Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 19
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Börn þurfa kennslu og leið-beiningu um kynferðislegahegðun, rétt eins og aðrahegðun. Þau þurfa að vita hvernig snerting er í lagi og hvernig snerting er ekki í lagi, skaðleg eða ólögleg. Við þurfum að taka þessa fræðslu í samráði við foreldrana inn í grunnskólana og líka í leikskólana. Við fagfólkið þurfum að leiðbeina for- eldrum og starfsfólki skól- anna um hvernig hægt er að upplýsa börn um hvern- ig þau eigi að varast kyn- ferðisglæpamenn. Það á að vera sjálfsagður liður í upp- eldi barna að kenna þeim að lesa í óeðlilega hegðun full- orðinna gagnvart þeim, og efla þannig varnarkerfi barnanna,“ segir Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur sem hefur boðið upp á fræðslu fyrir kennara og foreldra um þessi mál. Kolbrún hefur starfað í 17 ár sem sál- fræðingur, m.a. í barnavernd- armálum og í skólum og hún á sæti í Barnaverndarnefnd Reykjavíkur. Ekki endilega ljóti karlinn Reynsla hennar hefur kennt henni að börn sem eru óupplýst um hvað má gera við þau og hvað ekki, eru í mestri áhættu. „Þau eru varnarlaus- ust og auðveld fórnarlömb. Kynferð- isglæpamenn eru því miður ekki endilega „ljótu ókunnu karlarnir“ úti á götu. Þeir geta leynst hvar sem er, inni á heimilum barnanna, heimilum vina eða frændfólks, á opinberum stöðum eða í hverfinu þar sem þau eiga heima. Þeir byrja á því að mynda traust hjá barninu áður en þeir láta til skarar skríða. Einmitt þess vegna eru þeir svo hættulegir.“ Því fyrr, því betra Kolbrún segir það vera á ábyrgð aðstandenda að kenna börnum að þekkja hættumerkin og upplýsa þau um hvar mörkin liggja þegar kemur að snertisamskiptum. Hún segir að vissulega þurfi að miða umræðu um þessi mál við aldur og þroska barns- ins. „En það er mjög áríðandi að byrja snemma að tala um þessa hluti við börn, strax við fjögurra til fimm ára aldur. Gott er að byrja á því að kenna þeim ákveðin hugtök, svo hægt sé að ganga út frá því að þau skilji hvað sé verið að tala um og að allir noti sömu hugtökin um sömu hlutina, bæði foreldrar og kennarar. Orð sem notuð eru um kynfæri, þurfa að vera þau sömu. Einkastaðir er til dæmis ágætt orð.“ Alltaf að hlusta og trúa Hún segir að sumir foreldrar eigi erfitt með að tala um þessa hluti við börn sín og einmitt þess vegna sé áríðandi að fræðslan geti líka verið á herðum skólayfirvalda. „Þetta á ekki að vera hallærisleg eða kjánaleg um- ræða, hún á að vera afslöppuð og eðli- leg. Skólinn þarf líka að hafa samráð við foreldra og fá samþykki þeirra, því ef þetta er ekki rætt líka heima- fyrir, þá getur barnið orðið óöruggt eða hrætt.“ Hún segir að kenna þurfi börnum hvernig þau eigi að meta að- stæður og koma sér út úr þeim ef þeim finnst eitthvað óþægilegt eða þau eru beðin um að gera eitthvað sem þau vilja ekki taka þátt í. „Við þurfum að kenna þeim að setja mörk. Það er líka mjög áríðandi að hvetja þau til að segja frá, kenna þeim að „leyndarmál“ sem láta manni líða illa, eru vond leyndarmál. Sem betur fer láta sum börn vita og það er mjög áríðandi að hlusta alltaf á börn sem segja frá slík- um hlutum og trúa þeim.“ Káfað og klipið ofan í vatninu Kolbrún hefur verið með fjölmörg námskeið fyrir starfsfólk sundstaða um hvernig beri að taka á málum ef grunsemdir vakna, því íslensk börn fara mikið í sund. „Þar er auðvelt að komast í nána snertingu við börn og káfa eða klípa „óvart“ undir yfirborði vatnsins. Og það er auðvelt að fela sig á bak við nafnleysi og nekt.“ En erf- iðustu málin gerast inni á heimilum barnanna. „Þá er þetta svo tilfinn- ingalega flókið hjá barninu af því ger- andinn er einhver sem því þykir vænt um og það treystir. Og þá segja þau líka síður frá. Einmitt þess vegna er áríðandi að leikskólakennarar, grunnskólakennarar eða skyldmenni barna séu vakandi fyrir merkjum eða hegðun í fari þeirra sem benda til kynferðisofbeldis.“ Eyðilegging til lífstíðar Eitt aðaleinkennið um kynferð- islegt ofbeldi, er kynferðisleg hegðun barns. Vansæld og lágt sjálfstraust eru líka algeng einkenni. „Börnum með lágt sjálfsmat finnst upphefð í því að einhver fullorðinn vilji vera vinur þeirra. Þess vegna þarf að kenna þeim að suma ber að varast, en ekki þannig að þau verði hrædd við alla,“ segir Kolbrún og leggur áherslu á að aldrei skuli taka áhættu með því að gera ekki neitt, ef minnsti grunur er um eitthvað óeðlilegt vaknar. „Til- kynningaskylda til barnaverndaryf- irvalda er mjög skýr, hvort sem það er grunur eða áhyggjur. Rannsókn leiðir þá í ljós ef allt er með felldu. Og það er hægt að fara fram á nafnleynd, enginn þarf að vita hvaðan tilkynn- ingin kemur. Við höfum borgaralega skyldu til að tilkynna og fólk á alltaf að láta hag barnsins ganga fyrir. Því kynferðisofbeldi gagnvart barni er eyðilegging til lífstíðar.“ Hvernig á að varast kynferðisafbrotamenn? ÞEGAR VELFERÐ BARNS ER Í HÚFI: Tilkynningar til barnavernd- arnefnda um allt land er hægt að hringja inn í síma: 112. www.kolbrun.ws Til að efla varnarkerfi barna gagnvart kynferð- isglæpamönnum er nauðsynlegt að kenna börnum snemma að þekkja hættumerkin og upplýsa þau um hvar mörkin liggja þegar kem- ur að snertisamskiptum. Erfiðustu málin gerast inni á heim- ilum barnanna. Reynsla Kolbrún hefur langa reynslu sem sálfræðingur og hefur unnið mikið með börnum. Hún segir áríðandi að hlusta á börn og trúa þeim. Morgunblaðið/Heiddi MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009  Börn þurfa að vita að enginn má snerta þeirra einkastaði.  Að allir einkastaða-leikir eru bannaðir.  Börn eiga líkama sinn og geta sagt NEI, ég vil ekki gera þetta.  Ef einhver vill gera eitthvað við þau sem þau vilja ekki og vita að er vont og hættulegt, þá eiga þau að fara burt og segja frá.  Fjórðungur þolenda var sex ára eða yngri þegar misnotkun hófst og þriðjungur 7-10 ára. Meirihlutinn er því börn tíu ára og yngri, sem gera sér ekki grein fyrir því að þetta sé bann- að og eitthvað sem ekki má gera við þau. (2007)  17% íslenskra barna eða um fimmta hver stúlka og tíundi hver drengur, verða fyrir kyn- ferðislegri misnotkun fyrir 18 ára aldur. (2007)  87% barna sem greindu frá kynferðisofbeldi, þekktu ofbeld- ismanninn eða voru tengdir honum. (2006) Börn sem eru í áhættuhóp að verða fyrir kynferðislegu of- beldi:  Þau sem hafa ekki fengið næga fræðslu um hvaða og hvernig aðstæður kunna að vera vafasamar og hættulegar.  Eru félagslega einangruð.  Hafa verið lögð í einelti.  Hafa lágt sjálfsmat.  Skortir hlýju, umhyggju og athygli.  Eiga við einhverskonar fötl- un að stríða. Staðreyndir Hvað má ekki?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.