gæf-
ist kostur á góðri bújörð. Þau fengu
leigða jörðina Miðhús, en vorið 1956
ákváðu þau að festa kaup á Búbót,
þar sem þorpsbúar höfðu haft sam-
vinnufélag um kúabúskap í nokkur
ár. Rekstur slíks stórbús var ögrandi
verkefni fyrir ungan og áræðinn
mann, sem víðkunnur var fyrir
dugnað og verklagni. Þótt stutt væri
í þorpið ákváðu hjónin brátt að flytja
sig niður í þorpið. Það varð því mikil
gæfa að þá hóf faðir minn smíði á
íbúðarhúsi (Þórsmörk), sem rúmaði
svo prýðilega þær tvær fjölskyldur
er inn í það fluttu nokkru fyrir jólin
1957. Með því var leyst úr vanda
Miðhúsafólksins og búin aðhlynning
ekkjumanni með tvö ung börn. Þar
komu saman til borðs 10 manns á
tæplega 90 fm gólfi. Þótt þröngt væri
og gestagangur jafnan mikill, minn-
ist ég ekki plássleysis þau sjö ár sem
sambýlið stóð. Fyrir okkur systkinin
skipti meira máli að eignast fjögur
uppeldissystkin og fá að deila með
þeim hlýju og mannkostum foreldra
þeirra.
Fyrir þessi ár og öll þau önnur,
sem á eftir fylgdu, vil ég nú þakka.
Ég mæli þar einnig fyrir munn syst-
ur minnar. Góðu heilli átti ég þess
kost að kveðja Ólaf á liðnu sumri.
Hann sat úti á dyrapallinum í
Varmahlíð, þegar mig bar að garði,
og kófreykti kamel eins og forðum.
Við kyntum saman góða dagstund og
létum hugann reika. Siluðumst hægt
af stað en náðum drjúgum hraða er
Elín kom með þriðja púrtvínsglasið.
Að því búnu kvöddumst við og viss-
um báðir að samferð okkar væri
senn á enda um þetta jarðneska
þorp. Fyrir þá samfylgd er nú þakk-
að. Megi góður vinur ná heill til nýrr-
ar hafnar.
Gunnlaugur Haraldsson
Meira: mbl.is/minningar
Ólafur Sigurðsson eða Óli í Búbót
hefur lagst til hvílu eftir ærið ævi-
starf. Við andlátsfregn manns hvers
mynd er skýr í minningaheimi
bernsku- og æskuára raskast hvers-
dagshugur.
Þá daga er við Einar brölluðum
það sem strákahugur vor stóð helst
til á stór- Búbótarsvæðinu sinnti Óli
bjargráðum sínum til heilla.
Amaðist ekki við uppátækjum
pilta og var hluti af „innréttingunni“.
Hjá Hólmfríði var hvenær sem var
hægt að fá hressingu og sól skein
stöðugt í heiði.
Síðar er upp var vaxinn var oft
leitað til Óla með ýmsa hluti sem
leystir voru af hans högu hendi og af-
hentir með bros á vör.
Óli og Hólmfríður voru hluti af því
umhverfi sem hlúði að vorum upp-
vexti og er þeirra minnst með hlý-
hug. Elínu, Ólabörnum og öðrum að-
standendum sýni ég hluttekningu á
kveðjustundu.
Björn Sveinsson.
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2009
✝ GuðmundínaKristín Vilhjálms-
dóttir fæddist á Hálsi
á Ingjaldssandi 21.
september 1915. Hún
lést á Sjúkrahúsinu á
Ísafirði föstudaginn
23. janúar síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Sesselja
Sveinbjörnsdóttir, f. á
Botni í Súgandafirði
11.2. 1893, d. á Ísa-
firði 10.12. 1950 og
Vilhjálmur Jónsson, f.
á Höfða í Grunnavík
25.5. 1888, d. á Hrafnistu í Reykja-
vík 24.11. 1972. Systkini Guðmund-
ínu eru Guðfinna, f. 1917, d. 1998;
Jón, f. 1918, d. 1994; Guðmundur
Friðjón, f. 1919, d. 1920; Guð-
mundur Friðrik, f. 1921, d. 2006;
Jóhanna, f. 1922, d. 2001; Ásgeir
Þór, f. 1924, d. 2008; Hansína Guð-
rún Elísabet, f. 1926; Ólafur Svein-
björn, f. 1927; Finnur, f. 1929, d.
1930; Sumarliði Páll, f. 1930; Jason
Jóhann, f. 1932, d. 2009; Matthías
Sveinn, f. 1933, d. 1999.
Eiginmaður Guðmundínu var
Anton Halldór Ingibjartsson, f. á
Ísafirði 20.5. 1907, d. 15.2. 1992.
Þau giftu sig 15. desember 1934.
Foreldrar hans voru Ingibjartur
Elías Ingimundarson, f. í Haukadal
í Dýrafirði 17.6. 1880, d. 12.4. 1963,
og Bjarnfríður Jónsdóttir, f. á
Grasi, Þingeyri, 10.2. 1888, d. 18.8.
1953. Börn þeirra eru: 1) Guðný
Debóra, f. 7.8. 1934, maki Jón
Gunnar Guðmundur Guðmundsson,
f. 1923, d. 1986. Börn þeirra eru
Sesselja Bjarnfríður f. 1953, maki
Páll Eyþór Jóhannsson f. 1950 og
eiga þau 3 syni og 3 barnabörn;
Guðmundur f. 1954, maki Margrét
Birna Kristbjörnsdóttir f. 1952 og
eiga þau 3 börn, fyrir
átti Margrét 1 son;
Anton Halldór, f.
1960; Jóhann Ólafur
f. 1965, maki Hildur
Ástþórsdóttir f. 1959
og eiga þau 2 börn,
fyrir átti Hildur 2
dætur; Guðjón f.
1966, maki Pia Sö-
derlund f. 1966 og
eiga þau 3 börn. 2)
Gerður, f. 15.3. 1936.
3) Ingvar Anton, f.
5.8. 1940, maki Erla
Gerður Pálsdóttir, f.
1941. Börn þeirra eru Ragnheiður
Ása f. 1960, maki Ketill Elíasson f.
1956. Ása á 4 börn og 3 barnabörn,
Ketill á 2 börn og 6 barnabörn;
Ingibjartur Anton f. 1961, maki
Auður Bjarnadóttir f. 1963 og eiga
þau 3 börn; Hrönn f. 1963; Sædís f.
1965, maki Þorbergur Guðmundur
Jóhannesson f. 1946 og eiga þau 3
börn; Páll f. 1969 á 1 dóttur; Gerð-
ur Sif f. 1976, maki Eyvindur Gauti
Vilmundarson f. 1977 og eiga þau 2
dætur. 4) Andvana fæddur drengur
1942. 5) Ingibjartur f. 4.6. 1945, d.
25.10. 2005. 6) Vilhjálmur Gísli f.
1.10. 1949, maki Guðrún Elísabet
Pálsdóttir f. 1950. Börn þeirra eru
Pálfríður Ása f. 1973, maki Jón
Svanberg Hjartarson f. 1970 og
eiga þau 1 son, fyrir átti Jón 1 son;
Rafn f. 1976, maki Ólöf Hafdís Ein-
arsdóttir f. 1975 og eiga þau 1 son,
fyrir átti Ólöf 1 son.
Guðmundína vann í nokkur ár í
efnalaug og í þvottahúsi Sjúkra-
hússins, en lengst af vann hún við
fiskverkun og eftirlit hjá Hrað-
frystihúsinu Norðurtanga.
Guðmundína verður jarðsungin
frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Ég veit þú hefðir sagt mér að herða
huga minn.
Ég hugga mig sem best, til að gera vilja
þinn.
Ég geymi hvert þitt bros í minning minni.
Ég man og skal ei gleyma samvist
þinni.
(Hannes Hafstein.)
Að morgni föstudagsins 23. jan-
úar fengum við þær fregnir að
Munda amma væri látin og langar
okkur að minnast hennar með
nokkrum orðum.
Okkar fyrstu minningar um
ömmu eru úr Fjarðarstræti 9 en
þar bjuggu amma og afi lengst af.
Stóra eldhúsið þar sem alltaf var
nóg pláss og alltaf nægur matur.
Amma og afi höfðu gaman af að fá
gesti og alltaf var vel tekið á móti
fólki og boðið upp á glæsilegar
veitingar. Amma var kona síns
tíma sem sást best á því að þegar
veislur voru haldnar var amma í
eldhúsinu en afi hélt uppi fjörinu í
stofunni.
Ekki hefur nú lífið alltaf verið
dans á rósum hjá ömmu, afi oft
langtímum saman úti á sjó, svo
uppeldið á börnunum var að mestu
leyti á hennar herðum. Það hefur
sjálfsagt átt sinn þátt í að amma
virkaði stundum dálítið ströng, en
við komumst fljótt að því, að það
var bara á yfirborðinu, undir var
stórt hjarta. Gott dæmi um það er
þegar mamma okkar gekk með
yngstu systurina. Hún fékk of há-
an blóðþrýsting og þurfti því að
vera undir lækniseftirliti. Amma
sagði að þessar mæðraskoðanir
væru bara til að gera konur móð-
ursjúkar, en kom samt við heima á
hverjum degi til að vita hvernig
mamma hefði það.
Amma var hrein og bein og
sagði sína meiningu. Hún var
myndarleg kona og mikil reisn yfir
henni, alltaf snyrtileg og var um-
hugað um að líta vel út. Hún var
mikil hannyrðakona og var aldrei
aðgerðarlaus, ef hún settist niður
var hún alltaf með eitthvað milli
handanna, ef hún var ekki að
prjóna eða sauma var hún að hnýta
á. Það eru til eftir hana hálsmen og
kertahringir sem hún var að gera
komin hátt á níræðisaldurinn og
ófá eru þau orðin sokkapörin sem
við höfum fengið gegnum árin.
Ekki er nú hægt að minnast
ömmu nema að rifja upp sönginn
hennar. Hún var syngjandi við öll
tækifæri og engan vitum við um
sem kunni meira af vísum, þulum
og lögum en hún. Flest unnum við
systkinin með henni í Norðurtang-
anum og ófáar voru pásurnar þar
sem amma byrjaði að fara með vís-
ur.
Seinna fluttu amma og afi í
Smiðjugötuna, þar sem amma átti
ófáar stundirnar úti í garði, innan
um blómin sín. Seinustu árin sín
saman voru þau komin upp á Hlíf.
Þegar amma fann svo fyrir
nokkrum árum að minnið væri að
byrja að svíkja fór hún upp á þjón-
ustudeild og að lokum inn á öldr-
unardeild, en á báðum þessum
stöðum naut hún umönnunar frá-
bærs starfsfólks og viljum við færa
því bestu þakkir fyrir. Þó að minn-
ið væri smám saman að fara
gleymdi hún aldrei vísunum og oft
var það að hún byrjaði að syngja
eitthvað, svo kom, kanntu þetta
ekki?
Sorgin léttist, sárið grær,
sólin gegnum skýin hlær,
hreinni útsýn hugur fær,
himinninn nær í dag en gær.
(Örn Arnarson.)
Elsku amma, við söknum þín.
Söknum söngsins, hlátursins, hlý-
legu brosanna og allra góðu stund-
anna.
Börn Ingvars og Erlu.
Guðmundína Kristín
Vilhjálmsdóttir
✝
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
MAGNÚS ST. MAGNÚSSON
pípulagningameistari,
Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði
föstudaginn 30. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðrún E. Guðmundsdóttir,
Margrét Magnúsdóttir, Sigríður Harðardóttir,
Sigríður Magnúsdóttir, Einar Gylfason,
Guðmundur Magnússon, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÓSKAR G. GUÐJÓNSSON,
Háaleitisbraut 14,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 28. janúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
5. febrúar kl. 13.00.
Guðbjörg Vallý Magnúsdóttir,
Ragnar Óskarsson, Jóhanna Njálsdóttir,
Guðjón Grétar Óskarsson, Inga Grímsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ELÍSABET GUÐJÓNSDÓTTIR,
Sóltúni 2,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 2. febrúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á reikning
Sambýlisins Skagaseli 9, heimili Birgis Braga,
1135-26-000708, kt. 701002-2610.
Kristján S. Baldursson,
Elsa Baldursdóttir, Kristján Guðmundsson,
Guðjón Baldursson, Bryndís Guðjónsdóttir,
Birgir Bragi Baldursson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug,
vináttu og samúð við andlát og útför ástkærs eigin-
manns, föður, tengdaföður, sonar, bróður og afa,
BIRGIS AXELSSONAR,
Hraunbæ 194,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Steinunn Bjartmarsdóttir,
Einar Gunnar Birgisson,
Bjartmar Birgisson, Ásta Björk Sveinsdóttir,
Axel Valur Birgisson, Berglind Kristinsdóttir,
Áslaug Guðlaugsdóttir,
Kristín Axelsdóttir, Árni Ísleifsson,
Edda Axelsdóttir, Ómar Friðriksson,
Sveinn Andri, Álfheiður Edda,
Birgir Þór, Anna Vala og Bergþór.
✝
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR,
Raftahlíð 4,
Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki laugar-
daginn 17. janúar.
Útförin hefur farið fram.
Innilegar þakkir fyrir samúð, vináttu og hlýhug í
okkar garð.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 1, Heilbrigðisstofnunarinnar
á Sauðárkróki.
Einar Sigtryggsson,
Svanhildur Einarsdóttir, Gísli Kristjánsson,
Gunnar Einarsson, Elisabeth Stella Grétarsdóttir,
Ásgeir Einarsson, Sigríður Elín Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.