Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 12
ÞORBJÖRN Jónsson, formaður læknaráðs, segir umsögn ráðsins í flestum tilvikum hafa verið jákvæða en bent hafi verið á nokkur óljós at- riði. „Almennt séð fögnum við nýju skipuriti sem er einfaldara en það sem verið hefur. Æðstu yfirstjórn- endur verða færri og við teljum það til bóta. Á tímum kreppu og aðhalds ætti þetta að spara í rekstri. Boðleið- irnar verða styttri milli yfirmanna og undirmanna, þrepin hafa verið fjögur en verða þrjú eftir þetta,“ segir Þorbjörn. Hann segir læknaráðið jafnframt hlynnt því að einn sviðsstjóri verði yfir hverju sviði, í stað tveggja áður. Starfslýsing nýrra sviðsstjóra liggi ekki endanlega fyr- ir en eftir hans bestu vissu verði gerð krafa um starfs- mann með heilbrigðismenntun að baki. „Við lögðum mikið upp úr því í okkar umsögn að þegar störfin yrðu auglýst, og útbúnar starfslýsingar, væri það alveg skýrt hvert væri verksvið og ábyrgð hvers yfirmanns.“ Spurður um helstu vankanta á tillögunum nefnir Þorbjörn að læknaráðinu hafi þótt vægi ýmiskonar stoðstarfsemi vera óeðlilega mikið í nýju skipuriti. Nokkur atriði óljós Þorbjörn Jónsson 12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is LANDSPÍTALINN (LSH) undirbýr breytingar á skipuriti sem taka eiga gildi í apríl nk. Stjórnendum verður fækkað um allt að 20 þar sem svið verða sameinuð og þau gerð stærri. Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri LSH, segir að enn sé um drög að ræða og endanleg útfærsla liggi ekki fyrir. Fyrstu viðbrögð séu þó jákvæð. Í dag eru sviðin 12 og flest þeirra með tvo yfirmenn, annars vegar yf- irmann lækninga og hins vegar yf- irmann hjúkrunar. Eftir breyting- arnar verða sviðin fimm eða sex talsins og einn framkvæmdastjóri ráðinn yfir hverju þeirra. Hulda segir að með þessu muni framkvæmdastjórar á klínískum sviðum taka þátt í framkvæmda- stjórn og því verði áhrifin frá klíník meiri við stjórnun spítalans. Ekki hefur verið ákveðið hvaða svið renna saman og hversu mörg þau verða. Mun það skýrast á næstu tveimur vikum. Hulda telur of snemmt að segja til um hvaða svið séu líklegust til að sameinast. „Við göngum út frá að þær einingar sem vinna mest saman í dag muni renna saman, þannig að góð yfirsýn verði yfir þarfir sjúklinganna og flæði þeirra,“ segir hún. Boðleiðunum frá forstjóra til deild- arstjóra verður fækkað úr fjórum þrepum í þrjú. Með því að leggja niður störf sviðs- stjóranna verður í raun fjölgað í framkvæmda- stjórn spítalans þar sem nýir sviðsstjórar fá tit- il framkvæmda- stjóra. Í dag eru fimm í fram- kvæmdastjórn en eftir breytingarnar verða 10-12 manns með stöður fram- kvæmdastjóra. Undirbúningur fyrir þessar breyt- ingar hefur staðið yfir um nokkurt skeið innan spítalans. Að sögn Huldu var ákveðið að bíða með þær þar til hún kæmi til starfa við spítalann. „Ég frestaði þessu síðan aðeins meira því ég vildi sjálf kynnast spítalanum og starfsfólkinu betur, hver væru verk- efnin næstu árin og hver væru vandamálin.“ Markmiðið með breyttu skipuriti er að hafa spítalann meira opinn og gegnsæjan, segir Hulda. Aðalmark- miðið er að hafa framkvæmdastjórn sem getur náð þeim árangri sem hún vonast eftir næstu fimm árin. Hulda segir það ekki hafa verið yf- irlýst markmið að spara launakostn- að með nýju skipuriti. Það sé hins vegar ein afleiðing breytinganna þegar yfirmönnum fækkar. Ekki standi til að segja fólki upp störfum samfara þessu. Hulda útilokar svo ekki frekari breytingar á störfum yfirlækna og deildarstjóra. Verksvið þeirra starfa verði gerð skýrari og markvissari, með þeim megintilgangi að hafa styttri boðleiðir. Tillögur forstjóra voru kynntar yf- irmönnum spítalans á fundi í síðustu viku. Áður höfðu fyrstu drög verið tekin til umfjöllunar í vinnuhópum á fjölmennum stjórnendafundi á spít- alanum í byrjun ársins. Umsagnir hafa borist m.a. frá læknaráði og hjúkrunarráði og mun lokavinnan við skipuritið fara fram í næstu viku. Í kjölfarið verða breyt- ingarnar kynntar fyrir heilbrigð- isráðherra en hann þarf lögum sam- kvæmt að staðfesta nýtt skipurit. Bæði fyrrverandi og núverandi ráð- herra hafa verið upplýstir um málið. Krafa um heilbrigðismenntun Spurð hvaða kröfur verði gerðar til nýrra framkvæmdastjóra segir Hulda að ekki sé búið að útbúa end- anlega starfslýsingu. Þó sé alveg ljóst að gerð verði krafa um heil- brigðismenntun og reynslu af stjórn- un, sem og árangur í starfi sem stjórnandi. Ekkert er því til fyr- irstöðu að þeir sem gegna t.d. stöðum sviðsstjóra í dag geti sótt um. Stjórnendum LSH fækkað  Nýtt skipurit Landspítalans tekur gildi í apríl næstkomandi  Sviðum spítalans fækkað úr 12 í 5 eða 6  Stjórnendum fækkað um allt að 20  Launakostnaður lækkar en engum sagt upp, segir forstjórinn                                   !   "!#  $! %& ' ( ) * + , - . / '0 '' '( 1& 23   45 # &6 #6  & 76 & 33 13 7    889  :!  3;&  ;&  '  (  )  *  + <  '(  3  8  +  , 5   9 ! 3  5  8 Í HNOTSKURN » Vinna við breytt skipuritvar hafin á síðasta ári, áð- ur en Hulda Gunnlaugsdóttir var ráðin forstjóri spítalans í haust. Hún hélt þeirri vinnu áfram og útfærði nánar. » Einnig verða gerðarbreytingar á stöðum fram- kvæmdastjóra yfir fjármálum spítalans, starfsmannamálum, stoðþjónustu, tæknimálum og kennslu- og vísindastarfi. » Endanleg útfærsla áskipuritinu gæti legið fyrir í næstu viku. Nýjar stöður framkvæmdastjóra verða svo auglýstar í lok þessa mánaðar þannig að þeir geti hafið störf í aprílmánuði. Hulda Gunnlaugsdóttir EYDÍS Kr. Sveinbjarnardóttir, sviðs- stjóri hjúkrunar á geðsviði, segir boðaðar breytingar af hinu góða. „Þetta er gott fyrir spítalann og starfsemi hans. Ákvarðanatakan verður skilvirkari, við fáum þarna inn klíníska stjórnendur í fram- kvæmdastjórn. Mín skoðun er sú, og hefur verið lengi, að við hefðum átt að gera þessar breytingar miklu fyrr. Ég hefði viljað sjá færri svið strax árið 2005,“ segir Eydís. Hún telur að það eigi fyrst og fremst við um sviðs- stjóra lækninga þegar talað er um að sviðsstjórar sinni öðrum stöðum á spítalanum og geti horfið til þeirra að breytingum loknum. „Þetta er mismunandi eftir því hvaðan þú komst. Ég var áður hjúkrunarfram- kvæmdastjóri á BUGL og lagði niður allar hjúkr- unarframkvæmdastjórastöður á mínu sviði árið 2003, þannig að ég lagði sjálfa mig niður. Flest okkar sem er- um sviðsstjórar í dag höfum ráðningarsamning áfram við spítalann þó að það sé ekki í þessum stöðum,“ segir Eydís, sem ekki hefur ákveðið hvort hún sækir um. Hefði átt að gera fyrr Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir BYLGJA Kærnested, formaður hjúkrunarráðs, segir ráðið í meg- indráttum styðja þær tillögur sem lagðar hafa verið fram um að sameina svið og fækka sviðsstjórum. Með þeim hætti geti þjónustan orðið skilvirkari og betri. „Við teljum þó mikilvægt að við séum áfram að tryggja gæði og gæta öryggis sjúklinga.“ Hún bendir á að samkvæmt nýju skipuriti verði aukið vægi klínískra stjórnenda og hlutverk hjúkrunarforstjóra breytist. „Við viljum að lög- um verði fylgt um að hjúkrunarforstjóri beri faglega ábyrgð á störfum hjúkrunarfræðinga, sé ráðgefandi og að hlutverk hjúkrunarráðs sé skýrt. Í nýja skipuritinu verða hjúkrunardeildarstjórar með tvo yfirmenn; sviðs- stjóra og hjúkrunarforstjóra. Við höfum af því áhyggjur, ef nýir sviðsstjórar verða ekki hjúkrunarfræðimennt- aðir, að það geti haft neikvæð áhrif á fagleg málefni hjúkrunar,“ segir Bylgja en ráðið vill að allar ráðningar hjúkrunardeildarstjóra og sérfræðinga í hjúkrun verði bornar undir hjúkrunarforstjóra og hjúkrunarráð. Starfslýsingar verði að vera skýrar til að forðast alla árekstra og veita sömu þjónustu. Gæðin verði tryggð Bylgja Kærnested PÁLMI V. Jónsson, sviðsstjóri lækn- inga á öldrunarlækningasviði, segir lykilatriði að öldrunarlækningar séu ein samfelld heild og ekki komi rof í þjónustukeðjuna. Það muni haldast þó að öldrunarlækningar verði hluti af stærri heild, þar sem sviðum fækk- ar. „Ég tel reyndar að öldrunarsviðið hafi reynst vel sem sviðseining. Með breytingunum, sem nú eru í drögum, er verið að aðgreina meira rekstr- armál frá faglegum málum á sviðsþrepinu. Útfærslan neðan við þetta stjórnunarþrep þarf að vera samhæfð og með vel skilgreinda forystu. Þegar sviðin verða svona fá og stór þurfa að koma lausnir sem virka vel fyrir ein- stakar fagdeildir, eins og fyrir öldrunarlækningar. Þá skiptir miklu máli að flutningur á faglegri og rekstr- arlegri ábyrgð niður á þetta deildarþrep heppnist vel og sé í takt við þarfir fólksins sem leitar eftir þjónustunni. Það á eftir að útfæra þennan þátt og því erfitt að meta útkomuna fyrirfram,“ segir Pálmi. Hann vonar að fram- kvæmdastjórar nýrra sviða, sem megi lítið sem ekkert starfa í klínik, fjarlægist ekki klínísku starfsemina. Verði í takt við þarfir Pálmi V. Jónsson Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is G ra fí k a 2 0 0 9 GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA TEPPI FYRIR GISTIHEIMILI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.