Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009 Leitaði ekki til læknis  Brunavarnir Suðurnesja sýknaðar af bótakröfum vegna starfsmanns sem lést  Regluleg lyfjameðferð við háum blóðþrýstingi hefði dregið úr líkum á heilsutjóni Eftir Andra Karl andri@mbl.is HÆSTIRÉTTUR sneri í gær við dómi Héraðsdóms Suðurlands sem hafði áður dæmt ekkju aðalvarð- stjóra hjá Brunavörnum Suðurnesja (BS), og börnum þeirra, 5,7 milljónir króna í miskabætur vegna andláts mannsins. Maðurinn lést eftir hlaup á þolbretti í líkamsræktarstöð í september 2005. Maðurinn hóf störf sem slökkvi- liðsmaður á Suðurnesjum 1988, var ráðinn varðstjóri hjá BS 1995 og að- alvarðstjóri frá 16. maí 2000. Hann var nær alltaf með of háan blóð- þrýsting og var fyrst ráðlagt að taka lyf gegn hækkuðum blóðþrýstingi 22 ára. Í febrúar 2004 fór hann í hjartaáreynslupróf hjá lækni. Kom þá í ljós óeðlileg hækkun á blóð- þrýstingi undir álagi. Var hann hvattur til að leita til hjartasérfræð- ings og fylgjast vel með blóðþrýst- ingnum. Slökkviliðsstjóra var einnig tjáð að öll líkamleg áreynsla væri manninum óæskileg. Fyrir dómi sagði læknir að ef um óbreyttan slökkviliðsmann hefði verið að ræða, þá hefði hann verið úrskurðaður óvinnufær. Maðurinn hefði hins vegar ekki þurft að leggja á sig líkamlegt erfiði í starfi sínu. Í maí 2005 var maðurinn skoðaður aftur af trúnaðarlækni BS. Kom í ljós að hann var ekki undir eftirliti og hafði ekki farið til hjartalæknis. Rétturinn taldi ljóst að skortur á lyfjameðferð við háum blóðþrýstingi hefði átt stóran þátt í því hvernig fór. Í HNOTSKURN »Varakrafa var reist á þvíað slys hefði leitt manninn til dauða. Hæstiréttur féllst ekki á það og sagði um að ræða sjúkdóm sem átti sér langan aðdraganda. » Maðurinn tók þátt í reyk-köfunaræfingu í sept- ember 2005. PÁSKAFERÐIR til útlanda voru uppseldar eða nálægt því að seljast upp hjá þremur ferðaskrifstofum sem rætt var við í gær. Ferðaskrif- stofurnar hafa dregið úr ferða- framboði miðað við fyrri ár. Það er fyrst og fremst fjölskyldufólk sem fer í páskaferðir, líkt og ferðir um jól og á sumrin. Fjölskyldur nýta því skólafríin til ferðalaga. Helgi Eysteinsson fram- kvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Vita sagði að tvær páskaferðir sem í boði voru hefðu báðar selst upp fyrir um hálfum mánuði. Annars vegar var um að ræða golfferð til Spánar og hins vegar ferð til Kanaríeyja. Helgi taldi að ekki hefði verið erf- iðara að selja í páskaferðir nú en undanfarin ár þótt vissulega hefði töluvert mikið dregið úr framboði af slíkum ferðum. Bjarni Ingólfsson, markaðsstjóri Heimsferða, sagði sæti í páskaferðir hjá þeim vera mikið til uppseldar og það fyrir löngu. Uppselt er í ferð til Costa del Sol og eins í golfferð til Andalúsíu á Spáni. Fáein sæti voru eftir í páskaferð til Kanaríeyja. Bjarni sagði að dregið hefði verið úr ferðaframboði nú miðað við páskana í fyrra. „Páskaferðir seljast alltaf vel. Reglan hefur verið sú að færri fá en vilja,“ sagði Bjarni. Þorsteinn Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar, sagði fínan gang hafa verið í sölu páskaferða. „Þær eru meira og minna orðnar uppseldar,“ sagði Þor- steinn. Hann sagði að dregið hefði verið úr framboði páskaferða um þriðjung frá því í fyrra. Úrval-Útsýn verður með ferðir til Kanaríeyja, Tenerife, Tyrklands og Alicante á Spáni um páskana. Í gær var búið að selja 75-80% af sætum í þessar ferðir. Þorsteinn sagði að þrjár brottfarir til Alicante fyrir páska væru uppseldar, lítið eftir til Kanaríeyja og aukasæti hefðu feng- ist til Tenerife. Með aukasætunum var hægt að útvega fólki á biðlistum sæti. gudni@mbl.is Margar páskaferðir eru uppseldar eða fá sæti eftir Íslendingar ætla að leita á hlýrri slóðir um páskana Morgunblaðið/Golli Páskasól Margir sækja í sólina. FINNAR hafa til- kynnt að þeir treysti sér ekki til að styðja kennslu í finnsku við Há- skóla Íslands lengur en út þetta skólaár. Finnska hefur verið kennd við HÍ í um 40 ár. Ástráður Ey- steinsson, forseti hugvísindasviðs HÍ, taldi verulega hættu á að finnskukennslan legðist af. „Við verðum ekki kát ef þetta fellur niður og við missum einn hlekk úr Norð- urlandasamstarfinu,“ sagði Ástráð- ur. Hann kvaðst binda vonir við að Finnar fallist á að seinka ákvörðun sinni um eitt ár. Ástráður sagði að því miður hefðu fáir lagt stund á finnskunám og ein- ungis átta lokið því til BA-prófs frá því kennsla hófst. Hins vegar hefðu talsvert margir numið finnsku í eitt til tvö ár til þess að búa sig undir frekara nám í Finnlandi. Nú eru sex nemendur í finnsku við HÍ. Háttsettur fulltrúi alþjóðaskrif- stofunnar í Helsinki sem stýrir út- gerð finnskra sendikennara kom hingað fyrr í vikunni. Ástráður sagði að sums staðar önnuðu finnsk- ir sendikennarar ekki eftirspurn eft- ir kennslu og víða vantaði sendi- kennara. Í ljósi þess væri ekki óeðlilegt að Finnar tækju stöðu lekt- ors í finnsku hér til endurskoðunar. Óviss framtíð finnsku- kennslu HÍ Ástráður Eysteinsson Í JANÚAR í fyrra bárust Hjálp- arstarfi kirkjunnar 159 umsóknir um neyðaraðstoð en í nýliðnum janúarmánuði voru þær 400 sem er 152% aukning. Í fréttatilkynn- ingu segir að greinilegt sé að sam- setning hópsins sem sækir um hafi breyst og margir séu að sækja um í fyrsta skipti. „Sumir nýrra umsækjenda eru öryrkjar sem hingað til hafa getað þraukað en ná nú ekki endum saman. Aðrir eru einstaklingar með framfærslu frá Félagsþjónust- unni sem búa við mjög kröpp kjör, en mesta aukningin er meðal fólks sem hefur misst vinnuna. Þeir eru að ýmsu leyti í lakari stöðu en t.d. örorkuþegar. Þeir fá t.d. ekki af- slátt af lyfjum sem þeir kunna að þurfa en hafa ekki úr hærri fjár- hæðum að spila en þeir sem fá ör- orkubætur,“ segir í fréttatilkynn- ingu. Umsóknir 152% fleiri HÚN leyndi sér ekki einbeitingin hjá þessum ungu íþróttamönnum sem tóku þátt Skóla- hreystikeppninni í Smáranum í gær og ljóst að þeir sem að þarna voru mættir ætluðu allir að gera sitt ýtrasta. Í þessum fyrstu þremur riðlum keppninnar tókust á skólar af Vestfjörðum, Vesturlandi, Kópavogi, Grafarvogi, Grafarholti, Árbæ, Mos- fellsbæ, Kjalarnesi, Hafnarfirði og Reykjanesi. En stigahæsti skólinn í hverjum riðli heldur áfram í úrslitakeppnina. Góð stemning og spenna hefur oft myndast hjá þeim skólum sem taka þátt. Og þetta árið líkt og áður mættu stuðningsmenn keppenda á svæðið til að hvetja sitt fólk áfram til sigurs. annaei@mbl.is Barist verður til sigurs í Skólahreysti í vetur Reyndu sig við þunga steina Morgunblaðið/Heiddi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.