Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                     Eftir Grétar Júníus Guðmundsson og Þorbjörn Þórðarson „ALDREI áður höfum við kynnst eins miklum viðskiptasóðaskap á þeim tíma sem við höfum tengst við- skiptum,“ segja þeir Hilmar Ragn- arsson og Þórhallur Örn Guðlaugs- son, fyrrverandi stjórnarmenn í Tali, í bréfi til Samkeppniseftirlitsins, sem tilnefndi þá í stjórn félagsins í stað fulltrúa Teymis. Í bréfinu tilgreina þeir Hilmar og Þórhallur ástæður og aðdraganda þess að þeir sögðu sig úr stjórn Tals, sem þeir tóku sæti í fyrir réttri viku. Segja þeir að stjórnarseta sín, þó stutt hafi verið, sé með miklum ólík- indum og að þeir sjái sér ekki annað fært en að segja starfi sínu lausu. Þeir segja í bréfinu að svo virðist sem annar eigandinn, með 51% eignar- hlut, þ.e Teymi, hafi af því einhverja hagsmuni að halda stjórn Tals upp- tekinni við annað en að vinna félag- inu gagn. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að þær ástæður sem þeir gefa fyrir úrsögn sinni úr stjórninni gefi tilefni til gruns um brot Teymis gagnvart Tali og samkeppnissjálfstæði þess. Að sögn Páls Gunnars er það til skoð- unar hjá Samkeppniseftirlitinu að grípa til frekari aðgerða til að verja samkeppnislegt sjálfstæði Tals og er niðurstöðu að vænta á næstu dögum. Hilmar og Þórhallur segja að bréf til Þórhalls frá Dóru Sif Tynes, lög- manni Teymis, hafi verið kornið sem fyllti mælinn. „Bréfið ber með sér viðhorf og vinnubrögð sem engin leið er fyrir ærlega einstaklinga að sætta sig við,“ segja þeir. Teymi mótmælir harðlega fullyrð- ingum um að félagið hafi staðið óeðli- lega að rekstri Tals. Fullyrðingar um að Teymi hafi hlutast til um verkefni stjórnar eftir að fulltrúar Samkeppn- iseftirlitsins tóku þar sæti eru stór- lega orðum auknar, segir í yfirlýs- ingu frá félaginu. Þar segir jafnframt að deilurnar í eigendahópi Tals séu hluthafadeilur og snúist ekki um samkeppnislegt sjálfstæði Tals. Saka Teymi um sóðaskap  Stjórnarmenn Tals sem Samkeppniseftirlitið tilnefndi hætta eftir aðeins viku í stjórn  Til skoðunar að grípa til frekari aðgerða til að verja sjálfstæði Tals Í HNOTSKURN »Samkeppniseftirlitið taldi aðbið eftir niðurstöðu hús- leitar í höfuðstöðvum Teymis, Vodafone og Tals hinn 7. janúar sl. gæti haft í för með sér óaft- urkræfan skaða á samkeppni og ákvað því að fulltrúar Teymis vikju sæti úr stjórn Tals. »Þar segir að Teymi, Voda-fone og Tal hafi sennilega brotið gegn ákvörðun sem heim- ilaði upprunalegan samruna Sko og Hive, og 10. gr. sam- keppnislaga, með því að hafa samráð um að Tal ætti ekki að stunda samkeppni við Vodafone. Morgunblaðið/Heiddi Blönduós | Nýr bæjarstjórnarmeirihluti á Blönduósi tók formlega til starfa í gær. Eins og fram hefur komið í fréttum klofnaði meiri- hluti E-lista sem farið hefur með stjórn bæj- armála á Blönduósi fyrir skömmu vegna trún- aðarbrests milli Jónu Fanneyjar Friðriksdóttur og annarra samstarfsmanna hennar í meiri- hlutanum. Trúnaðarbrestinn má rekja til ráðn- ingarsamnings við núverandi bæjarstjóra, Arn- ar Þór Sævarsson, sem var aldrei borinn undir bæjarstjórn. Trúnaðarbresturinn varð þess valdandi að núna er meirihluti bæjarstjórnar Blönduóss samsettur af 3 fulltrúum E-lista, 2 fulltrúum D-lista og einum fulltrúa Á-lista. Því er málum nú þannig háttað að fyrrverandi bæj- arstjóri, Jóna Fanney Friðriksdóttir, situr ein í minnihluta bæjarstjórnar Blönduóss en meiri- hlutann skipa sex karlmenn. Meirihluti karlanna tekinn til starfa á Blönduósi Morgunblaðið/Jón Sigurðsson ALGENGAST er að einn eða tveir aðstoðarbankastjórar starfi við hlið aðalbankastjóra Seðlabanka. Þetta er meðal þeirra athugasemda sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) gerir við frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingu á seðlabankalögum. Þá sé sjaldnast kveðið á um það í lögum um slík embætti hvaða mennt- un seðlabankastjóri eigi að hafa, heldur gerð krafa um viðurkennda þekkingu og reynslu. Í frumvarpinu, sem nú er í meðförum Alþingis, er aðeins gert ráð fyrir einum seðla- bankastjóra sem ráðinn er til sjö ára í senn. Skal hann hafa lokið meist- araprófi í hagfræði og búa yfir víð- tækri reynslu og þekkingu á pen- ingamálum. IMF tekur fram að umsögnin sé til bráðabirgða þar sem starfsmönnum sjóðsins hafi ekki gef- ist færi á að ræða frumvarpið við ís- lensk stjórnvöld. Einnig er gerð athugasemd við ákvæði um fimm manna peninga- stefnunefnd, sem skipuð er seðla- bankastjóra, tveimur yfirmönnum bankans og tveimur mönnum sem seðlabankastjóri skipar til þriggja ára í senn. Er venjan sú þar sem slík- ar nefndir eru, að sögn IMF, að skip- unartími nefndarmanna sé ekki styttri en þess sem þá skipar. Ella kunni svigrúm þeirra til ákvarðana- töku að skerðast. Samkvæmt upplýsingum frá for- sætisráðuneytinu er algengt að IMF veiti aðstoð er kemur að samningu slíks frumvarps um seðlabanka. En Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra, óskaði eftir umsögninni frá sjóðnum og hefur hún þegar verið send viðskiptanefnd Alþingis. Hrannar B. Arnarsson, aðstoðar- maður forsætisráðherra, kvaðst ekki eiga von á að hún myndi tjá sig sér- staklega um athugasemdir IMF. „Það hafa komið fram fjölmargar at- hugasemdir við frumvarpið, en þetta mál er nú í meðförum þingsins,“ sagði Hrannar. annaei@mbl.is Aðstoðarbankastjórar við hlið seðlabankastjóra Morgunblaðið/Golli  Meira á mbl.is „ÞAÐ var ein- róma álit samn- inganefndarinnar að menn ættu að taka sér tíma þar til ný ríkisstjórn væri komin að til þess að taka áframhaldandi viðræður við Samtök atvinnu- lífsins um úrlausn kjaramála til næstu tveggja ára,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar og talsmaður samninganefndar Flóa- bandalagsins, sem samanstendur af Eflingu, Verkalýðs- og sjómanna- félagi Keflavíkur og Hlíf, en nefndin fundaði um kjarasamningamálin á fjölmennum fundi í gærkvöldi. Inn- an Flóabandalagsins eru á að giska um 25 þúsund félagsmenn, sem heyra undir ASÍ. „Eins og staðan er nú þá teljum við réttara að vinna að því að búa til lausnir heldur en kalla fram riftun á samningi.“ silja@mbl.is Bíða nýrr- ar ríkis- stjórnar Sigurður Bessason Vilja fresta endur- skoðun á launalið ÞÓRDÍS Sigurð- ardóttir, stjórn- arformaður Teymis, segir að Hilmar Ragn- arsson og Þór- hallur Örn Guð- laugsson, fyrrum stjórnarmenn í Tali, verði að svara fyrir það hvað það sé sem þeir álíti vera mikinn „við- skiptasóðaskap“. „Þetta eru svo stór og ljót orð að mér finnst mjög óviðeigandi að segja þetta án þess að þú getir rök- stutt mál þitt mjög vel,“ segir Þór- dís. Hún segir að rökstuðningurinn sé ekki fyrir hendi í bréfi tvímenn- inganna. „Menn geta ekki haft svona orð hangandi í loftinu öðru- vísi en að menn skýri hvað þeir eru að tala um,“ segir Þórdís. jonpetur@mbl.is Ekki stutt með rökum Þórdís Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.