Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 37
Velvakandi 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ...OG KOMDU MEÐ PÍTSUNA EINS FLJÓTT OG ÞÚ GETUR HVERNIG GETUR ÞÚ ÞEKKT HÚSIÐ? ÞAÐ ER AUÐVELT ÉG ÞARF FLEIRI BLYS ÆI... KÆRI PENNAVINUR, ÉG VEIT AÐ ÞAÐ ÞYKIR EKKI FÍNT AÐ SKRIFA BRÉF MEÐ BLÝANTI... ÞESS VEGNA TÓK ÉG ÞÁ ÁKVÖRÐUN AÐ SKRIFA ÞETTA BRÉF MEÐ... ÉG HELD AÐ VIÐ ÆTTUM AÐEINS AÐ SKOÐA REGLURNAR VEISTU HVAÐ ÉG ÆTLA AÐ KAUPA HANDA ÞÉR UM LEIÐ OG VIÐ SLEPPUM HÉÐAN? BJÓR? NEI... ALMENNILEGAN SVITALYKTAREYÐI ÉG VEIT AÐ ÉG SVAF Í ALLAN DAG... EN ÉG VAR SAMT EKKI AÐ ÞYKJAST VERA KÖTTUR! ÉG ER FREKAR SEIN ÞETTA ÁRIÐ. VONANDI EIGA ÞAU TIL ALLT SEM KRAKKARNIR ÞURFA FYRIR SKÓLANN HÆ! HVAR FINN ÉG SKÓLA- VÖRUR? SKÓLA- VÖRUR? ÞÚ RÉTT MISSTIR AF ÞEIM AFTUR Í SKÓLANN M.J., MÉR ÞYKIR ÞAÐ LEIÐINLEGT... EN ÞÚ VILT FARA AFTUR TIL L.A. TIL AÐ NÁ SHOCKER, ER ÞAÐ EKKI? ÞÁ ÁTT EKKI ERFITT MEÐ AÐ SJÁ Í GEGNUM MIG ÉG HEF GETAÐ SÉÐ Í GEGNUM ÞIG FRÁ ÞVÍ ÉG SÁ ÞIG FYRST OG ÉG ÆTLA AÐ HALDA ÞVÍ ÁFRAM GÓÐ HUGMYND VETRARHÁTÍÐ og Safnanótt fer fram í Reykjavík í dag og á morgun. Dag- skrá hátíðarinnar er fjölbreytt og má þar til dæmis nefna að fjölmörg söfn í Reykjavík bjóða upp á fjölbreytta dagskrá sem stendur fram undir miðnætti. Safnanæturstrætó mun ganga á milli safnanna og auðvelda fólki að heim- sækja mörg söfn á einu kvöldi. Meðfylgjandi mynd er tekin í Sjóminjasafn- inu. Allir viðburðir á hátíðinni eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Vetrarhátíð í Reykjavík Afsali sér biðlaunum ÞEGAR kreppan skall á okkur sögðu allir í fyrrverandi ríkisstjórn að við yrðum að herða sultarólina og spara. Á sama tíma þurftu margir að lækka í laun- um og minnka vinnu- framlag sitt, svo ég tali nú ekki um alla sem eru atvinnulausir. Mér finnst að það fólk sem var að láta af störfum í fráfarandi ríkisstjórn ætti að sýna þegnskap og afsala sér biðlaunum, þar sem það er nú þegar á ágætis launum. Guðmunda Helgadóttir. Þrettán þúsund hvali SAMKVÆMT fréttum má búast við því að verði tvö hundruð og fimmtíu hvalir veiddir hér við land á árinu, skapi það jafn mörg ný störf. Hvert starf jafngildir því að jafnaði einum hval. Nú eru þrettán þúsund manns atvinnulaus. Það gerir þrettán þús- und hvali. Nóg mun af hvölum í kringum landið. Er þá ekki tilvalið að nýr sjávarútvegsráðherra hækki einfaldlega kvótann í þrettán þús- und hvali og útrými þar með at- vinnuleysi í eitt skipti fyrir öll? Þorsteinn Siglaugsson. Gleraugu fundust GLERAUGU með silf- urlitaðri umgjörð fund- ust sunnudaginn 8. febrúar síðastliðinn á hringtorginu við Sól- eyjargötu. Hægt er að nálgast þau í versl- uninni Klausturvörur, Garðastræti 17, sími 551-5445. Maríanna. Bangsímon er týndur BANGSI er brönd- óttur skógarpersi sem týndist frá heimili sínu 29. janúar. Hann er með græna hálsól skreytta með steinum. Bangsi á heima á Vest- urholti 6 í Hafnarfirði, rétt hjá golf- vellinum, og hans er sárt saknað. Ef einhver hefur orðið hans var er hann vinsamlegast beðinn að hafa samband við Elínu Birnu í síma 555- 4303 eða 891-6155.  Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, kaffi og dagblaðalestur kl. 9, vinnustofa kl. 9- 16.30, bingó kl. 13.30. Árskógar 4 | Þorrablót kl. 19. Hjördís Geirsd. leikur fyrir dansi. Verð kr. 3.000. Bingó kl. 13.30, bað kl. 8.15, smíðastofa kl. 9-16.30. Bólstaðarhlíð 43 | Bingó kl. 13.30, kerta- skreyting, handavinna, kaffi/dagblöð, hárgreiðsla, böðun, fótaaðgerð. Félag eldri borgara í Kópavogi | Bingó í Gullsmára kl. 13.30, kortaverð 100 kr. Fé- lagsfundur í Gjábakka á laugardag kl. 14. Stefán Ólafsson, formaður nefndar um endurskoðun laga um almannatryggingar, ræðir um almannatryggingakerfið og væntanlegar breytingar á því og svarar fyrirspurnum. Kaffiveitingar í boði félags- ins. Félag eldri borgara, Reykjavík | Aðal- fundur félagsins verður haldinn laug- ardaginn 14. febrúar kl. 13 á Hótel Loft- leiðum, húsið opnað kl. 12.30. Munið félagsskírteinin. Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl. 9.20, málm- og silfursmíði kl. 9.30, jóga kl. 10.50 og félagsvist kl. 20.30. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, leikfimi kl. 10.30, bingó kl. 13.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 9.20, glerbræðsla og leir kl. 10, opnar vinnustofur í Jónshúsi kl. 10- 12, námskeið í bútasaumi og ullarþæfingu kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Gengið frá Hlaðhömrum kl. 11.30. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30. Bragakaffi kl. 10, gestur er Marta Guðjónsdóttir varaborgarfulltrúi, ganga um Elliðaárdalinn kl. 10.30. Jón Baldvin og Bryndís Schram eru gestir í prjónakaffi kl. 11. Spilasalur opinn frá há- degi og kl. 14.30 fer Gerðubergskórinn í vinabæjarheimsókn á Selfoss. Furugerði 1, félagsstarf | Stiklur, af- skekkt byggð í alfaraleið, kl. 14. Hraunbær 105 | Baðþjónusta, handa- vinna kl. 9, bókabíllinn kl. 14.45. Hraunsel | Rabb kl. 9, leikfimi í Bjark- arhúsi kl. 11.30, tréskurður á Hjallabraut og í gamla Lækjarskóla kl. 13, brids og boccia kl. 13, billjard- og innipúttstofa kl. 9-16. Skrifstofan er opin kl. 10-12. Sjá febh.is. Hvassaleiti 56-58 | Lífsorkuleikfimi kl. 9 og 10, opin vinnustofa kl. 9-12, postulíns- málning. Námskeið í myndlist kl. 12.15. Böðun f. hádegi, hársnyrting. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða- klúbbur kl. 10, leikfimi kl. 11, opið hús,vist/brids/skrafl. Hárgreiðslust. s. 552-2488 og fótaaðgerðast. s. 552-7522. Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15-14.30, spænska kl. 9-12, sungið v/flygilinn kl. 13.30, dansað í aðalsal kl. 14.30-16. Hár- greiðsla og fótaaðgerðir kl. 9-16. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja og leir- mótun kl. 9, handavinnustofa opin, morg- unstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10. Bingó kl. 13.30, félagsmiðstöðin er öllum opin. Uppl. í síma 411-9450.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.