Morgunblaðið - 05.02.2009, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009
Eftir Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður | Í Grundarfirði
eins og á svo mörgum stöðum á
Íslandi þar sem há fjöll skyggja á
sólina þann tíma sem hún er lægst
á lofti, er það jafnan gleðiefni
þegar sólin sést á ný eftir rúm-
lega tveggja mánaða hlé. Til að
fagna þessum viðburði er gjarna
til siðs að baka pönnukökur. Þeg-
ar sólin fór að láta sjá sig hafa
væntanlega verið pönnukökur
víða á borðum Grundfirðinga. Sól-
in lætur fyrst á sér kræla í Arn-
ardalsskarði sunnan við Grund-
arfjörð og varpaði geislum yfir
bæinn.
Grundfirðingar í sólskinsskapi
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
FÉLAG háskólakvenna og Kven-
stúdentafélag Íslands hafa ákveðið
að styrkja erlendar konur á Íslandi
til háskólanáms.
Verkefnið er unnið í samvinnu við
Alþjóðahús sem mun aðstoða við að
velja konurnar, en þær verða
styrktar um ákvæðna upphæð til
eins árs í senn. Verkefnið „Fé-
lagsvinur – Mentor er málið“ útveg-
ar þeim svo mentor eða félagsvin úr röðum Félags háskólakvenna eða
Kvenstúdentafélagsins. Íslenskar og erlendar konur verða paraðar sam-
an eftir áhuga og þörfum. Tilgangurinn er að veita félagsskap, tækifæri
til að tala íslensku, gefa ráð varðandi íslenskt samfélag og aðstoða við
nám eða annað.
Styrkja erlendar konur til háskólanáms
Morgunblaðið/Ómar
SAMTÖK verslunar og þjónustu
mótmæla gjaldskrárhækkun
Faxaflóahafna. Ekki verði séð á
ársreikningi Faxaflóahafna síð-
ustu ár að hækkunin sé nauðsyn-
leg.
„Faxaflóahafnir skiluðu hagn-
aði upp á 725 milljónir árið 2007
og gert er ráð fyrir 200 milljóna
hagnaði 2008. Óráðstafað eigið fé
fyrirtækisins var rúmlega 10
milljarðar 2007. Rekstraráætlun
fyrir árið 2009 gerir ráð fyrir
sömu tekjum og á árinu 2008,
áætlun sem gerði ráð fyrir hag-
ræðingu, lækkun tekna og hækk-
un kostnaðar á móti sýndi mun
meiri vilja og skilning á að-
stæðum nú.“
Mótmæla gjald-
skrárhækkunum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gjald Samtök verslunar gagnrýna
gjaldskrárhækkun Faxaflóahafna.
ÍSLENSK getspá leitar að heppn-
um manni sem keypti sér 10 raða
sjálfvalsmiða í Lottó með Jóker í
Fjarðarkaupum sl. föstudag. Kaup-
andinn sem vann tæpar 16 skatt-
frjálsar milljónir er beðinn að hafa
samband til að vitja vinningsins.
Vann 16 milljónir
SAMTÖK iðnaðarins segja í álykt-
un að löngu tímabært sé að horfa
fram á veginn og lækka vexti.
„Háir vextir eiga alls ekki við í
efnahagskreppu eins og þeirri sem
Íslendingar ganga í gegnum um
þessar mundir. Þeir auka enn á
rekstrarvanda fyrirtækja og
stuðla að auknu atvinnuleysi.
Veruleg vaxtalækkun nú myndi
ekki valda því að raunvextir yrðu
neikvæðir á næstu mánuðum og
því ekki eftir neinu að bíða. Verð-
bólgan síðustu 12 mánuði var
18,6% og allt bendir til þess að
hún hafi náð hámarki og fari
lækkandi á næstu mánuðum. Verð-
bólga fær hvorki fóður í formi
launahækkana né mikillar eft-
irspurnar. Stýrivextir Seðlabank-
ans standa nú í 18% og eru því
svipaðir og verðlagshækkun síð-
ustu 12 mánaða.“
Vaxtalækkun verði
byggð á framsýniSTJÓRN Kvenréttindafélags Ís-
lands fagnar því að í nýrri rík-
isstjórn skuli hlutfall kynjanna vera
jafnt auk þess sem kona gegnir nú
stöðu forsætisráðherra í fyrsta
sinn. „Með þessu hefur mikilvægt
skref til jafnréttis kynjanna verið
stigið og það skapar um leið gott
fordæmi fyrir komandi rík-
isstjórnir.“
Stjórn Kvennahreyfingar Sam-
fylkingarinnar lýsir einnig ánægju
sinni með að kona sé orðin forsætis-
ráðherra í fyrsta skipti.
Fagna Jóhönnu
HEIMDALLUR, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, lýsir yfir von-
brigðum með nýja minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna.
Félagið hefur miklar áhyggjur af því að ný stjórn freistist til þess að
auka útgjöld og hækka skatta. Félagið gerir þær kröfur að ekki verði vikið
frá aðgerðaáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, að fjárútlátum verði stillt í
hóf, að skattar verði ekki hækkaðir umfram það sem fjárlög gera ráð fyrir,
ekki verði settur hátekjuskattur og að fjármagnstekjuskattur verði ekki
hækkaður, að ekki verði vikið frá framfaraskrefum sem stigin hafa verið í
heilbrigðismálum og að varlega verði farið í breytingar á stjórnarskrá.
Heimdallur varar við skattahækkunum
STUTT
RÁÐSTEFNA OG VERÐLAUNAAFHENDING
í Salnum, Kópavogi föstudaginn 13. febrúar 2009, kl. 13:30-16:30
ÍSLENSKI ÞEKKINGARDAGURINN
NÝSKÖPUN
TÆKIFÆRI Á NÝJUM TÍMUM
RÁÐSTEFNAN ER ÖLLUM OPIN!
DAGSKRÁ
Skráning fer fram á vef FVH, www.fvh.is e›a í síma 551 1317.
Ver› 7.950 fyrir félaga FVH og 14.900 fyrir a›ra.
Innifali›: Rá›stefnugögn og léttar veitingar.
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga efnir
til ráðstefnunnar og verðlaunaafhendingarinnar
Íslenska þekkingardagsins föstudaginn 13. febrúar
2009 í Salnum, Kópavogi. Þemað að þessu sinni
er „Tækifæri á nýjum tímum – Nýsköpun!“
Þrjú fyrirtæki eru tilnefnd til Íslensku Þekkingar-
verðlaunanna 2009:
ÖSSUR, MAREL OG CCP
Ö
ss
ur
Sk
ar
ph
éð
in
ss
o
n
K
ri
st
ín
In
gó
lf
sd
ó
tt
ir
Þo
rs
te
in
n
Si
gf
ú
ss
o
n
G
u
ð
jó
n
M
ár
G
u
ð
jó
n
ss
o
n
Be
rg
lin
d
Á
sg
ei
rs
d
ó
tt
ir
H
ö
rð
ur
A
rn
ar
so
n
A
ð
al
st
ei
nn
Le
if
ss
o
n
Styrktara›ilar Íslenska Þekkingardagsins:
13:00 Afhending ráðstefnugagna
13:30 Setning ráðstefnu
Auður Björk Guðmundsdóttir, formaður FVH
13:40 Ávarp utanríkis- og iðnaðarráðherra
Össur Skarphéðinsson
13:50 FRÆ TIL FRAMTÍÐAR – MENNTUN, VÍSINDI, NÝSKÖPUN
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands
14:10 SJÁLFBÆRNI, ORKA OG FRAMTÍÐARSÝN
Þorsteinn Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
14:30 THINK-INNOVATE-EXECUTE
Guðjón Már Guðjónsson, framkvæmdastjóri Industria
14:50 Kaffihlé
15:20 TÆKIFÆRI TIL SAMSTARFS VIÐ AÐRAR ÞJÓÐIR Á SVIÐI
HEILBRIGÐIS- OG LYFJAMÁLA
Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins
15:40 RETURN ON INNOVATION
Hörður Arnarson, forstjóri Marel Food Systems
16:00 Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhendir þekkingar-
verðlaun FVH og kynnir val á viðskiptafræðingi/hagfræðingi
ársins 2008
16:30 Ráðstefnuslit
Léttar veitingar í lok ráðstefnu
ásamt léttri jazzblússveiflu
Friends forever.
Rá›stefna FVH gefur 2 einingar hjá
Endurmenntunarnefnd FLE.
Rá›stefnustjóri er Aðalsteinn Leifsson,
forstöðumaður MBA í Háskólanum í Reykjavík.
SKRÁÐU ÞIG STRAX!
Mynd: Viðskiptablaðið/Birgir Ísleifur Gunnarsson