Morgunblaðið - 05.02.2009, Page 34
34 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
6 3 4
8 5 2 3 4
4 2 7 8 5
5 9 2
7 4
2 8 3
8 7 4 2 5
7 9 3 6 8
9 7 3
9 3 1
4 1 5 8
3 8 5
4 5 8 6
5 4 6 7
7 6 1 3
6 4 5
7 2 8 4
4 2 8
2 4 5 9
6 7 5
5 7 3
3 9 5 8
3 1
5 8 3 7
7 3 8
8 2 4
1 5 9 2
7 5 8 1 3 2 9 4 6
9 6 1 7 4 5 3 8 2
4 2 3 6 8 9 1 7 5
8 4 5 3 9 6 7 2 1
2 3 7 5 1 4 6 9 8
1 9 6 8 2 7 4 5 3
6 8 2 9 7 3 5 1 4
3 7 4 2 5 1 8 6 9
5 1 9 4 6 8 2 3 7
9 6 7 2 8 5 1 4 3
1 5 2 4 6 3 8 9 7
8 4 3 7 9 1 2 6 5
3 7 5 1 2 4 9 8 6
2 8 6 3 5 9 7 1 4
4 9 1 6 7 8 3 5 2
7 3 8 5 1 6 4 2 9
6 2 9 8 4 7 5 3 1
5 1 4 9 3 2 6 7 8
9 4 7 1 6 5 2 8 3
2 1 6 8 3 9 5 4 7
8 5 3 7 2 4 1 6 9
4 6 8 2 7 1 9 3 5
7 2 9 3 5 6 4 1 8
1 3 5 9 4 8 6 7 2
6 9 4 5 8 3 7 2 1
5 8 2 6 1 7 3 9 4
3 7 1 4 9 2 8 5 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að
fylla út í reitina þannig
að í hverjum 3x3-reit
birtist tölurnar 1-9. Það
verður að gerast þann-
ig að hver níu reita lína
bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9
og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Krossgáta
Lárétt | 1 glámskyggn, 8
lágfóta, 9 óveður, 10 sé,
11 hafna, 13 mál, 15
danskrar
eyju, 18 lækna, 21
hreinn, 22 lélega, 23 ævi-
skeiðið, 24 örlagagyðja.
Lóðrétt | 2 skikkju, 3
glitra, 4 hali, 5 ber, 6
málmur, 7 venda, 12
málmur, 14 reiðihljóð,
15 er til, 16 markleysa,
17 bikar, 18 angi, 19
heldur, 20 beitu.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 halli, 4 þústa, 7 sessa, 8 ómaka, 9 nær, 11 alin,
13 etin, 14 ertur, 15 holt, 17 rækt, 20 hró, 22 tútna, 23
tekin, 24 rúmum, 25 kenni.
Lóðrétt: 1 hósta, 2 losti, 3 iðan, 4 þjór, 5 spakt, 6 arann,
10 æmtir, 12 net, 13 err, 15 hatar, 16 lútum, 18 æskan,
19 tangi, 20 harm, 21 ótæk.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Nýirborgarar
Keflavík Sólrún Glóð
fæddist 31. desember kl.
24. Hún vó 4.165 g og var
53 cm löng. Foreldrar
hennar eru Jana María
Guðmundsdóttir og Jón
Þorsteins Jóhannsson.
Reykjavík Þorsteinn
Snæland fæddist 11. ágúst
kl. 5.40. Hann vó 3.125 g
og var 48 cm langur. For-
eldrar hans eru Þórdís
Steinsdóttir og Halldór
Þór Snæland.
Akranes Þórhalla Guðný
fæddist 26. ágúst kl.
6.28. Hún vó 3.730 g og
var 49 cm löng. For-
eldrar hennar eru Halla
Birgisdóttir og Daníel
Helgason.
Í dag er fimmtudagur 5. febrúar,
36. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Sjá, Drottinn mun út
fara frá bústað sínum, mun ofan stíga
og ganga eftir hæðum jarðarinnar.
(Mík. 1, 3.)
Fyrir stuttu uppgötvaði Víkverjisér til hrellingar, og reyndar þó
nokkurrar undrunar, að fyrir tuttugu
árum var hann nákvæmlega tuttugu
kílóum léttari en nú. Þannig er útlit
fyrir að Víkverji hafi að meðaltali
þyngst um eitt kíló á ári í tuttugu ár!
Vissulega komu kílóin þó ekki svo
hægt og hljótt heldur hafa þau dottið
á hann í talsverðum slumpum.
Víkverji er ekkert rosalega spæld-
ur yfir þyngdaraukningunni en þó
varð þessi uppgötvun honum til tals-
verðrar umhugsunar. Þannig er
nefnilega mál með vexti að Víkverji
leit ekkert öðruvísi á sjálfan sig fyrir
þessum tuttugu árum … og kílóum,
nefnilega sem fitubollu.
x x x
Íbreskum skoðanakönnunum, í þaðminnsta tveimur sem Víkverji
man eftir í fljótu bragði, hefur komið
fram að breskar konur hafa mestar
áhyggjur af holdafari sínu. Þær hafa
miklu minni áhyggjur af því að maki
þeirra haldi fram hjá, nú eða streitu,
krabbameini og hjartasjúkdómum.
Áhyggjuleysi Víkverja yfir þyngd-
araukningunni gæti verið vísbending
í þá átt að svipað hugarfar ríki hjá
honum og breskum konum. Hvernig
mætti það annars vera að hann líti á
sig sem fitubollu bæði með og án tutt-
ugu kílóa? Og hvernig gæti það ann-
ars átt við að Víkverji taldi sig eins
feitan fyrir tuttugu kílóum og hann er
í dag?
x x x
Sá hinn sami Víkverji gengst þó viðþví að hann hefur ekki miklar
áhyggjur af því hversu feitur hann er.
Gott form og heilbrigt líferni í hófi
eru hans uppáhaldsorð, hvort sem
vigtin fer upp eða niður.
Daglegir göngutúrar í íslensku,
hreinu lofti og nammibitar hér og þar
munu áfram verða hluti af lífi Vík-
verja og lystisemdir lífsins munu því
ekki hverfa, hvað sem öllum tuttugu
kílóum og árum líður.
Þó er því ekki að neita að ef svo
heldur fram sem horfir og eitt kíló
bætist við á ári, að Víkverja langar
ekki til að verða hundrað ára því þá
yrði hann … hundrað og tuttugu
kíló. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 g6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rc6 5. Rc3 Bg7 6. Be3 Rf6 7. Bc4 0-0 8.
Bb3 a5 9. 0-0 Rg4 10. Dxg4 Rxd4 11.
Dd1 Rxb3 12. axb3 Ha6 13. Bd4 Bxd4
14. Dxd4 Hd6 15. Rd5 b6 16. Had1 Bb7
Staðan kom upp á Skákþingi
Reykjavíkur – Skeljungsmótinu sem
lauk fyrir skömmu í húsakynnum Tafl-
félags Reykjavíkur. Þorvarður F.
Ólafsson (2.182) hafði hvítt gegn Stef-
áni Arnalds (1.953). 17. Rxe7+! Dxe7
18. Dxd6 Dxe4 19. f3 Dxc2 20. Dxb6
Bc6 21. Dxa5 Dxb2 22. Db6 Ha8 23.
Hf2 De5 24. Dd4 Dg5 25. He1 Hb8 26.
Hfe2 f6 27. Dd6 Hf8 28. He8 og svart-
ur gafst upp.
Hvítur á leik.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hin rétta röð.
Norður
♠D4
♥K1076
♦10
♣ÁG10843
Vestur Austur
♠87 ♠G1095
♥G42 ♥9853
♦9763 ♦K842
♣K952 ♣6
Suður
♠ÁK632
♥ÁD
♦ÁDG5
♣D7
Suður spilar 7G.
Hálfslemma í grandi var algengasti
samningurinn í þessu spili tvímenn-
ings bridshátíðar, en tveir sagnhafar
keyrðu alla leið í 7G. Annar fór niður,
hinn fékk þrettán slagi með tígli út
upp á kóng! Hjálplegt, en 7G standa
á borðinu með réttum tökum, þrátt
fyrir til dæmis hjarta út.
Sagnhafi svínar fyrst ♣D. Tekur
svo þrjá efstu í spaða til að kanna
leguna þar og hinn hjartaslaginn ÁÐ-
UR en hann svínar aftur í laufi.
Spaðinn brotnar ekki og laufið er 4-1,
en ♥G fellur í kónginn. Þá eru ellefu
slagir mættir og sá tólfti mun koma
með tígulsvíningu. En sá allra síðasti
skilar sér með þvingun á austur í
spaða og tígli. Sagnhafi hendir fyrst
spaða og tígli í ♥K10, spilar svo ♣Á
og dæmir austur til að fara niður á
♦Kx.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert í góðu jafnvægi andlega.
Samstarfsfélagar virða það sem þú segir
vegna þess að það er skynsamlegt.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þótt þú eigir auðvelt með að hrífa
aðra er ekki þar með sagt, að allir viðhlæj-
endur séu vinir. Nú verðurðu að gera upp
við þig hver staðan er heima fyrir og
hverju þú vilt bindast.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Komandi mánuður mun ein-
kennst af skemmtunum og annríki í fé-
lagslífinu. Stundum er það best gert með
því að taka þátt í því að láta öðrum líða
vel, en ekki í dag.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Varastu að vera stöðugt kvartandi
út af öllum sköpuðum hlutum. Frum-
kvæðið sem þú tekur gerir þig svo aðlað-
andi að þú eignast aðdáendur hvarvetna.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú þarft ekki að vera með nein láta-
læti í umgengni við aðra. Ekki gera úlf-
alda úr mýflugu vegna þess að það þjónar
engum tilgangi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er mikill áhugi í kringum þig á
starfi þínu og menn bíða spenntir eftir út-
komunni. Oftar en ekki er það þó bara
kurteisi til þess að fylla upp í eyðurnar.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er eins og allt standi á haus í dag.
Reyndu að gera það með reisn og sýna
þannig sjálfri/sjálfum þér og öðrum þá
virðingu sem þú vilt að aðrir sýni þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Hegðun þín laðar að sér fólk
með þarfir sem eru ekki skilgreindar.
Ráðstefnur, fundir og samræður einkenn-
ast af hressleika, bjartsýni og jákvæðni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Sumar aðstæður hefur þú ekki
á valdi þínu svo þú þarft að reikna með
þeim án þess að geta breytt þeim. Lofaðu
ekki upp í ermina á þér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þetta er dagurinn til þess að
láta ljós sitt skína. Vandaðu framsetningu
þína svo hún særi engan en komi til skila
þeim atriðum, sem þú leggur áherslu á.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Almenn svartsýni virðist ríkja í
kringum þig í augnablikinu. Farðu vel yfir
fyrirmæli frá yfirboðurum og foreldrum
því mikill misskilningur er á ferðinni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Samtöl við vini gegna mikilvægu
hlutverki. Reyndu að borða minna af
skyndibitamat og meira af ávöxtum og
grænmeti.
Stjörnuspá
5. febrúar 1967
Silfurhesturinn, bókmennta-
verðlaun dagblaðanna, voru
veitt í fyrsta sinn. Snorri
Hjartarson hlaut þau. Verð-
launin voru síðast veitt árið
1974.
5. febrúar 1988
Jóhann
Hjartarson
sigraði Vikt-
or Kortsnoj í
und-
ankeppni
einvígis um
rétt til að
skora á
heimsmeistarann í skák, með
4,5 vinningum gegn 3,5.
„Mesta afrek í íslenskri skák-
sögu,“ sagði Dagur. Jóhann
tefldi ári síðar við Anatoly
Karpov í átta manna úrslitum
en beið lægri hlut.
5. febrúar 1989
Vátryggingafélag Íslands hf.,
VÍS, var formlega stofnað og
var hlutur þess á trygg-
ingamarkaðnum um 36%. Að
stofnun félagsins stóðu Bruna-
bótafélag Íslands og Sam-
vinnutryggingar.
5. febrúar 1994
Sameining Keflavíkur, Njarð-
víkur og Hafna var samþykkt í
kosningum. Þetta er nú
fimmta stærsta sveitarfélag
landsins, Reykjanesbær, með
rúmlega fjórtán þúsund íbúa.
5. febrúar 1997
Mikið eignatjón varð en lítil
meiðsl á fólki í fjöldaárekstri í
hálku á Kringlumýrarbraut,
undir göngubrúnni. „Tuttugu
og þrír bílar í einni kös,“ sagði
Morgunblaðið og hafði eftir
lögreglunni að þetta væri
mesti fjöldi bíla í einu umferð-
aróhappi til þess tíma.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„ÞETTA verður afskaplega heimilislegt. Ég ætla
að bjóða mínum nánustu í kvöldmat og verður
boðið upp á hefðbundið íslenskt lambakjöt, kóte-
lettur í raspi með tilheyrandi fíneríi,“ segir Frið-
rik Rafnsson þýðandi og forseti Alliance française
á Íslandi, sem heldur upp á fimmtugsafmæli sitt í
dag. Matarvalið er engin tilviljun þar sem á heim-
ili Friðriks er hefð fyrir því að afmælisbarnið fái
að ráða hvað er á borðum. „Og þetta hefur verið
uppáhaldsmaturinn minn síðan ég var svona tíu
ára.“
Friðrik hyggst svo verja næstu dögum í sveita-
sælu á Suðurlandi í félagskap fjölskyldu sinnar – og andlegum fé-
lagsskap Milan Kundera. „Ég er að byrja að þýða nýjustu bók Kun-
dera en hún kemur út í Frakklandi á útmánuðum og vonandi í haust
hér á landi. Ég fékk fékk frá honum handritið, búinn að lesa og er
svona að byrja á verkinu,“ segir Friðrik sem þýtt hefur flest verk
Kundera. Það stendur ekki á svörum þegar hann er spurður út í bók-
ina. „Hún er frábær, eins og allt sem hann hefur skrifað.“
Önnur verkefni á döfinni tengjast Alliance française, s.s. Vetr-
arhátíð sem senn hefst í höfuðborginni. andri@mbl.is
Friðrik Rafnsson þýðandi fimmtugur
Fær kótelettur í raspi