Morgunblaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2009
Nýi tónleikastaðurinn á horni
Tryggvagötu og Veltusunds hefur
hlotið nafnið Reykjavík Rokk bar.
Staðurinn verður á efri hæð hússins
er hýsti áður skemmtistaðina
Tunglið og Gauk á Stöng og opnar
föstudaginn 6. mars.
Nú standa yfir framkvæmdir á
húsnæðinu er mun aðeins hýsa tón-
leika á fimmtudags- til sunnudags-
kvöldum til að byrja með. Búið er
að fullbóka fyrsta mánuðinn og
munu Langi Seli & Nýju Skugg-
arnir ríða á vaðið. Athygli vekur að
þrátt fyrir frjálslyndi staðareig-
anda er einn íslenskur tónlist-
armaður á bannlista. Samkvæmt
heimildum blaðsins er það á stefnu-
skrá staðarins að tónlistarmaður-
inn BMV fái aldrei að troða þar
upp. Dyravörðum hefur meira að
segja verið sagt að hleypa honum
ekki inn sem gesti. Ástæðan mun
vera andstyggð eigandans á tónlist
BMV. Ja hérna, hér.
BMV fær ekki að koma
á Reykjavík Rokk bar
Fólk
Máli Eldars lauk þó ekki fyrr en á fimmtudag þegar
stefna hans um að fá ógreidd laun átti að fara fyrir Hér-
aðsdóm.
„Þetta fór í þann farveg að ég lét stéttarfélagið rukka
þetta fyrir mig,“ segir Eldar. „Ég reyndi að leysa úr þessu
áður en þetta færi í eitthvert lögmál sem felur í sér aukinn
kostnað og leiðindi en það var enginn vilji þeim megin til
þess að leysa þetta mál. Á síðustu metrunum áttuðu þeir sig
greinilega á því að það væri kominn tími til þess að standa
við sinn hlut og því náðist dómsátt. Ég vona bara að þeir
standi við sitt.“
Eldar, sem starfar nú fyrir Gogoyoko og tónlistarsjóðinn
Kraum, er feginn að málið er búið enda þungt að hafa svona
mál á baki sér. „Mér finnst alveg óþarfi að láta hluti ganga
svona langt en ég hef bara ekkert efni á því að gefa uppá
bátinn vangreidd laun.“
Anna Hildur Hildibrandsdóttir
og samstarfsfólk hennar í ÚTÓN
hafa á undanförnum mánuðum
haldið kynningarfundi fyrir ís-
lenska tónlistarmenn þar sem inn-
viðir „bransans“ svokallaðs eru út-
skýrðir. Anna Hildur og ÚTÓN
eiga lof skilið fyrir þetta framtak
en alltof lengi hafa tónlistarmenn
flotið sofandi að feigðarósi tónlist-
ariðnaðarins og mýmörg dæmi eru
um að tónlistarmenn hafi farið illa
út úr sínum viðskiptum einfaldlega
vegna þess að þeir vissu ekki betur.
Á Íslandi hefur umboðsmannastétt-
in aldrei verið fjölmenn og þess
vegna hefur sú viðskiptareynsla
sem til verður hverju sinni, nýst
óskaplega fáum og í stuttan tíma.
Það er ekki síst af þessum sökum
sem kynningarfundir ÚTÓNS eru
mikilvægir. Einnig mætti velta því
fyrir sér hvort ekki væri ráð að
ÚTÓN stuðlaði að útgáfu rits eða
vefsíðu þar sem þessar upplýsingar
væru aðgengilegar öllum.
Framtak ÚTÓNS
gríðarlega mikilvægt
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
„ÉG verð Geri Halliwell,“ segir Skjöldur Eyfjörð
er býr sig nú ásamt fjórum öðrum þekktum
dragdrottningum bæjarins undir að fara með
hlutverk Kryddstúlknanna á sérstakri sýningu á
Q-bar í kvöld. Auk Skjaldar manna hópinn þeir
Georg Erlingsson í hlutverki Mel B (Scary
Spice), Díana Ómel Svavars sem Victoria Beck-
ham (Posh Spice), Atli Freyr Arnarson sem
Emma Bunton (Baby Spice) og Óli Hjörtur Ólafs-
son sem Mel C (Sporty Spice). „Þessi sami hópur
gerði þetta fyrir tíu árum. Þannig að þetta er tíu
ára „reunion“ hinna íslensku kryddstúlkna.“
Síðast fór landslið íslenskra dragdrottninga í
hlutverk Spice Girls fyrir sjónvarpsþáttinn Euro-
trash sem var þá í umsjón Jean-Paul Gaultier.
„Hann var að gera eitthvert atriði hér sem við
tókum þátt í. Það var t.d. að éta hrútspunga og
annað. Við komum fram í þessum þætti en á
sama tíma komum við reglulega fram á Ingólfs-
kaffi.“
Eins og Buffalo-skór
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins gerði
hópurinn með sér samkomulag fyrir nokkrum ár-
um um að ef hinar raunverulegu Spice Girls
myndu einhvern tímann snúa aftur, yrðu hinar ís-
lensku að fylgja í kjölfarið. Þónokkuð er liðið síð-
an Spice Girls fóru saman í tónleikaferðalag um
heiminn en eitthvað virðist hafa aftrað því að hin-
ar íslensku stæðu við gefið loforð. „Þetta er al-
gjörlega dautt en þetta er bara svo ógeðslega
fyndið og hallærislegur tími. Þær eru eiginlega
eins og Buffalo-skór, þóttu flottar á sínum tíma
en myndu aldrei ganga í dag. Þess vegna
ákváðum við núna að fara með brandarann
lengra.“
Á sýningunni taka íslensku Kryddstúlkurnar
þrjú lög úr lagasafni Spice Girls en auk þess
verða sýnd myndbönd er hópurinn hefur gert í
gegnum tíðina. Sýningin er því um klukkutíma
löng í heildina.
Æfingar hafa gengið mjög vel. „Það var furðu-
lega auðvelt að rifja þetta allt upp. Þetta hefur
verið límt inn í innra minni okkar. Við mundum
öll danssporin og allt. Þetta verður alvöru Spice
Girls sjó þó svo að við séum ekki beint að reyna
að vera þær nákvæmlega. Við setjum kannski ör-
lítið meiri húmor í þetta.“
Kryddpíurnar snúa aftur
Landslið íslenskra dragdrottninga kemur fram í gervi Spice Girls í kvöld
Efna 10 ára gamalt loforð um að koma saman aftur í kjölfar Kryddpíanna
Kryddpíurnar Landslið íslenskra dragdrottninga fór fyrst í gervi Spice Girls fyrir Eurotrash-þátt
Jean-Paul Gautier og snýr nú aftur í kvöld á Q-bar. Sýning þeirra verður um klukkutíma löng.
„SAGT hefur það verið um Suð-
urnesjamenn …,“ segir í laginu og
sagt hefur það verið um Umboðs-
mann Íslands, Einar Bárðarson, að
hann sitji ekki lengi með hendur í
skauti. Einar, sem hefur ávallt alið
manninn suður með sjó, ýmist í Ár-
nes- eða Gullbringusýslu, ætlar að
auka á flóru tónleikahalds Reykja-
nesbæjarbúa með tónleikaröð sem
fram fer í Duus-húsum. Þar munu
margir af helstu tónlistarmönnum
þjóðarinnar koma fram og leika sín
kunnustu lög. Þá munu þeir auk
þess dvelja við milli lagana, segja
sögur af tilurð þeirra auk þess sem
þeir reifa hnyttin augnablik af ferli
sínum. Formið er ekki ósvipað
þáttunum Storytellers og Un-
plugged sem voru á VH1 og MTV.
„Hugmyndin er að hafa þetta
lágstemmda og þægilega stund,“
segir Einar. „Það er við hæfi að
halda svona tónleika í þessum
söguríka bæ hvað dægurtónlist
viðkemur, en Keflavík er mikill
tónlistarbær eins og fólk þekkir og
heimabær þungavigtarmanna í ís-
lenskri tónlistarsögu, manna eins
og Rúnars Júlíussonar, Gunnars
Þórðarsonar, Magnúsar Kjart-
anssonar, Magnúsar Sigmunds-
sonar og Jóhanns Helgasonar.“
Tónleikaröðin kallast Sögustund
suður með sjó og verður sett í
gang í mars. Þeir listamenn sem
þegar hafa verið staðfestir eru
synir Rúnars Júlíussonar, þeir
Baldur og Júlíus, Magnús Kjart-
ansson, KK og Valgeir Guðjónsson
og Egill Ólafsson sem hafa verið að
spila saman tveir að undanförnu
við góðan orðstír. Aðrir þáttak-
endur verða tilkynntir þegar nær
dregur.
Tónlistarmenn segja
sögur suður með sjó
Morgunblaðið/Kristinn
Sagnamenn Egill og Valgeir eru sögumenn af Guðs náð.
Einar Bárðarson hleypir nýrri tónleikaröð af stokkunum
KRYDDSTÚLKURNAR fimm eru þekktar um
allan heim en það sem færri vita er að Mel C og
Emma Bunton voru ekki í fyrstu birtingarmynd
sveitarinnar. Þær tóku við af öðrum stúlkum
nokkru eftir að feðgarnir Lee Bewick og Jonny
Leather púsluðu sveitinni saman.
Spice Girls hét fyrst Touch og liðsmenn voru
Victoria Adams, Geri Halliwell, Melanie Brown,
Michelle Stephenson og Lianne Morgan. Mel
Chisholm tók við af Lianne mánuði eftir stofnun
sveitarinnar. Í uppsagnarbréfinu er Lee Bewick
skrifaði til Lianne kom fram að hún væri of göm-
ul til þess að vera kryddpía, hún var þá 23 ára.
Eftir prufuupptökur var ákveðið að Michelle
Stephenson hefði ekki sama metnað og hinar
stúlkurnar og var hún því rekin. Henni var þá
skipt út fyrir hina 18 ára gömlu Emmu Bunton
er var í námi hjá sama raddþjálfara og stúlk-
urnar. Hvorki Michelle eða Lianne hefur vegnað
vel í tónlistinni síðan, svo vitað sé.
Kryddstúlkurnar sjö?
Eldar Ástþórsson Eldar ekki lengur grátt
silfur við fyrrverandi vinnuveitanda sinn.
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
NOKKRUM mánuðum fyrir síðustu Iceland Airwaves-
hátíð hætti Eldar Ástþórsson sem framkvæmdastjóri og
sagði opinberlega að hann óttaðist um framtíð hátíð-
arinnar vegna fjárhagsörðugleika Hr. Örlygs.
Út frá þeim ummælum Eldars hófst mikið fjöl-
miðlamál og virtist framtíð Iceland Airwaves í
óvissu þar til Þorsteinn Stephensen, eigandi Hr.
Örlygs, greiddi úr flækjunni við styrktarað-
ila sína (Reykjavíkurborg og Icelandair) og
bjargaði hátíðinni frá glötun.
Hr. Örlygur sættist á kröfur Eldars
48 MenningFÓLK