Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 27
Elsku amma. Nú hefur þú fengið langþráða hvíld. Þegar við bræðurn- ir settumst niður til að skrifa um þig datt okkur aðallega matur í hug því að þitt helsta yndi var að elda mat og gefa að borða. Við bræðurnir eig- um mjög margar góðar minningar af Reykjavíkurveginum þar sem þið afi tókuð alltaf vel á móti okkur. Þar sem við bjuggum nálægt ykkur gát- um við alltaf labbað til ykkar og fengið óskipta athygli því þú hafðir allan heimsins tíma fyrir okkur. Oft voru vinir okkar með í þessum heimsóknum því að allir voru vel- komnir á Reykjavíkurveginn og fóru allir þaðan saddir. Þakka þér amma hvað þú tókst vel á móti stelpunum sem nú eru konurnar okkar, þær fundu strax að þær voru velkomnar og ortir þú jafnvel um þær ljóð. Alltaf hugsaðir þú vel um hann Halla afa okkar. Eftir að hann dó þótti þér vænt um það þegar við komum í hádegishléi úr skóla eða vinnu til þín og fengum heitan há- degismat og sannarlega þótti okkur það líka gott. Þú hafðir mjög gaman af ljóðum og vísum og varst alger viskubrunnur í þeim efnum og mundir ótrúlegan fjölda af þeim og kenndir okkur og börnum okkar. Við eigum svo ótrúlega margar minningar um þig þar sem þú varst órjúfanlegur þáttur í okkar lífi, því er mjög erfitt að tína einhver sér- stök atriði út. Elsku amma takk fyrir allar stundirnar sem við áttum saman, Guð geymi þig. Leifur, Hallgrímur og Grétar Már. Nú er Margrét Þorvaldsdóttir frænka okkar, sem lengst af bjó á Reykjavíkurvegi 33 í Hafnarfirði, látin í hárri elli. Hún var mikil mannkostakona, hún var skynsöm og stálminnug, hún kunni ógrynni af kvæðum og þulum, og var hafsjór af fróðleik. Hún var mælsk og skemmtileg og gátum við endalaust hlustað á hana segja frá. Systkinin frá Valdastöðum voru samheldin og hittust oft með fjölskyldur sínar og á meðan Magga hafði heilsu naut hún sín vel í þeim hópi. Hún var höfðingi heim að sækja og aldrei fórum við svo til Reykjavíkur að ekki væri komið við á Reykjavík- urveginum hjá Möggu og Halla. Á milli móður okkar og Möggu var sérstakt samband og nutum við systurnar þess og fengum við stundum að gista á Reykjavíkurveg- inum. Það þótti okkur mikið æv- intýri og þau Magga og Halli stjön- uðu svo sannarlega við okkur. Að leiðarlokum viljum við systurnar og móðir okkar þakka hjartanlega fyrir allt það sem Magga var okkur og votta Valda, Diddu og fjölskyldu þeirra okkar innilegustu samúð. Guð blessi minningu góðrar konu. Stefanía og Dröfn. Hún var ættuð frá Járngerðar- stöðum í Grindavík og komin af rómuðu mannkosta- og dugnaðar- fólki. Kynni okkar hófust haustið 1949 þegar við ég og unnusta mín, Anna, en hún var dóttir Hallgríms af fyrra hjónabandi og hafði verið fóstruð upp norður á Siglufirði, komum suð- ur í leit að atvinnu og menntun. Það var gott að leita til Möggu og Halla sem skutu yfir okkur skjóls- húsi á Reykjavíkurveginum þar sem þau bjuggu lengst af. Ógleymanleg er sú velvild og að- stoð sem við nutum þar þá og alla tíð. Þar sannaðist og það sem sagt hefir verið áður, að þar sem hjarta- rými er fyrir hendi þar er og ávallt nóg pláss. Það kom líka í ljós að fleiri nutu gestrisni húsráðenda en við unga parið. Að nokkrum vikum liðnum fluttum við svo til Reykja- víkur, en margar urðu ferðir okkar í gegnum árin suður í Hafnarfjörð til Möggu og Halla og margan kaffi- sopann ásamt meðlæti þáðum við yfir notalegu spjalli, eða við fengum heilræði. Þá voru og líka gjarnan rifjaðar upp sameiginlegar sögur úr síldarævintýrinu sem þau hjón höfðu bæði tekið ærlegan þátt í. Magga var dugnaðarforkur sem vann af krafti í fiskverkun þeirra hjóna meðan Halla naut við, en hann lést 1992. Eftir fráfall hans bjó hún áfram á Reykjavíkurveginum alllengi og naut einstakrar umhyggju Þorvald- ar sonar síns og konu hans Svan- hildar svo og barna þeirra, var til þess tekið hve framúrskarandi vel þau hugsuðu um Möggu alla tíð. Síðar flutti hún svo á DAS í Hafn- arfirði og var þar síðustu árin. Magga var bráðvel gefin, skap- föst, hún vissi sínu viti og fór vel með það, hún var minnug og hélt í heiðri góða siði gengins tíma. Hún var geðgóð og skemmtileg, hún var sterkur persónuleiki, vinföst og ósérhlífin. Nú er jarðvist hennar lokið, en minningin lifir um einstaka sæmd- arkonu. Framundan eru grænar grundir eilífðarinnar, þar mun henni fagnað. Það er mér ljúft og skylt að þakka áratuga vináttu og að votta ástvinum hennar öllum dýpstu sam- úð mína, dætra minna og fjöl- skyldna. Algóðan Guð biðjum við að blessa minningu Margrétar Þorvaldsdótt- ur og styrkja og varðveita í eilífð- inni. Hreinn Sumarliðason. Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009 þeirra sendum við innilegar sam- úðarkveðjur. Lísa, Halldóra, Gunnar og Helga Gunnarsbörn. Kveðja frá Hollvinum Húna II Það var á fallegum maí degi 1962 að ég hjólaði austur Gránufélags- götuna í átt að bryggjunni þar sem togarinn Harðbakur var að taka ol- íu. Ég hafði fengið skipspláss og gerði ráð fyrir því að fara á sjó eftir nokkra daga. Stór braggi stóð aust- an götunnar og þar var verið að reisa bönd á kjöl á allstóru eikar- skipi. Þetta vakti forvitni mína og mér dvaldist þarna og dáðist strax að verklagni þeirra sem þarna voru við vinnu. Ég gaf mig á tal við mann sem þarna var. Þetta samtal átti eft- ir að valda straumhvörfum í lífi mínu. Þarna mætti ég skipasmiðn- um Tryggva Gunnarssyni. Ég fór aldrei á bryggjuna heldur hjólaði heim til foreldra minna og tilkynnti þeim að ég væri ráðinn í nám hjá Skipasmíðastöð KEA til að læra skipasmíðar. Frá fyrstu tíð tók Tryggvi mér með opnum og jákvæðum huga. Þetta hugarfar hans var einkenn- andi í samskiptum við alla. Á skipa- smíðastöðinni vann allstór hópur iðnaðarmanna og margir mjög færir skipasmiðir með áratuga reynslu og þekkingu á faginu. Sjálfur hafði Tryggvi verið alinn upp við smíðar en faðir hans var Gunnar Jónsson, einn af frumkvöðlum skipasmíða í Eyjafirði. Tryggvi stjórnaði skipa- smíðastöðinni eftir að faðir hans lést og teiknaði KEA-bátana sem voru landsþekktir og viðurkenndir. Á námsárunum átti ég oft eftir að leita á náðir Tryggva og fá hjá honum góð ráð. Alltaf auðsótt að fá frí og ótrúleg var sú þolinmæði sem hann sýndi okkur lærlingunum, pásurnar okkar áttu það til að verða nokkuð langar. En hann hafi einstakt lag á því að fá okkur til að vinna af kappi og gerði þá gaman að. Það voru skemmtilegir dagar á skipasmíða- stöðinni. Áhugi Tryggva fyrir skipum, smíði þeirra og búnaði var æ til staðar. Þegar ákveðið var að Húni II, sem Tryggvi teiknaði og stjórn- aði smíði á, kæmi aftur til Akureyr- ar leyndi sér ekki gleðin og áhuginn í andliti öldungsins. Tryggvi var strax gerður að heiðursfélaga í Hollvinasamtökum Húna II. Bátar Tryggva vitna um fagurt handbragð og glöggt auga teiknarans sem dró útlínur báts upp á blað. Við Holl- vinir munum minnast Tryggva með þakklæti. Eiginkonu Tryggva, börn- um, barnabörnum og ættingjum vottum við okkar dýpstu samúð. F.h. Hollvina Húna II, Þorsteinn Pétursson. Kær frænka mín, Sigríður Guðmunda Haukdal, lést hinn 13. janúar sl. á Landspítalanum í Foss- vogi eftir stutta sjúkdómslegu, 77 ára gömul. Sigga í Höll, eins og hún var jafnan nefnd af okkur börnum og barnabörnum Þorbjargar, föðursyst- ur Siggu, er okkur öllum mikill harm- dauði sökum manngæsku sinnar, hlýju og væntumþykju, sem hún átti í svo ríkum mæli og við bræðurnir, systir okkar, dætur Gumbs og dóttir Steinars og fleiri unglingar aðrir, fengum notið í Höll um 20 ára skeið um miðbik síðustu aldar. Þessa góðu eiginleika sína fékk Sigga í vöggugjöf frá foreldrum sínum, heiðurshjónun- um Jóni og Ástríði. Öll minnumst við enn í dag hinna dýrðlegu daga í dalnum fagra fyrir vestan. Tæp 70 ár eru liðin frá því ég sá Siggu fyrst. Það var í sumarbyrjun 1940. Við bræðurnir höfðum verið sendir í sveit eins og algengt var með borgarbörn í þá tíð til frændfólks okk- ar í Dýrafirði, Siggi 10 ára gamall til dvalar hjá Jóni frænda í Höll í Hauka- dal og sá sem þetta ritar 8 ára til Andrésar frænda á Sveinseyri, rétt utan við Haukadal í Dýrafirði. Við fórum vestur með Fróða nokkr- um dögum eftir hernám og seinni heimsstyrjöldin því orðin veruleiki. Upp var að renna stærsta ævintýri lífs míns til þessa. Mér er enn í fersku minni spenningurinn og tilhlökkunin, sem ég bar í brjósti að fá loks að berja Höllina augum. Ég var nefnilega bú- inn að búa til mynd í huga mér af hvít- Sigríður G. Jónsdóttir ✝ Sigríður Guð-munda Haukdal Jónsdóttir fæddist í Höll í Haukadal í Dýra- firði 23. júní 1931. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi hinn 13. jan- úar síðastliðinn. Útför Sigríðar fór fram frá Áskirkju í Reykjavík 22. janúar sl. kalkaðri, stórri „höll“ forfeðra minna þarna vestra! Uppáhalds fornald- arhetjan mín, Gísli Súrsson, bjó á Hóli í Haukadal, og Hóll hafði breyzt í munni kynslóðanna í Höll. Hvað átti ég að halda? Vonbrigði mín voru því mikil, er ég leit yfir húsaþyrpinguna í Haukadal frá leitinu á milli Meðaldals og Haukadals á leið okkar frá Þingeyri. Enga „höll“ var að sjá, bara 10 íbúðarhús og jafnmörg útihús dreifð um dalsmynnið. Þetta var áfall, hugarheimur barnungs drengs hrundi! En þessi vonbrigði liðu fljótt frá. Móttökurnar voru svo alúðlegar og einlægar, að allir fyrri órar mínir hurfu eins og dögg fyrir sólu. Höll í Haukadal var raunveruleg „höll“ í besta skilningi þess orðs, hún var höf- uðból dalsins og „höll“ mikillar góð- semi og vináttu og ættartengsla sem aldrei hafa slitnað og vara munu um aldur og ævi. Við komuna í dalinn forðum, námum við staðar í miðri byggðinni, við hús ömmubróður okk- ar, hans Eggerts í Sæbóli. Þangað streymdi að fólk, bæði skylt og óskylt, faðmaði okkur og kyssti og tvær yng- ismeyjar, þær frænkur okkar, Sigga í Höll og Herdís í Sæbóli, 9 og 8 ára, komu á harðahlaupum, móðar og másandi, ofan af Hallartúni, þar sem þær höfðu verið að gæta nýborinna lamba og fögnuðu okkur, föðmuðu og slengdu á okkur kossum feimnislaust. Þannig heilsaði frændfólkið okkar fyrir vestan, af einlægum og svo mikl- um kærleik að aldrei gleymist. Þau fjögur sumur, sem ég var í sveit fyrir vestan, lék Sigga stórt hlutverk. Eitt ár skildi okkur að. Í þau óteljandi skipti sem ég heimsótti fólkið mitt í Höll þau 4 sumur, sem ég var á Eyri, var Sigga foringinn í öllum leikjum og ærslum. Hún þekkti hverja þúfu í dalnum og kunni óteljandi sögur. Hún var yndisleg. Blessuð sé minning hennar. Gylfi frændi. Fyrir rúmum 55 árum fór ég til sumardvalar hjá frændfólki mínu í Höllinni. Nafnið eitt var nóg til þess að sjö ára stelpa úr Reykjavík var for- vitin og full eftirvæntingar. Allt gekk eftir, frændfólk mitt með Ásu í far- arbroddi tók vel á móti mér og ekki síst hún Sigga frænka. Hún var heimasætan á bænum og vinsæl hjá okkur systrum. Sigga var með sérher- bergi uppi á baðstofuloftinu og var gaman að koma inn til hennar þegar hlé var gert á verkum eða eftir mjaltir á kvöldin. Hún sagði okkur frá leik þeirra systkina áður fyrr, skólagöngu í Haukadal og seinna meir er hún fór í Húsmæðraskólann á Ísafirði. Sumrin mín í Höllinni urðu fimm og átti Sigga þátt í því að kenna mér ýmislegt til verka sem ég hef notið góðs af á lífs- leiðinni. Í heyskapnum naut Sigga sín, hún var svo fljót að rifja að ég þurfti að hlaupa við fót til að hafa við henni. Þegar heyjað var á Gíslahól var gam- an að heyra frásagnir af Gísla Súrs- syni og þau sögubrot áttu eftir að verða uppspretta að leik okkar Gerð- ar og Þórunnar frænku og Siggu syst- ur þegar við fetuðum í fótspor Gísla eftir læknum eða börðumst á Gíslahól. Í berjamó var Sigga fljót að fylla sínar fötur og er heim var komið hófst hún handa við sultu- og saftgerð. Margs er að minnast frá þessum ár- um í Haukadal og eigum við systur, Sigríður Björg og ég, góðar minning- ar um Siggu frænku og frændfólk okkar þar. Í heimsóknum mínum til Siggu á síðari árum var gaman að spjalla saman um liðna tíma, hlæja svolítið og fá enn góð ráð í sambandi við prjónaskap. Við systurnar, Þorbjörg, Sigríður Björg og ég, kveðjum góða frænku og þökkum henni áralanga vináttu og ræktarsemi við foreldra okkar meðan þau lifðu. Blessuð sé minning kærrar frænku. Margrét Guðmundsdóttir. ✝ María Jóhanns-dóttir fæddist í Háagerði í Eyjafjarð- arsveit 3. ágúst 1929. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 29. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jóhann Benediktsson bóndi í Háagerði, f. 19.2. 1892, d. 28.4. 1966 og Freygerður Bene- diktsdóttir húsfreyja, f. 24.12. 1889, d. 5.10. 1974. Systkini Maríu eru: 1) Benedikt, f. 22.2. 1927. 2) Að- alsteinn, f. 29.12. 1930, kvæntur Guð- björgu Stefánsdóttur, f. 9.2. 1928. 3) Guð- rún Kristjana, f. 26.11. 1934, gift Geir Haraldssyni, f. 13.1. 1930, d. 6.2. 2002, dóttir þeirra Frey- gerður Anna, f. 7.8. 1957, gift Erni Han- sen, f. 28.8. 1951, þau eiga þrjá syni og 5 barnabörn. Útför Maríu var gerð frá Akureyrarkirkju 9. febr- úar sl. Þá er dagur að kvöldi kominn, langur, oft erilsamur, við skepnu- hirðingu, heyskap eða inniverk. Allt- af tiltæk veisla ef gesti bar að garði, aldrei talin spor eða mínútur við að hlúa að búpeningi. María var fróð um marga hluti, minnisstæðir eru t.d. fyrirlestrar hennar um ættfræði, hafsjór af fróðleik sem erfitt gat ver- ið að henda reiður á enda oft farið út á ýmsar hliðargreinar fjarri stofni sögunnar en allt voru þetta vinir og frændfólk enda „átti María ákaflega margt skyldfólk“ eins og Benni bróð- ir hennar benti réttilega á hér um ár- ið. María var húmoristi og svaraði vel fyrir sig. Gjarnan tók hún málstað lítilmagnans. Fáir riðu feitum hesti frá því að bauna á Maríu, hún endurgalt það að fullu. Ég tíunda ekki lífshlaup Maríu í Háagerði, til þess verða mér færari menn, en mig langar að þakka henni öll rýmilegheit í minn garð og minna og óska henni góðrar ferðar og góðr- ar heimkomu þegar hún gengur til fagnaðar herra síns. Farðu í friði. Vilberg á Kommu. María Jóhannsdóttir Guðný Alberta Hammer, eða Alla eins og hún var ævinlega kölluð af ættingjum sínum og vinum, er látin. Eiginmaður hennar, Jónas G. Sigurðsson, lést í mars á sl. ári. Við þessi tímamót langar mig að minnast þeirra beggja með nokkrum orðum. Guðný Alberta Hammer ✝ Guðný AlbertaHammer fæddist í Albertshúsi á Bökk- unum á Ísafirði 30. október 1930. Hún andaðist á Hjúkr- unar- og dvalarheim- ilinu Lundi 27. janúar síðastliðinn og var út- för hennar gerð frá Árbæjarkirkju í Holt- um 4. febrúar. Ég kynntist þeim hjónum fyrst fyrir rúmum þrjátíu árum, þegar Ágúst Ómar, elsti sonur okkar Ey- vindar, og Ragnheiður dóttir þeirra fóru að draga sig saman. Þá bjuggu þau búi sínu á Brekkum í Holtum, en Jónas þá fyrir nokkru farinn að vinna í pakk- húsinu á Rauðalæk meðfram bústörfum. Á Brekkum var mikill gestagangur og gest- risni, alltaf tími fyrir spjall og veit- ingar. Ég minnist þess varla að hafa komið að Brekkum á þessum árum án þess að þar væru fleiri eða færri gestir fyrir. Síðar fluttu þau Alla og Jónas að Rauðalæk, eftir að Ágúst Ómar og Ragnheiður fóru að búa á Brekkum. Okkar samskipti voru að sjálfsögðu mest í tengslum við atburði í lífi barna okkar og afkomenda þeirra. Alla og Jónas komu mér fyrir sjónir sem ákaflega samrýnd og samhent hjón, þótt ólík væru. Hún hæglát og hógvær, en kom skoðunum sínum samt á framfæri, hann ævinlega kát- ur og hress, með glettnisblik í augum og gamansögur á hraðbergi. Síðustu árin urðu þeim erfið vegna heilsu- brests, en þau hugsuðu vel hvort um annað meðan beggja naut við. Við Eyvindur þökkum góð kynni og ára- tuga vináttu. Guð blessi minningu Öllu og Jónasar frá Brekkum. Afkomendum þeirra öllum og Herdísi móður Öllu vottum við inni- lega samúð. Guðrún Aradóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.