Morgunblaðið - 05.03.2009, Blaðsíða 38
kemur saman á ný húsbandið úr Sindrabæ en það kallar sig nú
Blúsvíkingana. Þar eru gömlu kempurnar Sæmi Harðar, Óskar
Guðna og Baggi Meysa auk unglinganna Bjössa Gylfa og Bjössa
Viðars. Þá eru ótaldir feðgarnir Guðmundur og Örn Elías sem
betur eru þekktir sem Mugison og Papa Mug. Að sjálfsögðu
verður blúsdjamm á hátíðinni þar sem allir geta fengið að
taka í hljóðfæri eða syngja en oft hefur myndast einstök
djamm-stemning á Norðurljósablús.
Það er hornfirska skemmtifélagið
hefur veg og vanda af Norður-
ljósablús í samstarfi við veit-
ingamenn og ferðaþjónustufólk á
Hornafirði.
HORNFIRÐINGAR hafa hingað til ekki verið þekktir fyrir að vera
blúsaðri en aðrir Íslendingar en hafi sú verið raunin má færa rök fyrir
því að restin af þjóðinni hafi nú loksins náð í skottið á þeim. Með sömu
rökum má svo halda því fram að þjóðin hafi aldrei átt jafnmikið erindi
á blúshátíð Hornafjarðar sem hefst á morgun og stendur yfir alla
helgina. Hátíðin, sem kallast Norðurljósablús, er haldin í
fjórða sinn og fer fram á Hótel Höfn. Þar fyrir utan verða
blústónleikar samtímis á tveimur stöðum í bænum; Kaffi
Horninu og Veitingahúsinu Víkinni. Sveitirnar sem
koma fram á hátíðinni eru af margvíslegum toga en
þessar eru helstar: B-Sig frá Reykjavík, Guðgeir
Björnsson ásamt hljómsveit frá Egilsstöðum, Pitch-
fork Rebellion frá Húsavík og Vax frá Egilsstöðum.
Tvö hornfirsk bönd leika á hátíðinni, Mæðusveitin
Sigurbjörn og Hulda Rós og rökkurbandið. Einnig
38 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2009
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA gerðist eiginlega óvart, ég
og tónlistarstjórinn minn vorum að
spjalla við framkvæmdastjóra
KFUM og fórum að tala um þessa
sýningu. Við laumuðum því að henni
að okkur langaði að setja þetta upp,
og hún bara gleypti það á staðnum.
Stuttu seinna vorum við farin á
fullt,“ segir Rakel Brynjólfsdóttir,
leikstjóri rokkóperunnar !Hero sem
verður frumsýnd í Loftkastalanum
annað kvöld. Það er Kristilegt félag
ungra manna og kvenna á Íslandi
sem stendur að uppfærslunni sem er
því á nokkuð kristilegum nótum.
„Það má segja að þetta sé Brook-
lyn-útgáfan af Jesus Christ Superst-
ar, í sögunni er stiklað á atburð-
unum sem gerðust í guðspjallinu.
Þannig að það er tvímælalaust
kristilegur boðskapur í þessu,“ segir
Rakel.
Allir gefa vinnu sína
Verkið er eftir Bandaríkjamenn-
ina Eddie DeGarmo og Bob Farrell
og var frumsýnt árið 2003. Nafn
verksins vekur óneitanlega athygli,
þá sérstaklega fyrir upphróp-
unarmerkið í upphafi þess. „Upp-
hrópunarmerkið er svolítið eins og
krossinn því í verkinu er Hero, eða
Jesús, ekki krossfestur heldur er
hann laminn til bana í lokin. Þannig
að þetta var þeirra lausn þarna úti,
að nota annað tákn,“ útskýrir Rakel.
„Þetta gerist annars í Brooklyn í
New York, og gerist í heimi þar sem
Jesús hefur aldrei lifað. En það fæð-
ist drengur sem heitir Hero sem elst
þarna upp, og smám saman gerir
hann sér grein fyrir sínu hlutverki í
lífinu, að boða þetta fagnaðarerindi.
En yfirvöld í heiminum fara að
skipta sér af þegar einhver maður
ætlar að koma og troða einhverri
„vitleysu“ inn í höfuðið á fólkinu,“
segir Rakel.
Um mjög stóra uppfærslu er að
ræða – alls koma um 70 manns að
sýningunni, en þar á meðal eru níu
leikarar, sex manna hljómsveit, 16
dansarar og 20 manna kór. Aðspurð
segir Rakel svona uppfærslu því
vissulega vera dýra. „KFUM og
KFUK ákváðu að leggja pening í
þetta verkefni, en allir sem koma að
því gefa hins vegar vinnu sína. Það
vinna allir fyrir boðskapinn og
ánægjuna, öðruvísi væri þetta ekki
hægt.“
Með titilhlutverkið í sýningunni
fer Sigursveinn Þór Árnason. „Hann
hefur verið hvað þekktastur fyrir að
hafa verið í Luxor, auk þess sem
hann er giftur Regínu Ósk söng-
konu,“ segir Rakel en meðal annarra
sem koma fram í sýningunni má
nefna rapparana Poetrix og Dabba
T. „Þetta er mjög sérstök rokkópera
að því leyti að tónlistarsviðið er mjög
breitt, við förum úr rokki yfir í rapp
og popp og svo eru fallegar melódíur
inn á milli.“
!Hero verður frumsýnt kl. 20 ann-
að kvöld, en að sögn Rakelar er
stefnt að fjórum sýningum til að
byrja með. „Sala gengur mjög vel,
þannig að við erum bæði þakklát og
bjartsýn,“ segir hún.
Jesús Kristur í Brooklyn
KFUM og KFUK frumsýna rokkóperuna !Hero í Loftkastalanum annað kvöld
Um 70 manns koma að sýningunni, m.a. leikarar, dansarar, kór og hljómsveit
Morgunblaðið/Kristinn
Hetjusaga Sigursveinn Þór Árnason (Hero) og Sigurður Ingimarsson (Kai) í hlutverkum sínum í !Hero.
Miðasala fer fram á midi.is. Allar
nánari upplýsingar eru á hero.is.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VIÐ ætlum að gera þetta að vínbar
sem hefur mikið úrval af rauðu og
hvítu sem verður selt í fallegum
glösum,“ segir Garðar Kjartansson
veitingamaður sem er einn þeirra
sem standa að nýjum veitingastað,
Pósthúsinu – vínbar, sem verður
opnaður annað kvöld. Staðurinn
verður til húsa í Pósthússtræti 13
þar sem Red Chilli var áður til húsa,
en að sögn Garðars hafa töluverðar
breytingar verið gerðar á húsnæð-
inu.
„Við verðum með marga tugi
gerða af vínum,“ segir Garðar sem
telur heilmikinn grundvöll fyrir stað
sem þennan, þrátt fyrir erfitt ástand
í efnahagslífinu. „Rauðvínsglas kost-
ar til dæmis frá 900 upp í 1.300 krón-
ur, en svo er auðvitað hægt að kaupa
flöskur fyrir meira,“ útskýrir hann.
Beggi og Pacas í eldhúsið?
Til að byrja með verður staðurinn
opinn á fimmtudögum frá kl. 17 til 1
og á föstudögum og laugardögum
frá kl. 17 til 3. Að sögn Garðars verð-
ur ekki um skemmtistað að ræða.
„Tónlistin verður t.d. stillt fyrir 30
ára og eldri, og verður ekki hávær.“
Með vorinu er svo stefnt að því að
opna eldhúsið. „Við ætlum að vera
með ódýran mat og höfum verið í
viðræðum við þá Begga og Pacas um
að þeir taki að sér eldhúsið.“
Athygli vekur að staðurinn er
nánast við hliðina á öðrum stað með
svipaðar áherslur, Vínbarnum við
Kirkjutorg.
„En þetta er ekkert til höfuðs
honum, við erum með aðrar
áherslur,“ segir Garðar. „Við ætlum
til dæmis að vera með mat, auk þess
sem útlitið á staðnum verður öðru-
vísi. Við erum að fara úr þessu
svarta og hvíta, sem er svo mikið
2007, yfir í heimilislegri liti, brúnt,
rautt og svona. Við viljum hafa þetta
hlýlegt.“
Pósthúsið – vínbar verður opn-
aður með lokuðu einkasamkvæmi
frá kl. 20 til 23 annað kvöld, en svo
verður opið fyrir almenning frá kl.
23 til 3.
Svart/hvítt er svo mikið 2007
Morgunblaðið/Heiddi
Á barnum Eigendurnir Sveinn Eyland og Garðar við hinn nýja bar.
Pósthúsið – vínbar opnaður í Pósthússtræti annað kvöld
Með aðalhlutverkin fara þau
Sigursveinn Þór Árnason, Eirík-
ur Hilmar Rafnsson, Þorleifur
Einarsson, Ingunn Huld Sævars-
dóttir, María Magnúsdóttir, Pét-
ur Hrafnsson, Sigurður Ingi-
marsson, Sævar Daníel
Kolandavelu (Poetrix) og Davíð
Tómas Tómasson (Dabbi T.).
Tónlistarstjóri er Jóhann Axel
Schram Reed og um dans og
sviðshreyfingar sér Petra Pét-
ursdóttir.
Rokkóperan !Hero
FólkPapa Mug og sonur spila á Norðurljósablús
Mugison Lögin hans eiga mörg hver mikið að
þakka blúsnum, og vísa í hann á ýmsan hátt. Önnur plata tónlistarkonunnarLay Low, Farewell Good Night’s
Sleep, fær sæmilega dóma í nýjasta
hefti hins virta breska tónlistar-
tímarits NME, New Musical Ex-
press. Gagnrýnandinn, Rebecca
Robinson, gefur plötunni einkunnina
6 af 10 og segir meðal annars: „Það
er eitthvað hálfóáþreifanlegt við
þessa íslensku blöndu af ástríðu-
fullri sálartónlist í anda sjöunda ára-
tugarins og þreifingum í átt að
sveitalubbatónlist, en tónlistin er
samt sem áður mjög hlustendavæn á
nokkuð pirrandi hátt. Hún er eins og
útþynnt blanda af Candie Payne og
Lykke Li, og minnir jafnvel á Dusty
Springfield í stórmarkaði að tala við
sjálfa sig um að kaupa brauð. Platan
er einmanaleg og sorgleg frá upp-
hafi til enda, en samt svo fjölbreytt.
Fólk ætti ekki að hlusta á hana á
sama tíma og það er að stjórna
vinnuvélum. Og svo eiga strákar
ekki að hlusta á hana,“ skrifar gagn-
rýnandinn. Svo mörg voru þau orð!
Ekki stjórna vinnuvél
og hlusta á Lay Low
Fréttagáttir á netinu hafa
sprottið upp eins og gorkúlur und-
anfarið og nú síðast bættist Press-
an í ritstjórn Björns Inga Hrafns-
sonar við flóruna. Ekki er hægt að
segja að vefurinn komi inn með
látum en það er vonandi að hún
geri sig með tímanum gildandi í
þjóðmálaumræðunni og stuðli
þannig að aukinni lýðræðislegri
umræðu í landinu. Eyjan er lík-
lega enn vinsælasta fréttagáttin
en þar hlýtur bloggsíða Egils
Helgasonar að vega þungt því
sjálfstæð fréttaöflun Eyjunnar hef-
ur ekki verið upp á marga fiska
undanfarið. Hins vegar hefur
Eyjan verið dugleg við að bæta á
sig bloggblómum og varla líður sú
vika að nýr Eyju-bloggari sé ekki
kynntur til leiks. Sá löstur er hins
vegar á að meirihluti þeirra er
stjórnmálamenn í bullandi kosn-
ingabaráttu og því varla til þess
fallið að auka lestur á síðunni.
Pólitíkusar gera
strandhögg á Eyjunni