Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 36
36 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009 Sudoku Frumstig 4 7 3 7 9 6 1 6 5 9 7 9 1 7 6 5 4 1 9 6 5 2 2 6 5 8 3 9 1 6 3 2 4 5 8 1 6 1 4 9 5 1 6 5 4 8 9 6 7 8 2 7 7 6 1 3 2 4 9 4 7 9 2 6 8 7 9 2 5 4 1 8 6 1 5 2 4 8 3 4 6 5 8 6 3 3 6 6 8 2 9 1 2 3 2 9 8 5 2 4 1 5 4 7 2 3 9 1 6 8 2 9 6 1 4 8 7 3 5 8 3 1 5 6 7 4 2 9 7 8 4 9 2 3 6 5 1 1 6 9 4 8 5 3 7 2 3 2 5 7 1 6 9 8 4 4 5 8 3 7 1 2 9 6 9 7 2 6 5 4 8 1 3 6 1 3 8 9 2 5 4 7 7 4 9 5 2 1 3 6 8 6 8 2 7 9 3 4 1 5 3 5 1 8 4 6 2 9 7 9 2 6 3 5 8 1 7 4 1 7 4 9 6 2 5 8 3 8 3 5 1 7 4 6 2 9 4 1 7 2 3 9 8 5 6 2 9 3 6 8 5 7 4 1 5 6 8 4 1 7 9 3 2 3 7 1 2 8 4 6 5 9 8 2 5 3 6 9 4 1 7 9 6 4 5 1 7 3 8 2 1 3 9 7 4 2 5 6 8 5 8 2 1 9 6 7 3 4 6 4 7 8 3 5 9 2 1 7 5 8 9 2 3 1 4 6 2 9 6 4 5 1 8 7 3 4 1 3 6 7 8 2 9 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. Í dag er föstudagur 13. febrúar, 44. dag- ur ársins 2009 Orð dagsins: Og orð hans býr ekki í yð- ur, því að þér trúið ekki þeim, sem hann sendi. (Jóh. 5, 38.) Víkverja þykir það í meira lagineyðarlegt fyrir þá alþingis- menn sem samþykktu neyðarlög tvö, að Héraðsdómur skuli hafa dæmt hluta þeirra brot á stjórn- arskránni. Og þetta samþykktu menn umsvifalaust, þótt alvarlegar athugasemdir hafi verið gerðar við þetta tiltekna ákvæði, reyndar var það stjórnarandstöðuþingmaður þá, Atli Gíslason VG, sem athugasemd- irnar gerði en enginn hlustaði á hann nema flokkssystkini hans. Meirihlutinn þá, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur, skellti skollaeyr- um við og samþykkti neyðarlög tvö með ákvæðinu og öllu saman. Og er þó ekki hörgull á lögfræðingum í þingmannaliði þessara flokka. Víkverji verður að segja það al- veg eins og er að afsökun um tíma- hrak finnst honum anzi léttvæg. Al- þingismenn verða að vanda lagasmíð sína, hvort sem mikill eða lítill tími er til stefnu, að ekki sé nú talað um þegar stjórnarskráin er annars vegar. Þessi uppákoma með neyðarlögin er ekki til þess fallin að auka veg Alþingis. Hún undirstrikar þvert á móti máttleysi Alþingis gagnvart framkvæmdavaldinu og lætur skína í það að Alþingi sé ekki sjálfstætt löggjafarvald heldur ein- faldlega stimpill til þess að koma málum framkvæmdavaldsins í gegn- um Alþingi. x x x Víkverja barst á dögunum boð ígegnum netið, þar sem honum voru boðin 100 pund, ekki til þess að slá eign sinni á heldur til þess að leika sér með í spilavíti á netinu. Þetta tilboð freistaði Víkverja ekki enda er hann af illri reynslu á móti slíkri spilamennsku. En það er auð- velt að sjá þá falla sem veikir eru. Og þegar 100 pundin eru uppurin er fíknin vakin og menn seilast í eigin vasa, oft með afleitum og sorglegum afleiðingum. x x x Svo var það tónlistarmaðurinnsem hafði samið allt nema við- lagið. Það stóð eitthvað í honum svo hann sótti um styrk úr Viðlagasjóði. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 skrifli, 8 óskertan, 9 óþolinmæði, 10 sár, 11 kjánann, 13 miður, 15 málms, 18 ætla, 21 ílát, 22 setja saman, 23 æpa, 24 sam- komulag. Lóðrétt | 2 dý, 3 hinn, 4 frumeindar, 5 angur, 6 kona, 7 kolla, 12 stór- fljót, 14 skessa, 15 sam- sull, 16 sætta sig við, 17 sorp, 18 alda, 19 ham- ingju, 20 ættmenni. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 sleip, 4 vomar, 7 uglur, 8 lýkur, 9 art, 11 dáða, 13 vala, 14 keyta, 15 haka, 17 reit, 20 fat, 22 pukra, 23 undum, 24 assan, 25 terta. Lóðrétt: 1 skuld, 2 eðlið, 3 pera, 4 volt, 5 mýkja, 6 rorra, 10 reyta, 12 aka, 13 var, 15 hoppa, 16 kökks, 18 eldur, 19 tomma, 20 fann, 21 tukt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. c4 c5 2. Rc3 Rc6 3. g3 Rf6 4. Bg2 g6 5. Rf3 Bg7 6. 0-0 0-0 7. d3 d6 8. a3 Bd7 9. Hb1 Dc8 10. He1 Bh3 11. Bh1 a6 12. Bg5 Be6 13. e4 h6 14. Bd2 Rg4 15. Rd5 Bxd5 16. exd5 Rce5 17. Bc3 Df5 18. He4 b5 19. h3 Rxf3+ 20. Bxf3 Re5 21. Bg2 g5 22. De2 Hab8 23. Hf1 Rg6 24. f4 gxf4. Staðan kom upp á Meistaramóti Taflfélagsins Hellis sem stendur yfir í húsakynnum félagsins Álfabakka 14a í Mjóddinni. Davíð Ólafsson (2.319) hafði hvítt gegn Gunnari Björnssyni (2.153). 25. Hexf4! Dd7? Það var nauð- synlegt að þiggja skiptamunsfórnina þó að staða svarts hefði einnig orðið þá erfið. Í framhaldinu vinnur hvítur örugglega: 26. Hg4 Bxc3 27. bxc3 Kh7 28. Be4! De8 29. h4 h5 30. Hg5 Kg7 31. Dxh5 e6 32. Hxf7+! Hxf7 33. Hxg6+ Kf8 34. Dh6+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Fimmti tígullinn. Norður ♠K104 ♥K4 ♦ÁK1084 ♣753 Vestur Austur ♠DG96 ♠732 ♥D10865 ♥Á72 ♦72 ♦963 ♣ÁG ♣9642 Suður ♠Á85 ♥G93 ♦DG5 ♣KD108 Suður spilar 3G. Vestur kemur út með ♥6 (fjórða hæsta) og vörnin brýtur litinn í einu höggi – smátt úr borði, austur tekur á ásinn og spilar ♥7 á kóng blinds. Sagnhafi sér átta slagi og lætur sér ef til vill detta í hug að spila lúmsku laufi úr borði. Vonin er þá sú að austur sofi á verðinum og dúkki með ásinn, eða þá að hjartað brotni 4-4. Hvorugt er líklegt til að rætast. Eins og vörnin spilar virðist hjartað liggja 5-3, og austur má vera meira en lítið sofandi að dúkka ef hann á laufásinn. Betri hugmynd er að reikna með laufásnum hjá útspilaranum ásamt með litlu hjón- unum í spaða. Þá þolir vestur illa þrýstinginn af fimmta tíglinum. Sem- sagt, sagnhafi tekur strax tígulslagina. Vestur hendir einum spaða og lauf- gosa, en fimmti tígullinn er meira en vestur þolir. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er eitthvað á seyði í kringum þig. Ef þú vilt að þér verði eitthvað úr verki þarftu að halda þig við raunveru- leikann. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er enginn heimsendir þótt þú fáir ekki allt það út úr samstarfs- mönnum þínum sem þú vilt. Forðastu að gagnrýna vinnufélaga þína og það sem þeir eru að gera. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er engin ástæða til þess að láta smáatriði standa í veginum fyrir því að tilskilinn árangur náist. Þú munt njóta árangurs erfiðis þíns í dagslok. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er í góðu lagi að gera áætl- anir og vera stórhuga, ef þú bara gætir þess að hafa báða fætur á jörðunni. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Reyndu ekki að byrgja tilfinning- arnar inni. Léttur og opinn tjáning- armáti frelsar þig og fær þig til að gera vel. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Gættu þín að láta engan misnota tilfinningar þínar hvort heldur um er að ræða vini og vandamenn eða aðra. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Tækifærin bíða þín í hrönnum ef þú aðeins opnar augun og ert tilbúinn að vinna með öðrum. Kýldu á það jafnvel þótt þú sért ekki viss. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú verður upp fyrir haus í vinnu í dag. En það ríður á að þú haldir haus og standir uppréttur. Að öðrum kosti skaltu bara bíða næsta tækifæris. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Eldmóður skiptir öllu máli þegar hvetja skal áfram liðið þitt. Inni- byrgðar tilfinningar eiga til að leita út með slæmum hætti, þegar síst varir. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er ekki nóg að sjá bara hinar breiðu línur því einnig þarf að skyggnast undir yfirborðið eftir smáat- riðunum. Reyndu að gæta þess að láta ekki útgjöldin fara úr hófi. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú kemst ekki hjá því að vinna ákveðið verkefni í samstarfi við aðra. Ekki af því að þín bíði verðlaun, heldur er þér það eðlislægt. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Bjóddu fólki heim til þín og njóttu góðra stunda í félagi við fjölskylduna. Leitaðu tækifæra til að láta gott af þér leiða. Stjörnuspá 13. febrúar 1942 Átján breskir hermenn drukknuðu í Hrútafirði, skammt frá Borðeyri, þegar tveir prammar sukku. Sex mönnum var bjargað. 13. febrúar 1945 Jóhannes S. Kjarval opnaði málverkasýningu í Lista- mannaskálanum í Reykjavík. Það þótti tíðindum sæta að flestar myndanna seldust á fyrstu klukkustundinni. 13. febrúar 1982 Hitaveita Akraness og Borg- arfjarðar var formlega tekin í notkun. Aðveituæðarnar eru þær lengstu á Íslandi, um 75 kílómetrar. 13. febrúar 1983 Loftsteinn féll í sjóinn austur af landinu á níunda tímanum um kvöldið. Birti víða um aust- anvert landið þegar steinninn þaut með miklum hraða um himinhvolfið. 13. febrúar 2001 Lag Bjarkar, Sjón og Lars von Trier „I’ve seen it all“ úr Myrkradansaranum var til- nefnt til Óskarsverðlauna sem besta sönglag í kvikmynd. Björk flutti lagið á hátíðinni en hlaut ekki verðlaunin. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „ÞETTA er nánast eins og hver annar dagur,“ segir Sveinn Ívarsson arkitekt sem er 55 ára í dag og hyggst fara austur í sumarbústað með frúnni. Hann segist almennt ekki hafa gert mikið á af- mælisdaginn undanfarin ár og að það hafi þurft að minna sig á þennan. Undantekningin var fimmtugsafmælið sem Sveinn hélt upp á með ferð til Flórída. „Ég gerði það sem fólk gerir við slík tímamót. Fann dýrasta hótelið hjá ferðaskrifstofunni sem var á Coconut Grove fyrir sunnan Miami Beach. Þá var þar mikil listahátíð í gangi og hafði drifið að listamenn og handverksmenn frá gjörvöllum Bandaríkjunum. Þeir höfðust við í tjöldum eftir ströndinni og í bænum öllum. Það var mikil upplifun,“ segir Sveinn. Hann segist vera mikill mótormaður og keyri um á Har- ley Davidson-hjóli. „Ég fékk þó ekki að fara til Daytona sem er mekka mótormanna,“ segir hann hlæjandi. Sveinn er innfæddur Kópavogsbúi og hvert afmæli var stórafmæli þegar hann var að alast upp. Þá var allri ættinni boðið sem og vinum og krökkum úr hverfinu. „Þetta hefur breyst með árunum,“ segir hann. Sveinn Ívarsson arkitekt 55 ára Ekki til Daytona Nýirborgarar Danmörk Josephine Hulda fæddist 20. ágúst kl. 12. Hún vó 3.512 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru dr. Jennifer Ann Kricker og dr. Páll Melsted Ríkharðsson. Svíþjóð Isak Arn fæddist 5. september kl. 14.21. Hann vó 2.920 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Aldís G. Rosen- lund og Rickard Dan Magnus Rosenlund. Reykjavík Davíð Frank fæddist 9. júlí kl. 0.51. Hann vó 4.140 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Ragnheiður Hulda Hjaltalín og Guðni Níels Aðalsteinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.