Morgunblaðið - 05.03.2009, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2009
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Þ
egar innvígðir ræða um Watchmen
Alan Moores er það gert af ótak-
markaðri aðdáun og lotningu. Fólk
fer á flug, líkt og þegar menn spjalla
um Pet Sounds Beach Boys, Sjálf-
stætt fólk Laxness eða Guernicu Picassos. Það
varð enda ljóst þegar Watchmen hóf að koma út
árið 1986 að blað hafði verið brotið í myndasögu-
menningunni líkt og í hinum listgeirunum.
Watchmen reyndist vera
tímamótaverk, djúp og út-
pæld saga sem stendur jafn-
fætis hvaða „venjulega“
skáldverki sem er. Á einni
nóttu varð myndasagan að
listformi fyrir fullorðna og
erfitt er að kalla lestur á
Watchmen afþreyingu, slík
er vigtin, táknfræðin og þétt-
ofinn söguþráðurinn.
Sagan var hlaðin lofi og
það segir sitthvað um hversu
vel hún er metin að árið 2005
valdi Time hana eina af hundrað bestu ensku-
mælandi skáldsögum árabilsins 1923-2005. Var
hún eina myndasagan á listanum.
Á hvolf
Sagan gerist árið 1985. Bandaríkjamenn höfðu
sigur í Víetnamstríðinu og Nixon er enn sitjandi
forseti. Kalda stríðið er afar kalt og ekki nema
örlítið rask getur hleypt öllu í bál og brand í sam-
skiptum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Í
þessum heimi eru ofurmennin raunveruleg og til-
vist þeirra hefur haft allnokkuð með þessa þróun
mála að gera. Í upphafi sögu finnst eitt þeirra,
The Comedian, myrt en það tilheyrði eitt sinn
hópnum Crimebusters. Meðlimir hópsins voru
hættir störfum en þessi voveiflegi atburður verð-
ur til þess að þau leita hvort annað uppi og skella
sér í gallana á nýjan leik. Upphefst atburðarás
með ógrynni af hliðarvinklum þar sem lagt er í
djúpsjávarkönnun á sálarlífi ofurmennanna og
ástandi hins vestræna heims. Lesendur mynda-
sagna voru sem í losti eftir lesturinn og Moore,
ásamt teiknaranum Dave Gibbons og lithöfund-
inum John Higgins, sneri heimi myndasagna á
hvolf.
Langt og strangt
Og nú er komið að því óhjákvæmilega. Því
ekkert virðist sleppa undan krumlum misviturra
mógúla í Hollywood og hefur myndasögum mis-
kunnarlaust verið umbreytt í kvikmyndir og það
með æði misjöfnum árangri.
Kvikmyndunarsaga Watchmen er löng og
ströng en rétturinn var tryggður sama ár og
fyrstu sögurnar komu út. Ofurframleiðandinn
Joel Silver kom að málum í upphafi og einhverju
sinni átti Terry Gilliam að leikstýra. Og Arnold
Schwarzenegger að leika! Myndin fór svo enda-
lausa hringi um rangala Hollywood og á einum
tímapunkti lýsti Gilliam því yfir að sagan væri
ókvikmyndunarhæf og talaði þar efalaust fyrir
marga.
Á endanum var leitað til Zack Snyder, en mó-
gúlarnir voru afar hrifnir af 300, mynd byggðri á
sögu eftir annan myndasögujöfur, Frank Miller
(Batman: The Dark Knight Returns, Sin City).
Haglega ofið
Þess ber að geta að Alan Moore sjálfur hefur
ekki skipt sér af ferlinu. Í blábyrjun var hann já-
kvæður en skipti um skoðun þegar hann sá full-
unnið handrit. Hann sagði við Gilliam á sínum
tíma að sagan væri ekki kvikmyndunarhæf. Sag-
an hefði þvert á móti verið gerð, m.a. til að sýna
fram á hvað hægt væri að gera í myndasögu sem
ekki væri hægt að gera í kvikmyndum eða bók-
um. Moore hefur þá lýst því yfir að hann hyggist
ekki sjá myndina.
Hvað sem þessum hefðbundnu hártogunum
líður verður í öllu falli áhugavert að sjá hvernig
hið níðþunga og haglega ofna listaverk sem
Watchmen er fellir sig að þeim söluvænlega af-
þreyingaramma sem er hvað oftast uppi á borð-
um í Hollywood. Gerast ekki galdrarnir einmitt í
bíóhúsunum?
Hið hárfína jafnvægi
Kvikmyndin Watchmen, byggð á myndasögu Alan Moore, verður frumsýnd á morgun
Mesta þrekvirki myndasagnanna fyrr og síðar og aðdáendur með lífið í lúkunum
Stund milli stríða Ozymandias og The Comedian glugga í blöðin. Lagt er í djúpsjávarkönnun á sálarlífi ofurmenna í Watchmen.
» Það er erfitt að kalla lesturá Watchmen afþreyingu,
slík er vigtin, táknfræðin og
þéttofinn söguþráðurinn.
Meistaraverk
Kápa Watchmen
safnrits frá 1995.
JAFNAN verður mikið upp-
hlaup á meðal aðdáenda upp-
runalegu myndasagnanna
þegar þeir sjá sitt hjart-
fólgna verk í kvikmyndalíki.
Almennir bíógestir sem ekki
hafa neitt að miða við eru þá
jafnan sáttari, skiljanlega.
Alan Moore þykir hafa lent
nokkuð illa í því að þessu
leytinu til. The League of
Extraordinary Gentlemen
þótti afleit og sömuleiðis
From Hell og Constantine. V
for Vendetta er hins vegar
umdeild, sumir segja hana
snilld, aðrir hörmung.
Öðru máli gegnir um lags-
bróður hans, Frank Miller.
Hinir strangtrúuðu eru
reyndar lítt hrifnir af 300 en
almenningur lapti hana upp.
Teiknimyndalegt of-
urraunsæið þótti virka vel. Í
Dark Knight var þá hárfínn
tónn sleginn, hasarmynda-
formið glæsilega sameinað
dökkri, listrænni áferð.
Mestur er árangurinn þó í
Sin City, sem var tekin
traustatökum af Robert Rod-
riguez. Mögnuð mynd og
þessi glúrna leið sem Rod-
riguez valdi meistaralega
fetuð.
Af blaðsíðunum í bíóið
Best? Bruce Willis í hlutverki sínu sem Hartigan í Sin City.
Yfirfærsla
myndasagna á
hvíta tjaldið
hefur verið
með misjöfn-
um hætti
OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
DANIEL CRAIG ER MAGNAÐUR
Í HLUTVERKI SÍNU
SEM ANDSPYRNUFORINGI
Í SÍÐARI HEIMSTYRJÖLDINNI.
ÓTRÚLEG SAGA BYGGÐ
Á SÖNNUM ATBURÐUM
ALLT SEM HÚN ÞRÁÐI
VAR BARA SMÁYFIRDRÁTTUR
NÝ VINNA? VONANDI
NÝR UNNUSTI? KANNSKI
NÝTT VESKI? ALGJÖRLEGA!
91/100
ENTERTAINMENT
WEEKLY
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA,SÝND MEÐ ÍSLE
NSKU TALI
BYGGT Á METSÖLUBÓKINNI
A JERRY BRUCKHEIMER PRODUCTION
FRÁ LEIKSTJÓRATHE LAST
SAMURAI OG BLOOD DIAMOND
TILNEFNDTIL ÓSKARSVERÐLAUNA
13
M.A.
BESTA MYND
BESTI LEIKSTJÓRI -
D. FINCHER
BESTI LEIKARI -
BRAD PITT
BESTA HANDRIT
WALL STREET JOURNAL
100/100
TIME
100/100
TOMMI - KVIKMYNDIR.IS- S.V. ,MBL. - L.I.B.,TOPP5.IS UNDIRBÚÐU ÞIG UNDIR
SVEFNLAUSAR NÆTUR
ÞVÍ HANN HLÍFIR ENGUM.
ATH. ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
HRIKALEGASTI FJÖLDAMORÐINGI
SÖGUNNAR ER KOMINN AFTUR!
MAÐURINN MEÐ HOKKÍ GRÍMUNA
– JASON!
KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!
SHOPAHOLIC kl. 8 LEYFÐ
DEFIANCE kl. 8 B.i. 16 ára
SHOPAHOLIC kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
BRIDE WARS kl. 8 LEYFÐ
FRIDAY THE 13TH kl. 10 B.i. 16 ára
SHOPAHOLIC kl. 8 - 10:20 LEYFÐ
VILLTU VINNA ... kl. 8 B.i. 12 ára
FRIDAY 13TH kl. 10:20 B.i. 16 ára
KRINGLUNNI AKUREYRI SELFOSSIKEFLAVÍK
SHOPAHOLIC kl. 6D - 8:10D - 10:20D LEYFÐ DIGITAL
DEFIANCE kl. 8D - 10:40D B.i. 16 ára DIGITAL
BENJAMIN BUTTON kl. 7 - 10:10 B.i. 7 ára
BLOODY VELENTINE kl. 63D B.i. 16 ára 3D - D
SHOPAHOLIC kl. 5:50D - 8D - 10:20D LEYFÐ D
SHOPAHOLIC kl. 5:50 - 8 - 10:20 VIP
DESPEREAUX ísl. tal kl. 5:50 LEYFÐ
DEFIANCE kl. 5:50 - 8:30 B.i. 16 ára
FRIDAY THE 13TH kl. 10:20 B.i. 16 ára
CHIHUAHUA ísl. tal kl. 5:50 LEYFÐ
BENJAMIN BUTTON kl. 8:30 B.i. 7 ára
ROLE MODELS kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
BEDTIME STORIES kl. 5:50 LEYFÐ
YES MAN kl. 8 B.i. 7 ára
ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI,
SÝND
MEÐ ÍS
LENSK
U
OG EN
SKU T
ALI
HANN ELSKAR
ATHYGLI
HANN ER
RÓMANTÍSKUR
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!SÝND Í ÁLFABAKKA
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!SÝND Í ÁLFABAKKA
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
PREMIERE NEWYORK POST
SÝND Í KRINGLUNNI
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!
SAMbio.is
Reykjavík • Akureyri • Keflavík • Selfoss
“Sagan af hugprúðu músinni
Desperaux er ljúf og lágstemmd
og hentar flestum aldurshópum”
- S.V., MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA