Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009 Fyrir örstuttu var það siðurhjá okkur Íslendingum aðvera ekkert að gera of mik- ið veður út af hlutunum. Það var nánast eins og innprentað í inn- anverða höfuðkúpu okkar að lítið þýddi að setja sig upp á móti stjórnvöldum. Engu skipti þótt tveir spjátrungar hér samþykktu yfir skál af Cocoa Puffs að lýsa yf- ir stríði við Fjarkanistan og sak- lausa íbúa þess. Engu skipti þótt prakkararnir á Eldri strákakjarna seldu stóran bita af púsluspilinu Ís- landi til leikskóla í Bandaríkjunum er þýddi að við gætum aldrei sett það heilt saman aftur. Það var ekki fyrr en krakkarnir á leikskól- anum komu til okkar og heimtuðu að við borguðum himinháar nammiskuldir þeirra í sjoppunni að við settum hnefann í borðið og tókum ákvörðun um að fullorðnast örlítið. Við stóðum upp, sungum baráttusöngva og slógum taktinn með pottum og pönnum. Þar til okkur var gert að borga klúðrið þóttu baráttusöngvar hallær- islegir. Nú er öldin önnur. Baráttu- söngurinn hefur öðlast nýtt líf.    Það má því segja að í fyrra hafiXXX Rotweilerhundar og Ólöf Arnalds brotið blað í íslenskri tónlistarsögu. Fyrst hundarnir í aprílmánuði þegar þeir slepptu lausu á netið laginu „Reykjavík/ Belfast“ með hljóðupptökum frá óeirðunum á Suðurlandsvegi er mynduðust þegar lögreglan notaði piparúða til þess að dreifa mann- fjölda þegar atvinnubílstjórar mót- mæltu hækkandi bensínverði. Svo kom Ólöf Arnalds og gaf út lagið „Af stað“ nokkrum dögum fyrir Náttúrutónleikana þar sem hún hitaði upp fyrir Björk og Sig- ur Rós. Bæði þessi lög eiga það sameiginlegt að bera skýran póli- tískan boðskap gegn einhverju ríkjandi ástandi í þjóðfélaginu. Þar með skutust skyndilega upp á yf- irborðið hreinir og ógrímuklæddir baráttusöngvar og 20 ára þagnar- múr, er ungir íslenskir tónlist- armenn höfðu hlaðið utan um sig af einhverum ástæðum, féll. Hið þögla samkomulag heillar kyn- slóðar tónlistarmanna, að taka ekki pólitíska afstöðu í textagerð sinni, var skyndilega ekki lengur við lýði. Í þetta skipti voru það ekki reið- ir anarkistar (lesist: Siggi Pönk) að öskra af hliðarlínunni. Núna var það sama fólkið og tekur við stytt- unum á Íslensku tónlistarverðlaun- unum að öskra á framlínunni … og engum fannst það út úr kú.    Frá því að pönkið rann sittskeið fyrir tæpum þrjátíu ár- um hefur ungu tónlistarfólki á Ís- landi ekki fundist svalt að segja skoðun sína á þjóðmálum í söng- textum. Ástæðurnar eru eflaust margar. Kannski var það ótti við að óvinsælar skoðanirnar gætu dregið úr vinsældum listamanns- ins. Kannski hafði fólk það bara oft gott til að kæra sig um nokk- urn skapaðan hlut? Kannski var ekkert eitt umræðuefni nægilega heitt til þess að andspyrnan gegn því gæti öðlast nægilega fylgni til þess að rata upp á yfirborð popp- menningar?    Kárahnjúkavirkjun gaf loks tón-listarmönnum göfugt yrkis- og baráttuefni. Hin stöðuga varn- arbarátta móðir náttúru gegn maskínunni miklu hafði loksins öðlast skýra birtingarmynd hér á landi. Fyrstu vísbendingar þess að tónlistar og pólitík væru að stefna í árekstur voru líklegast þegar Björk (er hafði aldrei sagt múkk varðandi nein pólitískt málefni) skrifaði grein í Morgunblaðið gegn þá fyrirhuguðum stórfram- kvæmdum við Kárahnjúka og þeg- ar Jón Þór Birgisson, söngvari Sigur Rósar, var leiddur út af lög- reglu úr Ráðhúsinu af opnum fundi borgarstjórnar daginn sem ábyrgð láns fyrir framkvæmdir Landsvirkjunar voru samþykktar. Sigur Rós hefur kosið að leggja sitt á mörkum með ýmiss konar framkomu og uppátækjum en póli- tískar skoðanir þeirra hafa hingað til ekki skilað sér beint inn í tón- listarsköpun þeirra. Björk, gamli pönkarinn, skilaði inn sínum bar- áttusöng í fyrra, þó erfitt sé að syngja með honum.    Erum við að sjá upphafið afnýrri pólitískri bylgju í tón- list? Er mín kynslóð tónlistar- manna og yngri loks reiðubúin til þess að nýta sköpunargáfu sína til þess að reyna að breyta umhverfi sínu með baráttusöngvum? Eða verður Bubbi Morthens ennþá sá eini sem nennir að standa í því eft- ir önnur þrjátíu ár? Lifi byltingin! biggi@mbl.is Lifi baráttusöngvar! AF LISTUM Birgir Örn Steinarsson » Þar með skutustskyndilega upp á yf- irborðið hreinir og ógrímuklæddir baráttu- söngvar og 20 ára þagn- armúr féll. Morgunblaðið/Árni Sæberg XXX Rottweiler Hafa aldrei verið smeykir við að segja skoðun sína á hinu og þessu, en eru nokkuð nýlega byrjaðir að fjalla um þjóðmál. Áður fyrr var gagnrýni þeirra á hitt og þetta gerð meira til gamans, en alvöru. Leikhúsin í landinu www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið - Sala á sýningar í maí hafin) Lau 14/2 kl. 17:00 Ö ath sýn.atíma Sun 15/2 aukas. kl. 16:00 U Fös 20/2 kl. 20:00 U næst síðasta sýn. í vetur Sun 22/2 aukas. kl. 16:00 U Lau 28/2 kl. 17:00 U síðasta sýn. í vetur - ath sýningatíma Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið - sýningum lýkur í vor) Fös 13/2 kl. 20:00 Ö Lau 21/2 kl. 17:00 U Fös 27/2 kl. 20:00 U Lau 7/3 kl. 16:00 U Fös 13/3 kl. 20:00 U Lau 14/3 kl. 16:00 U Fim 19/3 kl. 20:00 Ö Lau 21/3 kl. 16:00 U Fim 26/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 16:00 Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið Íslenska óperan 511 4200 | midasala@opera.is Óperuperlur - Diddú, Bjarni Thor, Sigríður, Ágúst og Antonía Fös 13/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00 Ö Aðeins þessar þrjár sýningar! Hafnarfjarðarleikhúsið 555 2222 | theater@vortex.is Dubbeldusch (Hafnarfjarðarleikhúsið) Fös 13/2 kl. 20:00 U Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Salka Valka (Hafnarfjarðarleikhúsið) Fös 20/2 kl. 20:00 Lau 28/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00 Íslenski dansflokkurinn 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Velkomin heim - Febrúarsýning2009 (Stóra sviðið) Sun 15/2 kl. 20:00 Sun 22/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00 Sun 8/3 kl. 20:00 Iðnó 562 9700 | idno@xnet.is Systur Fös 13/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Dómur Morgunblaðsins Fréttir í tölvupósti Lau 14/2 kl. 19:00 Fös 20/2 kl. 19.00 Lau 7/3 kl. 19:00 Fös 13/3 kl. 19.00 Lau 14/3 kl. 19.00 Sun 22/3 kl. 19.00 Lau 28/3 kl. 19.00 Yfir 130 uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins 2008. Fló á skinni (Stóra sviðið) 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Fös 13/2 kl. 20.00 Lau 14/2 kl. 20.00 Fim 26/2 kl. 20.00 Fös 27/2 kl. 20.00 Lau 28/2 kl. 20.00 Fös 6/3 kl. 20.00 Lau 7/3 kl. 20.00 Sun 8/3 kl. 20.00 Ath! Bannað innan 16 ára. Ekki fyrir viðkvæma. Aðeins sýnt í febrúar og mars. . Fös 13/2 kl. 22:00 aukas. Lau 14/2. kl. 19:00 aukas. Lau 21.2 kl. 19:00 8. kort Lau 21/2 kl. 22:00 aukas. Sun 22/2 kl. 20:00 9. kort Mið 25/2 kl. 20:0010. kort Fim 26/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 19:00 Leiklestrar á verkum Söru Kane. Hreinsun - 17. febrúar. Þrá - 24. febrúar. 4:48 geðtruflun - 3. mars – 1.500 kr. Sannleikurinn, einleikur Péturs Jóhanns (Litla sviðið) Sýningum lýkur í febrúar á vinsælasta söngleik leikársins. Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið) Fös 13/2 kl. 19:00 aukas. Fös 13/2 kl. 22:00 Lau 21/2 kl. 19:00 Lau 21/2 kl. 22:00 síð. sýn.Lau 14/2 kl. 13:00 Lau 21/3 kl. 19.00 Fös 13/3 kl. 20.00 Lau 14/3 kl. 20.00 Sun 15/3 kl. 20.00 Fös 20/2 kl. 22.00 aukas Fös 13/2 kl. 19:00 6. kort Lau 14/2 kl. 22:00 aukas. Sun 15/2 kl. 20:00 aukas. Fös 20/2 kl. 19:00 7. kort Fös 20/2 kl. 22:00 Mið 18/2 kl. 20:00aukas. Fim 19/2 kl. 20:00 aukas. Fös 27/2 kl. 22.00 Lau 28/2 kl. 19.00 Lau 28/2 kl. 22.00 Sun 1/3 kl. 20.00 Fös 13/3 kl. 19.00 Fös 13/3 kl. 22.00 Lau 14/3 kl. 19.00 Milljarðamærin – miðasala hefst 16. febrúar ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Hart í bak (Stóra sviðið) Skoppa og Skrítla í söng-leik (Kúlan) Sumarljós (Stóra sviðið) Heiður (Kassinn) Kardemommubærinn (Stóra sviðið) Fös 13/2 kl. 20:00 Ö Lau 14/2 kl. 20:00 Ö Fim 19/2 kl. 20:00 Ö Lau 28/2 kl. 13:00 Lau 7/3 kl. 13:00 Ö Sun 15/2 kl. 20:00 Ö Lau 14/2 kl. 20:00 Ö Fim 26/2 kl. 20:00 Ö Fös 27/2 kl. 20:00 Fim 5/3 kl. 20:00 aukasýn. Lau 14/3 kl. 13:00 Lau 21/3 kl. 13:00 Ö Fös 20/2 kl. 20:00 Ö Fös 6/3 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Ö Mið 18/3 kl. 20:00 aukasýn. Lau 28/3 kl. 13:00 Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is Sýningum lýkur í mars Örfáar aukasýningar með bestu vinkonum barnanna Síðasta sýning Sýningum að ljúka Sýningar í maí komnar í sölu, sjá www.leikhusid.is Lau 28/2 kl. 20:00 Ö Sun 1/3 kl. 14:00 U Sun 1/3 kl. 17:00 U Lau 7/3 kl. 14:00 U Lau 7/3 kl. 17:00 U Sun 8/3 kl. 14:00 U Sun 8/3 kl. 17:00 U Lau 14/3 kl. 14:00 U Sun 15/3 kl. 14:00 U Sun 15/3 kl. 17:00 U Þri 17/2 kl. 18:00 fors. Ö Mið 18/2 kl. 18.00 fors. Ö Fös 20/2 kl. 18:00 fors. U Lau 21/2 kl. 14:00 frums. U Lau 21/2 kl. 17:00 U Sun 22/2 kl. 14:00 U Sun 22/2 kl. 17:00 U Lau 28/2 kl. 14:00 U Lau 28/2 kl. 17:00 U Lau 21/3 kl. 14:00 U Lau 21/3 kl. 17:00 U Sun 22/3 kl. 14:00 U Sun 22/3 kl. 17:00 U Lau 28/3 kl. 14:00 U Lau 28/3 kl. 17:00 U Sun 29/3 kl. 14:00 U Sun 29/3 kl. 17:00 U Lau 4/4 kl. 14:00 U

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.